Morgunblaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
15
sinn sem við komum auga á mann-
lega þörf, flýtum við okkur að
byggja hús. Þannig setjum við all-
ar mannlegar þarfir í samband við
steinsteypu." A sama hátt hættir
fólki til að einblína á byggingar
ef talað er um að leggja vistheim-
ili niður. Fyrst er spurt: En hvað
á að gera við húsin? Það er eins
og byggingar vistheimila fyrir and-
lega fatlað fólk hafi ómetanlegt
sögulegt gildi, umfram allar bygg-
ing£ir sem við hér á landi jöfnum
við jörðu — án mikillar umhugsun-
ar. Ég er sannfærð um að sum af
þeim húsum, sem vangefnir búa
í, væri löngu búið að rífa ef þau
væru ætluð til annarra nota.
Vissulega þarf að huga að því
hvemig þessi hús skuli nýtt ef vist-
heimilin legðust niður. I Danmörku
var til margra ára starfræktur
Egmont-skólinn sem var lýðhá-
skóli fyrir fatlaða nemendur. Sá
skóli hefur lagað sig að breyttum
tímum og er nú blandaður skóli
ófatlaðra og fatlaðra. Vel mætti
hugsa sér stað eins og Sólheima í
Grímsnesi sem lýðháskóla þar sem
nemendur, ófatlaðir og fatlaðir,
gætu dvalið við nám og þjálfun
um tíma og búið sig þannig undir
lífið. Möguleikamir em óteljandi.
Forráðamenn Sólborgar og
Skálatúns hafa nú þegar bent á
hugsanlega möguleika í þessum
efnum.
Sársaukafull umræða
Umræðan um lokun þessara
vistheimila getur orðið afar sárs-
aukafull fyrir aðstandendur, um
það er engum blöðum að fletta.
Þessi heimili em vissulega böm
síns tíma og vom sett á laggimar
samkvæmt ríkjandi hugmyndum
og þekkingu. Þau vom eina úr-
lausnin og sú besta, að því er talið
var, sem stóð foreldrum til boða
þegar böm þeirra fluttu að heiman.
Ef stjómvöld taka ákvörðun um
lokun þessara vistheimila hvílir
jafnframt á þeim sú skylda að veija
nægilegu Ijármagni, þannig að
nauðsynleg uppbygging geti átt
sér stað. Ný heimili verða að rísa
sem og önnur úrræði sem nauðsyn-
leg em.
Verkefiii stjórnmálamanna
Það er viðfangsefni stjómmála-
manna að deila efnahagsverðmæt-
um milli þjóðfélagsþegnanna og í
raun snúast stjómmál hér á landi
ekki um annað. í þjóðfélagi þar
sem efnishyggjan er allsráðandi
er hætt við að réttlæti gagnvart
þeim sem ekki geta lagt vinnu sína,
eða önnur viðurkennd verðmæti, á
vogarskálina verði harla lítið.
I dag tala íslenskir stjómmála-
menn um samdrátt, kreppu og
stórfellda skuldasöfnun erlendis og
svo mætti lengi telja. Á meðan
stórframkvæmdir á borð við þær
sem alls staðar blasa við okkur em
í fullum gangi er erfítt fyrir að-
standendur fatlaðra að taka mark
á því sjónarmiði stjómarnefndar
að ekki sé til ijármagn í þjóðfélag-
inu til að búa íbúum vistheimila
eðlilegri heimili.
Við vitum að það em ekki íbúar
Kópavogshælis, Tjaldaness, Sól-
heima, Skálatúns eða Sólborgar
sem hafa stuðlað að stórfelldri
skuldasöfnun þjóðarinnar.
Nývon
En það vakti á ný vonir manna,
nú er líða tók á haust, er það fregn-
aðist að félagsmálaráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir, hafi skipað
viðræðunefnd sem vinna á áfram
að tillögugerð um hlutverk um-
ræddra vistheimila. Við hljótum
öll að fagna því að félagsmálaráð-
herra sýni þennan vilja til að gera
átak til bættra lífskjara fatlaðs
fólks.
Nú ættu allir sem starfa að vel-
ferð fatlaðra að sameinast um þá
sjálfsögðu kröfu að fjármagni sé
veitt til að bæta hag þeirra. Sam-
einast um að búa þeim „gott líf“
í sama anda og við búum okkur
sjálfum.
Lífsskoðun okkar
Forystumenn Þroskahjálpar era
þeirrar skoðunar að fatlaðir skuli
eiga rétt á eigin heimili með sam-
bærilegum hætti og ófatlaðir og
hafa val um búsetu og aðseturs-
stað.
Auðvitað geta heimili þeirra eins
og annarra verið hvort heldur sem
er í bæjum eða til sveita.
Það er lífsskoðun okkar að fatl-
aðir,' andlega og líkamlega, óháð
getu séu hluti af margbreytilegri
mynd samfélagsins. Þessa
lífsskoðun byggjum við m.a. á
reynslu okkar og annarra þjóða
og hún er í fullu samræmi við þá
markmiðssetningu laga um mál-
efni fatlaðra „að tryggja fötluðum
jafnrétti og sambærileg lífskjör á
við aðra og skapa þeim skilyrði til
þess að lifa eðlilegu lífi og hasla
sér völl í samfélaginu þar sem
þeim vegnar best".
Höfímdur er formaður Landssam-
takanna ÞroskaJyálpar.
Um neignw-
bílinn vinsæla,
bæði sem goðl
þægiiegur vmn
Einnig sýnum >
Lada Samara
3 dyra, og að
nvia áfram læ
Ármúla 13 - 108 Reykjavík - S* 681200
mtíonsg
Opið í dag frá kl. 10:00-18:00 og á morgun, sunnudag kl. 13:00-18:00.
Líttu inn!
FAXAFENI5, SfMI 68 56 80
(SKEIFUNNI)