Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 25 Morgunblaðið/Árni Sæbérg Viðstaddir hlýða á Finnboga Guðmundsson, landsbókavörð rekja sögu bókhlöðunnar í Flatey. menningarfélaga var Pramfarastofn- unin, framhald tilrauna er gerðar voru um stofun lestrarfélaga á landinu kringum aldamótin 1800. Fæst þessara félaga urðu langlíf, en starfsemi Framfarastofnunarinnar sem útlánsstofnun fyrir bækur í Flat- ey, leiddi síðar til þess að þar var byggt bókasafn það sem nú hefur verið endurreist. Hugmyndin að byggingu bókasafns fékk ekki góðan byr til að byija með, en bóka- og peningagjafir urðu þó til þess að hún varð loks að veruleika. Var það ekki síst að þakka Brynjólfi kaupmanni Benedictsen, miklum framkvæmda- og dugnaðarrmanni. Bókasafnið var síðan reist 1864. Þá var fallinn frá Ólafur Sívertsen, sóknarprestur í Flatey, fremsti hvatamaður stofun- arinnar. Fyrsta bókasafn á ísland, að því er talið er, lét Ari Sæmunds- son reisa á Akureyri 1851. Safnið í Flatey var því annað í röðinni en hið þriðja var Iþaka, bókhlaða Mennta- skólans í Reykjavík sem byggt var tveimur árum síðar. Bókhlaðan í Flatey hafði að geyma mikið safn handrita, en stór hluti ^88 var afhentur Landsbókasafni ands á árunum 1902-03. Það sem eftir var af gömlum bókum og hand- ritum fékk Landsbókasafnið til varð- veislu 1969, en safnið í Flatey hélt eftir yngsta hluta þess, í tilefni þess að bókasafnshúsið hefur nú verið endurreist voru þar til sýnis nokkrar af gömlum bókum sem áður voru í eigu safnsins. Þá er þar einnig að finna ljósprentað eintak af Flateyjar- bók, gjöf danska útgefandans Ejnars Munksgaars, á aldarafmæli stofnun- arinnar. í henni er m.a. að finna ættartölur Noregskonunga, en bók- inni lýkur með annál allt frá sköpun heimsins til ársins 1394. Flateyjar- bók er tvö bindi og var annað tveggja verka sem Danir færðu íslendingum Rýnt í Flateyjarbók. vorið 1971 í upphafi handritaskil- anna. Formleg opnun endurreistrar bók- hlöðu í Flatey, var laugardaginn 6. ágúst síðastliðinn. Þar voru viðstadd- ir stjómarmeðlimir Minjavemdar, Finnbogi Guðmundsson, landsbóka- vörður, sem flutti erindi það sem hér hefur m.a. verið byggt á, Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minja- vemdar, sem ávarpaði viðstadda, hópur afkomenda Brynjólfs Benedic- tsens ásamt fylgdarliði. Bifhjóla- slys við Öskju FRANSKUR ferðamaður féll af bifhjóli sínu við Öskju síðdegis á laugardag og hlaut mjaðmarák- verka. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og flutti hann til Akur- eyrar og var gert að meiðslum hans í Fjórðungssjúkrahúsinu. Maðurinn fór af sjúkrahúsinu á Akureyri í gær og heldur til síns heima í dag, þriðjudag. Hafnarfjörður: Brotist inn í pósthúsið BROTIST var inn í pósthúsið í Hafnarfirði um helgina, pakkar og bréf rifin upp og dreift um húsið. Að sögn Gunnars Einars- sonar stöðvarstjóra Pósts og síma i Hafnarfirði er ekki ljóst hveiju var stolið. Innbrotið uppgötvaðist er starfs- menn pósthússins mættu til vinnu á mánudagsmorgun. Ekkert viðvör- unarkerfi er í pósthúsinu og gæti innbrotið hafa átt sér stað frá því seinnipartinn á laugardag. Að sögn Gunnars Einarssonar stöðvarstjóra var aðkoman ljót. „Það hefur senni- lega verið farið í gegnum glugga og þeir hafa farið í bögglana hjá okkur og rifið upp óskaplega mikið af bögglum og dreift þeim um öll gólf en við getum ekki fundið út hvað er horfið enda vitum við ekki hvað er í hveijum pakka,“ sagði hann. Gunnar sagði að þjófarnir virtist aðallega hafa leitað í pakka frá útlöndum. Engar skemmdir voru unnar á innanstokksmunum eða innréttingum en nokkrir gaml- ir, .tómir peningakassar voru spenntir upp. Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur nú að málinu. BÍLABORG H.F. FOSSHÁLS11 ,SÍMI 68 12 99 essi stendur fvrir sínu! MAZDA T 3500 er langvinsælasti bíllinn 13.5 tonna stærðarflokki hérlendis og var liölega helmingur þeirra bíla sem seldust hér á síðasta ári af þessari gerð og engin furða. Hann ber 3.5 tonn á grind, vélin er 3500 cc 86 DIN hestöfl og gírar eru 5 með háu og lágu drifi. Húsið er stórt og bjart (veltihús) og þægileg sæti eru fyrir 2 farþega auk ökumanns. Fjöðrunin er mýkri og þýðari en gerist í bílum af þessari stærð. Ríkulegur búnaður fylgir MAZDA T 3500, svo sem: • Vökvastýri • Veltistýri • Mótorbremsa • Yfirstærð afdekkjum (700x16) • Yfirstærð af rafgeymi • Bakk- flauta • Útispeglar beggja vegna • Luxusinnrétting • Tauáklæði á sætum • Þaklúgur • Höfuðpúðar á sætum • Halogen aðalljós • Litað gler í rúðum • Aflmikil miðstöð • Viðvörunartölva og margt fleira. Við getum afgreitt þessa bíla með vönduðum pöll- um eða vörukössum, sem vakið hafa verðskuldaða athygli og fengið frábæradómaatvinnumanna. Enn- fremur léttar álvörulyftur, sturtur og vökvakrana. Tæknimenn okkar veita ráðgjöf við val á búnaði og annast hönnun með þínar sérþarfir í huga. Við leggj- um ríka áherslu á góða þjónustu og er viðhalds- og varahlutaþjónusta okkar rómuð af öllum, sem til þekkja. Þú ert því í góðum höndum hjá okkur! Við eigum örfáa bíla óráðstafaða á gömlu verði. Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita fús- lega allar nánari upplýsingar. Opið laugarciaga frá kl. 1-5 ,Lm. AM'-udci ij u:4 lí, '.i-i.i.íu u^M.Lu/.Ij JajJ-U- ,«Uti i m.i.uív u ,ij -jj.i.c:. ni i \t ilJ.\MilJj í ? 1 I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.