Morgunblaðið - 08.12.1988, Side 14
88d H3HM333a .8 HUí)AGIJTMMI3 .aiGAJHHUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
fjölsky\dunnar
örbyígjuoínmeð
•SSSF-
iZgerðir
Toshiba ER5420 17 lítrá
9 orkustillingar. 45 mín. klukka.
Hvítur eða brúnn.
Mál: 45 x 31 x 33.
Kr. 19.900,> Kr. 18.900,- stgr.
Toshiba ER 5720 17 lítra
Tölvustýring. 9 orkustillingar.
Hraðþýðing. Hvítur eða brúnn.
Mál: 45 x 31 x 33. Hvítur eða
brúnn
Kr. 25.900,-Kr. 24.600, ■ stgr.
Toshiba ER 7720 27 lítra
Tölvustýring. Deltawave dreifing.
9 orkustillingar. Hraðþýðing.
Mál: 55 x 38 x 37.
Kr. 35.900,-Kr. 34.100,-stgr.
Toshiba ER 8730 28 lítra
Nýja línan - Glæsilegur ofn.
Mál: 49 x 35 x 48. Hvítur.
Kr. 32.900,- Kr. 31.250 stgr.
Toshiba ER 7820 27 lítra
Tölvustýring. 9 orkustillingar.
Hraðþýðing. Getur kveikt á sér
sjálfur. Hvítur eða brúnn.
Mál: 55 x 38 x 37.
Kr. 38.900,- Kr. 36.950,- stgr.
Mjög góð greiðslukjör.
Einar Farestvett&Co.hf.
Borgartúni 28 Sími 16995
Leið 4 stoppar við dyrnar.
Sjónarvottar draumsins
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Hrafn Gunnlaugsson:
REIMLEIKAR I BIRTUNNI.
Kápa og myndverk: Egill Eð-
varðsson. Vaka-Helgafell 1988.
Hrafn Gunnlaugsson vakti ung-
ur athygli fyrir ljóð sín. Æskuljóð
hans eru saman komin í tveim
bókum: Ástarljóðum (1973) og
Grafaranum með fæðingarteng-
umar (1976).
Með Reimleikum í birtunni tek-
ur Hrafn upp þráðinn þar sem frá
var horfíð. Hér er að vísu þrosk-
aðra skáld á ferð, en djarfleiki og
á vissan hátt ögrandi tjáning eru
enn á sínum stað.
Það eitt er kyrrt er meðal þeirra
ljóða sem sýna vaxandi tök skálds-
ins á ljóðforminu:
loksins runnin í eina kviku
sársauki og gleði
og ég segi eitthvað upp úr svefni
öllum óskiljanlegt
nema sjónarvottum draumsins
dag eftir dag
að vera til og iða í glugganum
eins og fluga sem gáir til veðurs
ennið á kaldri rúðunni
og reimleikar í birtunni
kannski hún
sem sló inn í blóð mitt fyrir löngu
lætur ekki haggast
breytir bara um lit eins og fjallið
Yrkisefni Hrafns Gunnlaugssonar
eru fyrst og fremst ást og skilnað-
ur, vandi þess að vera villugjam
maður með ríkar tilfínningar. Það
er sársauki í þessum ljóðum, en
líka gáski og kaldhæðni. í Blús
er talað um að ástæðulaust sé að
æsa sig yfír því sem er liðið: „Að-
eins ef elskhugar þínir/ gengju
ekki aftur/ í ást þinni og atlot-
um./ Ég vil ekki eiga vingott við
þá“. Alltaf núna hermir frá göml-
um og nýjum sannleika, síungri
lífsspeki: „í hvert skipti sem ég
missti þig/ varð þjáningin þau at-
Hrafn Gunnlaugsson
lot sem ég þráði/ einmanaleikinn
athvarf mitt/ ég lærði að elska
ástina."
Lengri ljóðin opinbera veikleika
skáldsins. Þau em flest of orð-
mörg og orðalag ekki nógu mark-
visst. Dæmi um þetta er Veður-
fréttir, hugmyndin góð, en mælsk-
an spillir. Annáð gildir um ljóða-
flokkana Frá 0 til tólf og Þegar
þú ert farin. Þessir flokkar em í
mörgum hlutum og hver hluti er
hnitmiðaður. Þótt talmálsstíllin
fari stundum vel í ljóðum Hrafns
Gunnlaugssonar nær hann betri
árangri þegar ögun ræður. Meðal
dæma um þetta er Spörfugl, stysta
ljóð bókarinnar.
Eins og Hrafn bendir á í Um
tilurð kvæðanna em hér yrkisefni
sem löngum hafa verið honum
hugstæð, hin sömu og í bókunum
með æskuljóðunum. Það er á
margan hátt eftirtektarvert að
eftir langa þögn brýst ljóðskáldið
fram aftur og yrkir ljóð sem em
meira en spássíuathugasemdir
kvikmyndahöfúndar.
Egill Eðvarðsson birtir í mynd-
verkum sínum í bókinni eigin hug-
myndir um skáld og ljóð, einkar
persónulegar. Skreytingamar em
vel gerð tilbrigði sem geta vissu-
lega staðið sér, en em engu að
síður innan ramma ljóðanna.
Flíkur og form
Ein af prjónaflíkum Kristínar Schmidhauser Jónsdóttur.
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
í litla og fallega húsinu Stöðla-
koti á Bókhlöðustíg 6 sýnir um
þessar mundir Kristín Schmid-
hauser Jónsdóttir sérhannaðar
ullarflíkur.
Þetta er fyrsta einkasýning frú-
arinnar, en hún á að baki langt
nám og rannsóknir á sviði ullar-
vinnu. Uppmnalega lauk hún
námi við Kennaraskóla íslands
árið 1959 og kenndi lengi, en hóf
svo nám á ný í Myndlistarskóla
Reykjavíkur árið 1978—81 og
síðan í Kennaraháskóla Islands
1982—85. Auk þess hefur hún
numið við Myndiista- og handí-
ðaskóla íslands og að meira eða
minna ieyti í Englandi, Svíþjóð,
Danmörku og Sviss. Hefur tekið
þátt í ýmsum heimilisiðnaðarsýn-
ingum heima og erlendis á undan-
fomum ámm. Kristín var í stjóm
Handavinnukennarafélags ís-
lands 1962—65 og Heimilisiðnað-
arfélags íslands 1977—81.
Þessi upptalning sýnir, að hér
er fyrst og fremst um mikla
áhugakonu að ræða, sem var
komin nálægt fertugu, þegar hún
hóf seinna nám sitt og lætur sér
því ekki allt fyrir bijósti brenna.
En við eigum nú einmitt slíkum
áhugakonum hvað mest að þakka
um rannsóknir á sviði íslenzkrar
ullar, sem þær vilja nota líkt og
formæður þeirra hreina og tæra.
Sjálf segir hún: „Við hönnun
vinn ég út frá efninu, fæ tilfínn-
ingu fyrir eiginleikum þess, áferð
og litum.
Upp frá því vex formið, — það
getur orðið til fyrir áhrif frá um-
hverfínu, hvar sem er, — fyrir
andartaks hrifningu, sem tengist
þekkingu og reynslu og efninu,
sem ég þekki svo vel, íslenzku
ullinni. Hún er svo létt og lifandi.
Flíkur mínar em form, sem ég
raða litum í, en litur og form em
í svo ríkum mæli háð hvort öðm.“
Við þetta má svo bæta, að
pijónaflíkur Kristínar em fyöl-
þættar og fallegar, sýningin
augnayndi og kemur við hjartað
á þeim, sem áhuga hafa á uppr-
unalegu íslenzku ullinni, litum
hennar og þjóðlegri hönnun.
LES
neglur
ásetningy
styrking
á eigin nm
Námskeió
í meöferó og ásetningu
Lesley gerftnagla.
Upplýsingar
í stmum 171
5137.
Laugavegi 24
£XoaA<s
BREIÐIR
KULDASKÓR
með góðum sóla.
Gærufóðraðir. Vatnsvarðir.
SKÓSEL,
Laugavegi 44, s. 21270.