Morgunblaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
Perú:
30 verkalýðsleið-
togar handteknir
'r“ IX '
Lima. Reuter.
LÖGREGLAN I Lima handtók
þrjátíu verkalýðsleiðtoga, meðal
annars fjóra háttsetta forystu-
menn stærstu verkalýðssamtaka
Perú, og 300 verkamenn til við-
bótar í gær þegar efiit var til alls-
herjarverkfalLs í Iandinu til að
Andrej Sakharov:
Umbótunum
stafer hættaaf
flokksvélinni
Moskvu. Reuter.
ANDREJ Sakharov, sem hlotið
hefiir friðarverðlaun Nóbels,
sagði í viðtali sem birt var í sov-
éska dagblaðinu Molocfjozh Est-
onii á þriðjudag að umbótastefiiu
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga stafaði
hætta af öfgasinnuðum aftur-
haldsöflum í Sovétrflgunum.
Umbótastefna Gorbatsjovs, per-
estrojka, var að hluta til undirbúin
af „því fólki sem hélt því fram að
Sovétmenn væru á mjög mörgum
sviðum á villigötum," sagði Sak-
harov. „Nú er öllum þetta ljóst nema
öfgasinnuðu afturhaldsöflunum, sem
því miður hafa enn veruleg völd í
landinu," bætti hann.
Sakharov sagði að í Sovétríkjunum
ríkti óstöðugleiki þrátt fyrir umbæ-
tumar. „í raun hefur ekkert breyst
enn. Þetta merkir að gamla flokks-
vélin sem var við völd í áratugi berst
gegn breytingum og ætlar ekki að
gefa völd sín eftir. Það sem verra
er, hún reynir að hefla gagnsókn,"
sagði Sakharov. Hann nefndi ekki
nöfn þeirra embættismanna sem
hann hafði í huga í viðtalinu.
Sakharov var dæmdur í útlegð
árið 1980, þegar Leoníd Brezhnev,
fyrrum Sovétleiðtogi, var við völd,
en Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
gekkst fyrir því að hann yrði leystur
úr útlegðinni árið 1986.
ögra rikissfjóminni.
Lögreglan bauð blaðamönnum að
skoða verkalýðsleiðtogana ' sem
krupu þöglir við vegg í höfuðstöðvum
eins verkalýðsfélagsins í Lima. Tals-
menn lögreglunnar sögðu að sprengj-
ur hefðu fundist í byggingunni. Juan
Jose Gorritti, talsmaður stærstu
verkalýðssamtaka landsins, CGTP,
sem er með 1,8 milljónir félaga, hélt
því fram í símasamtali við fréttarit-
ara Reuters að lögreglan hefði sjálf
komið sprengjunum fyrir.
Innanríkisráðherra Perú sagði að
10.000 lögreglumenn, vopnaðir vél-
byssum, færu eftirlitsferðir um Lima,
bæði gangandi og í brynvörðum
bílum, til að koma í veg fyrir óeirðir
meðan á allsheijarverkfallinu stend-
ur.
Boðað var til verkfallsins þrátt
fyrir að ríkisstjóm landsins hefði
gefið út yfírlýsingu & fimmtudags-
morgun um að það væri ólöglegt.
Reuter
Lögreglumenn fylgjast með verkamönnum sem voru handteknir á fundi eins verkalýðsfélagsins í Lima,
höfuðborg Perú, eftir að boðað hafði verið til allsheijarverkfalls sem stjóm landsins telur ólöglegt.
30 verkalýðsleiðtogar og 300 verkamenn vom handteknir í Lima í gær.
Júgóslavía:
Gífurlegar öryggisráðstaf-
anir vegna fínim flokksfunda
Belgrað. Reuter.
GRIPIÐ hefur verið til gífiir-
legra öryggisráðstafana í Júgó-
slavíu vegna funda sem komm-
únistaflokkur landsins efiiir til í
fimm hémðum landsins og hóf-
ust í gær. Flokksdeildir í Svart-
fjallalandi, Makedóníu, Króatíu,
Kosovo og Vojvodinu boðuðu til
fimdanna í því skyni að ræða
pólitíska upplausn í landinu sem
er hin mesta frá lyktum síðari
heimsstyijaldaráinnar. Miðstjóm
Kommúnistaflokks Júgóslaviu
kemur saman til fiindar á mánu-
dag. Er talið líklegt að þar verði
þriðjungi af helstu oddvitum
flokksins vikið til hliðar.
„Við höfum ekki kynnst slíkum
öryggisráðstöfunum frá því að Tító
forseti andaðist árið 1980,“ sagði
Belgraðbúi við fréttaritara Reuters.
Lögregla hefur sett upp vegatál-
manir og biður ökumenn um skilríki
í Svartflallalandi, skammt frá
landamærum Albaníu. Almanna-
vamaliðar um land allt eru í við-
bragðsstöðu og eftirlit með vegfar-
Flugeldar yfír Masada
Reuter
Flugeldar leiftra yfir hinu foma virki á Qallinu
Masada í lok tónleika sem haldnir vora á fimmtu-
dagskvöld í tilefiii þess að hátíðahöldum vegna
40 ára afmælis Ísraelsríkis var að ijúka. Masada,
tákn hetjulundar gyðinga, rís upp úr eyðimörk-
inni við Dauðahafið þar sem 960 gyðingar sviptu
sig lífi fremur en gefast upp fyrir rómversku
umsátursliði áríð 73 efitir Krist. Meðal þeirra sem
hlýddu á flutning Fílharmóníusveitar ísraels á
Annarrí symfóníu Mahlers undir stjórn Zubins
Mehtas vom Yitzhak Shamir forsætisráðherra,
Gregory Peck skemmtanastjóri þetta kvöld og
franski leikarinn Yves Montand.
endum hefur verið aukið í helstu
borgum landsins. í Títógrað, höfuð-
borg Svartfjallalands, er miðstjóm
flokksdeildarinnar þar að ræða
saman í skjóli öflugs lögregluvarð-
ar.
í júgóslavneska hemurn hafa
leyfi verið afturkölluð og fleiri vara-
liðar en venjulega hafa verið kallað-
ir til æfinga. Ný skilríki hafa verið
gefin út fyrir þá, sem hafa aðgang
að mikilvægum stjómarbyggingum.
Almannavamanefndir í mörgum
verksmiðjum hafa efnt til funda og
hvatt verkamenn til að vera á verði
gagnvart ofbeldi eða skemmdar-
verkum og til að skipuleggja nám-
skeið til endurþjálfunar í vopna-
burði. Verði gripið til herlaga geta
jrfirvöld sett verksmiðjur undir
stjóm hersins.
Lang'vinn spenna
Mánuðum saman hafa verka-
menn mótmælt versnandi lífskjör-
um. Þá hafa Serbar mótmælt of-
sóknum Albana á hendur Slövum í
Kosovo-héraði í Suður-Júgóslavíu.
Mótmælin leiddu til átaka síðastlið-
inn laugardag, þegar herlögregla
beitti kylfum og táragasi gegn
mótmælendum í Títógrað, þar sem
fólkið krafðist afsagnar flokksodd-
vita. Mikil reiði varð vegna þessara
átaka meðal almennings. Utan
Serbíu var því haldið á loft að Serb-
ar stæðu fyrir upplausn í því skyni
að koma forystumönnum annarra
héraða í vanda.
Ibúar Júgóslavíu em 23 milljónir
og þar af em 8 milljónir Serba. í
sambandsríkinu Júgóslavíu em sex
sjálfstjómarlýðveldi: Serbía, Kró-
atía, Slóvenía, Bosnia-Hersegovina,
Makedónía og Svartfyallaland. Ser-
bar em að reyna að treysta yfirráð
sín yfir tveimur sjálfsljómarhémð-
um: Kosovo og Vojvodinu.
Fregnir um frest-
un útlagaþings-
ins tilhæfulausar
- segir framkvæmdaneíhdannaður í PLO
ParLs. Reuter.
ABDULLAH Hourani, einn af
þremur mönnum í fram-
kvæmdanefind Frelsissamtaka
Palestínu, PLO, sem heimsóttu
yfirvöld í Sovétríkjunum í vik-
unni, segir fregnir um að fresta
eigi því að lýsa yfir stofnun
sjálfstæðs ríkis Palestínumanna
tilhæfulausar. Franska dag-
blaðið Le Monde hafði greint
frá því að Sovétmenn hefðu
sannfært sendinefnd PLO um
að slík yfirlýsing myndi gefa
harðlínumönnum til hægri í
ísrael forskot á keppinauta sína
í kosningunum 1. nóvember.
Hourani sagði í samtali við Re-
uters-fréttastofuna að Sovétmenn
teldu ráðlegt að halda útlagaþing
Þjóðarráðs Palestínu fyrir kosn-
ingar ef öll skjöl þar að lútandi
væm tilbúin. Talið er að leiðtogar
PLO muni mæla með því við út-
lagaþingið að lýst verði yfir stofn-
un sjálfstæðs ríkis í anda ályktun-
ar Sameinuðu þjóðanna frá árinu
1948. Þar var gert ráð fyrir að
Palestínu yrði skipt í ríki gyðinga
og Palestínumanna. Búist er við
að framkvæmdanefnd PLO og
miðstjóm Þjóðarráðsins verði falið
að mynda útlagastjóm þegar það
telst tímabært. Einnig er búist við
ályktun frá PLO á þinginu um
hvemig ná megi friðarsamningum
í Mið-Austurlöndum.
Hourani sagði að dagsetning
útlagaþings Þjóðarráðsins yrði
ákveðin þegar Yasser Arafat,
formaður PLO, snýr aftur úr heim-
sókn í Suður-Yemen. Chadli *
Benjedid, forseti Alsírs, hefur boð-
ist til sjá Þjóðarráðinu fyrir fund-
arstað. Hann hefur nú um annað
að hugsa vegna óeirðanna sem
verið hafa í landinu. Hourani sagð-
ist búast við að Arafat myndi
heimsækja Alsír vegna þessa eða
hafa samband við Benjedid á anri-
an hátt.