Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 38
' ; • |S.8 •Wtii ,;.•..!•■■ Vi: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBÉR 1988 v Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Arnarflug „Brauð handa hungruðum heimi“: Hver gefin króna marg að gíldi í fátæku löndi Frá blaðamannafundi þar sem landssöfnunin „Brauð handa hungruðum L eru: Sigriður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Hjáiparstofnunar kirkj Fram til ársins 1973 voru rekin hér tvö flugfélög, sem stunduðu millilandaflug, Flugfélag íslands hf. og Loftleiðir hf. A því ári voru þessi fyrirtæki sameinuð að frumkvæði þáverandi ríkisstjómar. Aðdragandi þess var sá, að hömlulaus sam- keppni þeirra í milli hafði leitt til mikils tapreksturs beggja félag- anna. Ríkið var þá hluthafi í Flugfé- lagi íslands hf. og gerðist eignarað- ili að Flugleiðum hf. Þótt augljós rök lægju til samein- ingar félaganna tveggja kom í ljós á næstu árum, að viðskiptavinir þeirra töldu, að þjónustan hefði ekki batnað við sameiningu og jafnvel versnað, þegar engin samkeppni var fyrir hendi. Smátt og smátt féll þessi óánægja í þann farveg, að nýtt flugfélag varð til, Amarflug hf., sem fyrstu árin einbeitti sér að leiguflugi. A ýmsu gekk í rekstri þess fyrirtækis. Um tíma áttu Flug- leiðir meirihluta hlutabréfa í fyrir- tækinu. Nú em engin slík tengsl milli félaganna. Að því kom, að forráðamenn Arn- arflugs töldu engan rekstrargrund- völl fyrir hendi nema fyrirtækið fengið leyfi til áætlunarflugs. Þrátt fyrir að slík leyfi fengjust hallaði mjög undan fæti í rekstri þess. Fyr- ir nokkmm misserum komu nýir aðilar til sögunnar í rekstri Amar- flugs. Þeir hafa a.m.k. tvívegis auk- ið hlutafé í fyrirtækinu og hafa nú neyðst til þess að leita aðstoðar ríkisvaldsins til þess að tiyggja áframhaldandi rekstur félagsins. Meðan Flugleiðir vom eina íslenzka flugfélagið, sem hélt uppi millilandaflugi, gætti sívaxandi óánægju með þjónustu fyrirtækisins og ljóst, að margir aðilar í viðskipta- lífi og meðal almennra flugfarþega áttu erfitt með að sætta sig við, að engin samkeppni væri í millilanda- flugi. Á hinn bóginn hafa ítrekaðar tilraunir til þess að finna rekstrar- grundvöll fyrir Amarflug hf. reynzt erfíðar svo að ekki sé meira sagt. Nú standa stjómvöld frammi fyr- ir þeirri spumingu, hvort ríkið eigi að hlaupa undir bagga með Amar- flugi hf. um skeið. 1 því sambandi þarf að hafa eftirfarandi í huga: í fyrsta lagi sýnir fengin reynsla, að fólk sættir sig illa við, að engin samkeppni sé í millilandaflugi. Þótt erlend flugfélög fljúgi hingað er ljóst, að í því flugi einu felst ekki það aðhald, sem Flugleiðir þurfa að hafa í sínum rekstri. í öðm lagi em fordæmi fyrir því, að opinberir aðil- ar verði þátttakendur í umfangs- miklum atvinnurekstri í ákveðinn tíma eða veiti margvíslega fyrir- greiðslu. Ríkið átti vemlegan hlut í Flugfé- lagi íslands hf. og í kjölfar samein- ingar myndarlegan hlut í Flugleið- um hf., sem seldur var fyrir nokkr- um árum. Þegar miklir erfiðleikar steðjuðu að í rekstri Flugleiða fyrr á þessum áratug kom rfkið til sög- unnar með margvíslega fyrir- greiðslu. í því sambandi ber að minna á, að það var ekki að ósk Flugleiða, heldur tilkynnti félagið, að það mundi draga saman seglin í Atlantshafsfluginu og segja mörg hundruð starfsmönnum upp vinnu. Þáverandi ríkisstjóm óskaði þá eftir því, að sú ákvörðun yrði endurskoð- uð gegn margþættri fyrirgreiðslu af hálfu ríkisins. Við þeim óskum var orðið. Þegar núverandi forráðamenn Amarflugs tóku við rekstri félagsins var ljóst, að bezti kostur þeirra var sá, að fyrirtækið yrði gert gjald- þrota og nýtt fyrirtæki byggt upp á rústum þess gamla. Þá óskuðu stjómvöld eftir því, að sú leið yrði ekki farin, þar sem annað stórt gjaldþrot á íslandi í kjölfar gjald- þrots Hafskips hf. mundi mælast illa fyrir á erlendum fjármálamörk- uðum. Með þessari ósk tókust stjómvöld á hendur ákveðna sið- ferðilega skuldbindingu gagnvart núverandi forráðamönnum Amar- flugs, sem þeim ber að standa við, þótt slík skuldbinding geti að sjálf- sögðu ekki staðið um alla eilífð. Við höfum nokkur dæmi um það síðustu árin, að opinberir aðilar hafa selt hlutabréf í stórum fyrirtækjum, þegar rekstur þeirra hefur verið kominn á traustan gmndvöll. Fyrir nokkmm árum seldi ríkið hlutabréf sín í Eimskipafélagi fslands hf. og Flugleiðum hf. Nýlega hefur Reylgavíkurborg selt hlut sinn í Granda hf. eftir að rekstur þess fyrirtækis var kominn á þann grundvöll, að kaupendur vom að hlutabréfunum. Þegar þessi forsaga er höfð í huga er eftirfarandi niðurstaða ekki óeðlileg: það er óhjákvæmilegt að tryggja samkeppni I millilandaflugi eins og í öðmm atvinnugreinum. Til þess þarf að búa Amarflugi þau rekstrarskiiyrði, að rekstur þess geti gengið að því tilskildu að vel sé á haldið. í öðm lagi em rök fyr- ir því, að ríkið veiti Amarflugi tíma- bundna aðstoð t.d. með eignaraðild og stefni að því að selja þann eignar- hluta, þegar rekstur fyrirtækisins er kominn á réttan kjöl. Það er engin ástæða til þess fyr- ir forráðamenn Flugleiða að agnú- ast út í slíka fyrirgreiðslu. Þeir reka stórt fyrirtæki af miklum metnaði og dugnaði. Á erfiðum tímum hefur ríkið rétt þeim hjálparhönd. Svipt- ingar í rekstri flugfélaga em svo miklar, að enginn getur fullyrt, að til þess þurfí ekki að koma aftur. Forráðamenn Flugleiða eru einka- framtaksmenn og þar með málsvar- ar ftjálsrar samkeppni. Þeir eiga ekki að harma það, þótt þeir fái nokkurt aðhald með samkeppni af hálfu Amarflugs. í því sambandi má minna á eftirfarandi ummæli í forystugrein Morgunblaðsins hinn 22. október sl., þegar fjallað var um þotukaup Flugleiða. Þá sagði Morg- unblaðið: „Samkeppni virðist vera nægileg til að halda uppi góðri þjón- ustu. Aðhald er frá Amarflugi og erlend flugfélög halda uppi ferðum til íslands í auknum mæli." Reynsla okkar fslendinga er sú, að það hefur ekki leitt til farsæld- ar, að einstakir aðilar verði alls- ráðandi á markaðnum. Það á við um Flugleiðir. Það á við um Eim- skipafélag íslands hf., sem hefur dregið að sér athygli með því m.a. að auka hlut sinn í Flugleiðum upp í þriðjung hlutafjár með kaupum á hlutabréfum. Það á við um öll svið viðskiptalífsins. Þess vegna hljóta talsmenn fijálsrar samkeppni að hvetja til þess að ýtt sé undir sam- keppni í millilandafiugi fremur en að hún sé drepin niður. Hitt er svo annað mál og einnig íhugunarefni, að Amarflug og Flug- leiðir gætu hugsanlega haft með sér eitthvert samstarf, sem báðum fé- lögum kæmi að gagni. Þar má nefna samnýtingu á vélakosti og samvinnu um viðhald en traust viðhald er dýrt, en það er forsenda flugörygg- is og grundvallaratriði í öllum flug- rekstri og öllu öðru mikilvægara. Á VEGUM Hjálparstofnunar kirkjunnar er nú verið að dreifa gíróseðlum og söfnunarbaukum inn á ðll heimili í landinu, en árleg landssöfnun Hjálparstofh- unar kirkjunnar hófst í byijun desember og stendur fram til jóla. SÖfnunin, sem að veiyu ber yfirskriftina „Brauð handa hungruðum heimi“, er helsta tekjuöflunarleið Hjálparstofiiun- ar kirkjunnar, en söfhunarfénu er að mestu varið tíl hjálpar- starfs í þróunarlöndum. Á blaðamannafundi þar sem stjóm Hjálparstofnunar kirkjunnar kynnti söfhunina kom fram að á síðasta ári hefðu saftiast 17 millj. króna í söfnuninni, og vonir stæðu til að nú tækist að safna á bilinu 20-25 millj. króna. Starf Hjálpar- stofnunar kirkjunnar stendur og fellur með söfnuninni, og bent er á að hver króna sem fer í hjálpar- starf margfaldast að verðgildi í hin- um fátæku löndum. Framlögum er hægt að koma til skila í öllum bönk- um, sparisjóðum og pósthúsum, en auk þess til sóknarpresta og á skrif- stofu Hjálparstofnunar kirkjunnar, Suðurgötu 22 í Reykjavík, og kirkj- ur verða opnar á Þorláksmessu til að taka á móti söfnunarbaukum. Friðarkerti verða seld í flestum verslunum um land allt fyrir jólin, og einnig við Kirkjugarða Reykjavíkur á aðfangadag. Á blaðamannafundinum kom fram að á næsta ári stefndi allt í Hið nýja vörugjald myndi leggj- ast á bæði innlendar og innfluttar vörur. Byggingarvísitalan hækkaði um nálægt 3% og framfærsluvísital- an um 0,5%, ef þetta nýja vöru- gald yrði lagt á, að sögn Vilhjálms lafssonar hjá Hagstofu íslands. „Þreyttir á rukk- eríi fyrir ríkið“ „Tíu prósent vörugjald á sement leggst mjög illa í mig. Við erum orðnir þreyttir á þessu rukkeríi fyr- ir ríkið," sagði Einar Þór Vilhjálms- son framkvæmdastjóri steypustöðv- arinnar Óss í Garðabæ. „Hins vegar á ég ekki von á að samdrátturinn aukist. Við erum aðallega með einkaaðila og þeir halda áfram að byggja hvort sem það kemur vöru- gjald eða ekki. Við höfúm aldrei selt meira en í ár og eftirspumin hefur ekkert minnkað. Hins vegar eru aliir í startholunum að draga saman seglin og við erum búnir að skera á alla yfirvinnu af því að við erum að búa okkur undir samdrátt- inn á næsta ári,“ sagði Einar Þór Vilhjálmsson. Pálsdottir. það að framlag íslands til þróunar- hjálpar verði með því lægsta sem verið hefur hingað til. í fyrra hefði framlag ríkisins til þróunarhjálpar numið 0,07% af vergri þjóðarfram- leiðslu, en stefndi í að verða um 0,06% á næsta ári. Stæðu íslending- ar langt að baki hinum Norðurlönd- unum hvað þetta varðar, en þar nema ríkisframlög til þróunarhjálp- „Eitt skrefið enn í vöruverðshækkunum" „Tíu prósent vömgjald á timbur leggst illa í okkur," sagði Jón Snorrason framkvæmdastjóri Húsasmiðjunnar. „Þetta vörugjald er eitt skrefið enn í þeim hækkunum á vömverði sem orðið hafa á þessu ári. Það hefur verið samdráttur í byggingariðnaðinum sfðastliðna þijá mánuði og ég held að vöra- gjaldið auki samdráttinn. Ég held að öll fyrirtæki séu að draga saman seglin, fækka við sig starfsfólki og minnka jrfirvinnu. Eg get ekki séð annað en að þessi samdráttur haldi áfram að aukast í vetur. Það stefna allir svo hátt þegar þensla er og hmnið er mikið þegar bakslag kem- ur í seglin. Ég er hins vegar viss um að staðan væri verri í bygging- aríðnaðinum ef veðrið hefði ekki verið gott í haust," sagði Jón Snorrason. „Skattahækkanir hjálpa ekkert“ „Að mínu viti er þetta vömgjald ar um eða yfir 1% af vergri þjóðar- framleiðslu. Á þessu ári hefur Hjálparstofnun kirkjunnar starfað við þróunarað- stoð í nokkmm löndum í Afríku og Asíu. I Eþíópíu hefur í samvinnu við Hjálparstofnun Norsku kirkjunnar verið byggt bamaheimili fyrir mun- út í hött,“ sagði Grétar Þorleifsson varaformaður Sambands bygginga- manna og formaður Félags bygg- ingariðnaðarmanna í Hafnarfirði. „Það þarf að gera eitthvað annað en að hlaupa alltaf í vasana á launa- fólki. Það er alltaf talað um skatta- hækkanir og gengisfellingar en þær hjálpa ekkert. Menn fóm svolítið út í að fjárfesta í steinsteypu eftir að farið var að tala um að skatt- leggja verðbréfasjóði fyrir um ári síðan. Ég er hins vegar farinn að sjá samdrátt í byggingariðnaðinum og vömgjaldið og skattur á verslun- ar- og skrifstofuhúsnæði yki hann. Höfuðborgarsvæðið þolir hins vegar meiri skakkaföll en landsbyggðin. Það var enginn atvinnuleysisbóta- dagur í Hafnarfirði á þessu ári fyrr en í desember og menn em að tala um að samdrátturinn aukist í jan- úar og febrúar á næsta ári,“ sagði Grétar Þorleifsson. „Ýmsar blikur á loflti“ „Mér líst ekkert á 10% vömgjald á innréttingar og húsgögn," sagði Eyjólfur Axelsson framkvæmda- stjóri AXIS. „Það er ekki samdrátt- ur f húsgagna- og innréttingaiðnaði ennþá. Það em hins vegar ýmsar blikur á lofti og við höfum þurft að hafa meira fyrir því að selja vömna en áður. Samdráttur í þjóð- félaginu bitnar fyrst á húsgagna- og innréttingaiðnaði. Ég tel víst að segja þurfí upp starfsfólki í þessum iðnaði og held að nýtt vömgjald leiði til meiri samdráttar en ella. Framkvæmdastj órar Nóa—Síríusar, AXIS o g Húsasmiðjunnar: „Nýtt vörugjald veldur meirí samdrætti en ella“ - Osammála, segir framkvæmdastj óri steypustöðvarinnar Oss NÝTT vörugjald veldur meiri samdrætti í þjóðfélaginu en ella. Þetta sögðu Kristinn Björnsson framkvæmdastjóri Nóa-Sírúsar, Eyjólfur Axelsson framkvæmdastjóri AXIS, Jón Snorrason fram- kvæmdastjóri Húsasmiðjunnar og Grétar Þorlei&son varafor- maður Sambands byggingamanna, í samtali við Morgunblaðið. Einar Þór Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri steypustöðvarinnar Óss, er hins vegar ekki á sama máli. Ólafúr Ragnar Grímsson, Qármáiaráðherra, hefúr lagt fram frumvarp um 10% vörugjald á til dæmis timbur, sement, innréttingar og húsgögn og 25% vörugjald á sælgæti og gosdrykki í stað 14% nú.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.