Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 4

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 Morgunblaðið/Þorkell Iðnaðarráðherra í Reykjaneskjördæmi FRIÐRIK Sophusson iðnaðarráðherra er þessa dagana á yfirreið um Reylq'aneskjördæmi þar sem hann skoð- ar fyrirtæki og fundar með trúnaðarmönnum Sjálf- stæðisflokksins. í gær skoðaði hann fyrirtæki í Garðabæ og Hafnarfírði ásamt Salóme Þorkelsdóttur, þingmanni kjördæmisins, og Áma Ólafí Lárussyni, formanns kjördæmisráðs sjálfstæðismanna. Hér eru þau Friðrik og Salóme í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ ásamt Jóni Gauta Jónssyni, framkvæmda- stjóra sem sýnir þeim líkan af nýrri tegund báts, sem er þar í hönnun. Báturinn, sem er kallaður Sæfleyg- ur,á að geta náð miklum hraða, þótt vont sé í sjóinn. VEÐUR ÍDAGkl. 12.00:' ' f Heimild: Veöurstofa íslands / / / / (Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFURíDAG, 9. ÁGÚST1988 YFIRLIT í GÆR: Um 700 km suður af Reykjanesi er 977 mb lægö sem þokast norðvestur, en austur við Noreg er 1023ja mb hæð. Hiti breytist fremur lítið. SPÁ: Suðaustanátt, víða nokkuð hvöss. Rigning í flestum lands- hlutum, þó einkum um sunnanvert landið. Vel hlýtt miðað við árstíma, víða 13—18 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Austlæg átt og fremur hlýtt. Skýjað um allt land og dálítil rigning sunnanlands og austan. HORFUR Á FIMMTUDAGtVindur fer að snúast til norðaustur-áttar og kólnar lítið eitt norðanlands. Rigning á Austurlandi og á stöku stað á Norðurlandi en skúrir sunnanlands. TÁKN: Q Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -j Q Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir « * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur [7 Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hiti 15 13 veAur alskýjað rignlng Bergen 19 léttskýjað Helsinki 19 úrkoma Kaupmannah. 21 þoka Narssarssuaq 8 skýjað Nuuk 6 alskýjað Ósló 22 léttskýjað Stokkhólmur 21 skýjað Þórshöfn 11 súld Algarve 28 heiðskírt Amsterdam 23 léttskýjað Barcelona 28 heiðskírt Chicago 26 mistur Feneyjar 29 heiðskírt Frankfurt 29 skýjað Glasgow 26 skýjað Hamborg 22 hálfskýjað Las Palmas 25 léttskýjað London 24 mistur Los Angeles 17 léttskýjað Lúxemborg 26 léttskýjað Madríd 32 heiðsklrt Malaga 27 mistur Mallorca 30 þokumóða Montreal 21 léttskýjað New York 25 léttskýjað Parfs 28 1 i Róm 29 léttskýjað San Diego 19 alskýjað Winnipeg 10 léttskýjað Endurgreiðir ríkis- sjóði bætur vegna rangrar meðferðar DÓMSÁTT hefur verið gerð fyrir Borgardómi Reykjavíkur þar sem læknir fellst á að endurgreiða rikissjóði bætur að núvirði um 3 millj- ónir króna, sem ríkissjóður greiddi ungri stúlku sem hlaut 40% varan- lega örorku vegna rangrar læknismeðferðar við handleggsbroti. I aprílmánuði árið 1978 datt fimm stúlkunnar kærðu lækninn til land- ára stúlka fram af stétt við heimili sitt á Stöðvarfírði og brotnaði á vinstri framhandlegg. Foreldrar stúlkunnar færðu hana til meðferðar á heilsugælustöðina á Stöðvarfirði þar sem þáverandi héraðslæknir á Fáskrúðsfirði var að störfum. Hann flutti stúlkuna til Fáskrúðsfjarðar, tók röntgenmyndir af handleggnum og bjó um hann í gipsi en sendi stúlk- una síðan heim. Fáum dögum síðar leituðu foreldrar stúlkunnar til hjúk- runarfræðingsins á Stöðvarfírði enda hafði stúlkan þá þrautir í hand- leggnum sem var blár og bólginn vegna blóðrásarhindrunar. Haft var samband við lækninn sem taldi ekki ástæðu til að hafast að og var ekk- ert að gert fyrr en í júnímánuði er afleysingamaður héraðslæknisins sendi stúlkuna til Reykjavíkur til meðferðar á sjúkrahúsi. Þrátt fyrir aðgerðir á sjúkrahúsi og eftirmeð- ferð tókst ekki að lagfæra handlegg- inn, sem er enn í dag boginn um úlnlið og olnboga og nýtist stúlkunni ekki nema að litlu leyti. Foreldrar læknis, sem veitti honum áminningu að rannsökuðu máli, og síðan krafði lögmaður þeirra ríkissjóð um bætur vegna mistaka læknisins. Læknaráð fjallaði um málið 1979 og komst að þeirri niðurstöðu að læknismeðferð hans hafi ekki verið tilhlýðileg. Ríkissjóður viðurkenndi bótaskyldu og greiddi bætur samkvæmt út- reikningi tryggingafræðings, er ör- orkumat'var mögulegt vegna aldurs stúlkunnar 1984. Læknirinn gekkst ekki við því að , hafa veitt ranga meðferð og neitaði ítrekað að endurgreiða ríkissjóði bæturnar eða allt þar til að lækna- ráð, á liðnu ári, svaraði fyrirspumum borgardómara og lögmanna um málið á þann veg að öll læknismeð- ferð eftir töku röntgenmynda hafi verið ótilhlýðileg og röð mistaka læknisins. Áð svo komnu máli gekk læknirinn til samninga við ríkissjóð og lauk málinu með dómsátt þar sem hann féllst á að verða við kröfu ríkis- sjóðs. Skorradalur: Kviloiar í íbúð- arhúsi í Haora Hvannatúni, Andakíl. VM / MIKIL mildi var að ekki fór verr þegar eldur varð laus í kjallaraeld- húsi í Haga, Skorradal, aðfaranótt 4. ágúst sl., en einbúanum Þórði Runólfssyni, tæplega 92 ára gömlum, tókst að slökkva eldinn. Klukkan 4.30 vaknaði Þórður við að mikill og kæfandi reykur var í svefnherbergi hans, sem er upp af Góð hey á Suðurlandi Gaulverjabæ. MJÖG góð heyskapartíð hefur verið hér um slóðir i sumar. Víða var heyskapur langt kominn á frídegi verslunarmanna og mjög margir luku heyönnum þann dag, en þá snerist til sunnanáttar og úrkomu. Hey eru með albesta móti en yfírleitt minni að vöxtum en á síðasta ári. Hvassviðrið tafði hey- skap í tvo daga en ekki urðu þó miklir skaðar af þeim sökum hér í sveit. Gróður var misfljótur til á Suð- urlandi nú sem fyrr. Kunnugir segja að tún hafi verið fyrst til í Landeyj- um, síðan í Flóanum og loks í upp- sveitum Ámes- og Rangárvalla- sýslu. Staðan í heyskap fer að líkindum eftir þessari röð í grófum dráttum, þó nokkrir hafí lokið hey- skap í uppsveitum.- Valdim.G. eldhúsinu. Fór hann þegar niður í eldhús, én þaðan kom reykurinn. Þar sá ekki handa skil og erfítt að gera sér grein fyrir aðstæðum. Þó sá hann að eldur logaði í þili á bak við_ eldavélina. I eldhúsvaskinum vissi Þórður af vatnsfötu fullri af vatni, þangað komst hann, náði fötunni og gat skvett úr henni á eldinn, sem slökknaði við þessa einu gusu. Líklega hefur loftleysið í eld- húsinu bjargað því að eldurinn magnaðist ekki, því eldhúsið er nið- urgrafið, gluggi og hurð voru lok- uð. Veggir og loft í eldhúsinu eru úr timbri svo nægur var eldmatur- inn. Þórður var nokkuð eftir sig eftir þrekraun þessa, hefur trúlega feng- ið snert af reykeitrun. Eldsupptök urðu líklegast í ruslafötu sem stóð á bak við eldavélina, sem er gömul olíueldavél. Gamli maðurinn lætur rétt týra á vélinni jrfir nóttina til að halda húsinu heitu, því húsið er hitað upp frá eldavélinni. Trúlega hefur hann snúið innstreymislokan- um á eldavélinni í öfuga átt um kvöldið þegar hann fór í háttinn. Eldavélin hefur því loghitnað í stað þess að verða yívolg. - DP Heimsmeistaramót unglinga í Rúmeníu: Guðfríður í 6.sæti og Héðinn í 9.sæti Heimsmeistaramóti unglinga í skák lauk í Rúmeníu um helg- ina. Tveir íslenskir keppendur tóku þátt. Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir keppti í flokki stúlkna undir 16 ára aldri og hafnaði hún í 6. sæti með 6,5 vinninga af 11 mögulegum. Rúmlega 30 stúlkur kepptu í þessum flokki. Héðinn Steingrímsson keppti í flokki 14 ára pilta og yngri. Hlaut Héðinn 7 vinninga af 11 möguleg- um og hafnaði í 9. sæti. ísraelinn Eran Liss sigraði 14 ára og yngri flokkinn með 9 vinninga af 11 mögulegum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.