Morgunblaðið - 22.09.1988, Page 22

Morgunblaðið - 22.09.1988, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988 AF INNLENDUM VETTVANGI STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON A NIDURLEIÐ l!R STJÓRNARSAMSTARFl EFTIR að upp úr stjómarsamstarfi Sjálfstæðis- flokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks slitnaði hefiir lítið verið rætt um hina svokölluðu niður- færslu. í sljórnarmyndunarviðræðum milli Fram- sóknarflokks, Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista er öll áhersla lögð á millifærsluna svonefiidu. Þetta vekur fiirðu ef haft er í huga að forystumenn Framsóknarflokks og Alþýðu- flokks hafa margítrekað á siðustu vikum að niður- færslan sé þeirra stefiia i efiiahagsmálum og milii- færslan hafi einungis komið til umræðu sem nokk- urs konar varaskeifa eftir að Sjálfstæðisflokkur hafiiaði niðurfærslunni. í viðtali við Dag á Akur- eyri 13. september sl. sagði Steingrimur Hermanns- son um tillögur forsætisráðherra: „Því miður er þetta ekkert nema millifærsla sem ég hélt að menn hefðu afskrifað í kringum 1960. Það er ekki sam- staða um niðurfærsluna en ég er sannfærður um, eftir að hafa lesið tillögurnar, að niðurfærsla sé eina færa leiðin [leturbreyting Morgunblaðsins] eða a.m.k. sú leið sem vert er að reyna. Sjálfstæðis- fiokkurinn hefur nú hafiiað þeirri leið og mér finnst satt að segja svo sorglegt að horfa á þessar tillögur að ég á varla orð.“ í málgagni Framsóknar- flokksins, Tímanum, er í leiðara 16. september lögð rík áhersla á að niðurfærslan sé stefina Fram- sóknarflokksins: „Forsætisráðherra á að vera það Ijóst, að þær tillögur sem samstarfsflokkarnir hafa lagt fram nú i vikunni koma í kjölfar hans eigin hugmynda efitir að niðurfærsluleiðin var afskrifuð. Þær tillögur er ekki hægt að kalla „óskatillögur", heldur tilraun til þess að bæta úr ágöllum þeirra tillagna, sem forsætisráðherra hefiir nýlega sent frá sér.“ Nú er niðurfærslan hins vegar grafin og gleymdí herbúðum Framsóknarflokks og Alþýðu- flokks. í staðinn er rætt um umfangsmeiri milli- færslu en Sjálfstæðisflokkurinn vildi í sínum tillög- um. Tillögurnar sem áttu að „bæta úr ágöUum“ tíllagna forsætisráðherra eru orðnar að aðalstefnu Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Hermannsson að Framsóknarflokk- ur og Alþýðuflokkur hefðu sam- þykkt að fara niðurfærsluleiðina við efnahagsaðgerðir. Sagði hann að báðir flokkamir legðu áherslu á að verðlækkun yrði tryggð með lögum. í samtali við Morgunblaðið sagðist hann bjartsýnn á að niðurfærslu- leiðin gengi upp. A miðstjómarfundi Sjálfstæðis- flokksins þann sama dag var sam- staða um að reyna niðurfærsluleið- ina til þrautar. Fóru næstu dagar í viðræður milli ríkisstjómarinnar og verkalýðshrejrfingarinnar um niðurfærslu. Steingrímur á þingi SUF Steingrímur Hermannsson flutti ræðu við setningu þings Sambands Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson: „Millifærslan, sem olli þvi, að niðurfærslufor- ingjar, í Framsóknarflokki og Alþýðuflokki, gátu ekki sætt sig við tillögur forsætisráðherra, er orðinn kjarninn í tillögum Steingríms og Jóns Baldvins." að má segja að niðurfærslan hafi fæðst mánudaginn 22. ágúst þegar ráðgjafamefnd ríkis- stjómarinnar kynnti hugmyndir sínar um aðgerðir í efnahagsmálum fyrir ráðhernim og forystumönnum þingflokka. í tillögum nefndarinnar var lagt til að könnuð yrði til þraut- ar sú leið að færa niður laun og verðlag. Tekið var fram að forsenda árangurs væri að jafnvægi næðist í ríkisbúskapnum. Sjónarmið F ramsóknarflokks og Alþýðuflokks Tveimur dögum eftir að „for- stjóranefndin" skilaði tillögum sínum, miðvikudaginn 24. ágúst, ræðir Alþýðublaðið við þá Steingrím Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Jón Baldvin var spurður hvort hann teldi ekki að niðurfærslan myndi bitna fyrst og fremst á þeim sem vinna hjá ríkinu eða em á „strípuðum töxtum". Hann svarar „Ef menn hafa til þess einbeittan vilja og skirrast ekki við að beita ströngum viðurlög- um, þá er hægt að tryggja að menn fái ekki neinn sjálfkröfurétt." Alþýðublaðið heldur áfram: „Jón Baldvin bendir á að stundum ræði menn niðurfærsluna fyrst og fremst varðandi launin, verðlagið og vext- ina. „Þetta er að mínu viti misskiln- ingur. Kjaminn í niðurfærsluleið- inni er samdráttur í ijármálum ríkissjóðs og í flárfestingum hins opinbera og atvinnuveganna." Steingrímur Hermannsson segir: „Ég tel niðurfærsluna koma til greina, enda verði hún útfærð í gegnum allt kerfið." Sjónarmið Sjálfstæðisflokks Morgunblaðið ræðir þennan sama dag við þá Þorstein Pálsson og Ólaf ísleifsson, efnahagsráðu- naut ríkisstjómarinnar, um skýrslu ráðgjafamefndarinnar. Þorsteinn Pálsson segir m.a.: „Leið sem þessi er þess eðlis að um hana þarf að vera þjóðarsátt. Það er forsendan fyrir því að hún heppnist í fram- kvæmd." Ólafur ísleifsson segir: „Ég hef miklar efasemdir um niðurfærsluna meðal annars vegna þess að ég held að launalækkanimar myndu koma afar misjafnlega niður á laun- þegum. Hætta er á að slíkt myndi hafa í för með sér launamisrétti sem ekki yrði þolað." Allir stjómarflokkamir héldu þingflokksfiindi 24. ágúst. Fram- sóknarmenn og Alþýðuflokksmenn ákváðu að gefa ráðherrum sínum fullt umboð til að reyna að ná sam- stöðu um niðurfærsluleiðina í ríkis- stjóminni. Sjálfstæðismenn töldu hins vegar forsendu þess að niður- færsluleiðin væri fær að samráð og samstaða tækist við samtök laun- þega um framkvæmd hennar. Vildu þeir að Alþýðusamband íslands léti í ljós álit á málinu og var því skot- ið til þess. Afstaða ASÍ Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, brást strax mjög hart við hug- myndum um niðurfærsluleið og sagði að um hana gæti ekki orðið þjóðarsátt. í samtali við Morgun- blaðið 25. ágúst sagði hann m.a.: „Ég er ósammála því að ganga eigi í kjaraskerðingu og sú aðferð sem þama er verið að tala um, er aug- Ijóslega mjög óréttlát því það blasir við að þeir sem eru á lægsta kaup- inu myndu fyrst og fremst bera byrðamar." Jón Baldvin Hannibalsson var inntur álits af Morgunblaðinu á afstöðu Asmundar. Jón Baldvin sagði að allir vildu samstöðu og þjóðarsátt „en ef einhver segir nei, á það að ráða úrslitum?" Þann 26. ágúSt tók ríkisstjómin ákvörðun um að fresta með bráða- birgðalögum til loka september þeim launahækkunum og hækkun búvöruverðs sem átti að koma til framkvæmda 1. september. Jafn- framt ákvað ríkisstjómin almenna verðstöðvun frá 27. ágúst til 30. september. í yfírlýsingu ríkisstjóm- arinnar um efnahagsaðgerðimar sagði að með „þessum aðgerðum er ætlað að skapa svigrúm til athug- unar og undirbúnings aðgerða sem miða að því að treysta rekstrar- grundvöll útflutnings og samkeppn- isgreina atvinnulífsins og hemja verðbólgu. í því sambandi er nú unnið að könnun á niðurfærslu verðlags, vaxta og launa, m.a. með viðræðum við aðila vinnumarkaðar- ins.“ Eftir fund ríkisstjómarinnar þann 26. ágúst sagði Steingrímur ungra framsóknarmanna laugar- daginn 3. september. Þar ítrekaði Steingrímur stuðning Framsóknar- flokksins við niðurfærsluna. Hann sagði m.a.: „Teningunum hefur ver- ið kastað. Með frestun aðgerða og samþykki verkalýðshreyfingarinnar verður ekki aftur snúið með niður- færsluleiðina sem er eina færa leiðin [leturbreyting Morgunblaðs- ins] út úr þeim efnahagsþrenging- um sem þjóðin er nú í. Því þarf ríkisstjómin að taka fjölmargar ákvarðanir á mörgum sviðum næstu tvær til þijár vikumar." Fundur ASÍ og ríkisstjórnarinnar Mánudaginn 5. september var haldinn fyrsti formlegi samráðs- fundur ríkisstjómarinnar og ASÍ. Menn urðu fyrir nokkram vonbrigð- um með fundinn og sagði Þorsteinn Pálsson að honum loknum að hann hefði vonast eftir meiri árangri og að hann gæti ekki sagt að líkumar á víðtækri samstöðu um niður- færslu verðlags og launa hefðu aukist. Ásmundur Stefánsson kvaðst einnig svartsýnn á niður- færsluleiðin gæti gengið upp. „Fundurinn olli mér miklum von- brigðum," sagði Ásmundur. Daginn eftir var haldinn mið- stjómarfundur ASÍ og setti mið- stjómin það sem skilyrði fyrir áframhaldandi viðræðum að þær snérast ekki um lækkun launa. Þegar Morgunblaðið bar þessa af- stöðu ASl undir Þorstein Pálsson svaraði hann: „Ég get ekki séð að niðurfærslan sé fær við þær að- stæður sem nú era komnar upp. Það er ekki raunhæft að reyna hana eftir svo afdráttarlaust svar sem felst í ályktun ASÍ.“ Steingrímur Hermannsson taldi hins vegar að niðurfærsluleiðin væri ekki að fullu útfærð. „Af hálfu ríkisstjómarinnar liggja ekki enn fyrir þær hliðarráðstafanir sem gera átti samhliða launalækkuninni eins og lækkun raunvaxta eða af- nám lánskjaravísitölunnar." Hann sagði að aldrei hefði verið hægt að búast við öðra vísi viðbrögðum frá ASÍ og vildu framsóknarmenn að niðurfærslan yrði „útfærð af fullum þunga og réttlæti yfír alla línuna". Jón Baldvin Hannibalsson sagði enn vera svigrúm til að ræða niður- færsluna ef ASÍ vildi ræða lækkun verðlags og vaxta með lögum sam- hliða niðurfærslu launa. Hann sagði ekki hægt að framkvæma niður- færslu án kjaraskerðingar en sú kjaraskerðing yrði minni og létt- bærari fyrir þá verst settu en kjara- skerðing sem hlytist af gengisfell- ingu. „Það er mikið talað nú um millileið sem er í því fólgin að fram- lengja verðstöðvun og frystingu launa fram að áramótum og jafnvel lengur. Það er ekki hægt að fram- fylgja verðstöðvun svo lengi nema með lögþvingunum, sem yrði fram- fylgt með viðurlögum. Vandi út- flutningsgreinanna, sem þýðir fjár- vöntun upp á 1,5-2 milljarða, myndi kalla á millifærslu, sem er vond leið í sjálfu sér, en stundum brýtur nauðsyn lög. Það er spuming hvort mönnum yrði eitthvað ágengt í framhaldi af þessu og það fer eftir því hvort mönnum verði eitthvað ágengt í að slá á orsakir þenslunn- ar. Því svara stjómarflokkamir þegar þeir taka afstöðu til fjárlaga- framvarpsins." Niðurfærsla úr myndinni vegna „yfirlýsinga Þorsteins“ Alþýðublaðið segir í forsíðufrétt miðvikudaginn 7. september: „Eftir fund miðstjómar Alþýðusambands- ins í gær og yfirlýsingar Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra virðist ljóst að niðurfærsluleiðin er út úr myndinni...Jón Baldvin sagði vand- ann hafa legið í því að af hálfu Sjálfstæðisflokksins hafi aldrei ver- ið fallist á forsendu niðurfærslunn- ar, þ.e. lögbindingu á lækkun verð- lags og vaxta ásamt nýjum laga- heimildum til að beita viðurlögum til að fylgja þeirri stefnu eftir í framkvæmd. Hann segir að þess hafi aldrei verið að vænta að for- ystumenn verkalýðshreyfingarinn- ar yrðu tilbúnir til að samþykkja lögbindingu á lækkun launa eina og sér. „Ástæðan fyrir því að þess- ar viðræður hlupu í hnút vora því þær að ríkisstjómin lýsti því aldrei yfir einum rómi að hún væri tilbúin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.