Morgunblaðið - 08.12.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUR 8. DESEMBER 1988
35
Minní umferð en óttast var
New York. Reuter.
NEW York-búar skildu margir
hveijir bíla sína eftir heima í gær
og því var ekki jafii mikið um-
ferðaröngþveiti á götum borgar-
innar og menn höfðu óttast
vegna þess að loka þurfti nokkr-
um af helstu umferðargötum
Manhattan.
„New York-búar virðast hafa
farið að ráði okkar og haldið sig
frá götunum," sagði Gregory Perk-
in, talsmaður samgönguyfirvalda
borgarinnar. „Umferðin í morgun
var ekki meiri en gengur og ger-
ist,“ baetti hann við.
Embættisnienn borgarinnar
höfðu áður en heimsókn Gor-
batsjovs hófst varað borgarbúa við
því loka þyrfti helstu umferðargöt-
um til að gæta öryggis og greiða
bílalestum sovétleiðtogans leið um
Manhattan.
Khrústsjov á Allsherjarþinginu fyrir 28 árum:
Barði skónum í borð-
ið í mótmælaskyni
New York. Reuter.
SOVÉSKIR
leiðtogar hafa
tvisvar setið
fund Ailsherj-
arþings Sam-
einuðu þjóð-
anna og fyrra
skiptið var ekki
síður sögulegt
en nú þótt með
öðrum hætti
væri. Nikíta Khrústsjov komst á
spjöld sögunnar árið 1960 fyrir
að beija skónum í borðið í mót-
mælaskyni við ræðu fúlltrúa
Filippseyja.
Ummælin sem framkölluðu þessi
viðbrögð Khrústsjovs voru þau að
Eystrasaltslöndin væru nýlendur
Sovétríkjanna. Atvik þetta situr
mönnum í minni og leiðsögumenn
um höfuðstöðvar Sameinuðu þjóð-
anna segja að algengasta spuming-
in sem þeir fái sé sú hvar Khrústsjov
hafi barið skónum í borðið. Því er
erfitt að svara því ráðstefnusal Alls-
heijarþingsins var breytt árið 1979
til þess að mæta mikilli fjölgun full-
trúa.
Við upphaf Allsheijarþingsins ár
hvert er dregið um sætaskipan. Svo
skemmtilega vill til að sovéska
sendinefndin er nú á svipuðum slóð-
um og fyrir 28 árum. Khrústsjov
var þá aðalritari kommúnista-
flokksins en ekki þjóðhöfðingi ríkis-
ins. Þar af leiðandi var honum skip-
að til sætis með óbreyttum sendi-
fulltrúum Sovétríkjanna. í gær
skipaði Gorbatjsov, aðalritari
kommúnistaflokksins og forseti
Sovétríkjanna, hins vegar hátimbr-
aðan heiðurssess vinstra megin við
ræðupúltið.
Reuter
Raísa Gorbatsjova ánægðmeð heimsóknina
Rafsa Gorbatsjova, eiginkona Mikhafis Gorbatsjovs sovétleiðtoga,
ræðir við Selwu Roosevelt, siðameistara Bandaríkj anna, við komuna
til New York-borgar í fyrradag. Frú Gorbatsjova ræddi stuttlega
við fréttamenn áður en hún snæddi hádegisverð með Nancy Reagan
forsetafrú og Barböru Bush varaforsetafrú í gær og sagðist vera
ánægð með heimsóknina til New York. Þótti fiira vel á með þeim
Raisu Gorbatsjovu en fúllyrt hefúr verið að þeim sé lftt um hvora
aðra gefið. Tókust þær i hendur og frú Reagan hafði á orði að frú
Gorbatsjova liti aldrei þreytulega út þrátt fyrir að hún hefði verið
í tfu klukkustundir um borð i flugvél á leið frá Moskvu til New
York. Frú Gorbatsjova fór einnig i skoðunarferð um borgina með
Marcelu Perez de Cuellar, eiginkonu aðalritara Sameinuðu þjóðanna.
Stefiiu Sov-
étsfjómarinn-
ar mótmælt
New York. Reuter.
RÚMLEGA 50 námsmenn af gyð-
ingaættum voru handteknir í
New York i gær er um 1.000
manns söfúuðust saman á Dag
Hammarsjold-torgi, nærri höfúð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna, til
að mótmæla hinum ýmsu stefnu-
málum Sovétsljórnarinnar. Mót-
mælin fóru fram er Mikhail s.
Gorbatsjov, leiðtogi sovéska
kommúnistafiokksins, ávarpaði
allsheijarþing Sameinuðu þjóð-
anna.
Brottfluttir Gyðingar, Afganir,
Úkraínubúar, Eislendingar,
Eþíópíoubúar, Armenar og afkom-
endur þeirra tóku þátt í mótmælun-
um og voru 58 námsmenn hand-
teknir að sögn lögreglu. Þeim var
sleppt síðar um daginn. Fólk frá
Eystralsaltslöndunum krafðist þess
að löndum þessum yrði veitt frelsi.
Fánum ríkjanna var haldið á lofti
og kona ein hélt á spjaldi þar sem
á var letrað: „Herra Gorbatsjov.
Þú ert ekki Stalín. Veittu Eistlend-
ingum frelsi“.
Aðrir hópar kröfðust þess að
Gyðingum sem þess æsktu yrði leyft
að flyjast frá Sovétríkjunum og fólk
af afgönsku bergi mótmælti veru
innrásarliðs Sovétmanna í landinu.
Forstöðumaður upplýsingaþjónustu
frelsishreyfingar Afganistans sagði
í viðtali við frétamann Reuters-
fréttastofunnar að verið væri að
mótmæla harðstjóminni í Afganist-
an sem stæði fyrir skipulegum
manndrápum. „Gombatsjov er
kominn hingað til Sameinuðu þjóð-
anna til að blekkja fólk,“ bætti
hann við.
GENGIÐ
Börn og bænir
//>?*-*>%V\
I / • .1 1
I ö - J , * * t'* •[ 1
/‘#v.v!*M |
j j:; - iV.’> i j
!! ’y•'"$:& H»i!
j i
I f iiiiíi' '*\
■t. ?'í"
KIRKJUR
OGKIRKJW-51
A ÍSIANDI
lólabaihurAB
GENGIÐ I
GUÐSHÚS
eftir Gunnar Kristjánsson með
myndum eftir Pál Stefánsson.
Ein veglegasta og glæsilegasta
bók sem gefin er út fyrir þessi
jól. íslenska kirkjan. Saga,
húsagerð og list. Ritgerð
höfundar um kirkjuna að fornu
og nýju ásamt glæsilegum
myndum og texta um 24 valdar
kirkjur.
Bók sem á erindi á öll heimili.
BÖRN OG BÆNIR
Sigurður Pálsson safnaði og
þýddi.
Fögur og gagnleg bók. Safn
af alkunnum íslenskum bæna-
versum og órímuðum bænum
sem börn hvaðanæva úr
heiminum hafa samið. Auk þess
kafli ætlaður foreldrum um
skírn, börn og bænir. Kjörbók
foreldra sem vilja börnum
sínum það besta.
eymundssot