Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
MYNDSKREYTTUR
HNOTUBRJÓTUR
eftir Rafh Jónsson
í kvöld, fimmtudagskvöld,
klukkan 20.30, flytur Sinfóníu-
hljómsveit íslands ásamt Skóla-
kór Kársness jólaævintýrið
Hnotubrjótinn eftir tónlist Tsjaj-
kofskíjs.
Á milli atriða segir Benedikt
Árnason, leikari, söguna af
hnotubijótnum eftir E.T.A. Hoff-
mann og meðan á flutningnum
stendur verður varpað á bíótjald-
ið 350 vatnslitamyndum, sem
Snorri Sveinn Friðriksson, list-
málari, málaði. Um tæknilega
hlið myndasýningarinnar annað-
ist Einar Erlendsson. Kórstjóri
er Þórunn Björnsdóttir og hljóm-
sveitarstjóri Petri Sakari, aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Sagan um hnotubijótinn fjallar
um jólaundirbúninginn og þegar
bömin Fritz og Klara fá að gjöf
vélvæddar dúkkur og brauðtindáta
sem byijað að dansa. Áður en langt
um líður öðlast þessi leikföng líf
BLAIR DRAUMAR
í TUNGUNU
BUBBI 0G MEGAS - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
og Fritz brýtur hnotubijót í manns-
líki í hita leiksins. Um nóttina læð-
ist Klara inn í stofu til að hugga
hnotubijótinn er á miðnætti birtast
mýsnar og styijöld hefst milli þeirra
og brauðdátanna. Smám saman éta
mýsnar dátana en hnotubijóturinn
lendir í einvígi við konung mús-
anna, sem lætur lífið þegar Klara
kemur til að bjarga hnotubijótnum.
Hnotubijóturinn breytist við þetta
í glæsilegan konungsson, sem býður
Klöm í konungsríkið sitt, Sætinda-
land.
Seinni þátturinn fjallar um heim-
sókn Klöm í Sætindaland og mót-
tökumar sem hún fær þar.
Tónlist Tsjajkofskíjs endurspegl-
ar á meistaralegan hátt heim bams-
ins, þar sem ímyndunaraflinu hefur
verið gefinn laus taumurinn. Ball-
ettinn Hnotubijóturinn hefur verið
sýndur í nær heila öld, verkið var
fmmflutt í Sankti Pétursborg í des-
ember 1892 og þrátt fyrir dræmar
viðtökur fyrst, blandast engum
Snorri Sveinn Friðriksson
lengur hugur um að þetta er frábær
ballett. Tsjajkofskíj var þó sjálfur
frá upphafi óánægður með söguna
um Hnotubijótinn og konung mús-
anna eftir Hoffmann sem söguefni
fyrir ballettinn. Fyrri ballettar tón-
skáldsins, Svanavatnið og Þymirós,
höfðu ekki notið hylli áhorfenda en
Föstudagskvöld kl. 10:00
Midaverd kr. 900
Opid til kl. 03:00
og tunglfarar
stíga dans.
Ittn
STÓRSÝNING
íslenska jazzballetflokksins á
„ALLTHAT JAZZ“
Frumsýning 8. des. kl. 21.00
á Hótei ísland.
Mióasala fyrir styrktarmeölimi 5. des.
Fyrir almenning frá 6. des.
Mióaverö kr. 1000.-
Mióa og borðapantanir í síma 687111
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Sóleyjargata o.fl.
Laugarásvegur 39-75
Skúlagata
Háteigsvegur
Sæviðarsund
Dyngjuvegur
FOSSVOGUR
Brautarholt
Kársnesbraut 77-139 o.fl.
þrátt fyrir það bað Ivan Vse-
volozhskíj, forstjóri leikhúsa rússn-
eska keisaradæmisins, Tsjajkofskíj
um að semja ballett við söguna af
hnotubijótnum og fyrir þrábeiðni
og áeggjan lét Tsjajkofskíj tilleiðast
þótt hann væri oft kominn á fremsta
hlunn með að gefast upp á verkinu.
Til að nálgast söguna, þannig
að allir geti notið verksins, böm sem
fuliorðnir, mun Benedikt Ámason,
leikari, segja söguna milli atriða.
Einnig hefur Snorri Sveinn Frið-
riksson, listmálari málað um 350
vatnslitamyndir, sem segja einnig
söguna, en á sinn hátt. Til þess að
vinna að þessu verki fékk Snorri
frí frá störfum sinum í Sjónvarpinu,
þar sem hann hefur starfað sem
leikmyndahönnuður í nær 20 ár,
eða frá 1969. Hann hefur þó tekið
sér frí frá störfum nokkuð reglulega
í Sjónvarpinu í gegnum árin til að
sinna persónulegri listsköpun sinni
og haldið nokkrar sýningar. Allir
þekkja til verka Snorra, t.d. málaði
hann leikmyndina að Gullna hliðinu,
sem sýnd var í Sjónvarpinu fyrir
nokkrum ámm.
Einar Erlendsson sér um tækni-
hliðina við að varpa myndunum á
vegg, en undanfamar vikur hafa
hann og Snorri unnið að málun
myndanna, eftirtökum á litskyggn-
ur, niðurröðun mynda og markað
hverri mynd tíma i tónverkinu.
Einar lauk BS-prófi frá Lundún-
um 1980 í tæknilegri ljósmyndun.
Hann á og rekur fyrirtækið Mynd-
verk, sem starfar á ýmsum sér-
hæfðum sviðum ljósmyndunar, s.s.
framköllun litskyggnufílma, stækk-
un litskyggna á pappír og fleira.
Einar sér t.d. um að varpa á skjá
textum í óperusýningum.
Afskaplega mikilvægt er, að þeg-
ar skipt er á milli litskyggnanna,
þá „hoppi“ myndirnar ekki til á
tjaldinu. Til þess að slíkt gerist
ekki, þarf að setja myndimar með
mikilli nákvæmni í rammana og
segir Einar, að ekki skeiki meira
en 1/250 úr millimetra. Þegar
myndunum er svo varpað á tjaldið
renna myndimar áreynslulaust
saman og mynda þannig eina heild.
Til að tryggja, að myndskiptin verði
í takt við tónlistina, hefiir Einai*
tölvuvætt myndskiptingamar.
í skólakór Kársness eru böm og
unglingar á aldrinum 10—14 ára
og syngur kórinn vals snjókorn-
anna. Kórstjóri er Þórunn Bjöms-
dóttir en hún er tónmenntakennari
Kársness- og Þinghólsskóla.
Hljómsveitarstjóri á fjölskyldu-
tónleikunum verður Petri Sakari,
aðalhljómsveitarstjóri. Hann hefur
á stuttum ferli sínum hérlendis hlot-
ið frábærar viðtökur. Hann er að-
eins þrítugur að aldri, fæddur í
Finniandi, þar sem hann hlaut að
mestu tónlistarraenntun sína. Hann
nam fíðluleik og stundaði samhliða
nám í hljómsveitarstjórn í heimabæ
sínum, Tampere, en hóf síðan nám
við Síbelíusar-akademíuna í HeÍB-
inki. Petri lék með Útvarpshljóm-
sveitinni í Helsinki og hefur stjóm-
að henni auk fjölmargra annarra
hljómsveita innan Finnlands og á
öðmm Norðurlöndum.
Höfimdur er blaðafiilltrúi Sin-
fóníuhljómsveitarinnar.