Morgunblaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
Sjónvarpið:
Sveinn Einarsson
ráðinn dagskrárstjóri
SVEINN Einarsson, rithöfund-
ur og leikstjóri, hefur verið
ráðinn dagskrárstjóri innlendr-
ar dagskrárdeildar sjónvarps-
ins til Qögurra ára frá næstu
áramótum. Gengið var frá
ráðningu Sveins eftir atkvæða-
greiðslu í útvarpsráði í gær.
Þar hlaut Sveinn 5 atkvæði og
Bryndís Schram 1. Magdalena
v Schram á sæti í útvarpsráði,
en hún tók ekki þátt í atkvæða-
greiðslunni.
„Mér þykir vænt um traustið,
sem mér er veitt með þessum
hætti," sagði Sveinn Einarsson í
samtali við Morgunblaðið. „Ég
mun ganga glaðbeittur til verks,
en ég hef nokkum tíma til að
glöggva mig á verkefninu. Auðvit-
að er ég með nokkrar hugmyndir,
en mestu máli skiptir að innlend
dagskrárgerð eflist. Þar er ekki
um stefnubreytingu að ræða,
heldur átak. Landsfeðumir hafa
oft lýst þeirri nauðsyn að efla inn-
ienda dagskrárgerð og nú þurfa
menn að taka höndum saman til
að svo megi verða. Annars vil ég
spara yfirlýsingar og vil heldur
sjá hvemig mér gengur að efna
drauminn. Framkvæmdin er held-
ur ekki eins manns verk, heldur
samvinna margra og ég hugsa
með ánægju til þess að vinna með
fólkinu á sjónvarpinu," sagði
Sveinn Einarsson.
Sveinn mun gegna starfi dag-
skrárstjóra í fjarveru Hrafns
Gunnlaugssonar. Hann hefur
fengið iaunalaust leyfi frá störfum
í fjögur ár til að vinna að sameig-
inlegum verkefnum norrænu sjón-
varpsstöðvanna.
Sveinn fæddist í Reykjavík 18.
september 1934. Hann varð stúd-
ent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1954, stundaði fram-
haldsnám við háskólann í Sor-
Sveinn Einarsson
bonne í París og lauk fil. lic. prófi
í leikhúsfræðum frá Stokkhólms-
háskóia 1964. Hann var leik-
hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur
1963 til 1972, Þjóðieikhússtjóri
1972 til 1983, ráðunautur í menn-
ingarmálum í menntamálaráðu-
neytinu frá 1983 og starfandi leik-
stjóri frá árinu 1965.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR IDAG, 14. OKTÓBER
YFIRLIT f GÆR: Yfir Grænlandi er kyrrstæð 980 mbl lægð. Um
1200 km suðvestur af Reykjanesi Qr vaxandi 985 mb lægð, sem
hreyfist allhratt norðaustur. Hiti breytist fremur litið.
SPÁ: Framan af degi verður hvöss sunnan- og suðaustanátt og
rigning víða um land, en nálægt hádegi snýst vindur til suðvestan-
áttar á vestanverðu landinu með skúrum eða slydduéljum. Undir
kvöld léttir til austanlands. Hiti víðast 5—10 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestlæg átt og fremur svalt. Skúrir eða
slydduél vestanlands, en annars þurrt. Víða léttskýjaö á austan-
verðu landinu.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suöaustanátt og sæmilega hlýtt. Rigning
á sunnanverðu landinu en þurrt fyrir norðan.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyrí 8 skýjað
Reykjavfk 6 skúr
Bergen 10 rígning
Holsinki 9 súld
Kaupmannah. 12 þokumóða
Narssarssuaq +2 lóttskýjað
Nuuk -r lóttskýjað
Osló 9 þokumóða
Stokkhólmur 11 þokumóða
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 21 léttskýjað
Amsterdam 18 mistur
Barcelona 21skýjað
Chicago 8 heiðskírt
Feneyjar 18 rigning
Frankfurt 15 skýjað
Glasgow 13 mistur
Hamborg 13 þokumóöa
Las Palmas 25 léttskýjað
London 15 þokumóða
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 14 skýjað
Madríd 11 rigning
Malaga vantar
Mallorca 24 hélfskýjað
Montreal 5 skúr
NewYork 5 léttskýjað
París 17 rígning
Róm 25skýjað
San Diego 17 skýjað
Winnipeg 5 láttskýjað
Þorskaflinn dregst
saman um 25.000 tonn
ÞORSKAFLI landsmanna um síðustu mánaðamót var 25.835 tonnum
minni en á sama tíma siðasta ár. Heildarafli er hins vegar meiri og
munar þar um 100.000 tonnum. Liggnr sá munur nær eingöngu í
meiri loðnuafla nú. Ýsuafli hefur aukizt verulega milli áranna eða
um nær 50%. Aflinn í september var alls 52.781 tonn, 2.000 tonnum
minni en í fyrra og liggur munurinn þar einnig í loðnu.
Heildaraflinn nú var 1.184.196
tonn. Af því var mest af loðnu,
612.053 tonn, af þorski 295.237,
69.154 af karfa, 53.647 af ufsa,
37.910 af ýsu og 23.037 af rækju.
A sama tíma í fyrra var heildarafl-
inn 1.086.545 tonn. 499.687 af
loðnu, 321.062 af þorski, 64.267
af karfa, 66.886 af ufsa, 5.649 af
ýsu og 28.869 af rækju. Mestu
sveiflumar eru í loðnuafla, sem
jókst um 111.000 tonn, ýsuafli jókst
um 12.000 og karfaafli um tæp
5.000. Afli af ufsa dróst saman um
13.000 tonn og af rækju um 5.800.
Grálúðu afli jókst um rúm 3.000
tonn. Afli togara jókst um 5.000
tonn rúm, báta um 91.500, en afli
smábáta stóð í stað. Smábátum
hefur fjölgað um fjórðung á einu
ári og kemur því að meðaltali mun
minna í hlut hvers og eins en árið
áður.
í september varð heildaraflinn
nú 51.781 tonn. 18.591 tonn af
þorski, 10.673 af karfa, 6.144 afa
ufsa, 5.623 af loðnu, 3.112 af ýsu
og 1.737 af rækju. í fyrra var afl-
inn 53.717. 20.376 af þorski,
10.674 áf karfa, 6.337 af ufsa,
7.616 af loðnu, 1.483 af ýsu og
3.298 af rækju. Rækjuaflinn er því
nær tvöfalt minni, en ýsuaflinn
rúmlega tvöfalt meiri. Hvað aðrar
tegundir varðar er munurinn tæp-
ast marktækur.
Afli togara í september varð
27.791 tonn, 30.420 í fyrra, báta
20.553 tonn, 21.507 í fyrra og afli
smábáta varð nú 3.437 tonn, en í
fyrra 1.790 tonn.
Atvinnuleysistryggingasjóður:
Skerðingu íramlaga um
600 milljónir mótmælt
Rddsvaldið rýfur samkomulag, segja ASÍ og VSÍ
STJÓRN Atvinnuieysistryi
ingasjóðs, Alþýðusamband Is-
lands og Vinnuveitendasamband
Islands hafa mótmælt ákvörðun
ríkissljórnarinnar um að skerða
framlög til sjóðsins um 600 miiy-
ónir og segja að sjóðurinn geti
orðið ófær til að gegna hlutverki
sínu ef eitthvað bregði út af í
atvinnumálum. Upphæðin á að
renna í hinn nýstofiiaða Atvinnu-
tryggringasjóð útflutningsveg-
anna. í árslok 1987 voru skuldir
og eigið fé Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs 1,8 milljónir króna og
hann greiddi út 233 mil^ónir í
atvinnuleysisbætur og 221 mil(j-
ón I eftirlaun aldraðra.
Daði Ólafsson, formaður stjómar
Atvinnuleysistryggingasjóðs, sagði
að 600 milljónir króna væri gífur-
iegt fé miðað við eignarfjárstöðu
sjóðsins. Stjóm sjóðsins legði
áherslu á að staðið væri við gerða
samninga og að sjóðurinn yrði vel
í stakk búinn til að mæta þeim
skyldum sem á hann væm lagðar.
í sameiginlegri samþykkt Al-
jjýðusambands Islands og Vinnu-
veitendasambands íslands segir að
með ákvörðun sinni hafí ríkisvaldið
rofið einhliða áratuga samkomulag
sitt við aðila vinnumarkaðarins og
sveitarfélögin um fjármögnun At-
vinnuleysistryggingasjóðs. Með öllu
óviðunandi sé að einn aðili þríhliða
samnings, sem bundinn sé í lög,
skuli leysa sig undan fjárhagslegum
skuldbindingum sínum.
I samþykkt stjómar Atvinnuleys-
istryggingasjóðs segir að til greina
komi að veita lán til hins nýja sjóðs,
en ríkisstjómin er krafin um að
greiða lögbundið framlag sitt I At-
vinnuleysistryggingasjóð. Ríkis-
valdið hafi lagt þungar aukaskyldur
á sjóðinn, svo sem greiðslur eftirla-
una og fæðingarorlofs, og vegna
þessa hafi verðmæti sjóðsins stór-
lega minnkað miðað við fjárhæð
bóta. Bent er á að þrátt fyrir minna
atvinnuleysi síðustu ár en um ára-
bil áður hafi ráðstöfunarfé sjóðsins
minnkað að verðgildi.
Andri Már Ingólfs-
son framkvæmda-
stjóri Utsýnar
ÁKVÖRÐUN um að Helgi Magn-
ússon hætti forsfjórastarfi hjá
Utsýn var tekin fyrir nokkru.
Hann mun taka við ritstjóra-
starfi Fijálsrar verslunar frá og
með 15. þessa mánaðar. Við
framkvæmdasfjórn í Útsýn hefiir
tekið Andri Már Ingólfsson og
heyrir allur daglegur rekstur
undir hann, en stjórnarformaður
er Ingólfur Guðbrandsson stofn-
andi Utsýnar.
Andri Már Ingólfsson er 25 ára
gamall viðskiptafræðingur. Hann
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð 1982 og prófi
í viðskiptafræði frá Háskóla Islands
1987. Lokaritgerð hans fjallaði um
ferðalög og ferðamál íslendinga,
að undangenginni rannsókn. Árið
1983 dvaldist hann í Los Angeles
við háskólanám og vann jafnframt
á alþjóðlegri ferðaskrifstofu. Hann
hlaut starfsreynslu sína í ýmsum
störfum hjá Útsýn, meðal annars
fararstjóm erlendis frá unglingsá-
rum og er því þaulkunnugur rekstr-
inum.
Rekstur Útsýnar hefur gengið
vel það sem af er þessu ári. Bæði
er um að ræða aukningu í sölu
hópferða og í farseðlasölu til ein-
Andri Már Ingólfsson.
staklinga frá árinu 1987 sem var
metár. Fyrstu 8 mánuði ársins var
fyrirtækið rekið með ágætum hagn-
aði.
Eins og kunnugt er flutti Útsýn
í apríl síðastliðnum aðalskrifstofu
sína úr Austurstræti að Álfabakka
16 í Mjóddinni. Hefur sú breyting
mælst afar vel fyrir hjá viðskipta-
vinum Útsýnar, enda er rúmt um
starfsemina og bílastæði eru að-
gengileg. (FréttatUkynning)