Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 45 Jackson og Thompson í Skyndikynnum. Ástin á tímum eyðninnar Skyndikynni („Casual Sex?“). Sýnd í Laugarásbíói. Bandarísk. Leikstjóri: Genevi- eve Robert. Framleiðandi: Ivan Reitman. Handrit: Wendy Gold- man og Judy Toll. Helstu hlut- verk: Lea Thompson og Victoria Jackson. Bandarísku gamanmyndirnar Sofíð hjá og Skyndikynni („Casual Sex?“), sem sýndar eru í Laugarás- bíói, eru að líkindum fyrstu bíó- myndimar hér sem fjalla nokkuð um breytt kynlífsviðhorf á tímum eyðni. Lea Thompson og Victoria Jack- son leika söguhetjurnar tvær í Skyndikynnum og eru stundum eins og 12 ára, líta út eins og tán- ingar en eiga að vera komnar á fertugsaldurinn og það eina sem þær virðast hafa hugsað um alla æfi er kynlíf. Thompson leikur þá sem hefur jafnmikla reynslu af því og morgunmat en Jackson á heldur aum ástarævintýri að baki. Það var í þá gömlu góðu daga. Þegar sagan hefst eiga þær meira sameiginlegt, þær verða báðar að stunda öruggt kynlíf á þessum síðustu og víðsjálu tímum. Þetta hljómar kannski betur en það sýnist. Myndin er næstum jafn kjánaleg og unglingastjaman Lea Thompson er þegar hún fæst við hlutverk sem hentar 20 ára eldri konu. Handritið gerir alls ekki ráð fyrir lítilli sætri stelpu eins og Thompson („Some Kind of Wond- erful“) í þetta hlutverk og fyrir bragðið verður myndin Skyndi- kynni eins og nýr kafli í sögunni um Heiðu litlu: „Heiða og strákarn- ir.“ Það eina sem aðgreinir þessa mynd frá öðrum grunnhyggnum, bamalega húmorslegum strákar- reyna-við-stelpur gamanmyndum, er að hér fara stelpur með aðal- hlutverkin en ekki strákar og um- ræðan um eyðni er ný í þessu sam- hengi. Því miður ristir umræðan sú grunnt eins og allt annað í myndinni og snýst að mestu leyti um smokkabrandara. Það eina virkilega hlægilega við myndina er stöku aukapersóna og hliðarsaga um íspinnasvalann stór- borgartöffara sem gefur orðinu „leiðinlegur" nýja og ógnvekjandi merkingu. Viðreynslupólitík hans snýst um óþolandi mannalæti og árangurinn er slakur eftir því. En meira að segja hann verður kröf- unni um góðan endi að bráð. Fjölskyldan og „samtökin“ Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Húsið undir tijánum („La maison sous les arbres“/„The Deadly Trap“). Sýnd í Regnboganum. Frönsk/bandarísk. Leikstjóri: Rerié Clément. Handrit: Sidney Buchman gert eftir sögunni „The Children are Gone“ eftir Arthur Cavanaugh. Framleiðandi: Robert Dorfmann. Kvikmyndataka: Maurice Ronet. Helstu hlutverk: Faye Dunaway, Frank Langella, Michele Lourie og Patrick Vincent. Bílaeltingaleikir, skotbardagar, endalaus röð æsispennandi há- punkta, klippingar á sjö sekúndna fresti, hraði, hraði, hraði. Láttu þér ekki leiðast í eina sekúndu. Að sjá bandarísk/franska saka- málamynd eftir franska leikstjór- ann René Clément frá árinu 1971 er að sjá ekkert af þessum þáttum nútíma spennumynda en líklega er maður farinn að venjast þeim of mikið til að meta rólegheitin og kyrrðina í Húsinu undir trjánum („La maison sous les arbres" á frönsku en „The Deadly Trap“ á ensku), sem sýnd er í Regnbogan- um. Að horfa á hana með nútíma- myndimar í huga er eins og að fara úr fjörugum sirkus og horfa á lambakjöt þiðna heima í eldhúsi. En það er ekki öll sagan. Fyrri helmingur Clément-myndarinnar er með eindæmum líflaus og hrein- lega leiðinlegur sama við hvað er miðað og hjálpar þar ekki síst til dáðlaus og daufur leikur Fay Dunaway og sérstaklega Frank Langella sem er einn risastór fylu- púki myndina í gegn. Handritið er líka óskaplega óskýrt í lýsingu á firringunni í hjónabandi þeirra og samtölin á milli þeirra verða lítt áhugavert og mollulegt suð. Clé- ment leikstýrir á svo flatneskjuleg- um, hægum og hljóðlegum nótum — stundum heyrist varla í leikurun- um — og án þess að gefa nokkru atriði vægi fram yfír annað (skemmtilega útfærður bílaárekst- ur sem Dunaway lendir í með böm- unum sínum tveimur hefur jafn- mikla tilfinningalega þýðingu og venjuleg búðarferð) að þegar böm- um hjónanna er rænt gerist það án þess að vekja mann sérstaklega til samúðar. Clément tekst með hógværð sinni að láta manni standa alveg á sama um hvað kemur fyrir bömin og breytir einlægur kvíða- svipur Dunaway litlu þar um. En þetta er fyrri helmingurinn. Þegar loksins myndin fer að rúlla í seinni hálfleik gerist það með dug og krafti sem a.m.k. þeldur manni við efnið. Myndin er samsærisþrill- er um fjölskyldu sem lendir í kúgun aðila sem aldrei eru kallaðir annað en „Samtökin", eins og eitt sinn var mjög í tísku, og vilja að eigin- maðurinn stundi fyrir sig iðnaðar- njósnir. Hann er stærðfræðingur en eiginkonan hans á greinilega við mikla sálræna erfiðleika að etja í upphafi (lýsir sér helst í minnis- leysi), sem stefnir hjónabandi þeirra í hættu, en þeir einhvem veginn leysast uppí veður og vind um miðbik myndarinnar. I einu atriði veit hún ekki hvaða dagur er í dag en í því næsta getur hún grafið upp símanúmer sem hún hafði einu sinni séð. Þegar „Sam- tökin" ræna bömunum þeirra kem- ur lögregluforingi til sögunnar (leikinn frábærlega af Reymond Gerome) sem gerir mikið fyrir myndina. Þá verður myndatakan líka athyglisverðari þegar hún losar sig frá angistarfullum andlitum persónanna og gefur víðari og Frank Langella og Fay Dunaway í Húsinu undir tiján- um. táknrænni mynd af nútímalegum stál- og glerbyggingum sem eiga að hýsa eitthvað eins og „Samtök- in“. Dunaway var að nálgast hátind frægðar sinnar þegar hún lék í Húsinu undir tijánum og Frank Langella var í hópi ungra og efrli- legra. Síðan em liðin mörg ár. Dunaway var fyrir skömmunom- í„Supérgirl“ og Langella var Beinií „HeMan". Bátur dreg- inn í land VÉL bátsins Vals Jónssonar, sem er tíu tonna plastbátur, stöðvaðist á laugardagskvöld. Báturinn var þá staddur 40 mílur norðvestur af Reykjavík og barst Slysavarnafélagi Islands beiðni um aðstoð kl. 22.30. Var báturinn dreginn í land. Að sögn Jóns Hauks Valssonar, sem var einn um borð, varð hann var við að bútar úr rækjutrolli væm flæktir í skrúfu bátsins þegar hann var staddur út af jökli. Það var hins vegar ekki fyrr en á miðjum Faxaflóa sem báturinn stöðvaðist. Að sögn Karels Karelssonar hjá Tilkynningaskyldunni lögðu þrír menn Slysavarnafélagsins af stað á björgunarbátnum Gísla J. Johnsen rétt fyrir kl. 23. Jón Haukur sagði að björgunar- báturinn hefði lagt af stað með bátinn í togi um kl. 5.30 aðfara- nótt sunnudags. Veður hefði verið gott framan af nóttu en á leiðinni heim hefði veður versnað. Heim- förin hefði því gengið hægar en búist hefði verið við. „Ég var vel haldinn en orðinn mjög þreyttur og varð því feginn þegar við komum í land kl. 15 á sunnudag. Ég vil þakka Slysavarnamönnum óeigin- gjarnt starf." Ekki er enn vitað hvort skrúfan hefur skemmst en það mun koma í ljós þegar trollbútamir hafa verið fjarlægðir úr henni. Jón Haukur Valsson hefur atvinnu af hand- færaveiðum og var á veiðum þegar óhappið átti sér stað. Einn þriggja manna frá Slysa- vamafélaginu átti að vera svara- maður við brúðkaup í Reykjavík kl. 14 á' sunnudag. Þar sem ferðin heim gekk hægt var haft samband við Björgunarsveitina Hjálp á Akra- nesi og fór bátur á þeirra vegum til móts við bátana. Var svaramað- ur sóttur og komst hann til Reykjavíkur í tæka tíð. Skutlan er eins og sniöin fyrir nútímafólk. Hún er sparneytin, 5 manna og sérlega létt og lipur í um- feröinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuö af öllum sem til þekkja. * LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr. Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30 mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð að viðbættum verðbótum. Kostnaður vió ryðvörn og skráningu er ekki innifalinn. (Gengisskr. 23.6.88) Mátt þú sjá af 369 krónum á dag?* Ef svo er þá getur þú eignast splunkunýja LANCIA SKUTLU!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.