Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 24

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 Morgunblaðið/Þorkell Á vegum byggíngardeildar Reykjavíkurborgar er verið að byggja ibúðir fyrir aldraða, þjónustumiðstöð og heilsugæslustöð á horni Garðastrætis og Vesturgötu. íbúðir aldraðra og þjónustumiðstöð: Byggingin verður fok- held um mánaðamótin Byggingaframkvæmdum mið- ar vel við íbúðir aldraða, heilsu- gæslustöð, þjónustumiðstöð og bifreiðageymslu á horni Garða- strætis og Vesturgötu, að sögn Guðmundar Pálma Kristinssonar yfirverkfræðings hjá byggingar- deild Reykjavikurborgar. Verið er að reisa þaksperrur og verður byggingin fokheld um mánaðar- mótin ágúst - september. Guðmudur sagði að nú væru um þijátíu manns við vinnu í bygging- unni á vegum ístaks hf., en í þess- um áfanga er gert ráð fyrir að húsinu verði skilað fullfrágengnu að utan og tilbúnu undir tréverk í febrúar á næsta ári. Undirbúningur er þegar hafinn við gerð útboðs- gagna fýrir innréttingamar en smíði þeirra verður boðin út í októ- ber næstkomandi. í húsinu verða 26 íbúðum fyrir aldraða, 500 fermetra heilsugæslu- stöð ásamt þjónustukjama fyrir hverfið og bifreiðageymsla á tveim- ur hæðum. Þá hefur verið ákveðið að koma upp almenningssalemum á neðstu hæð hússins á homi Mjó- strætis og Vesturgötu. Áætlað er að fyrstu íbúamir flytji inn í júlí 1989. „Utilokað að fara í loftið aftur“ segir Björn Davíðsson flugmaður FLUGMAÐUR vélarinnar, Björn Davíðsson frá ísafirði, sagði í samtali við Morgunblaðið að skyggni hefði skyndilega dottið niður í lendingunni, en glapræði hefði verið að fara aftur í loftið. Hann sagði, að engin vakt væri á Hólmavíkur- flugvelli á kvöldin, en hann hefði haft samband við annan flugmann, sem flaug til Gjögurs á þessari sömu vél fyrr um dag- inn og fengið þær upplýsingar hjá honum að ekkert amaði að veðri. „Þegar ég kom inn til lendingar voru um 500 metrar eftir af braut- Siglufjörður: Elsta brídsfé- lagið 50 ára í TILEFNI af 50 ára afmæli sinu mun Bridsfélag Siglufjarðar efna til stórmóts í tvímenningi helgina 3.—4. september. Spilað verður samkvæmt Mitchell-kerfi, líklega þijár 28-spila lotur. Fyrstu verðlaun nema 120.000 krónum, en peningaverðlaun verða fyrir fimm efstu sætin, alls 280.000 krónur. Fyrir hæstu skor í hverri lotu verða ferðavinningar frá Sam- vinnuferðum/Landsýn. Auk þess verða veittar viðurkenningar fyrir 6.—10. sæti. Spilamennskan hefst kl. 10.30 á Hótel Höfti. Keppnis- stjóri verður Hermann Lárusson. Tilkynning um þátttöku þarf að hafa borist fyrir 20. ágúst en há- marksfjöldi para er 50. Skráning er hjá Samvinnutryggingum á skrifstofutíma. Keppnisgjald er 5.000 krónur á hvert par. (Fréttatilkynning) inni en 300 metrar eiga að duga til lendingar," sagði Bjöm. „Um leið og ég kom yfir brautarendann gekk yfir dimmur skúr og skyggni datt skyndilega niður. Vélin var þá í um það bil 20 feta hæð og ég ákvað að lenda vegna veðurskil- yrða. Hefði skyggni verið betra hefði ég farið aftur á loft. Ég gæti trúað að skyggni hafí vart verið meira en 150 metrar. Við lentum á eðlilegum lendingarhraða og loftskrúfan var í hægagangi svo regnið þvoðist illa af rúðunum og minnkaði útsýni enn við það. Ég taldi §óra hatta fara fram hjá mér áður en ég snerti brautina, en 50 metrar eru á milli hattanna. Þegar ég leit á vindpokann lá hann niðri. Þegar ég fékk skyggni aftur sá ég að vélin myndi fara út af braut- inni. Erfítt er að ímynda sér hvers vegna vélin hefur þurft þessa vega- lengd en verið getur að vindhviða hafi komið á eftir vélinni og brems- ur ekki virkað sem skyldi. Það eru áreiðanlega margir samverkandi þættir sem urðu til þess að vélin fór út af brautarendanum. Þegar ég gerði mér grein fyrir því að vélin myndi lenda utan brautar reyndi ég að stjóma henni þannig að hún rynni sem beinast áfram svo höggið yrði sem minnst. Það var alveg útilokað að fara í loftið aftur. Ég veit af hæðóttu landslagi og klettabeltum þama fyrir norðan og það hefði verið glapræði að reyna að fara í loftið aftur í þessu skyggni þegar maður er um það bil að lenda. Ég hefði sennilega drepið okkur báða hefði ég reynt það. En vélin lenti sem sagt fyrir utan brautina og nefhjólið brotnaði af henni. Hún rann svo áfram á maganum nokkra metra og yfír skurð en stakkst svo í túnið og valt á þakið. Um leið og hún stöðv- aðist kallaði ég til félaga míns: „Út“ og örskammri stundu síðar vorum við komnir út úr vélinni." Flatey: Elsta og minnsta bóka- safn á Islandi endurreist ÞAÐ er víst óhætt að fullyrða að bókhlaðan í Flatey á Breiðafirði, sem nú hefur verið endurreist, sé minnsta bókasafn landsins. Og þótt víðar væri leitað. Endurbygging safnsins hófst árið 1979 og er henni nú að mestu lokið. Safnið var opnað formlega aftur síðastliðinn laugardag. Það er þvi elsta bókasafn landsins, sem enn er í notkun. Bókhlaðan i Flatey var byggð árið 1864 og bækur þar geymdar í 90 ár eða til ársins 1955 er þær voru fluttar í húsið Bjarg, sem stendur innarlega á bökkunum í plássinu í Flatey. Fyrsta tillagan um að endur- reisa bókhlöðuna kom frá Herði Ágústssyni, listmálara í greinaflokki sem birtist í tímaritinu Birtingi árið 1963. Úr því varð þó ekki fyrr en 16 árum síðar, er nokkrir áhugamenn um varðveislu hússins hófu undir- búning að viðgerð árið 1979. Hús- friðunamefnd og veitti Qárstyrk til verksins og fyrsti áfanginn í endur- byggingunni hófst. Húsftiðunar- nefnd og Þjóðhátíðarsjóður veittu fíárstyrki til efniskaupa en viðgerðin var unnin í sjálfboðavinnu undir stjóm Þorsteins Bergssonar. Minjavernd Þáttaskil urðu í viðgerð hússins árið 1986. Minjavemd gerði þá leigu- samning við hreppsnefnd Flateyjar- hrepps til 30 ára, gegn því að ann- ast og kosta viðhald og endurbætur á húsinu. Minjavemd er sjálfseignar- stofnun sem að standa Þjóðminjasafn íslands, Fjármálaráðuneytið og Torfusamtökin. Markmið hennar er „að stuðla að varðveislu mannvirkja og mannvistarleifa hvarvetna á Is- landi sem hafa menningarsögulegt gildi í víðtækasta skilningi", eins og segjr í skipulagsskrá. Fé til fram- kvæmda fær Minjavemd af leigutekj- um húsanna á Bemhöftstorfu í Reykjavík. Bókhlaðan í' Flatey er fyrsta verkefnið sem Minjavemd líkur viðgerðum á, utan húsanna á Bemhöftstorfu. Hún vinnur einnig að viðgerðum og endurbótum á gamla ibúðarhúsinu í Ögri við ísa- fjarðardjúp, Staðarkirkju í Steingr- ímsfirði og Löngubúð á Djúpavogi. Næsta verkefni Minjavemdarí Flatey er viðgerð á pakkhúsunum og sam- komuhúsinu, sem svo eru nefnd. Þau standa í miðju plássinu og er elsta pakkhúsið frá því um miðja 19. öld. Viðgerðir hefjast næsta vor. Bókhlaðan I Flatey er lítil, eins og áður sagði, 4,75 m á lengd og 3,43 m á breidd að innanmáli. Loft- hæð er 2,19 m og þar yfir geymslu- loft, sem ekki er fullklárað. Þegar hafist var handa við viðgerð á henni hafði hún staðið lengi ónotuð og án umhirðu. Var húsið lítið skemmt að innan, en útveggir illa famir af fúa. Leitast var við að endurbyggja húsið i sem upprunalegastri gerð og þar sem ekki vom sjáanleg ummerki um fyrri gerð var höfð hliðsjón af þeim húsum sem talið var líklegt að sami smiður hafi byggt. Nýjar teikningar gerði Hjörleifur Stefánsson, arkitekt. Fjölmargir sjálfboðaliðar hafa hjálp- að til við viðgerðina og má þar nefna, auk þeirra Þorsteins og Hjörleifs, Bolla Ólafsson, húsgagnasmið, sem smíðaði nýja glugga og Guðmund P. Ólafsson og Ingunni K. Jakobs- dóttur. Þorsteinn Bergsson er fram- kvæmdastjóri Minjavemdar. Stjóm hennar skipta síðan Gunnlaugur Cla- essen, Hjörleifur Stefánsson, Hös- kuldur Jónsson, Lilja Ámadóttir og Þröstur Ólafsson. Framfarastofunin í Flatey Um Flatey segir f bók þeirra Þor- steins Jósepssonar og Steindórs Steindórssonar, Landið þitt ísland, að hún hafi verið ein helsta miðstöð menningar og framfara á íslandi um miðbik síðustu aldar. Þar hafi verið stofnuð menningarfélög og að til- hlutan þeirra tímaritið Gestur Vest- firðingur, er var „meðal merkustu tímarita aldarinnar". Eitt þessara Flugvélin stakkst í túnið norðan flugbrautarinnar og kollsteyptist. Morgunbiaðið/Sigurður H. Þorsteinsson Hólmavík: Tveir sluppu ómeiddir þegar flugvél hlekktist á Laugarhóli, Bjarnafirði FLUGVÉLIN TF—ODO frá ísafirði lenti utan brautar á Hólmavík- urflugvelli laugardaginn 6. ágúst. í vélinni, sem er einkaflugvél af gerðinni Piper, voru tveir menn, Björn Daviðsson flugmaður og Eggert Sigurbergsson, og sluppu báðir ómeiddir frá óhappinu. Flugmaðurinn missti sjónar af flugbrautinni í slæmu skyggni með þeim afleiðingum að vélin lenti norðan við miðja brautina og rann út fyrir enda brautarinnar, yfír skurð og í túngirðingu. Stakkst vélin síðan i túnið norðan flugbrautarinnar og brotnaði við það nefhjólið og vélin kollsteyptist. Atvikið átti sér stað rétt eftir klukkan 19 á laugardagskvöld. Vélin var í eigu sjö einstaklinga á ísafirði en þaðan var hún einmitt að koma. Var allt eðlilegt við að- draganda lendingarinnar þar til veðurskilyrði breyttust skyndilega. Skall á dimm skúr sem byrgði flug- manninum sýn en hélt hann samt áfram lendingu. Vélin snerti hins vegar ekki braut fyrr en komið var norður fyrir miðju vallarins. Hún hélt áfram út yfír enda flugbraut- arinnar en þar er skurður milli flugvaliarins og túns sem liggur mun lægra en flugbrautin. Fór vélin yfír skurðinn og flæktist í túngirðingu og sleit hluta af henni með sér. Stakkst hún við þetta í túnið og brotnaði nefhjólið undan henni og stakkst hún á hvolf. Framhluti vélarinnar og stél er mikið skemmt, en flugmann og farþega sakaði ekki. Starfsmenn flugmálastjómar komu síðar um kvöldið og skoðuðu aðstæður. Þetta er í annað sinn á þremur árum að einkavél fer fram af braut á Hólmavíkurflugvelli og laskast á þennan hátt. S.H.Þ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.