Morgunblaðið - 15.10.1988, Side 56
/
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Hilmir SU
á leið til
Noregs
með loðnu
120 milljóna kr.
viðskipti tapast
vegna hvalveiða
Þýzka fyrirtækið Tengelmann hættir
við kaup á íslenzku lagmeti
ÞÝZKA fyrirtækið Tengelmann heftir látið undan þrýstingi frá sarntök-
um hvalfriðunarmanna og ákveðið að hætta að kaupa lagmeti frá ís-
landi vegna steftiu íslenzkra stjórnvalda í hvalveiðimálum. A síðasta
ári keypti Tengelmann grásleppuhrognakavíar, rækju og sfldarrétti
héðan fyrir 100 til 120 milljónir króna.
Tengelmann er samsteypa af
stærra taginu, rekur meðal annars
600 stórmarkaði í Þýzkalandi og
8.500 vöruhús, stofnaði keðjuna
Pizza Hut þar í landi og á stórmark-
aðakeðjuna A and P í Bandaríkjun-
um. Fyrirtækin Pólstjaman á Dalvík,
Hik á Húsavík, K. Jónsson og Co. á
Akureyri og Ora í Kópavogi hafa
framleitt vaminginn, sem Þjóðveij-
amir vilja ekki lengur kaupa.
Theodór S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lagmet-
is, sagði í samtali við Morgunblaðið,
að á samningafundi starfsmanns SL
í Þýzkalandi í fyrradag hefði þessi
afstaða komið fram og verið ítrekuð
í gærmorgun. Samsteypan hefði látið
undan þrýstingi frá Greenpeace og
sagt að viðskiptum yrði hætt vegna
stefnu íslenzkra stjómvalda í hval-
veiðimálum. „Áróður Greenpeace er
mun sterkari en áróður íslenzkra
stjómvalda," sagði Theodór. „Nú er
voðinn vís. Islendingar verða að fara
að gera það upp við sig hvort vegur
þyngra, útflutningur okkar á pjávar-
afurðum eða hvalveiðar í vísinda-
skyni og íslenzkt þjóðarstolt. Ég
kynnti sjávarútvegsráðuneytinu
þessi ótíðindi strax og þar brugðust
menn skjótt við. Tengelmann var
send orðsending, þar sem óskað var
fundar um þetta mál og ég á von á
því, að hann geti orðið í næstu viku,“
sagði Theodór S. Halldórsson.
Jón Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Pólstjömunnar á Dalvík, sagði
f samtali við Morgunblaðið, að sölu-
tregðu hefði fyrir nokkru farið að
gæta. Fyrirtækið seldi alla rækju-
framleiðslu sína til Þýzkalands og
því væri ekkert annað að gera en
segja starfsfólkinu upp. Það hefði
flest verið 15, en farið fækkandi frá
því skólar byijuðu. Um framhaldið
sagði hann, að menn fyndu sér eitt-
hvað til að gera í stað þess að leggja
árar í bát.
„Staðgreiðsla“ sauðfjárafurða:
Bændur fá innan við
50% afiirðaverðsins
TALIÐ er að sláturleyfishafar
muni almennt greiða bændum
innan við 50% af haustinnleggi
nú um miðjan mánuðinn og
rnargir ekki nema 30—35%. Sam-
kvæmt búvörulögunum eiga
bændur að fá frumgreiðslu ekki
síðar en í dag, 15. október, og
fúllnaðargreiðslu 15. desember.
Sláturleyfishafar og samtök
þeirra eiga nú í viðræðum við
stjórnvöld og banka um fjár-
mögnun staðgreiðslu sauðfjár-
afurða í haust.
ir aukinni fyrirgreiðslu bankanna,
auk staðgreiðsluláns ríkissjóðs, og
væm samtök þeirra í viðræðum við
þessa aðila um lausn málsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
„Menntavegurinn genginn “
Busavígslur eru með ýmsu móti við mennta- og firamhaldsskóla
landsins. Akureyringar brydduðu upp á nokkurri nýbreytni, sem
reyndar fólst meðal annars í hinni ómissandi tolleringu, en auk
þess „skírn“ með ausufylli af tæru vatni og kakódrykkju. Þá
voru busum kynntar helztu byggingar utan skólans, sem þeim
voru taldar nauðsynlegar á námstímanum, meðal annars Sam-
komuhúsið. Leiðin að Samkomuhúsinu liggur um „menntaveg-
inn“, sem liggur frá Barðstúni niður að norðurenda hússins.
Sjá nánari frásögn á Akureyrarsíðu, blaðsíðu 32.
Lausleg könnun Félags ísl. iðnrekenda:
Iðnfyrirtæki tapa hátt í 200
milljónum kr. á gjaldþrotum
Framleiðsluráð hefur ekki sett
reglur um hvað frumgreiðslan skuli
vera hátt hlutfall innleggsins, en
yfirleitt hefur verið miðað við að
bændur fengju 75% á þessum tíma
og eftirstöðvamar 15. desember. Á
þessu hefur þó orðið misbrestur
undanfarin ár, þar sem sláturleyfis-
hafar hafa talið að stjómvöld og
bankar hafi ekki veitt þeim nauð-
synlega fyrirgreiðslu tii að standa
við staðgreiðsluákvæði búvörulag-
anna.
Hreiðar Karlsson formaður
Landssambands sláturleyfishafa
segir að flestir sláturleyfishafar
hafi nú fengið tæpar 180 krónur á
kíló í afurðalán til að standa undir
kostnaði við slátrunina og væri það
svipuð upphæð í krónutölu og
siðastliðið haust. Hann sagði að
þessi upphæð dygði til að greiða
bændum 30—35% upp í haustinn-
leggið. Miðað við þetta og áætlaða
sölu í sláturtíðinni mætti búast við
að bændum yrði nú greitt að há-
marki 50% af afurðunum.
Hreiðar sagði að vonast væri eft-
ÍSLENSK iðnfyrirtæki, sem
firamleiða almennar neysluvörur,
munu tapa hátt í tvö hundruð
milljónum króna á þessu ári
vegna gjaldþrota annarra fyrir-
tækja, einkum mat- og nýlendu-
vöruverslana á suðvesturhorni
landsins, og kaupfélaga víða um
land.
Þetta er niðurstaða lauslegrar
könnunar sem hagdeild Félags
íslenskra iðnrekenda hefur látið
gera, og skýrði Kristinn Bjömsson,
forstjóri Nóa og Síríusar, frá þessu
á ráðstefnu Stjómunarfélags ís-
lands í Viðey í gær, þar sem fjallað
var um íslenskt atvinnulíf og breyt-
ingar framundan á því sviði. Krist-
inn kvað þessar tölur geta enn átt
eftir að hækka. „Keðjuverkunin
sem fylgir í kjölfar svona umfangs-
mikilla gjaldþrota, getur hæglega
haft í för með sér afdrifaríkar af- I
leiðingar fyrir framleiðslufyrirtæk-
in, sem sum hver mega ekki við |
mikium áföllum af slíku tagi.“
Kristinn sagði ennfremur, að
þessi gjaldþrotaalda leiddi einnig
hugann að löggjöfinni sem slíkri,
því að þótt því yrði seint haldið fram
að menn keyrðu fyrirtæki sín vit-
andi vits í gjaldþrot, þá væri ljóst
að í mörgum tilfellum orkuðu at-
hafnir og gjörðir stjómenda þessara
fyrirtækja síðustu daga og vikur
fyrir gjaldþrot tvímælis. „Það em
ótrúlega margir, virðist vera, sem
er eiginlegt að láta sér í léttu rúmi
liggja þó þeir valdi öðmm umtals-
verðum flárhagsskaða, sem jafnvel
getur riðið þeim að fullu," sagði
Kristinn. „Það verður að segjast
eins og er að alltof margir aðilar í
viðskiptum virðast líta á aðgerð eins
og greiðslustöðvun sömu augum og
kaþólskir syndaaflausn — þ.e. að
henni fenginni sé fyrra syndaregist-
HILMIR SU hélt í gær áleiðis til
Tromsö í Noregi með 950 tonn
af Ioðnu. Hilmir er fyrsta skipið
á þessari vertíð, sem siglir með
aflann. _ Samkvæmt samningum
við LÍÚ fást um 5.500 krónur
fyrir tonnið af loðnu í Noregi.
Verðið hér er 3.200 til 3.350
krónur. I Noregi kostar lítrinn
af gasolíu 5,50 kr. en 9,20 hér.
„Það er þessi verðmunur á loðnu
og olíu, sem freistar okkar," sagði
Jóhann Antoníusson, útgerðarmað-
ur Hilmis, í samtali við Morgun-
blaðið. Ég bauð þennan farm til
sölu hér heima á 4.000 krónur tonn-
ið, en því var ekki tekið. Þar sem
lítið var um að vera á miðunum,
vaxandi tungl og straumur, var
ekki útlit fyrir afla næstu daga og
því drifum við skipið af stað,“ sagði
Jóhann.
Auk Hilmis hélt eitt skip í gær
til lands með afla. Björg Jónsdóttir
ÞH fór til Þórshafnar með 200 tonn.
Ávöxtun sf. og
eigendur þess
gjaldþrota
Skiptaráðandinn í Reykjavik
kvað í gær upp gjaldþrota-
úrskurð yfír búum Armanns
Reynissonar, Péturs Björnssonar
og sameigarfélags þeirra, Ávöxt-
unar sf.
Tveir bústjórar voru skipaðir til
að annast málefiii búsins, lögmenn-
irnir Sigurmar K. Albertsson og
Hákon Ámason.
ur afskrifað og hægt sé að byija
upp á nýtt, eins og ekkert hafi í
skorist."
Manns saknað á Isafirði
UMFANGSMIKIL leit stendur
yfir á ísafirði og í nágrenni
að 46 ára gömlum Qölskyldu-
manni, Gísla Jósepssyni, sem
saknað hefur verið fi-á því um
klukkan 22 á miðvikudag.
Gísli er dökkhærður, 170 cm
á hæð, klæddur í dökkbrúnar
buxur, köflótta skyrtu og brúna
úlpu. Síðast er vitað um ferðir
Gísla er hann fór frá borði togar-
ans Páls Pálssonar í ísafjarðar-
höfn.
Um 50 manns hafa tekið þátt
í leitinni, auk lögreglumanna
hafa komið við sögu félagar í
Hjálparsveit skáta á ísafirði,
Björgunarsveitunum Skutli frá
ísafirði og Tindum frá Hnífsdal.
Varðskipsmenn hafa einnig að-
stoðað.
Kafað hefur verið í ísaQarðar-
höfn, fjörur gengnar og leitað í
húsagörðum.