Morgunblaðið - 15.10.1988, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
NEMENDARAÐ REYKJAVIKUR
Félagsstarf grunnskólanna
rætt á fræðslufundi
Fræðslufiindur fyrir fulltrúa allra nem-
endaráða grunnskóla Reykjavíkur var
haldinn i Tónabæ 4. október sl. Fundinn
sóttu 80 unglingar sem eru í forsvari fyrir
félagsstarfi skólanna.
Á fundinum var fyallað um hlutverk og við-
fangsefni nemendaráða, gerð starfsáætlana,
lög og reglugerðir sem tengjast félagsstarfi
skólanna. Einnig var rætt um samræmingu
félagsstarfs milli skóla og spunnust fjörugar
umræður út frá því. Unglingarnir ræddu um
Iengd skemmtana, aðgangseyri inn á diskótek
o.fl.
Spumingakeppni grunnskólanna var kynnt,
en starfsfólk félagsmiðstöðvanna í Reykjavík
hefur umsjón með henni. Að lokum fluttu ungl-
ingarnir, einn frá hveijum skóla, fyrirlestur um
starfsáætlun félagsstarfsins á haustinu. Flestir
skólar halda skemmtanir 3—4 sinnum í mán-
uði, og eru helstu viðfangsefnin: opið hús, diskó-
tek, rokkball, bingó, toppkeppni, málfundur og
hæfileikakeppni.
Fundinum lauk síðan með almennum umræð-
um um frístundastarf skólanna.
Formaður
nemendar-
áðs Öldu-
selsskóla,
Ólafúr _
Darri Ólafs-
son, flytur
skýrslu um
félagsstarf
skólans.
Unghngam-
ir fylgjast
með á
fræðslu-
fúndi nem-
endaráða í
Tónabæ.
LIVERPOOL
John Aldridge gefiir út bók
Knattspyrnumaðurinn John
Aldridge í Liverpoolliðinu
hefúr nýverið sent frá sér bók.
Hún hefúr ekki fengið góða
dóma. Hann leggur meginá-
herslu á harða gagnrýni á þá sem
ráða ferðinni í enska boltanum.
í bókinni er að finna á svörtum
lista nánast alla þá, sem hafa ein-
hvem tímann vogað sér að skamma
John. Hann lýsir meðal annars fyr-
irlitningu á fyrrum framkvæmda-
stjóra liðsins, Bob Paisley og fyrrum
miðheija enska landsliðsins, Mal-
colm Macdonald. Er dómur manna
sá að Paisley og Supermac eins og
hinn síðamefndi er kallaður eigi það
ekki skilið að „vælandi uppskafn-
ingur" sé að segja þeim til synd-
anna.
Linda Grey ásamt vini sinum Patrick Markey. Þau hafa verið að hrella nágrannana.
COSPER
LINDA GREY
Linda Grey hneykslar
nagranna sína
Dallas stjaman, Linda Grey, er
þessa dagana sífellt að vekja
reiði og hneykslan nágranna sinna
með því að striplast með vini sínum
í garðinum. Líf nágrannanna hefur
breyst í táradal eftir að Linda Grey,
47 ára, fékk sér nýjan kærasta,
fyrir nokkmm vikum. Sá heitir
Patrick Markey, og er fimmtán
árum yngri en Linda.
Siðavandir nágrannar fara hjá
sér af blygðun en fylgjast þó vand-
lega með því sem gerist í næsta
garði. „Linda var í tvískiptum bað-
fatnaði þegar þau komu út úr hús-
inu en var pjötlulaus þegar þau
hlupu skrækjandi inn aftur“ segir
einn nágranninn, Art Cobb mæðu-
lega. „Þau eru alltaf að þessu"
bætir hann við. „Dag og nótt spila
þau háværa rokktónlist og dansa á
lóðinni einhvem villtasta dans sem
ég hef séð“.
Vinir Lindu segja að hún hafi
aldrei skemmt sér betur en nú, eft-
ir að hún skildi við mann sinn og
sleit 20 ára hjónabandi. Síðan þá
hefur hún átt þó nokkra góða vini,
en enginn þeirra hefur að sögn
nágrannanna verið eins fyrirferða-
mikill og Patrick. Sögusagnir eru á
kreiki um að þau Linda og Patrick
muni jafnvel gifta sig á næsta ári,
og hver veit nema nágrannamir
stofni þá samtök er kenni sig við
dapurlega framtíð.