Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 40

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 ORVÆNTINGIPARIS Seigner og Ford í einkar fágaðri spennumynd Polanskis, Örvænt- ingu. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson BÍÓBORGIN ÖRVÆNTING - „FRANTIC" Leikstjóri Roman Polanski. Handrit Polanski og Gerard Brach. Tónlist Ennio Morricone. Kvikmyndatökustjóri Witold Sobocinski. Klipping Sam O’Steen. Aðalleikendur Harri- son Ford, Betty Buckley, John Mahoney, Emmanuelle Seigner, Gerard Klein, Jacques Ciron, Patrice Melennec. Bandarísk. Warner Bros 1988. Milljónir aðdáenda galdra- mannsins Polanskis geta andað léttar. Frantic er vel heppnað kassastykki sem leikstjórnarlega minnir á Chinatown, eitt hans alb- esta verk, og þá virðist svo sem stórveldi kvikmyndaiðnaðarins séu ioks búin að taka hann í sátt. í Örvæntingu segir frá ósköp dagfarsprúðum, bandarískum lækni (Ford) sem kemur til Parísar ásamt konu sinni að sitja lækna- þing. Ekki eru þau fyrr búin að hreiðra um sig á hóteli en ósköpin skella á; í ljós kemur að eiginkonan (Buckley) er ekki með sína réttu tösku í farteskinu, síðan hverfur hún sjónum Ameríkumannsins í París, meðan hann skolar af sér ferðarykið. Drykkjurútur á bar í grenndinni segist hafa séð mann troða henni með ofbeldi inní bifreið sína. Upphefst nú tími örvæntingar og skelfingar hjá Ford, mállaus og án nókkurra vísbendinga hefur hann dauðaleit að sinni heittelsk- uðu, en þegar neyðin er stærst fær hann aðstoð ' franskrar stúlku (Seigner), sem hafði komið með sama flugi og þau hjónin, og með samskonar tösku í farangrinum ... Hér er fengist við gamalkunnar aðstæður; hvað gerir hæglátur, venjulegur Bandaríkjamaður þegar hann verður fyrir áföllum í fjar- lægu landi, þar sem hann kann engar leikreglur? Aðstoð lögreglu og sendiráðs ber engan árangur. Myndin ber lækninn vítt og breitt um Parísarborg, atburðarásin færir söguhetju vora á slóðir og í kring- umstæður sem hann hefði ekki dreymt um að eiga eftir að upplifa. Þeir Brach og Polanski leika sér listilega að örvæntingu mannsins í einkar líflegu handriti þar sem fer saman spenna og skemmtilegheit, án þess að mannlegi þátturinn gleymist. Það má auðveldlega benda á fjölda margar vitnanii- í myndir Hitchcocks, allt frá sturtu- þættinum í upphafi til lokaatriðsins undir brúarsporðinum, en málið er einfaldlega að Polanski hefur tekist að gera fágáða afþreyingarmynd í anda gamalla meistara, einsog Hitch,. Hawks og fleiri góðra manna. Slíkar myndir eru harla fágætar í dag, enda ekki á færi neinna meðalmanna. Og hann fær góða aðstoð frá Ford, sem eflist eftir því sem á líður myndina. Seigner, hin þokka.ulla sambýlis- kona leikstjórans, kemst þolanlega frá sínu, en frönsku leikararnir standa sig annars vel. Mahoney, sem var stórkostlegur í litlu hlut- verki í Moonstruck, er hér meira uppá punt. Kvikmyndataka Soboc- inski, hins gamalreynda samverka- manns leikstjórans, er óaðfinnan- leg og undirstrikar örvæntingu efn- isins, sömuleiðis tónlist Morricones og markvissar klippingar O’Steens, (Jawsl. En það er beinskeytt leikstjóm Polanskis og leikandi létt sögu- mennska hans sem gerir Örvænt- ingu að einstakri, slípaðri afþrey- ingu við allra hæfi. Hér upplifum við Bíó, í þess orðs bestu merkingu. Vestur-þýskir vörulyftarar G/obuse LAGMULA 5. S. 681555. Norræn rómantík til umræðu í Sviss Zilrich, frá önnu Bjarnadóttur, fréttarítara Morgunblaðsins. SAUTJÁNDA málþing alþjóð- legra samtaka um norrænar bókmenntir, International Association for Scandinavian Studies (IASS), var sett í Ziiric- h-háskóla í Sviss í gær. Um tvö hundruð fræðimenn frá 23 löndum, þar af fimm frá ís- landi, sitja ráðstefnuna sem stendur í fimm daga. Málþingið fjallar um rómantík í norrænum bókmenntum. Um áttatíu erindi verða flutt. Helga Kress, dósent, mun ræða ímynd kvenna 5 íslenskum bókmenntum og ritstörf þeirra, en þó sérstak- lega Guðnýjar Jónsdóttur frá Klömbrum, á rómantíska tímabil- inu. Dagný Kristjánsdóttir, sendi- kennari í Ósló, mun flytja erindi um kveðskap Jónasar Hallgríms- sonar og Jónas Kristjánsson, for- stöðumaður Handritastofnunar, mun Qalla um tengsl rómantískra bókmennta og fombókmennta. Sveinn Skorri Höskuldsson, próf- essor, og Guðmundur Andri Thors- son, bókmenntafræðingur, sitja einnig ráðstefnuna. Oskar Bandle, prófessor í nor- rænu við háskólana í Zurich og Basel og heiðursdoktor yið Há- skóla Islands, setti málþingið. Hann flutti stutt ávarp á þýsku en bauð gesti síðan velkomna á reiprennandi ensku, frönsku, sænsku, dönsku, norsku, íslensku og færeysku. Málsnilld hans vakti aðdáun og fræðimennirnir klöpp- uðu honum lof í lófa. Bandle sagði í stuttu samtali við Morgunblaðið að hann og svissneskir samstarfsmenn hans hefðu lengi haft áhuga á að halda ráðstefnu IASS í Sviss. Óviðráðan- legar aðstæður hafa komið í veg fyrir að svo yrði fyrr en nú. Hann sagðist vera sérstaklega ánægður með að ráðstefnan væri haldin í Zurich í ár þar sem tuttugu ár eru liðin síðan nqrrænudeild háskólans var stofnuð innan germönsku deildarinnar. Noregur: Kona segist vera „faðir“ barns sam- býliskonu sinnar Ósló, frá Rune Timbertid, fréttaritara Morgunblaðsins. TVÆR norskar konur hafa vak- ið hneykslan Norðmanna fyrir að segja opinberlega að þær telji sig vera „foreldra” fimm mánaða gamals barns. Önnur kvennanna er móðir barnsins, sambýliskona hennar segist vera „faðir“ þess. Diana Carter, móðir drengsins Adrians, býr með annarri konu, Ingunni Solli. Þegar bamið fædd- ist fyrir fimm mánuðum segist Ingunn, sem er dóttir vinsællar norskrar sjónvarpskonu, Esle Myklebust, hafa tekið að sér föð- urhlutverkið. Ingunn segir að henni hafi fundist hún utanveltu á meðan Diana gekk með bamið, en bætti við að þá tilfinningu þekkfu víst fleiri feður. Konumar tvær segja að helst vildu þær gifta sig. „Við höfum þekkst í tvö ár og höfum ákveðið að búa saman það sem eftir er ævinnar. Við lifum hjónalífí og þvi er eðlilegt að við viljum gifta okk- ur,“ er haft eftir Ingunni og Diönu. Faðir bamsins fær að hitta son- inn unga, en konumar tvær segja að hann muni ekki fá umráðarétt yfír baminu. Bam, sem alið er upp af tveim konum ætti að vera betur sett en önnúr börn, segja þær Diana og Ingunn. [ raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar \ Nýtt verslunarhúsnæði við Kringluna 1400 f m atvinnuhusnæði Til leigu er stórglæsilegt verslunarhúsn. í leígU 3 OraghálSÍ 6-8 nýbyggingu við Kringluna. Leigist í einu lagi 1000 fm jarðhæð, lofthæð 4,30-5 metrar. 4 eða í smærri einingum. Einstakt tækifæri til stórar innkeyrsluhurðir. 400 fm skrifstofu- verslunarrekstrar í hjarta borgarinnar. Tilbúið húsnæði. Hægt er að skipta húsnæðinu í til afhendingar fljótlega. smærri einingar. Tilboð sendist Lögmönnum, Borgartúni 33, Upplýsingar á staðnum milli kl. 8 og 16, símar Reykjavík, í síðasta lagi föstudaginn 12. 37010 og 623235, eftir kl. 18 í símum 35832 ágúst nk. (Hans), 685853 (Stefán) og 76110 (Gunnar). | atvinnuhúsnæði | Skrifstofuhúsnæði Til leigu 220 fm skrifstofuhúsnæði við Síðu- múla. Húsnæðið er fullfrágengið og gæti nýst sérstaklega vel fyrir útgáfustarfsemi, verkfræði- og arkitektaþjónustu, hugbúnað- arfyrirtæki og skylda starfsemi. Næg bíla- •stæði á eigin lóð. Laust nú þegar. Hófleg leiga. Lysthafendur hringi í síma 44827. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar SÍMAR 11798og 19533. Helgarferði Ferðafélagsins -12.-14. ágúst 1. Þórsmörk - gist i Skagfjörfts- skáta/Langadal. Gönguferftir, frábær gistiaft- staða. Sumarleyfi í Þórsmörk hjá Ferðafélagi íslands er ofarlega á óskalista þeirra sem vilja hviid í sumarleyfinu. 2. Landmannalaugar - Eldgjá Gist í sæluhúsi F.í. í Laugum. Ekift í Eldgjá, gengið áð Ófæru- fossi. 3) Álftavatn - Háskerðingur. Gist í sæluhúsi F.í. við Álftavatn. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélagsins, Öldu- götu 3. Ferðafélag íslands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir Ferðafélagsins Miðvikudagur 10. ágúst. Kl. 08. Þórsmörk - dagsferö. Verð kr. 1200. Kl. 20. - Bláfjallahellar - kvöld- ferft. Æskilegt að hafa vasaijós meö í ferðina. Verð kr. 600. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorð- inna. Ferðafélag fslands. þjónusta Hilmar Foss lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnarstræti 11, simar 14624 og 621464. ÚtÍVÍSt, G-o.,™, , Miðvikudagur 10. ágúst kl. 20. Sveppatínsluferö f Heiðmörk. Nú er hagstæð tiö til sveppa- tinslu. Létt ganga. Verð 600 kr., frftt f. börn m. fullorönum. Brottför fré BSf, bensfnsölu. í ársriti Útivistar 1984 er góð grein um íslenska sveppi. Ritið fæst á skrifstofunni. Sjáumst! Útivist. Rafvirkjavinna. S. 686645 Læríð vélritun Ágústnámskeið eru að heflast. Vélritunarskólinn, s.28040.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.