Morgunblaðið - 09.08.1988, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
fólk í
fréttum
MUHAMMAD ALI
Meistarinn með Parkinsonveiki
I'm the greatest" var hann
þekktur fyrir að segja, þessi
þrefaldi heimsmeistari í hnefaleik-
um. Nú stamar hann, og hendurn-
ar sem eitt sinn kýldu fastar en
nokkrar aðrar hendur, titra eins
og laufblað í vindi. Fætumir sem
eitt sinn gerðu honum kleyft að
dansa í „hringnum" eru veik-
burða.
Lonnie kona hans sem er bók-
menntafræðingur að mennt giftist
Muhammad fyrir tveimur árum,
en þau höfðu þekkst áður í mörg
ár. Muhammad á sjö dætur og
einn son með fimm mismunandi
konum. Ali hefur þénað meira
en 50 milljón dollara (Um tvo
miljarða króna) á ferli sínum, en
meirihlutanum af þeirri fjárhæð
hefur hann varið í óskynsamlegar
fjárfestingar og skatta. Þau hjón-
in lifa engu lúxuslífí, en hafa
ágæt fjárráð. Hann kemur fram
opinberlega endrum og eins og
fær fyrir það óheyrilegar upphæð-
ir. _
Eg er Parkinson-sjúklingur,"
segir Ali. En mér liður ekki illa,
ég stama svolítið og titra, en þetta
er ekkert stórmál. Ef ég væri við
fulla heilsu, ef ég hefði unnið
síðustu tvö einvígin og ef ég ætti
ekki við nein vandamál að striða,
held ég að fólk yrði hrætt við
mig. Margir héldu eflaust að ég
væri eins konar Superman, en
nú geta þeir varpað öndinni iéttar
og hugsað með sér að ég sé eins
mannlegur og aðrir Jarðarbúar
og ég eigi við ýmis vandamál að
stríða.
Ef ég mætti lifa upp á nýtt
mundi ég gerast hnefaleikari".
Hann telur sjálfur að vekindi hans
eigi ekkert skylt við hnefaleika.
„Yfír tvær milljón manns eru
Parkinson-sjúklingar, og fæstir
þeirra hafa verið hnefaleikarar.
Ef ég mætti lifa upp á nýtt, fara
aftur í tímann, og mér væri sagt
að ég gæti átt á hættu að verða
Parkinson-veikinni að bráð með
þvi að stunda hnefaleika, mundi
ég hiklaust gerast hnefaleikari.
Það er þess virði."
Dennis Cope, persónulegur
læknir Alis segir um sjúkdóminn:
„Eftir óteljandi höfuðhögg hafa
heilafrumur skemmst og orsakað
Parkinson-veiki" Ali hefur verið
ráðlagt að hreyfa sig mikið og á
hverjum degi fer hann í göngu-
ferðir eða í hjólreiðatúra. Hann
er hættur að borða kökur og önn-
ur sætindi og hefur lést töluvert
á síðustu mánuðum. Ali hefur
verið bent á skurðaðgerð í tengsl-
um við veikina, sem felst i að
heilbrigðum kirtlafrumum er
komið fyrir í sýktum hluta heil-
ans. Um 10% líkur eru taldar á
Hér er meistarinn að æfa af
kappi.
því að menn látist í lqolfar þessar-
ar aðgerðar, en hún er enn á rann-
sóknarstigi.
Cope, læknir Alis, segir þessa
aðgerð reynandi fyrir þá sem hafa
sjúkdóminn á háu stigi. „Ef fólk
er bundið við hjólastól, getur það
hugsað um þennan möguleika, en
í þessu tilfelli mæli ég ekki með
aðgerð af þessu tagi.“ Ali segist
heldur ekki hafa áhuga á að leggj-
ast á skurðarborðið. Hann virðist
sætta sig við sjúkdóminn og þjá-
ist ekki af þunglyndi sem oft fylg-
ir Parkinson-veikinni.
Ali hafði verið sagt að skjald-
kirtillinn væri ekki í lagi. Dennis
Cope sem gerðist persónulegur
læknir Alis árið 1980 eftir áskor-
endaeinvigi hans við Larry Hol-
mes, segir um hann: „Eftir ein-
vígið var Ali aðgerðarlaus, hreyfði
sig lítið og virtist ekki hafa áhuga
á neinu. Honum var sagt að
skjaldkirtiilinn starfaði ekki eðli-
lega og hann þyrfti að taka horm-
ónalyf til að koma málunum í Iag.
Honum var gefínn of stór
skammtur af hormónalyfjum. Ali
hélt að þeim mun stærri skammt
hann tæki, þeim mun fyrr mundi
honum batna. Mer leist ekkert á
allt þetta lyfjaát í manninum og
1982 fór mig að gruna að hann
væri haldinn Parkinson-veiki. Eft-
ir rannsóknir á sjúkrahúsi var
grunur minn staðfestur. Að öðru
leyti er AIi við góða heilsu, og frá
þvi hann fór að taka reglulega
rétt lyf hefur honum ekki versn-
að. Eg á ekki von á öðru en hægt
verði að halda veikinni á þvi stigi
sem hún er nú.“ Álit lækna er
þó almennt það að litlar líkur séu
á að hægt sé að halda Parkison-
veiki niðri til lengdar.
Hann hefur í gegn um árin
getað notað frægð sína til þess
að beijast fyrir málefnum svartra.
Þegar hann var lítill drengur sagði
hann við sjálfan sig: Ég ætla að
verða hnefaleikakappi, verða
heimsfrægur og í kjölfarið ætla
ég að berjst fyrir málstað fólksins
mins, svertingja Ameriku. Meist-
arinn segir nú:„Ég tala aldrei um
hnefaleika nú orðið. Þeir tilheyra
fortíðinni, eru bara eitthvað sem
ég gerði og naut góðs af.“
Og hann heldur áfram: „Hvítir
menn heimsins hafa verið heila-
þvegnir. Gerið þið ykkur grein
fyrir þvi að jafnvel Tarsan, kon-
ungur frumskóga Afriku, er hafð-
ur hvitur i bókum og kvikmynd-
um. Hver annar en ég getur sagt
frá kynþáttamisrétti á þann hátt
að tekið sé eftir þvi. Hvað hefði
ég svo sem átt að gera til að benda
á þetta? Leika í kvikmyndum? Til
fjandans með allan leikaraskap!
Hefði ég kannski átt að veita fjár-
magn til að mikils virtir stjóm-
málamenn gætu hist til að ræða
um vandamál heimsins. Nei, nei
og aftur nei,“ segir hann öskureið-
ur.
„Sem fyrrverandi heimsmeist-
ari í hnefaleikum er þetta það
eina sem ég get gert. Ég valdi
þessa leið sjálfur," segir hann, en
hann hefur varið hluta af sínu
fjármagni til að kynna Múha-
meðstrú og breiða út boðskap
hennar um frið og bræðalag.
Byggt á viðtali Peters Taubers íyrir New
York Times Magazine.
Texti: Brynja Tomer
Gengur Frankenstein aftur?
VÍSINDI
Alvöru Frankenstein
eftir 50 ár?
Spámenn halda þvi fram að eftir
aðeins fimmtíu ár gangi á meðal
vor alvöru Frankenstein. Þetta hafði
Mary Shelley, höfundi sögunnar,
sjálfsagt ekki dottið í hug þegar hún
skrifaði hana ung að aldri. En tækn-
inni fleygir fram. Hveijum duttu í
hug nútímaflugvélar þegar Wright
bræður gerðu byltingu um aldamótin
síðustu? En hvað segja spámenn?
„Þessi gervimaður mun geta geng-
ið, talað og hugsað eins og raun-
verulegur maður og þegar er tæknin
komin á það stig að frumuflutningur
eða tilbúin efni geta gert úr nýjan
mann.“ Þetta segir prófessor í
líffræði, dr. Tom Easton, við háskóla
í Maine í Bandaríkjunum. „Við höfum
þegar efnivið sem virkar þegar hleypt
er á rafmagnsstraumi og áður en
langt um líður verða vöðvar í mann-
veru tilbúnir. Stærsta vandamálið nú
er við flutning eða tilbúning á heilan-
um sjálfum." En í framtíðinni ættu
vísindamenn ekki að vera í vandræð-
um með að flytja hugsun og persónu-
leika manns yfir í sérstaka vél, eða
tölvu, sem mundi vera tengd við
líkama og stjóma öllu atgervi hans,
segir hann ennfremur.
„Þessi tækni gerir fólki sem lent
hefur í hörmulegum slysum og beðið
líkamlegan skaða af kleift að lifa
nokkum veginn eðlilegu lífí á ný.
Einnig er hægt að nota þessa tækni
í stríði þar sem slasaðir hermenn
geta til dæmis fengið fætur grædda
á sig, eða fengið gervilimi." En kostn-
aðurinn við þessa tækni er gífurlegur
í byrjun, sem borgar sig þó þegar
tímar líða, heldur prófessorinn fram
af raunsæi.
Prófessor dr. Robert White, sem
er sérfræðingur í taugaskurðlækn-
ingum við aðra stofnun, heldur því
einnig fram að alla aðra hluta líka-
mans megi færa í aðra líkama, einn-
ig maga og þarma. Hann segir að
vísindin bíði aðeins eftir að frekari
þróun verði til þess að eitthvert
kraftaverkaefíii eða lyf geti fengið
taugar til þess að vaxa saman á ný
þannig að hægt verði að flytja höfuð
milli manna. Og ef það verður hægt,
sem talið er líklegt, þá er herra Fran-
kenstein orðinn möguleiki.
Það má halda því fram að skáld-
skapurinn hvetji menn til dáða, en
hvað fínnst fólki um það að fara með
Frankenstein f bíó eftir aðeins 50 ár?
COSPER
\
-Láttu þér ekki leiðast þótt mamma sé farin, ég er hjá þér.