Morgunblaðið - 09.08.1988, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 09.08.1988, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 57 Þátttakendur í Snæfells- ási á þriðja hundrað SNÆFELLSÁS ’88, mót sem haldið var á vegTim mannræktar- félagsins Þrídrangs við Arnar- stapa á Snæfellsnesi um helgina, sóttu milli tvö og þrjú hundruð, eða álíka margir og í fyrra. Vegna veðurs breyttist dagskrá mótsins mjög mikið, þar sem flytja varð mest alla dagskrárliði í hús. Sá viðburður sem hvað mesta at- hygli vakti var eldganga. Banda- ríkjamaðurinn Ken Cadigan leið- beindi þeim sem hugðust taka þátt í göngunni og tók undirbúningurinn um sex klukkustundir. Á annað hundrað manns tóku þátt í athöfn- inni sem fólst í því að ganga ber- fættur þijá metra á glóandi kolum. Að sögn Þorsteins Barðasonar hjá Þrídrangi var þetta fyrsta eldgang- an hér á landi. Tókst hún vel og sluppu allir þátttakendur óbrenndir. Fyrirlesarar komu víða að, m.a. frá Nýja Sjálandi, Hawai, Banda- ríkjunum og Þýskalandi. Mestur hluti dagskrárinnar fór fram í kúlu- húsi sem reist var fyrir mótið. . Morgunblaðið/Snorri Böðvarsson Leifur Leópldsson á leiðarenda, undir líkneski Bárðar Snæfellsáss ------—_______ við Arnarstapa á Snæfellsnesi. Skora á fólk að styðja starf Krýsuvíkursamtakanna - segir Leifur Leópoldsson sem nú hefur lokið áheitagöngu sinni LEIFUR Leópoldsson er nú kominn til borgarinnar eftir þrjátíu og þriggja daga gönguferð yfir hálendi íslands, þar sem hann gekk yfir 600 km leið, frá Reyðarfirði i austri og vestur að Arnarstapa á Snæfellsnesi. Leifur er orðinn stálsleginn, að eigin sögn; úthvíldur eftir að hafa dvalið á Snæfellsássmótinu yfir helgina. „Maður kann vissulega vel að meta þægindin heima eftir volkið og nýtur þess að sofa í hlýju rúmi. En friður, ró og fábrotið líf hafa líka sína kosti. Það er afskaplega uppbyggjandi að vera einn í ákveð- inn tíma og koma reglu á hugsanir sínar. Mannskepnan er ekki sköpuð til að búa eins þétt og gerist í borg- inni og ég trúi því að streita nútíma- mannsins skapist m.a. af þéttbýl- inu“ sagði Leifur. Aðspurður um ástæðu þess að hann lagði í þessa göngu sagði hann að sér hefði þótt þarft að styðja Krýsuvíkursamtökin og eins hefði gangan haft mikið gildi fyrir hann sjálfan. „Ég átti fastlega von á því að Krýsuvíkursamtökin ættu að geta haft eitthvað gagn af göngunni og treysti þjóðinni til að styðja starf þeirra" sagði Leifur. „Erfiðasti hluti göngunnar voru fyrstu dagarnir, en ég lærði líka mikið af erfiðleikunum. Ég hef þó nokkuð gert af því að ganga á fjöll. Ég er alinn upp í sveit og fór fótgangandi í skólann. Síðan hef ég æft göngu frá 13 ára aldri og hef haldið mér í mjög góðri þjálfun. Þegar ég var í Garðyrkjuskólanum í Hveragerði gekk ég líka oft milli Hveragerðis og Reykjavíkur. Ég treysti því að fólk líti ekki svo á að söfnuninni sé lokið þó gangan sé á enda og skora á fólk að styðja starf Krýsuvíkursamtak- anna“ sagði Leifur að lokum. Að sögn Snorra Welding hjá Krýsuvíkursamtökunum hafa safn- ast um 3 milljónir króna fram til þessa. Verið er að hringja til fyrir- tækja um land allt með beiðni um styrk til að ljúka fyrsta áfanga skólahússins í Krýsuvík og leggja í það hitaveitu. Sagði Snorri undir- tektir mjög velviljaðar og hefði fólk reitt af hendi frá 2-3 þúsund krón- um og upp í 20 þúsund. „Við reiknum með að okkur tak- ist að ljúka fyrsta áfanga hússins í haust en þá er undir stjómvöldum komið að veita Ieyfí fyrir rekstrinum og þijár kennarastöður sem þyrfti að koma inn á fjárlög. Húsið verður að minnsta kosti nýtt til námskeiða- halds fyrir unglinga, foreldra og fullorðin böm alkóhólista, en til að koma á fót meðferðarstofnun og skólahaldi þurfum við stuðning ríkisins" sagði Snorri. Morgunblaðið/Snorri Böðvarson Bandaríkjamaðurinn Ken Cadigan býr áhugasama þátttakendur undir eldgöngu. Meðlimir i Hare Krishna leika á hljóðfæri sin og bjóða mótsgestum að bragða á grænmetisréttum. Í0lsku BORÐSTOFU- BORÐIN',áCIDUE með þykkri glerplötu eru komin - 3 tegundir - 2 stœrðir BASSANO ECLISSE sófaborð v HÖNNUNf • GÆOI • ÞJÓNUSTA CAMILLO smáborð PONTE ítölskw BORÐSTOFU STÓLARNIR frá CIDUE eru komnir Pantanir tilbúnar til afgreiðslu GINERVA KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. Laugavegi 13 - Hesthálsi 2-4 habitat HEIMILISVERSLUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.