Morgunblaðið - 22.09.1988, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988
í MNGHLÉI_____________________
Of margir, of smáir og of
veikir stjómmálaflokkar
Völd o g áhrif Framsóknarflokks langt umfram kjörfylgi
Stefán Friðbjarnarson
Glaðhlakkalegir formenn Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags, eftir að tveir þeir fyrrne&du höfðu sett
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar stólinn fyrir dyrnar.
Allar götur frá árinu 1971
hefur Framsóknarflokkurinn
setið í ríkisstjórnum — öllum
ríkisstjórnum þessa tímabils —
ef undan er skilin tæplega Qög-
urra mánaða minnihlutastjórn
Benedikts Gröndal um áramótin
1979/1980. Þetta hefur enginn
annar stjórnmálaflokkur leikið
eftir.
A þessum 17 árum hafa setið
sex meirihlutastjórnir, bæði
vinstri og hægri stjórnir, sem
eiga aðeins eitt sameiginlegt:
stjórnaraðild og stjórnarábyrgð
Framsóknarflokksins. Stjórnar-
ábyrgð Framsóknarflokksins
spannar tímabilið allt!
Fimmtungur atkvæða, sem er
meðalkjörfylgi Framsóknar á
þessu árabili, hefur dugað
flokknurn til samfelldrar sautj-
án ára stjórnaraðildar (til vinstri
og hægri eftir atvikum) — og
stjórnarforystu í þremur af sex
ríkisstjórnum tímabilsins.
I
Samstjóm Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks, viðreisnarstjómin,
sat í tæp tólf ár (1959-1971).
Þrennt er það sem heldur nafni
hennar á lofti, öðm fremur:
1) Hún leysti íslenzkt atvinn-
ulíf úr fjötrum hafta og skömmtun-
ar og bjó því líkar aðstæður og
bezt höfðu reynzt öðmm vestræn-
um lýðræðisþjóðum.
2) Hún hélt árlegri verðbólgu
í eins stafs tölu, að meðaltali, öll
viðreisnarárin. Ekki hefur í annan
tíma í sögu lýðveldisins ríkt jafn
mikill stöðugíeiki eða eins gott
jafnvægi í efnahagsbúskap þjóðar-
innar.
3) Engin íslenzk ríkisstjóm á
lýðveldistímanum hefur setið leng-
un haldið þingmeirihluta í þjjú
kjörtímabil. Tveggja flokka ríkis-
stjómir hafa á heildina litið reynzt
lífseigari og gagnsamari þjóðinni
en fjölflokka-stjórnir.
Árið 1971 sezt að völdum vinstri
stjóm, samstjóm Framsóknar-
flokks, Alþýðubandalags og Sam-
taka frjálslyndra og vinstri manna.
Ólafur Jóhannesson, formaður
Framsóknarflokksins, leiddi þá
ríkisstjóm. Það var í tíð hennar
sem verðbólgan náði tökum á
íslenzku samfélagi. Hún hefur sett
mark sitt á það síðan, í 17 ár, allt
þetta langa stjómarábyrgðartíma-
bil Framsóknarflokksins.
II
Frá og með árinu 1971 hafa
íslendingar sex sinnum kosið til
Alþingis. Kjörfylgi Framsóknar-
flokksins var sem hér segir: 1971
25,3%, 1974 24,9%, 1978 16,9%,
1979 24,9%, 1983 18,5% og 1987
18,9%. Sem sagt frá um 17% til
um 25% kjörfylgi.
Flokki með aðeins fimmtung
meðaltalsfylgis frá 1971 talið hef-
ur tekizt að tryggja sér samfellda
stjómarsetu þessi 17 ár — og
stjómarforystu tæpa helft tíma-
bilsins — eða með öðmm orðum
völd og áhrif langt umfram kjör-
fylgi.
Flokkurinn hefur setið í ríkis-
stjómum til hægri og vinstri, eftir
því hvem \ -g kaup hafa gerzt á
eyrinni. Slegið „eign sinni“ á það,
sem sæmilega tókst til með, en
þótzt hvergi hafa nærri öðru kom-
ið.
Stefnufesta er ekki einkenni
Framsóknarflokksins, ef undan er
skilin sú „stefnufesta", að halda
völdum valdanna vegna, hvað sem
líður kjörfylgi.
Það má ef til vill orða það svo,
eins og stundum er sagt um „ljöl-
hæfa“ leikara, að þeir geti bmgðið
sér í allra kvikinda líki. Þá list
kann Framsóknarflokkurinn í
pólitískum skilningi öðmm fremur,
þegar ríkisstjómir, framkvæmda-
valdið, er annarsvegar. Alþýðu-
skilgreiningar á Framsóknar-
flokknum, eins og „opinn í báða
enda“ og Já, já og nei nei flokk-
ur“ og fleiri af líku tagi segja sína
sögu hér um.
Það kann að vera stjórnlist, í
sérstæðum skilningi að vísu, að
vera stundum miðjuflokkur, stund-
um vinstri flokkur, skipta um lit
og andlit frá einni ríkisstjóm til
annarrar. En eftir 17 ára samfellda
stjómarsetu og stjómarábyrgð,
sem skilað hafa þeim árangri sem
raun ber vitni með ásigkomulagi
þjóðmála á líðandi stundu sem og
glundroða verðbólguáranna er
sennilega kominn tími til að Fram-
sóknarflokkurinn fái orlof frá
stjómarsetu, ríflega útilátið. Hvort
svo verður er ekki séð þegar þessi
orð em sett á blað (miðvikudag).
III
Eftir 12 ár stjómartíma við-
reisnar hafa sjö ríkisstjómir setið
í landinu. Aðeins tvær (tveggja
flokka stjómir Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks) sátu út
kjörtímabilið. Hinar tórðu frá fá-
einum mánuðum upp í þrjú ár,
þegar bezt lét. Þessar ríkisstjómir
em:
* Ráðuneyti Ólafs Jóhannesson-
ar: 14. júlí 1971 - 28. ágúst 1974.
Þriggja flokka vinstri stjóm. Lifði
3 ár.
* Ráðuneyti Geirs Hallgríms-
sonar 28. ágúst 1974 - 1. septem-
ber 1978. Tveggja flokka stjórn.
Lifði heilt kjörtímabil.
* Ráðuneyti Ólafs Jóhannesson-
ar 1. september 1978 - 15. októ-
ber 1979. Þriggja flokka vinstri
stjóm. Lifði 1 ár.
* Ráðuneyti Benedikts Gröndai
15. október 1979 - 8. febrúar 1980.
Minnihlutastjóm Alþýðuflokks.
Lifði tæpa fjóra mánuði.
* Ráðuneyti Gunnars Thorodd-
sen 8. febrúar 1980 - 26. maí
1983. Ríkisstjóm Alþýðubanda-
lags, Framsóknarflokks og nokk-
urra sjálfstæðisþingmanna. Lifði 3
ár.
* Ráðuneyti Steingríms Her-
mannssonar 26. maí 1983 — 16.
október 1987. Tveggja flokka
stjóm. Lifði heilt kjörtímabil.
Ráðuneyti Þorsteins Pálssonar
8. júlí 1987 — september 1988.
Þriggja flokka stjóm. Lifði fjórtán
mánuði.
Engin flölflokka-ríkisstjóm hef-
ur haldið út heilt kjörtímabil —
allar götur frá stofnun lýðveldisins.
IV
Meginástæða þess, hve ríkis-
stjómir hér á landi hafa verið veik-
ar og ómarkvissar í störfum, er
sú, að mínu mati, að stjómmála-
flokkar em hér of margir, of
smáir og þar af leiðandi of veik-
ir.
Staða mála á þingi er sú að
engir tveir flokkar hafa þingstyrk
til að mynda saman ríkisstjóm,
hvað þá að einn flokkur hafl að-
stöðu til þess að axla stjómar-
ábyrgð, eins og víða gerist erlend-
is.
Eini kosturinn er ríkisstjóm
þriggja eða fleiri flokka. í ljósi
reynslunnar verður að telja fjöl-
flokka ríkisstjómir veikar stjómir,
sem gagnist þjóðinni ekki nægi-
lega vel. Þetta er höfuðgalli hins
íslenzka smáflokkakerfís.
Það meginmarkmið lýðræðis og
þingræðis, að landsmenn, kjósend-
ur, hafl augljósa og markvissa
kosti að velja um í kosningum,
hefur allt að því glatazt í smá-
flokkakerfí okkar. Kjósendur vita
ekki, þegar þeir ganga að kjör-
borði, hvers konar ríkisstjóm eða
hverskonar stjómarstefnu þeir eru
að kjósa yfir sig.
Dæmi: Framsóknarflokkur, sem
fékk 24,9% kjörfylgi 1974, hrapar
niður í 16,9% fylgi 1978 (og miss-
ir fímm þingmenn). Engu að síður
myndar formaður hans ríkisstjóm
að loknum kosningum (með stuðn-
ingi Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags). Ekki er hægt að segja
að vilji kjósenda — niðurstaða
kosninganna — hafi speglast í
þessari stjómarmyndun. Fremur
hið gagnstæða.
Það kemur ekki á óvart að
„tveggja flokka kerfi" hefur stuðn-
ing í nýlegri skoðanakönnun
Skáíss. Færri og stærri flokkar
gefa kjósendum skýrari valkosti í
kosningum og tryggja betur að
stjórnarmyndanir spegli meiri-
hlutavilja í kosningum.
Það er mikilvægt, ef þróa á mál
til réttrar áttar að þessu leyti,
m.a. setja í lög ákvæði um að fram-
boðsflokkar þurfi að fá ákveðið
lágmarksfylgi í kosningum til að
fá fulltrúa kjörna á Alþingi. Þá er
og ótvírætt að einmenningskjör-
dæmi tryggja betur en stór hlut-
fallskjördæmi þróun til stærri,
sterkari og samhentari stjóm-
málaflokka.
Hinsvegar má það ekki gleym-
ast, að kjósendur geta, jafnvel að
óbreyttu kosningakerfi, þokað
þessum málum til réttrar áttar —
með atkvæði sín að vopni: með því
að ýta smáflokkagerinu og ýmiss
konar sérvizkuframboðum til hlið-
ar og styrkja hina stærri flokkana.
/M* RONNING
•//"/ heimilistæki
KRINGLUNNI 8-12/103 REYKJAVÍK/SÍMI (91)685868
j/r
Pennavinir
Fjórtán ára finnsk stúlka vill
skrifast á við 15t17 ára íslenzka
stráka:
Elina Mutanen,
Walliininkatu 8 B26,
00530 Helsinki,
Finland.
Sautján ára vestur-þýzk stúlka
með áhuga á bókalestri, bréfaskrift-
um, tónlist o.fl.:
Caroline Jung,
Westenwaldstrasse 30,
D-6330 Wetzlar 21,
West Germany.
Frá Austur-Þýzkalandi skrifar
stúlka, sem líklega er á táninga-
aldri. Hefur áhuga á dýrum, tón-
list, tungumálum o.fl.:
Sabine Vogel,
Schultstr. 13,
Vollunaritz,
1251 G.D.R.
Dönsk stúlka, hátt á tvítugs-
aldri, hefur áhuga á að heim-
sækja ísland og jafvel vinna hér.
Vill komast í kynni við íslendinga
áður:
Anne Jacobsen,
Sct. Mogensgade 30C,
8800 Viborg,
Danmark.
Nýtt námsefni
í skyndihjálp
Kynningarfundir fyrir starafandi leiðbeinendur
í skyndihjálp verða haldnir á Akureyri og Egils-
stöðum laugardaginn 15. okt. nk. kl. 13.00.
Innritun og nánari uppl. eru veittar í síma
91-26722.
IRaudi Krosslsiands