Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
Norræna kvennaþingið í Osló
Texti: Þórunn Þórsdóttir
Ljósm: Olafur K. Magnússon
Grænlenskar konur fjölmenntu á kvennaþingið í Osló. Þær vöktu mikla athygli þegar þær stigu dans,
íklæddar þjóðbúningum sínum.
Konur koma tvíefldar heim
NORRÆNU kvennaþingi í Osló
lauk síðastliðinn sunnudag og
kváðust konur sem komið var að
máli við ánægðar með undan-
gengna viku. Flestar sögðu einna
eftirminnilegast að kynnast
fjölda kvenna á þinginu en jafn-
framt hafi verið ómetanlegt að
heyra og taka þátt í ýmsu því sem
fram fór. íslenskar konur koma
tvíefldar heim, sagði ein þeirra
sem rætt var við undir lok
kvennaþingsins og eflaust geta
fleiri tekið undir þau orð.
Konum var farið að fækka um
helgina á ráðstefnusvæðinu og and-
rúmsloftið var afslappað. Margar
sátu í tröppum, á bekkjum og gras-
flötum, ræddu síðustu daga og nutu
blíðviðrisins. Nokkrar drifu í að
kaupa bók eða bol handa einhveij-
um heima, sumar skrifuðu upp
heimilisföng og símanúmer, aðrar
fóru á síðasta fyrirlesturinn í þess-
ari atrennu.
Grete Knudsen, formaður undir-
búningsnefndar kvennaþingsins,
sagði að eftir þingið væri sér efst
í huga hve ólíkar konur hefðu kom-
ið til Osló. Mikil umræða hefði átt
sér stað um ýmis mál og á stundum
hefðu sjónarmið stangast á. Um
helstu réttindamál kvenna hefði ríkt
sterk samstaða. Konur hefðu nú í
höndum sér að kynsystur þeirra
sem ekki komust til Osló fýndu til
þessarar samstöðu. Hver og ein
færi ákveðnari en nokkru sinni til
jafnréttisbaráttunnar í hvunndegin-
um.
\ fá . i 't mm 'í ■* ■ • • i
v \ - ' ' f -• w' Kt , \ , I
Konur tóku gjarnan lagið á kvennaþinginu. Hér hafa nokkrar komið sér fyrir í sólinni.
Norskur kvenna-
listi í undirbúningi
HÓPUR norskra kvenna hyggst
um miðjan september halda und-
irbúningsfund að stofnun
kvennalista í Noregi og fór þess
á leit að íslensk kvennalistakona
kæmi á fundinn til ráðgjafar að
sögn þeirra Danfríðar Skarphéð-
insdóttur og Kristinar Einars-
dóttur.
Kvennalistakonur luku síðastlið-
inn laugardag fundaröð á norrænu
kvennaþingi í Osló þar sem þær
kynntu hugmyndafræði, stefnu og
sögu Kvennalistans. Að sögn
Danfríðar Skarphéðinsdóttur vildu
konur af öðrum norðurlöndum
spyija margs varðandi Kvennalist-
ann. Sagði hún að komið hefðu fram
spumingar eins og hvemig Kvenna-
listakonur leystu innbyrðis ágrein-
ing, hve margar væm virkar, hvort
eingöngu væru ungar konur í hópn-
um og hvað þær myndu gera yrði
fylgi þeirra mun meira að loknum
kosningum.
Auk norsku kvennanna sögðust
nokkrar færeysku kvennanna á
þinginu hafa hug á að efna til
kvennalista.
Barátta fyrir jafn-
rétti í fréttaflutn-
ingi löng og erfið
SIGRÚN Stefánsdóttir, fjöl-
miðlafræðingur, flutti fyrirlest-
ur á norrænu kvennaþingi á
laugardag um hlut kvenna í
fréttum, en talsvert hefur verið
rætt um konur og fjölmiðla á
þinginu. í samtali við Morgun-
blaðið kveðst Sigrún telja æski-
legt að Jafnréttisráð hafi sam-
starf við fjölmiðla sem ráðgef-
andi aðili um að auka hlut kvenna
í fréttum. Sá háttur sé hafður á
í ýmsum nágrannalöndum okkar
því að rýr hlutur kvenna í frétt-
um sé ekkert séríslenskt fyrir-
bæri.
Konur voru viðmælendur í aðeins
8,4% útsendra fréttaviðtala Sjón-
varpsins á árunum 1966 til 1986,
tæp 92% viðtala í fréttatímum voru
við karla. Algengast var að talað
væri við konur um jafnréttismál,
umönnun barna og aldraðra. Rann-
sókn Sigrúnar Stefánsdóttur sem
gerð var fyrir ári á hlut kvenna í
fréttatímum Sjónvarpsins leiðir
meðal annars þetta í Ijós. Aðspurð
um hveijar hún telji framtíðarhorf-
ur segir Sigrún að baráttan fyrir
jafnvægi milli kynja í fréttaflutningi
verði líklega löng og erfið, það séu
margir ánægðir með fjölmiðlana
eins og þeir eru nú. Karlar og kon-
ur sem starfí við fjölmiðla verði
vitaskuld að vinna saman að aukn-
um hlut kvenna.
„Ég vona að kvennaþingið í Osló
hafi gert konur meðvitaðri, þær
sætti sig ekki lengur við fjarveruna
úr fréttum og taki sig saman um
að veita fjölmiðlum aðhald,“ segir
Sigrún. „Konur mega ekki leyfa sér
að segja nei þegar þær eru beðnar
um viðtal. Fæstir blaðamenn nenna
að standa í miklu stappi til að fá
konu til að segja eitthvað sem auð-
Dr. Sigrún Stefánsdóttir
veldlega má fá karl til að segja. „Ég
held raunar að konur geri sér grein
fyrir þessu og vísi æ sjaldnar á
hann Jón eða hann Sigurð.
Fréttamennska var til skamms
tíma karlastarf en það hefur breyst.
Hins vegar er enn notast við frétta-
ramma karla og honum verður að-
eins breytt inni á fjölmiðlunum, með
því að þeir sem þar vinna endur-
skoði hugtakið frétt og fyrir þrýst-
ing utan frá. Áherslur í fréttum
hljóta að breytast ef hlutur kvenna
í fjölmiðlum eykst enn. Átján konur
og tveir karlar hafa skráð sig á
námskeið í fjölmiðlafræði sem ég
sé um við Háskólann næsta vetur.
Gefi þetta vísbendingu um það sem
koma skal hef ég ekki ýkja þungar
áhyggjur."
Hópakstur fom-
bfla tfl Þingvalla
FÉLAGAR úr fimm félögum bif-
reiða- og ökutækjaáhugamanna
tóku sig saman nú um helgina
og óku Þingvallahringinn. Þarna
voru á ferðinni Sniglarnir, Bif-
reiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur,
Kvartmíluklúbburinn, Ferða-
klúbburinn 4x4 og Fornbílaklúb-
burinn, á alls 40 vélknúnum far-
artækjum.
Að sögn Kristins Snæland hjá
Fornbílaklúbbnum var tilgangur
ferðarinnar m.a. að undirbúa sam-
eiginlegt helgamót þessara félaga
næsta sumar og efla samstöðu og
samvinnu „hestaflaáhugamanna“.
Lagt var af stað frá Rafveituhús-
inu við Suðurlandsbraut rétt fyrir
kl.14 á sunnudag og ekið sem leið
lá að Keldnaholti þar sem þátttak-
endur skipuðu sér í þétta röð og óku
hægt gegn um Mosfellsbæ. Á Þing-
völlum var aff.ur numið staðar ofan-
við vellina og mynduð skipuleg röð.
Ekið var að Valhöll og aftur til
baka að þjónustumiðstöðinni, þar
sem ökutækin voru til sýnis í
klukkutíma.
Morgunblaðið/Þorkell
Félagar í Fornbílaklúbbnum á leið til Þingvalla.