Morgunblaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
1
Kínavöndur
Genti ana sino orn ata
Fyrjr um það bil tveim áratugum
eignaðist ég Kínavönd, það
dáfagra haustdjásn, hann mátti þá
teljast fremur fágætur í görðum
hér á landi. Að vorlagi í breyskju-
hita fékk ég hann sendan frá Dan-
mörku ásamt nokkrum öðrum teg-
undum sem ég hafði pantað frá
dönskum „Planteskole“ og hugði
gott til glóðarinanr að auka til-
breytni í plöntusölunni sem ég þá
rak. Þetta var mjög lítil sending
e.t.v. 10 tegundir, 5-6 eintök af
hverri tegund, sem ég ætlaði mér
síðan að fjölga með skiptingu. En
til þess kom þó ekki því plöntumar
voru svo illa á sig komnar eftir
flutninginn, bið í tolli o.fl. þ.u.l.,
að þær hreinlega dóu hver af ann-
arri, nema Kínavöndurinn, — hann
lifði hremminguna af og gleður mig
enn með sínum ólýsanlega bláu
blómum, jafnan í byriun október-
mánaðar á hveriu einasta ári síðan.
Varla er unnt að kalla slíka jurt
mjög viðkvæma í ræktun, en fram
til þess tíma hafði ég heyrt að hún
væri býsna vandmeðfarin. Kína-
vöndurinn tilheyrir stórri og mjög
fjölbreytilegri ætt (Gentianaceae)
sem vex bæði villt og ræktuð víða
um heimsbyggðina. Af þeirri ætt
eigum við í íslensku flórunni m.a.
maríuvönd og dýragras, sem öðru
nafni er nefnt bláin, og vaxa
víðsvegar um land. Oft heyrist að
ekkert geti verið blárra en litur
dýragrassins, en það er einmitt sá
litur, sem er einkennandi fyrir
margar jurtir af þessari ætt og víða
eftir þeim nefndur: Gentiana-blátt
(eða Enzian-blátt, sem er hið sama).
Ekki er þó algengt að vitnað sé í
þau nöfn hér á landi og dýragras-
ið frekar notað til samlíkingar á
þeim undurfagra lit. Kínavöndur-
HJA OKKUR MERKIR NYR BILL
1989
MMTSUBISHM
LANCER
NÝTT ÚTLIT ■— NÝ TÆKNI
VERÐ FRÁ KR. 656.000,-
Innifalinn í verðinu er m.a. eftirtalinn búnaður: Vökvastýri/veltistýri — Rafdrifnar
rúöuvindur — Rafstýrðir útispeglar — Dagljósabúnaöur — Samlæsing á hurðum
LAHF
augavegi 170-172 Simi 695500
íslensk Jfrimerki 1989:
Verðið rís
úr öldudal
UM þessar mundir er að koma í
bókabúðir þrítugasta og þriðja
útgáfa íslenska frímerkjaverð-
listans „íslensk frímerki". Er
þetta þriðja árið sem myndir
allra frímerkja eru litprentaðar
en sú nýbreytni hefur hlotið góð-
ar undirtektir safnara. Eins og
ævinlega áður er hér um að ræða
endurskoðaða útgáfu listans en
hann er endurskoðaður árlega.
Sú endurskoðun nær til verð-
lagningar einstakra rnerkja og
auk þess er öllum nýjungum
bætt við.
Það hefur alltaf verið stefna list-
ans að skrá íslensk frímerki sem
næst markaðsverði. Þeirri stefnu
er enn haldið og nú eru verð-
hækkanir meiri en verið hefur á
liðnum árum. Ástæða þess er sú
að íslensk frímerki hafa verið mikið
í sviðsljósinu á tveim undanfömum
árum. Söfn íslenskra frímerlqa hafa
hlotið mjög há verðlaun á alþjóðleg-
um sýningum og verið seld á al-
þjóðlegum uppboðum. Þetta hefur
hleypt nýju lífí í söfiiun íslenskra
frimerkja á almennum markaði og
virðist sem verð þeirra sé að rísa
úr þeim öldudal sem það hefur ver-
ið undanfarin ár.
Auk skráningar allra almennra
frímerlqa og þjónustufrímerkja er
í listanum skrá yfír alla sérstimpla
sem í notkun hafa verið á íslenskum
pósthúsum, en þeir fara nú að nálg-
ast tvö hundruð. Þá er einnig skráð
yfir alla svonefnda hliðarstimpla
sem íslenska póststjómin hefur not-
að eða leyft notkun á.
í sérstökum kafla em svo skrá
íslensk frímerlq'ahefti. Höfundur
þessa kafla er Þór Þorsteins, núver-
andi forseti Landssambands
íslenskra frímerkjasafnara, og er
þetta í fyrsta skipti sem frímerkja-
hefti em skráð svo nákvæmlega
sem hér er gert. Brýn þörf var orð-
in á skráningu heftanna því áhugi
á söfnun þeirra hefur aukist mjög
er útgáfa þeirra var hafín að nýju
árið 1987. Tilraunir hafa verið gerð-
ar áður til skráningar heftanna en
þær hafa verið unnar af útlending-
um sem ekki hafa haft næga þekk-
ingu til að bera til þess verks. Nú
er komin fram skráning sem ganga
verður út frá sem grunnskráningu.
Höfundur listans frá upphafi er
Sigurður H. Þorsteinsson, uppeldis-
fræðingur og skólastjóri að Laugar-
hóli í Strandasýslu. Útgefandi er
Isafoldarprentsmiðja hf.
(Fréttatilkynning)
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80