Morgunblaðið - 15.10.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
9
JOLAKORT
Líknarfélög, söfnuðir, íþróttafélög, skólar
o.fl. sem eru í fjáröflunarhugleiðingum.
Nú er rétti tíminn til að láta prenta jólakortin.
Prentum eftir ljósmyndum eða teikningum.
Höfum fyrirliggjandi fjölmargar gerðir af fallegum
kortum, landslagsmyndir eftir Rafn Hafnfjörð,
klippmyndir eftir Sigrúnu Eldjárn, málverk eftir
Kjarval og mikið úrval af jóla- og helgimyndum.
Leitið tímanlega upplýsinga um verð og gæði.
Offsetprentsmiðjan LITBRA
Höfðatúni 12. Reykjavik - Simar 22930 og 22865
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar, sítni 686988
VEXTIR Á VERÐBRÉFAMARKAÐI
Tegund
skuldabréfa
Vextir umfram
verðtryggingu
Vextir*
alls
[Einingabréf
Einingabréf 1
Einingabréf 2
Einingabréf 3
13,1%
9,6%
17,6%
13,1%
8,3%
Lífeyrisbréf
Skammtímabréf
|Spariskírteini rikissjóðs
lægst 7,0%
hæst 8,0%
| Skuldabréf banka og sparisjóða
lægst 9,25%
hæst 9,5%
[Skuldabréf fjármögnunarfyrirtækja
lægst 10,6%
hæst 11,5%
|Verðtryggð veðskuldabréf
lægst 12,0%
hæst 15,0%
|Fjárvarsla Kaupþings
38,0%
33,7%
43,5%
38,0%
32,2%
30,6%
31,8%
33,3%
33,6%
35,0%
36,1%
36,7%
40,4%
mismunandi eftir sam-
setningu verðbréfaeignar
’Heildarvextir allra skuldabréfa eru sýndir
miðað við hækkun lánskjaravísitölu
undanfarna 3 mánuði.
Flest skuldabréf er hægt að endurselja með
litlum fyrirvara. Einingabréf og Skammtímabréf
eru að jafnaði innleyst samdægurs. Einingabréf
má innleysa hjá Kaupþingi, Kaupþingi
Norðurlands og nokkrum sparisjóðum.
Spariskírteini eru seld á 2-3 dögum og flest
önnur skuldabréf innan tveggja vikna. Fé í
Fjárvörslu Kaupþings er oftast hægt að losa
innan viku.
Seljum allar gerðir verðbréfa.
Veitum alhliða ráðgjöf varðandi
kaup og sölu verðbréfa.
Fréttir
Ríkissjóður tekur meira á næsta ári en dæmi eru um síöastliöin 15 án
Aukaskatturinn 56
þúsund á fjölskyldu
3.500 milljóna
ný skattheimta!
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra
Alþýðubandalagsins, hefur boðað 3.500 millj-
óna króna nýja skattheimtu á þjóðina. Það
er hvorki meira né minna en 56 þúsund krónu
nýr ársskattur á hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu í landinu — eða 4.600 króna mánaðar-
skattur. Ekki eykur sú skattheimtan kaup-
máttinn, fremur en framlengd frysting launa
og framlengdur matarskattur hjá nýja fjár-
málaráðherranum!
4.600 króna
nýr mánaðar-
skattur
Dagblaðið Vísir grein-
ir svo frá í frétt í gær:
„Með 3,5 miHjarða
nýrri skattheimtu, sem
Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðlierra hefur
boðað, mun ríkisstjómin
leggja um 56 þúsund
krónur í auknar álögur
á hveija Qögurra manna
fjölskyldu. Það eru rúm-
ar 4.600 krónur á hveij-
um mánuði.
Þessi aukna skatt-
heimta leggst ofan á þær
viðbótarálögur sem ríkis-
stjóm Þorsteins Pálsson-
ar stóð fyrir.
A þessu ári þarf hver
fjögurra manna Qöl-
skylda að greiða 90 þús-
und krónur á hveiju ári
tU ríkisins vegna þeirra.
Það em um 7.500 krónur
á mánuði.
Á næsta ári þarf hver
fjögurra manna Qöl-
skylda að greiða um 145
þúsund krónum meira til
ríkissjóðs en hún gerði í
fyrra. Hver Qölskylda
liefur því 12 þúsund
krónum minna til ráð-
stöfúnar f hveijum mán-
uði.“
Sem sagt, eftir öll
stóm orðin Alþýðu-
bandalagsins um matar-
skattinn, hyggst Qár-
málaráðherra þess ekki
aðeins halda fast í þann
skattínn, sem og launa-
frystínguna, heldur
lirifea að auki 56.000
kaupkrónur úr launaum-
slagi fjölskyldunnar, áð-
ur en hún kemst tíl mat-
arkaupanna. Ráðherr-
asósialisminn er samur
við sig. Þar er engin
„perestrojkan"!
15 skattár aft-
urábak
Dagblaðið Vísir segir
enn í tílvitnaðri frétfc
„Samkvæmt spá Þióð-
hagsstofimnar verður
hlutfiill skatttekna ríkis-
sjóðs af landsframleiðslu
á þessu ári um 25,3%.
Það er hærra hlutfall en
verið hefiir síðan 1982
en þá var þetta hlutfall
um 26,3%. Það má hins
vegar reikna með að
þetta met ríkisstjómar
Gunnars Thoroddsen
verði slegið á næsta ári.
Fjármálaráðherra hef-
ur nú gert tillögur um
aukna skattheimtu upp á
um 3,5 milfjarða króna.
Þar sem spáð er að lands-
framleiðsla muni hækka
lítíllega á næsta ári má
ætla að skatttekjur rikis-
sjóðs verði þá um 26,8%
af landsframleiðslu. Það
er hærra hlutfall en
dæmi em um síðastliðin
15 ár.“
Það mun vera ríkis-
stjóm Ólafe Jóhannes-
sonar, er sat frá júlímán-
uði 1971 fram í ágúst
1974, sem kom sköttum
upp í þetta methlutfiill
af landsframleiðslu. Al-
þýðubandalagið áttí aðild
að þeirri ríkissfjóra,
nema hvað, en Fram-
sóknarflokkurinn fór
með fjármálin. Mynstur
þeirrar ríkisstjómar var
svipað og ríkisstjómar
Steingríms Hermanns-
sonar nú, með þvi fráviki
þó, að í hinni fyrri stjóm-
inni sátu Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna
í stað Alþýðuflokksins
nú. En skattastefiian er
söm við sig.
Það er þvi þríheilagt
hjá nýjum Qármálaráð-
herra Alþýðubandalags-
ins: 1) frysting launa
framlengd, 2) matar-
skattur kokgieyptur, 3)
56 þúsund krónu nýr Qöl-
sky Iduskattur.'
Segja má að aldrei
hafi jafii litill flokkur
svikið jafii mikið á jafii
skömmum tíma. Það
þurfti ekki mánuðinn tíl.
„Naflastreng-
ur“ horfir til
vorsins
Stefan Valgeirsson,
„naflastrengur" hinnar
nýju ríkisstjómar, héh
firnd norðan heiða í
fyrrakvöld. Þar spáði
hann í næstu framtíð. Og
hver var svo erkibiskups-
boðskapur hins „for-
vitra“7
„Ég hefi þvi miður
ekki trú á þvi að þær
aðgerðir, sem sú ríkis-
stjóm, sem nú situr [inn-
skot: fyrir náð Stefens
Valgeirssonar], muni
leysa þann mikla vanda
sem við búum við og ég
álít að það verði kosning-
ar strax næsta vor!“
Stefán Valgeirsson,
þingleg undirstaða
stjómarinnar, sagði jafii-
framt, samkvæmt blaða-
fregnum, „að hann væri
ekki ánægður með byij-
unina hjá ráðhemmum;
þeir hafa ekki staðið við
að hann gætí fylgst með
ölluin niáluin frá upphafi
sem leggja á fram og
Stefan gaf í skyn, að
hart yrði gengið eftír þvi
að slíkt gerðist ekki
áfnim".
f raun sagði þetta
lífakkeri stjómarinnar
þrennt. í fyrsta lagi að
ráðherramir hafi ekki
staðið við orð sín og heit,
sem stuðningur þess var
reistur á. í annan stað
að hann hafi enga trú á
þvi að ríkisstjórnin leysi
vandann, sem hún var
stofiiuð tíl að kjjást við.
í þriðja lagi að ríkis-
stjómin lifi aðeins fram
á vorið: „Ég álit að það
verði kosningar strax
næsta vor!“
íFord.Bronco II 4x4, árgerð ’86 (ekinn 21 þús. mílur), Fiat Ritmo70clTeam,
árgerð ’88 (ekinn 700 km) og I.H.C. vörubifreið Cargo Star 1950B, árgerð
’81, ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn
18. október, kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
w btfefö
Góðan daginn!