Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 17
MqiUjUNl&APIÐ, FJMMTUDAGUR 8. DE^Eiyi,BgR:.1998
$7
Bókmenntir
rómantísk, gædd fínni tilfinningu
fyrir háði og kom því til skila í bók-
um sínum. Hún var að mörgu leyti
miskunnarlaus við sögupersónur
sínar, en þekkti sín takmörk og inn-
an síns ramma brá hún á þann leik,
sem hefur orðið lesendum hennar
dýrmætari og skemmtilegri með
hveijum áratug . . .“
Undir þessi orð má taka heils
hugar og þau eiga ekki síst við sög-
una sem hér um ræðir „Hroka og
hleypidóma". Jane var aldrei
beinlínis reið við sögupersónur sínar.
En hún hafði fyrirlitningu á heimsku
og kjánaskap og sú fyrirlitning
gengur eins og rauður þráður í
gegnum verk hennar. Nokkur flar-
lægð frá sögupersónum gerði henni
kleift að draga þær upp í ótrúlegum
litbrigðum.
Það er óumdeilanlega fengur að
því að fá þessa frægustu bók
„síðasta móralistans" í nýrri og
skemmtilegri þýðingu. Jane Austen
mun án efa halda áfram enn um
hríð að höfða til lesenda hinna ýmsu
kynslóða.
Ástæða er til að geta sérstaklega
um ágætan og upplýsandi formála
þýðanda.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jane Austen: Hroki og hleypi-
dómar
Si\ja Aðalsteinsdóttir þýddi
Útg. Mál og menning 1988
Á þeim tíma sem Jane Austen
var að skrifa bækur sínar, upp úr
aldamótunum 1800, var ekkert 1
sjálfsagt mál að konur settu saman I
bækur. Kannski var sök sér að pára
eitthvað á blað, en láta sér detta í
hug að koma því síðan fyrir almenn-
ingssjónir var meiri dirfska en menn
átta sig á nú.
í bókum Jane Austen er yfírleitt
fyallað um eina fjölskyldu í mesta
lagi tvær eða þijár. Hún býr persón-
um sínum ákveðið umhverfi og at-
burðir utan þess hrings koma lítið
við sögu — Napóleonsstyijaldir, iðn-
„gsM'xmtw. í hádeginu á sunnudögum
Yegna Qölda áskorana höfum við nú ákveðið að endur
taka lambakjötskynninguna næstu sunnudaga.
11. desember: Heilsteiktur lambahryggur m/lyngsósu
Bananaískrem m/vanillusósu
18. desember: Fylltar lambasneiðar m/kryddjurtasósu
Ávaxtarjómarönd m/karamellusósu
Verð kr. 895.- fyrir fullorðna og kr. 400.- fyrir börn
Reuter
Jane Austen
bylting, hvergi að þessu vikið, svo
að aðeins sé nefnt tvennt og þaðan
af síður að það sé fléttað inn í sög-
ur hennar.
Þó var Jane Austen brautryðj-
andi. Þau takmörk sem hún setti
sér og persónum sínum voru af
ásetningi og enskir sagnfræðingar
hafa kallað hana að sinu leyti bylt-
ingarmann í enskum bókmenntum.
En sennilega var Jane Austen sér
ekki vitandi um þessa uppreisn og
hún hirti lítið um þá hylli sem hún
naut meðal samtíðarmanna. Sagn-
fræðingar seinni tíma hafa brotið
verk hennar til mergjar og segja
að staða hennar hafí augljóslega
styrkst með tímanum og hún virðist
höfða til nútímamannsins á enn
sterkari hátt en á þeim tíma sem
hún var að senda frá sér bækur
sínar. Sumir hafa haft uppi þær
kenningar, að það einfalda líf sem
hún dregur upp, þrátt fyrir flækjur
og smáharmleiki sem persónumar
verða að lenda í, sé einmitt til þess
fallið að skírskota til lesenda á þess-
um síðustu tímum tölvuvæðingar
oggeimrannsókna.
í „Hroka og hleypidómum" sem
kemur nú út í nýrri og vel gerðri
þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur, er
það vitanlega aðalpersónan Eliza-
beth Bennet sem gefur sögunni
þann lit og ljóma sem hefur átt
hvað mestan þátt í langlífí sögunn-
ar. Persónan er í sjálfu sér listavel
gerð, margslungin hvernig sem á
hana er litið og Jane Austen tekst
að draga upp mynd af viðbrögðum
hennar á mjög sannfærandi hátt.
Kannski má þó segja að höfundur
verði tvísaga eða réttara sagt sé
ekki alveg sér samkvæm, ef hún
hefur ætlað að rekja ástæður fyrir
því að ein systirin hleypur á brott
og veldur hræðilegu hneyksli, til
þess eru foreldrarnir of einfaldar
sálir og eiginlega blessaðir bjálfar.
Það kemur einfaldlega ekki heim
og saman við framgöngu hinna syst-
ranna.
Jane Austen var 'nítjándu aldar
móralisti. Walter Allen segir um
hana: „Kannski var hún að sumu
leyti síðasta og fíngerðasta blómið.
Hún fátti ekki til væmni og tilfinn-
ingasemi og hún var aldrei sérlega
b€ITin HÐ
LEITIN AÐ
DÝRAGARÐINUM
eftir Einar Má Guðmundsson
Sagnasafn eftir Einar Má Guðmunds-
son, einn af bestu höfundum okkar.
Megineinkenni þessa safns er frásagnar-
gleði og frábærar persónulýsingar. Einar
hefur fengið einróma viðurkenningu á
norðurlöndum og í Þýskalandi fyrir
skáldsögur sínar. í þessu safni sýnir
hann enn á sér nýja hlið.
Oskabók sérhvers bókmenntaáhuga-
manns.
guohuhd
EYMOMDSSOM
i