Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 Rust lýsir ferðinni tfl Rauða torgsins Lundúnum, Reuter. '■ VESTUR-Þjóðveijinn Mathias Rust, sem lenti flugvél sinni ná- lægt Rauða torginu í Moskvu, segir að sovésk MiG-orrustuþota hafi komið svo nálægt sér á leið- inni til Moskvu að hann hafi get- að séð andlit flugmannanna, að því er breska dagblaðið Mail skýrði frá á sunnudag. I viðtali við dagblaðið lýsir Rust hvemig orrustuþotan hafi farið tvo hringi kringum Cessna-vélina innan sovéskrar lofthelgi. „Þá varð ég virkilega hræddur. MiG-þotan kom svo nálægt að ég gat séð andlit flug- mannanna. Ég gat alveg eins búist við að næst kæmi stýriflaug," segir Rust í viðtalinu. „Eg hefði fylgt þeim ef ég hefði verið beðinn um það. En þeir skoðuðu vélina aðeins tvisvar og sneru síðan við.“ Tilgangurinn með flugferðinni til Moskvu var að færa Sovétmönnum og leiðtoga þeirra, Míkhaíl Gorb- atsjov, áætlun um útópískt sam- félag sem Rust nefnir „Langonia". „Eg átti mér þann draum að Gorb- atsjov læsi hana, en ég veit ekki hvort hann hefur gert það,“ segir Rust. Hann segir ennfremur að lög- fræðingur sinn hafi sagt áður en hann hafi yfirgefið Moskvu: „Þú ert alltaf hjartanlega velkominn til Rússlands. En gerðu það fyrir, mig að koma næst með Airoflot." FAO réttir úr kútnum; Bretar og Japanar greiða ársgjöld sín greiddu Bretar og Japanar helm- inginn af þeirri upphæð sem hvorri þjóð ber að greiða til stofnunarinnar á þessu ári; Bret- ar sjö milljónir Bandarikjadala og Japanar 14 milljónir. Banda- rikin, sem neitað hafa að greiða til stofnunarinnar um hríð vegna deilna um fjárhagsáætlun henn- ar, greiddu 25 milljónir dala í lok júlí. Ýmis af þeim ríkjum, sem greiða einna mest til FAO, hafa verið óán- ægð með fjárhagsáætlanir stofnun- arinnar og viljað hafa meiri áhrif á skiptingu Qárins.Áætlunin fyrir 1988 - 1989 nemur tæpum 500 milljónum dala. Á fundi í fjárhags- og áætlunamefnd FAO í maí síðast- liðnum náðist samkomulag um að framkvæmdastjóri stofnunarinnar, Edouard Saouma, hefði framvegis meira samráð við fulltrúa aðild- arrflqanna um fj árhagsáætlunina. Helsta verkefni FAO er sem stendur barátta gegn engisprettu- plágu sem heijar í mörgum ríkjum Norður-Afríku. HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ Fyrsta hraðlestrarnámskeið vetrarins hefst 30. ágúst nk. Námskeiðið hentar öllum sem vilja auka lestrarhraða sinn, hvort heldur er við lestur fagurbókmennta eða námsbóka. Nemendur HRAÐLESTRARSKÓLANS þrefalda að meðaltali lestrarhraða sinn í öllu lesefni. Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091. HRAÐLESTRARSKÓUNN VFSA Róm. Reuter. NOKKUÐ hefur ræst úr fjár- hagsvanda FAO, Matvælastofn- unar Sameinuðu þjóðanna. í júlí Júgóslavía: Enn óeirðir í Kosovo-héraði Belgrað. Reuter. YFIRVÖLD öryggismála í Júgó- slavíu segja að ofbeldi Albana i Kosovo-héraði gegn Serbum, sem þar búa, auki sífellt á kryt- inn milli þjóðabrotanna. Serbarn- ir hóta að efna til nýrra mót- mæla. í skýrslu innanríkisráðuneytisins, sem sagt var frá á sunnudag, var sagt frá 300 ofbeldisverkum, þ. á m. tveim morðtilraunum og íjórum nauðgunum, á síðustu tveim árum. Serbneskir kommúnistaleiðtogar í Kosovo hafa krafist þess að emb- ættismenn sem þeir segja að hindri lausn á deilunum, verði látnir fjúka. Maki þinn fær 50% afslátt til áfangastaða í Evrópu, að vissum skilyrðum uppfylltum. FLUGLEIDIR -fyrirþíg- 1 Björgunarmenn að störfum í braki jámbrautarlestar á Gare de lEst- stöðinni í París á laugardag. Einn farþegi fórst og 56 slösuðust er lestin rann stjórnlaus á málmstoðir við brautarpall. Forstjóri ríkisjárnbrautanna, Philippe Rouvillois (innfellda myndin), sagði af sér á laugardag vegna tíðra járnbrautarslysa að undanförnu. Lestarslys í Frakklandi: Yfirmaður ríkisjárn- brautanna segir af sér EINN maður fórst og 56 slösuðust er járnbrautarlest braust yfir hindranir á Gare de l’Est-brautarstöðinni í París á laugardaginn og lenti á voldugum málmstoðum. Þetta er í annað sinn á sex vikum að fólk týnir lífi í lestarslysi i Frakklandi og forstjóri frönsku ríkisjárnbrautanna, SNCF, afhenti samgöngumálaráðherra landsins uppsögn sína þegar á laugardag. Stéttarfélög starfsmanna járn- brautanna saka yfirvöld um að hafa vanrækt að bæta öryggisvið- búnað hjá fyrirtækinu. Philippe Rouvillois hafði verið forstjóri ríkisjámbrautanna síðan í febrúar. í júní fórust 56 manns er hemlar biluðu í lest sem ók aftan á kyrrstæða lest á Gare de Lyon- stöðinni í París. Michel Delebarre, samgöngumálaráðherra Frakk- lands, sagði á blaðamannafundi nokkrum stundum eftir slysið á laugardag að hevr sem niðurstaða rannsókna á orsökum slyssins yrði þá væri ábyrgðin hjá yfirstjóm SNCF. „Tilviljun kemur þessu hörmulega slysi ekkert við,“ sagði ráðherrann. Eftir slysið í júní hvatti Francois Mitterand Frakklands- forseti til þess að öryggisreglur fyrirtækja, sem önnuðust fólks- flutninga, yrðu hertar til muna. Delebarre sagði að SNCF hefði ekki farið að þessum tilmælum. Forystumenn starfsmanna rikis- jámbrautanna sögðu á-sunnudag að spamaðaraðgerðir yfirstjómar fyrirtækisins hefðu _ grafið undan öryggi farþeganna. Árið 1986 nam tap á rekstri jámbrautanna um 3,9 milljörðum franka (28 milljörðum ísl. kr.) en búist er við að það lækki í 1,5 milljarð (tæpa 11 milljarða ísl.kr.). Fjögurra ára sparnaðará- ætlun, sem nú er framfylgt, gerir ráð fyrir að starfsmönnum verði fækkað um 8000 á ári. „Fyrir fimmtán árum var ákveðið í yfirstjóm SNCF að taka áhættu - þeir töldu að slys myndu kosta þá minna en fækkun starfsfólks. Ef nú er svo komið að lestimar okkar séu orðnar þær hættulegustu í heimi frá því að vera þær bestu í heimi þá er orsökina að fínna í versnandi starfsskilyrðum," sagði reiður starfsmaður við fréttamenn. Fulltrúar stéttarfélags hans sögðu að öryggiseftirliti hefði hrakað og starfsmönnum þess hefði verið fækkað. Yfírstjóm ríkisjámbrau- tanna vísar öllum slíkum ásökunum á bug. Hert á baráttu gegn fram- leiðslu á kjarnavopnum - segir Olafur Ragnar Grímsson í Washington Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Washington. Þingmannasamtök um hnattrænt átak, sem hafa það ofarlega á stefnuskrá sinni, að gangast fyrir því, að gerður verði alþjóðasamn- ingur, sem banni með öllu allar frekari tilraunir og rannsóknir til framleiðslu kjarnavopna hvort heldur er neðanjarðar eða ofan, hef- ur í hyggju að herða sókn sína og gerir sér vonir um, að það muni takast. Ólafur Ragnar Grímsson alþing- ismaður, sem er forseti þingmanna- samtakanna, tilkynnti á blaða- mannafundi, sem haldinn var í Russel-byggingu Bandaríkjaþings á föstudag, að fímm þjóðir, sem ekki framleiða kjarnavopn, Indónesia, Mexíkó, Perú, Sri Lanka og Júgó- slavía, hefðu tilkynnt, að þær myndu fara fram á það við Banda- ríkin, Sovétríkin og Bretland, að boðað verði til alþjóðaráðstefnu til að ræða bann við tilraunum með kjamavopn neðanjarðar. „Við gerum ráð fyrir," sagði Ólafur, „að þegar líður að október getum við búist. við, að 39 þjóðir hafi krafist þess, að slík alþjóða- ráðstefna verði haldin, en þá yrði það skylt og ekki hægt að komast hjá, að kjamorkuveldin boði til ráð- stefnunnar." _ Ólafur Ragnar sat fyrir svörum á blaðamannafundinum sem hald- inn var í tilefni af því, að þann 5. ágúst vom 25 ár liðin frá því, að samningurinn um takmarkað bann gegn tilraunum á kjarnavopnafram- leiðslu var undirritaður í Moskvu. 116 þjóðir hafa ritað undir samn- inginn, sem bannar allar neðanjarð- artilraunir með kjamavopn. En frá því að samningurinn var undirritað- ur hafa risaveldin samtals gert rúm- lega 1.000 neðanjarðartilraunir með kjamavopn og Indland eina tilraun. „Það er vissulega kominn tími til að hefta útbreiðslu lqama- vopna,“ sagði Ólafur Ragnar, „og ekki eingöngu meðal risaveldanna heldur og annarra þjóða, sem gætu gerst meðlimir í kjamavopnaklúbb- num á næstunni." Stuðningoir frá bandarískum þingmönnum Nokkrir kunnir öldungadeild- ar- og fulltrúadeildarþingmenn Bandaríkjaþings tóku til máls á blaðamannafundinum. Meðal þeirra var Paul Simon, öldungadeildar- þingmaður demókrata frá Illinois, sá, ^iem vildi gefa kost á sér til forsetakjörs. Edward Kennedy sendi skriflegt boð til blaðamanna- fundarins og harmaði, að hann gæti ekki komið til fundarins vegna anna í öldungadeildinni, en lýsti stuðningi við frumkvæði þing- mannasamtakanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.