Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
282. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Stokkhólmur:
PLO viðurkennir
A
tilvenirétt Israels
Stokkhólmi. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna,
lýsti yfir því í Stokkhólmi í gær, að PLO viðurkenndi tilverurétt
Israelsríkis. Sagði hann, að með því væri hann aðeins í raun að
ítreka samþykkt Þjóðarráðs Palestínu frá fyrra mánuði. Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær, að stjórn sín ætlaði að skoða
vel yfírlýsingu Arafats áður en brugðist yrði við henni en Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra ísraels, vísaði henni á bug sem áróðurs-
Yasser Arafat
bragði.
Arafat, sem
er gestur
sænsku stjórn-
arinnar og hefur
átt viðræður við
fimm banda-
ríska gyðinga,
sagði á frétta-
mannafundi, að
PLO hefði viður-
kennt tvö ríki,
ríki Palestínumanna og ríki gyð-
inga, ísrael. Kæmi þetta einnig
fram í nýrri yfirlýsingu hans og
palestínsku sendinefndarinnar í
Stokkhólmi. Þá kvaðst hann vilja
ítreka, að PLO fordæmdi og hafn-
aði hvers konar hryðjuverkastarf-
semi.
Sten Andersson, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, sagði um yfirlýs-
ingu Arafats, að hún væri tíma-
mótaviðburður, sem gjörbreytti við-
horfum til friðarumleitana í Mið-
austurlöndum. Arafat hefur beðið
Andersson að koma yfirlýsingunni
á framfæri við George Shultz, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
„þótt hann hefði ekki viljað veita
mér vegabréfsáritun til Banda-
ríkjanna".
Reagan Bandaríkjaforseti sagði
í gær, að hann hlakkaði til að kynna
sér betur yfirlýsingu Arafats og
Eistland:
ítrekafyrri
samþykktir
Moskvu. Reuter.
EISTNESKA þingið ákvað í gær
að hafa yfirlýsingar Sovétstjóm-
arinnar að engu og samþykkti, að
það hefði neitunarvald gagnvart
lögum, sem sovéska Æðsta ráðið
setti.
Eistnesku þingmennimir sam-
þykktu með 150 atkvæðum gegn 91
að standa við fyrri samþykktir þings-
ins um að hafna breytingunum á
sovésku stjórnarskránni og áskilja
sér neitunarvald gagnvart lögum,
sem miðstjómarvaldið í Moskvu setti.
Var skýrt frá þessu í eistneska sjón-
varpinu í gær og sagði fréttamaður-
inn, að umræðumar hefðu verið engu
líkar. „Það var hrópað og klappað
og þegar niðurstaðan var ljós brut-
ust út mikil fagnaðarlæti."
Forsætisnefnd sovéska Æðsta
ráðsins hefur lýst samþykktir eistn-
eska þingsins ógildar en Æðsta ráð-
ið sjálft gerði hins vegar enga sam-
þykkt um málið. Á það benda Eist-
lendingar sérstaklega og segja, að
þess vegna séu þeir í sínum fulla
rétti. Arnold Ruutel, forseti Eist-
lands, fór með löndum í þingumræð-
unni og gerði hvorki að hvetja né
letja þingheim til að standa við fyrri
ákvarðanir.
PLO en kvaðst ætla að bíða með
frekari yfírlýsingar að sinni. Avi
Pazner, talsmaður Shamirs, for-
sætisráðherra ísraels, sagði hins
vegar, að bandarísku gyðingamir
fimm og sænska stjómin hefðu lát-
ið Arafat blekkja sig og væri yfir-
lýsingin aðeins áróðursbragð. í
Bandaríkjunum hafa ýmsir sér-
fræðingar í alþjóðamálum fagnað
mjög yfirlýsingu Arafats og jafnvel
sumir frammámenn gyðinga og
talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins sagði, að nú riði á, að
ísraelar brygðust við með jákvæð-
um og skynsömum hætti.
Vel fór á með þeim leiðtogunum á fúndinum í gær eins og sjá má en þetta var fimmti og síðasti fund-
ur þeirra Reagans og Gorbatsjovs sem þjóðarleiðtoga. í fyrri skiptin Qögur hittust þeir í Genf,
Reykjavík, Washington og Moskvu. Gorbatsjov kvaðst hlakka til að eiga góð samskipti við George Bush
en hann tekur við forsetaembætti í Bandaríkjunum I næsta mánuði.
Míkhaíl Gorbatsjov ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna:
Fækkað 1 Rauða hemum
um hálfa milljón manna
„Hjartanlega sammála þessari ákvörðun,“ sagði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
MIKHAÍL Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, sagði í gær í ræðu á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, að fækkað yrði í sovéska herafl-
anum um hálfa milljón manna og þúsundir skriðdreka og annar vopna-
búnaður fluttur frá Austur-Evrópuríkjunum á næstu tveimur árum.
Talsmenn Atlantshafsbandalagsins f Brllssel og flestir leiðtogar vest-
rænna ríkja hafa fagnað yfirlýsingunni og segja þeir hana mikilvægt
skref í átt til jafnræðis með hernaðarbandalögunum. Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti sagði við upphaf fúndar hans, Gorbatsjovs og Ge-
orge Bush, að ekki hefði verið um tillögu að ræða af hálfú Gor-
batsjovs. „Þetta er ákvörðun þeirra, sem ég er innilega sammála.“
„í dag get ég skýrt frá því, að
stjóm mín hefur ákveðið að fækka
verulega í sovéska heraflanum,"
sagði Gorbatsjov í klukkustundar-
langri ræðu á allsheijarþingi SÞ,
þeirri fyrstu, áem sovéskur leiðtogi
hefur flutt þar síðan 1960 þegar
Níkíta Khrústsjov barði i borð með
skónum til að leggja áherslu á orð
sín. Gorbatsjov vék einnig að um-
hverfismálum, skuldum þróunarríkj-
anna, alþjóðlegu samstarfi og hvatti
til vopnahlés í Afganistan frá ára-
mótum undir eftirliti SÞ. Athygli
vakti, að Gorbatsjov minntist ekki á
þá grein Genfarsáttmálans, sem
kveður á um, að brottflutningi sov-
éska herliðsins frá Afganistan skuli
vera lokið fyrir 15. febrúar nk.
Gorbatsjov sagði, að veruleg upp-
stokkun yrði á sovéska hemum í
Austur-Evrópu, Asiu og Sovétríkj-
unum. „Árið 1991 verður búið að
leysa upp sex skriðdrekaherfylki í
Austur-Þýskalandi, Tékkóslóvakíu
og Ungveijalandi, fækka um 50.000
hermenn og 5.000 skriðdreka í Aust-
ur-Evrópuríkjunum og alls um
10.000 hermenn, 8.500 stórskota-
liðskerfi og 800 orrustuvélar." Sagði
Gorbatsjov, að með þessum breyt-
ingum væri stefnt að því, að sovéski
herinn yrði eingöngu til vamar.
Um klukkan 13 að ísl. tíma hófst
fundur leiðtoganna á Govemor’s Is-
land í New York-höfh og stóð hann
í rúmar tvær klukkustundir. Reagan
forseti kvaðst fagna ákvörðun Sov-
étmanna og sagði, að leita yrði
samninga um gagnkvæma afvopn-
un. „Bandaríkjamenn leita ekki eftir
yfirburðum á sviði hefðbundins her-
afla,“ sagði hann. Um klukkan 20.35
kvöddust þeir Reagan og Gorbatsjov
í fímmta og síðasta skipti og hélt
forsetinn til Washington en sovét-
leiðtoginn í skoðunarferð um New
York. Gorbatsjov-hjónin fara á
morgun, föstudag, til Kúbu.
Yfirlýsingum Gorbatsjovs hefur
verið fagnað víða og Manffed Wöm-
er, framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, sagði, að þær væru
„kærkomið skref í rétta átt, sem
leitt getur til jafnaðar í hefðbundn-
um herafla hemaðarbandalaganna".
Undir þessi orð tók talsmaður
bandarísku sendinefndarinnar hjá
NATO. Talsmaður Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, sagði í gær,
að hún fagnaði yfírlýsingu hans og
teldi hana mikilvægan áfanga og
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sagði, að ákvörðun Sov-
étmanna kæmi verulega til móts við
óskir Vesturlandabúa.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 34-35.
Yfírmaður sovéska her-
ráðsins lætur af embætti
New York. Reuter.
YFIRMAÐUR sovéska herráðins, Sergei Akhromejev, hefur sagt
af sér. Talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins skýrði frá þessu
I gær, skömmu eflár að Gorbatsjov hafði flutt ræðu sína á alls-
herjarþingi SÞ og greint frá verulegum niðurskurði i heraflanum.
Gennadíj Gerasimov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði í viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina CNN, að Akhromejev
hefði látið af störfum og lagði
áherslu á, að hann hefði eingöngu
gert það af heilsufarslegum ástæð-
um. Sagði hann, að Akhromejev
yrði áfram ráðgjafi Gorbatsjovs í
hermálum og bætti við, að Dímítrí
Jasov héldi stöðu sinni sem vamar-
málaráðherra.
Fréttaskýrendur segja útilokað,
að afsögn Akhromejevs geti komið
á þessum tíma án þess að vera
nátengd yfirlýsingum Gorbatsjovs
á allsheijarþinginu og vitna sumir
í orðróm um, að átt hafi sér stað
mikil og hingað til ókunn barátta
milli Gorbatsjovs og sumra æðstu
manna í sovéska hemum. Segja
þeir, að Gorbatsjov hafi unnið að
því leynt og ljóst að losa um tök
hersins á mótun vamarmálastefn-
unnar og nýtt sér ýmis mistök
hans á síðustu ámm, örlög suður-
kóresku farþegaflugvélarinnar,
innrásina í Afganistan og síðast
en ekki síst þann atburð þegar
Vestur-Þjóðveijinn Mathias Rust
flaug óhindraður yfir Sovétríkin
og lenti á Rauða torginu í Moskvu.