Morgunblaðið - 09.08.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
27
Stúdentar mótmæla í Suður-Kóreu:
Stjómvöld foanna fund með
stúdentum frá N-Kóreu
Seoul, Reuter.
STÚDENTAR í Suður-Kóreu héldu uppi mótmælum í fimm borg-
um landsins í gær. Var þetta annar dagurinn sem stúdentar mót-
mæltu banni við því að suður-kóreskir stúdentar hitti stúdenta frá
Norður-Kóreu í landamærabænum Panmunjom um miðjan ágúst.
Yfir eitt þúsund lögreglumenn
héldu aftur af sex hundruð stúd-
entum við háskólann í Seoul.
Reyndu stúdentamir ítrekað að
yfirgefa háskólalóðina. Hrópuðu
þeir slagorð gegn Bandaríkja-
mönnum sem þeir kenndu um
skiptingu Kóreu-skagans. Einnig
sögðu stúdentamir að Roh Tae-
woo forseti hefði gripið til ólög-
legra aðgerða til að koma í veg
fyrir að suður-kóreskir stúdentar
gætu hitt félaga sína frá Norður-
Kóreu í landamærabænum Pan-
munjom-15. ágúst næstkomandi.
Stúdentamir köstuðu gtjóti og
bensínsprengjum að lögreglu sem
svaraði með táragassprengjum. Á
annan tug mótmælenda var hand-
tekinn. Enginn slasaðist í átökun-
um.
Þijú hundruð stúdentar söfnuð-
ust saman í miðborg Seoul á sama
tíma og félagar þeirra reyndu að
yfírgefa háskólalóðina. Lögregla
hélt þeim í skefjum með táragas-
sprengjum. Einnig kom til mót-
mæla í Kwangju og þremur öðrum
borgum landsins; Chonju, Suwon
og Inchon. Stúdentar i Kwangju
kröfðust þess að 40.000 manna
herlið Bandaríkjamanna yrði á
brott frá Suður-Kóreu þegar í stað.
Á sunnudag særðust 22 lög-
reglumenn í átökum við stúdenta.
Yfír tvö hundruð stúdentar vom
handteknir í átökunum á sunnu-
dag. Mótmælin um helgina vom
einnig vegna banns stjómvalda við
að stúdentar ættu fund með norð-
ur-kóreskum' stúdentum. Stjórn-
völd hafa bannað þennan fund í
Panmunjom á þeim forsendum að
fundir fulltrúa þessara þjóða skuli
vera að undirlagi stjómvalda en
ekki einstakra hagsmunahópa.
Sameining ríkjanna tveggja á
Kóreu-skaga hefur verið eitt aðal-
baráttumál róttækra stúdenta í
mótmælum þeirra gegn stjóm-
völdum að undanfömu. Stúdentar
í Seoul hafa hótað að ef þeir fái
ekki að fara til fundarins í Pan-
munjom 15. ágúst næstkomandi
muni þeir grípa til hefndaraðgerða
á Ólympíuleikunum sem hefjast í
Seoul 17. september.
Líkklæðið frá
Tórínó falsað?
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
NÚ er lokið alþjóðlegum rannsóknum á líkklæðinu frá Tórínó,
sem sagt hefur verið klæðið sem sveipað var um líkama Krists
þegar hann var tekinn niður af krossinum. Páfasfóll mun til-
kynna niðurstöðurnar i næsta mánuði eða í október.
Dr. Robert Hedges, sem stjóm- kirkjuna af því. Miklar deilur hafa
aði þeim hluta rannsóknanna, sem
framkvæmdar voru við háskólann
í Oxford segir í frétt The Sunday
Times síðastliðinn sunnudag að
skýrar og afdráttarlausar niður-
stöður hafi fengist úr þeim til-
raunum. Sambærilegar tilraunir
voru gerðar í Ziirich í Sviss og í
Tuscon í Arizona í Bandaríkjun-
um.
Að sögn blaðsins bjuggu full-
trúar kirkjunnar sig undir það í
síðustu viku að niðurstaða tilraun-
anna yrði sú að klæðið væri fölsun
frá 14. öld. Luigi Gonella, prófess-
or og vísindalegur ráðgjafi við
Páfastól, sagði í síðustu viku:
„Kirkjan fór ekki fram á þessar
tilraunir og við erum ekki bundn-
ir af niðurstöðunum. Ef klæðið
er aldursgreint frá miðöldum þá
á enn eftir að svara því hvemig
það varð tii."
Hedges sagði að þótt niðurstöð-
umar myndu útkljá þetta 600 ára
gamla deilumál fyrir flesta, þá
myndu þær að líkindum ekki
sannfæra efasemdamennina né
hina trúuðu.
Páfastóll eignaðist klæðið árið
1983 þegar eigandi þess, fyrrver-
andi konungur Ítalíu, arfleiddi
staðið lengi um þetta klæði. Þeir
sem trúa á það segja að á því séu
blóðblettir Krists og í því megi
greina mynd af líkama hans.
Vísindamenn hafa blandast inn
í deilur um klæðið frá Tórínó frá
því á miðjum síðasta áratug. Þá
uppgötvuðu vísindamenn frá
geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA, að myndin á klæðinu hefði
dularfulla þrívídd. Aðrir töldu að
sárin á líkinu, sem myndin væri
af, væru of raunveruleg og hefðu
ekki getað verið máluð.
En ráðgátumar eru fleiri. Sér-
staklega þó að klæðisins er hvergi
getið fyrr en á 14. öld og enginn
kann sögu þess fyrir þann tíma.
Þeirri aðferð sem nú er notuð á
ekki að skeika um meira en 300
ár. En aldursgreiningar með kol-
efni eru ekki óskeikular. Tilrauna-
stofa í Tuscon aldursgreindi ný-
lega kýrhorn frá víkingatímanum
og sagði það vera frá 2006 eftir
Krist, eftir 18 ár. Hedges segir
að reynist klæðið falsað muni það
ógna trúarskoðunum margra. Að
þessu leytinu sé slæmt að vísindin
geri tilraunir á helgum minjum.
Það sé eins og að glata sakleysinu
í aldingarðinum Eden.
VEIÐIKASSAR OG
STANGAHÓLKAR ■
Fást í nœstu sportvöruverslun.
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
Reuter
Óeirðalögregla í Seoul átti fótum fjör að launa undan bensínsprengj-
um stúdenta, sem mótmæltu banni stjórnvalda gegn því að þeir
ættu fund með norður-kóreskum stúdentum 15. ágúst næstkomandi.
RJÓMATERTA
Á REGINFJÖLLUM
eða írskt kafíi niðrí
í fjöru.
Ekkert mál ef þú hefur
beytirjómann meðferðis.
gaffall duga til að þeyt'ann.
Hvort þú snarar svo fram heilli
rjómatertu eða írsku kaffi
fer eftir tilefninu.
Z»+OL*s
_ ^ geymsluþolinn
■ VplkvS^ ^ ^
peytirifflmi
G-PE YTIRJÓMI!
- dulbúin ferðaveisla
Vestur-þýskir
vörulyftarar
GlobusT
LAGMULA 5 S 6ðr555
U