Morgunblaðið - 15.10.1988, Page 21

Morgunblaðið - 15.10.1988, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988 skóla í píanóleik. Hinn slavneski skóli var mjög frábrugðinn hinum þýska, bæði hvað snertir tökin á píanóinu svo og verkefnaval. Lögð var áhersla á fullkomið vald yfir hljóðfærinu og öllum blæbrigðum þess og verk Chopins, Liszts og Schumanns skipuðu veglegan sess á efnisskrám slíkra píanista, auk nýrrar rússneskrar tónlistar og im- pressionistanna Debussys og Rav- els. Rögnvaldur naut handleiðslu og ráða Gorodnitzkis í tvö ár með frá- bærum árangri, sem leiddi svo til glæsilegrar frumraunar í National Gallery of Art í Washington 10. júní 1945. Þungamiðjan í efnisskrá hans þá var hin mikla sónata Liszts í h-moll. Það var því aldeilis ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur, en mér hefur reyndar allt frá því ég kynntist Rögnvaldi og píanóleik hans, fundist mikið til um hversu áræðinn hann er og óhrædd- ur að takast á við hin erfiðustu verkefni. Fýrirmyndir var heldur ekki langt að sækja, því tónlistarlíf New York-borgar var á þeim árum mjög fjölskrúðugt og gafst Rögn- valdi þar kostur á að heyra í mörg- um helstu listamönnum heimsins á þeim árum svo og frábærum hljóm- sveitum. Var þar um að ræða menn eins og Vladimir Horowitz, Rudolf Serkin, Josef Lhevinne, Sascka Gorodnitzki og svo sjálfan Sergei Rachmaninoff, sem Rögnvaldur heyrði nokkrum mánuðum fyrir andlát hans. Varð Rachmaninoff honum sennilega minnisstæðastur allra. Að afloknum tónleikunum í Washington héldu Rögnvaldur og Helga til íslands og hófst þá hið daglega brauðstrit listamanns á ís- landi með kennslu, en einnig miklu og fjölbreyttu tónleikahaldi. Eg sagði hér að framan, að það hefði farið hressilegur gustur um salinn í Gamla bíói, þegar Rögnvaldur hóf þar tónleikahald eftir heimkomuna. Hér var öðruvísi spilað á píanó en áður hafði heyrst hjá íslendingi og verkefnavalið einnig frábrugðið. Glæsileikinn og „virtuósitetið" voru áberandi og eru etýður Chopins, Liszt-sónatan og fleiri verk hans svo og ýmis verka Prokofievs sér- lega minnisstæð frá þessum árum. Það var alltaf spennandi að hlusta á Rögnvald spila, hvort sem hann Iét gamminn geysa í Liszt eða mót- aði einfalda og innilega laglínu í noctumum eftir Chopin. Hann hef- ur það sem mest er um vert í allri list; náðargáfu persónuleikans. Rögnvaldur einskorðaði sig ekki við hljómleikahald á Islandi á næstu áratugum, því hann fór í tónleika- ferðir víða um heim, svo sem til Bandaríkjanna, Kanada, Austurrík- is, Norðurlandanna og síðast en ekki síst til Rússlands, oftast við mjög góðar undirtektir áheyrenda og gagnrýnenda. Jafnframt öllu þessu stundaði hann mikla kennslu sem yfirkennari við Tónlistarskól- ann í Reykjavík, allt þar til hann fór á eftirlaun. A þessum árum var Rögnvaldur iðinn við að kynna ný og nýleg píanóverk íslenskra tónskálda. Má þar nefna til sögu verk eftir Jón Þórarinsson, Leif Þórarinsson, Jón Ix'ifs, Atla Heimi Sveinsson og Pál ísólfsson. Fmmflutti hann mörg þessara verka. Eftir að Sinfóníuhljómsveit Ís- lands hóf starfsemi sína lék Rögn- valdur einnig oft með henni og telst mér til, að hann hafi flutt alls fjórt- án konserta með hljómsveitinni, þar á meðal báða píanókonserta Brahms og á einum tónleikum bæði Sinfónísk tilbrigði eftir Cesar Frank og píanókonsert nr. 2 eftir Liszt. Vom það sérlega eftirminnilegir tónleikar í Þjóðleikhúsinu. Rögnvaldur varð einna fyrstur íslenskra píanóleikara til að leika inn á hljómplötur. Var það í októ- ber 1956, er hann lék verk eftir Schumann og Niels Viggo Bentzon. Síðan hafa komið út alls sex plötur með leik hans og um þessar mund- ir er hin sjöunda að líta dagsins ljós. Er þar um að ræða upptökur úr segulbandasafni Ríkisútvarpsins á verkum eftir Beethoven, Schumann og Chopin auk píanótríós eftir Josef Haydn, sem sýnir nýja hlið á lista- manninum Rögnvaldi Siguijónssyni á plötum, því kammermúsík var hér áður fyrr allsriar þáttur í starfi hans. Við megum svo sannarlega vera þakklát fyrir það sem varð- veist hefur af list Rögnvaldar á plöt- um, en það er líka margs að sakna af þeim verkum, er hann túlkaði á sinn sérstæða hátt. Minnist ég sér- staklega Liszt-sónötunnar, er hann spilaði fyrstur íslendinga opinber- lega við fmmraun sína í Banda- rílq'unum sem fyrr segir. Fylgdi hún honum alla tíð síðan meðan hann stundaði tónleikahald, en hann spil- aði hana síðast opinberlega á ísafirði í maí 1979. En árin og æfingamar tóku sinn toll og fyrir allmörgum ámm fór Rögnvaldur að kenna handarmeins, slitgigtar, sem hefur valdið því að hann hefur nú lagt tónleikahald að mestu á hilluna. Rögnvaldur hafði að vísu átt við ýmis veikindi og handarmein að stríða á yngri ámm, en ávallt yfirunnið slíkt mótlæti með mikilli elju og einbeitni. Fyrir Rögnvaldi er opinbert tónleikahald engin hálfvelgja, þar dugir ekkert annað en að gera sitt allra besta og vera í „toppformi“ eins og sagt er. Það kostar þrotlausá vinnu og æfingar, annars næst ekki full- nægjandi árangur, en það em sann- indi, sem allir miklir listamenn vita og skilja. Það má aldrei standa í stað heldur leita sífellt hærra og hærra. Á seinni ámm hefur Rögn- valdur hins vegar miðlað okkur af sinni miklu reynslu og þekkingu á tónlistinni með afburða skemmti- legum útvarpsþáttum um túlkun í tónlist. Er óskandi að framhald verði þar á. Þá hefur hann einnig haldið áfram að miðla ungmennum af reynslu sinni, nú síðast með kennslu í Nýja Tónlistarskólanum í Reykjavík. Að lokum viljum við Hildur óska Rögnvaldi og Helgu innilega til hamingju með þessi tímamót í ævi þeirra en Helga fyllir sjöunda ára- tuginn í næsta mánuði, og vonum að þau eigi framundan mörg og farsæl ár saman. Ég er viss um að undir þetta taka einnig félagarnir í „klúbbnum" okkar. Lifið heil! Runólfur Þórðarson epcil I Faxafen 7, sími: 687733 Litir haustsins í gluggatjöldum. Sígilt útlit og djarfur nútímasvipur ó vönduðum hús- gögnum eftir þekkta hönnuði og listamenn. Epal er lifandi listasafn: Gluggatjöld, óklæði, húsgögn og lampar. Mótsstaður gamalla og nýrra hugmynda. Epal er einstök verslun. OPIfl HÚS LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 10-18.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.