Morgunblaðið - 15.10.1988, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
53
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . .
Gleraugu
Gleraugu í brúnu hulstri töpuð-
ust aðfaranótt sunnudags, senni-
lega við Nýbýlaveg. Finnadi vin-
samlegast hringi í síma 641319.
Aparnir í Blómavali
Soffia hringdi:
„Við fórum að sjá dýrasýningu
í Blómavali fyrir nokkru og var
vel að henni staðið. En öðru máli
gegnir um apana sem þama eru,
það þarf að búa betur að þeim.
Mér finnst nokkuð kuldalegt í
búrinu hjá þeim. Mætti ekki koma
þar fyrir einhveijum tijágróðri?“
Gömul leikföng
Vegna fyrirspurnar um hvort
einhveijum vantaði ekki gömul
leikföng var haft samband við
Velvakanda og bent á að hjá
Kvennaathvarfinu væru gömul
leikföng vel þegin og einnig
barnabækur.
Nýju bílnúmerin
„Y“ hringdi:
„Margir eru óánægðir með að
eftir að nýju númerin koma verð-
ur ekki hægt að sjá frá hvaða
landshluta bíllinn er. Væri ekki
hægt að framleiða límmiða með
sýslu- eða bæjarskjaldarmerkjum
sem fólk gæti sjálft límt á bílana".
Góð þjónusta hjá Hreyfli
H. hringdi:
„Ég geri mikið af því að taka
leigubíla og finnst að Hreyfíll
beri af með þjónustu. Þegar mað-
ur pantar bíl hingað í Kópavog
segja þeir alltaf af eða á um hvort
þeir hafi bíl í grenndinni. Hinir
segja manni bara að það komi
bíll og svo verður maður kannski
að bíða lengi eftir að bíll komi
úr Reykjavík. Ég vil þakka fyrir
góða þjónustu hjá Hreyfli."
Hvítt reiðhjól
Hvítt kvenreiðhjól er í óskilum
að Hringbraut 102, Keflavík.
Upplýsingar í síma 11649.
Skilvís fínnandi
Veski týndist við Hagavatn fyr-
ir ári síðan en var skilað fyrir
nokkru með öllu sem í því var en
finnandinn gaf sig ekki fram. Er
hann beðinn að hringja í síma
76546 vegna fundarlauna.
Seðlaveski
Grátt seðlaveski með ökuskír-
teini o. fl. varð eftir á bensínsjálf-
sala hjá Shellstöðinni sunnan við
Miklubraut. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
39211.
Frakki
Blaðamaður sem býr í Breið-
holtinu er með ljósan beltisfrakka
í fatahenginu hjá sér, sem var
skilinn eftir hjá honum að farar-
nótt 9. þ.m. og er hann vinsamleg-
ast berðinn að hringja í síma
43745.
Úr
Gyllt úr fannst í Barmahlíð fyrir
skömmu. Eigandi þess getur
hringt í síma 21710.
IÐKUN LJOTLEIKA
í STAÐ FEGURÐAR
Tommi er
týndur
Fresskötturinn Tommi týndist að
heiman frá sér að Smiðjustíg 4 um
síðustu helgi. Tommi er merktur
eins og sést á myndinni og hefur
endurskinsmerki um hálsinn. Hann
er styggur en kann að hafa lokast
inni í skúr eða kjallara. Þeir sem
hafa orðið hans varir eru beðnir að
hringja í síma 12379 eða í Dýra-
spítalann í síma 674020.
Til Velvakanda.
Sólin brosir við okkur daglega
og við sjáum það varla. Aðrar sólir
brosa við okkur þúsundum saman
á hverri, heiðskírri nóttu og við
sjáum það enn síður. Hin æðsta
vera brosir til okkar dag og nótt í
öllum sínum ljóma og flestir okkar
skynja það alls ekki.
Augu okkar eru svo haldin, að
við sjáum lítt eða ekki þá dýrðarfeg-
urð, sem okkur er ætlað að njóta,
hvetjum einum.
Við kunnum vart að njóta sannr-
ar fegurðar, en dýrkum í þess stað
'jótleika í ýmsum myndum.
Fegurð í öllum myndum: í listum,
í göfgi, í mannúð, í hugsjónum, er
lífstefnuatriði og við iðkum lítt hina
ýmsu þætti hennar.
Ljótleiki kemur fram í ýmsum
myndum: í sumum stefnum lista, í
mannúðarleysi, í grimmd gegn öllu
sem lifir. Ljótleiki er helstefnuein-
kenni og við iðkum í vaxandi mæli
hina ýmsu þætti hans.
Við höfnum sannri fegurð en
sækjumst eftir ljótleika á ýmsum
sviðum.
Eðli hins sanna lífs er fegurð og
samstilling við hinn æðsta mátt, og
það er brot gegn lögmálum lífsins
að iðka ljótleika, harðýðgi og lygi.
Vart verður breytt um stefnu á
jörðu okkar, nema við snúum frá
iðkun ljótleikans til iðkunar fegurð-
ar.
Ingvar Agnarsson
léjlkV' HEILRÆÐI
Slysavarnafélag íslands vekur athygli á því að í dág 15.
október er alþjóðadagur hvíta stafsins. Hvíti stafurinn er
tákn blindra og sjónskertra og er þeim lífsnauðsynlegt hjálp-
artæki til þess að rata, ferðast um og afla sér upplýsinga.
Hvíti stafurinn minnir okkur á að sýna blindum og sjón-
skertum háttvísi og hjálpsemi í allri umgengni. Hvíti stafur-
inn er auðkenni blindra og sjónskertra og forgangsmerki
þeirra í umferðinni.
Fyrirspurn til
stjórnanda þáttarins
Ugluspegils
Jóhann Guðmundsson
hringdi:
„Sunnudaginn 25. septem-
ber var þátturinn Ugluspegill á
dagskrá Ríkissjónvarpsins. í
lok þáttarins birtist á skjánum,
merki eða teikning af þríhym-
ingi og regnboga. Ég vil koma
á framfæri fýrirspum til stjóm-
anda þáttarins um þetta merki.
Mér þætti fróðlegt að fá vit-
neskju um hvað þetta merki
táknar, hvort einhver félaga-
samtök eigi þetta merki og ef
svo er, hvaða félagasamtök það
Fyrirspurn
svarað
Kolbrún Halldórsdóttir hafði
samband vegna fyrirspumar um
teikningu sem sýnd var í þættinum
Ugluspegli sunnudaginn 25.
september. Sagði hún að teikningin,
sem spurt var um, sé myndverk
eftir Sigrúnu O. Ólsen, myndlistar-
konu, sem rætt var við í þættinum.
FJOLSmDUNNÍER
IVEITINGAHOLLINNI
Glæsilegt hlaðborð
ídag ogámorgun
Fyrir aðeins kr. 1050 borða gestir eins og þeir
geta í sig látið afkræsingum
Enn býður Veitingahöllin
gestum sínuín til stórveislu.
HELGARHLAÐBORÐ
Hádegis-
og kvöldverður
HEITIR RÉTTIR:
Reykt grísalæri
með smjörst. kartöflum, rauðvinssósu, rauðkáli og
heitum ananas
Pönnusteikt nautabuff
með lauk, baconi og osti
Gljáð steinbítsflök
KALDIR RÉTTIR:
Reyksoðinn karfi
með piparrótarsósu
3 tegundir afsíld
með smjöri og rúgbrauði
Fiskipaté
Kaldir sjávarréttir í hvítvínshlaupi
* Öllu þessu fylgir okkar rómaði salatbar, sjóðheit
súpa og bakki með úrvali af lungamjúku brauði
Börn að 8 ára aldri fá ókeypis kjúklingalæri,
franskar kartöflur og is.
Börn 8-12 ára greiða aðeins
kr. 350fyrir hlaðborðið
Matsveinar okkar
verða gestum til aðstoðar í salnum
HALDIÐ HELGARVEISLUNA
IVEITINGAHOLLINNI
HÚSIVERSLUNARINN AR - KRINGLUNNI - SÍMI33272.