Morgunblaðið - 08.12.1988, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
Í6
„Aumurersá
sem á ekkert fjall“
Békmenntir
Jenna Jensdóttir
Iðunn Steinsdóttir: Víst er ég
fullorðin. Almenna bókafélagið
1988.
Iðunni Steinsdóttur hefur tekist
sérlega vel að skyggnast inn í
heim ævintýranna með spennandi
og kjammiklum frásögnum sem
lýsa af góðu og fjölskrúðugu máli.
Hún hefur einnig skyggnst um
í fomsögum okkar og búið á list-
rænan hátt til frásagnir þaðan,
sem henta vel yngstu lesendunum.
Bókin „Víst er ég fullorðin“
er saga úr raunveruleikanum. Og
sannarlega blæs hann hér um,
vorhlýr eða ískaldur eftir atvikum.
Sagan gerist (áreiðanlega) austur
á §örðum eftir 1950. Fermingar-
stúlkan Soffía er aðalpersónan.
Hún segir sjálf frá og öll sagan
er sögð frá hennar sjónarhóli. Hún
er ávallt á sviðinu, ef svo má að
orði kveða.
I fátæku sjávarkauptúni þar
sem hver þarf að berjast hart fyr-
ir lífsviðurværi handa sér og
sínum, veltir fólk sér ekki upp úr
neinni rómantík.
Allt er litið raunsæjum augum
og varúð höfð gagnvart því sem
ekki er sjáanlegt — áþreifanlegt.
Fólkið er í eðli sínu friðsælt og
laust við ásælni. Það heldur fast
saman í leit að réttlæti og lítur
alvarlega til þeirra, sem vísir em
að eigin hagsmunasemi og jafnvel
græðgi. Því hvorugt getur átt
heima í svo litlu samfélaeri.
í þessu andrúmslofti elst Soffía
upp ásamt þremur systkinum,
Snorra sem er kominn í mennta-
skóla, Nínu átta ára og snáðanum
Ragga þriggja ára. Faðirinn vinn-
ur í prentsmiðju kauptúnsins og
móðirin fer í fískvinnu.
Fermingin hefur mikil áhrif á
Soffíu. Efasemdir og auðmýkt
blandast þeim áhrifum sem hegð-
un og skoðanir fullorðna fólksins
færa inn í atburði daganna. Soffía
sér nú sjálfa sig í hópi hinna full-
orðnu og sterk réttlætiskennd
hennar býður henni að beijast
gegn öllu því ranglæti er hún sér
og fínnur sárt til í samskiptum við
aðra. Hvers vegna á hún að gæta
Ragga litla allt heila sumarið, þeg-
ar Stebba vinkona hennar og hinir
jafnaldramir eru í fískvinnu og fá
ærinn pening fyrir? Hún vill taka
þátt í öllu því er unga fólkið í
kauptúninu skemmtir sér við. Ekki
til þess að hnýsast í neitt forboð-
ið, heldur í sakleysi þess er vill
vera fijáls og skynja sjálfur lífið.
Verslunarmannahelgin verður
henni í ýmsu lærdómsrík. Ef til
vill kynnist hún sínum eigin per-
sónuleika þá betur en hún hefur
áður gert. Sjálfsgagnrýni hennar
eykst. En undur ljúft leita heitar
þrár æskunnar útrásar í vöku-
draumum. Þar birtist pilturinn
Iðunn Steinsdóttir
hennar fullkominn til líkama og
sálar í ímynd hennar. Og hún nefn-
ir hann Amadeus.
Með allar sínar stærstu sorgir
og erfíðleika ungrar sálar leitar
Soffía út í náttúruna. Hlíðin, fjal-
lið og hvammurinn hennar taka á
móti henni. Þar getur hún grúft
sig niður, grátið í örvæntingu —
orðið reið, jafnvel við sjálfan Guð.
Fundið frið og byijað réttlætis-
baráttu sína á ný.
Höfundi tekst mjög vel að lýsa
lífskjörum fólksins og skoðunum
þess, er grundvallast af samfé-
lagsþörfum.
Skýrar myndir eru dregnar upp
af fjölskyldu Soffíu, vinum hennar
og öðrum er við sögu koma.
Með áhrifaríkum hætti lýsir
höfundur ógeðslegum aðförum
Jósafats kaupmanns er hann með
lostafullum tilburðum kyssir
Soffíu og káfar á henni, er hún
kemur ein í búðina til hans, eða
hann hyllist til að afgreiða hana
síðast allra.
Hreinleiki hennar hrópar í ungri
sál, en samt getur hún engum
sagt frá. Hvammurinn hennar og
íjallið taka á móti angist hennar
og gefa henni nýjan kjark.
Hugleiðingar Soffíu á ferming-
ardaginn og misheppnuð tilraun
krakkanna að fá kennslu í kjm-
fræðslukaflanum vitnar hvort
tveggja skemmtilega um hugsun-
arhátt þeirra tíma.
Stríð það er Soffía háir, fyrir
sjálfstæði sínu og rétti til þess að
feta sömu braut til menntunar og
Snorri bróðir hennar, fær farsælan
endi í sögulok.
Það er einkenni á sögum Iðunn-
ar að í léttri, litríkri frásögn leyn-
ast þau lífssannindi er alltaf munu
verða til hins besta í mannlegum
samskiptum — hvemig sem skip-
ast. Þetta er tvímælalaust besta
sagan hennar til þessa. Saga, sem
höfðar til allra.
Ljúfar kókoskökur með
súkkulaðibitum: Hátíðarbragð
af hversdagskökum.
Dásamlegar súkkulaðikökur með
hnetum: Villtir bragðdraumar
með kaffi eða mjólk.
Menn eru á einu máli um að danska
framleiðslumeistaranum okkar,
Steen Ludvigsen, hafi tekist vel upp í
uppskrift sinni að ENGJARÓSAR-KÖKUM.
Þær eru afbragðs góðar og án aukaefha.
FRÓN
FRÓN HF. KEXVERKSMIÐJA
SKÚLAGÖTU 28 SfMI 11400
OSVIKMR ENGJ
Þær eru aíbragðs góðar og án aukaeína