Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 48
48
r
pílu
Rúllugluggatjöld
pílu
m gluggatjöld SuAurlandsbrául 6. Slmi: 91-8 32 15.
L— —-
\
t
en samt svo kná!
Fjölhæf!
Kraftmikil!
Fyrirferðalítil!
MK 1004:
Lítii eldhúsvél
frá SIEMENS
Verð: 6.360,-
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
1 1
1 1 \ /1 X 1
1 / N
I, 1
Jámhillur f ýmsum litum - upplagdar á
vinnustaði, á lagerinn, í geymslur, bflskúr-
inn o.fl.
TRAUSTAR
HILLUR
LUNDIA-skápar, eða járnhillur á
brautum, hafa þann meginkost að
með þeim má fullnýta geymslu-
rými. Hægt er að fá skápana með
keðjudrifi, handdrifi eða rafdrifi og
þeir eru afar einfaldir í uppsetningu.
Hilluraðir má fá í mörgum stærðum
og í allt að 10 metra lengd.
Verðdæmi:
6 hillur 80x30 ásamt tveimur
uppistöðum 200x30
= kr. 5.890.00.
Lundia
SUNDABORG 7 - SlMI 680922
SUÐURLANDSBRAUT 20 - SlMI 84090
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
- —-----——; riT"": - ■—rrr—r- —m
10% lágmarks-
fylgi inn á Alþingi
eftir Guðjón Viðar
Valdimarsson
Úrræðaleysi
samsteypustjórna
Það er orðið öllum ljóst að stjóm-
málaástand undanfarinna missera
hefur auðkennst af samsteypu-
stjómum sem hafa ekki samstöðu
til að taka á vandamálum þessa
þjóðfélags. Þetta úrræðaleysi getur
ekki annað en skaðað íslenskt þjóð-
félag og þá mun ekki vera rætt um
flokkspólitík heldur framkvæmd
þingræðisins sjálfs.
Það virðist sem íslenskir stjóm-
málamenn hafi ekki getu til að
vinna saman í samsteypustjómum
og árangurinn er sem fyrr sagði,
úrræðaleysi. Lausn þessa vanda
hlýtur að felast í því að breyta kosn-
ingalöggjöfinni í þá veru að tryggja
sterkan þingmeirihluta hverju sinni.
Ein leiða að þessu markmiði er að
setja stjómmálaflokkum lágmarks-
fylgi áður en þeir fá mann kosinn.
Lágmarksfylgi skapar
stöðugleika í stjórnmálum
Ef það þyrfti t.d. 10% fylgi til
þess að viss stjómmálaflokkur
kæmist inn á þing yrði það til þess
að flokkar væm stærri hvetju sinni
sem aftur myndi verða til þess að
ríkisstjóm hvers tíma væri betur í
stakk búin að taka á vandamálum
þjóðfélagsins með styrkan þing-
meirihluta að baki. Ef tilurð slíkrar
þingræðisstjómar væri næsta ör-
ugg eftir hveijar kosningar myndi
það breyta ýmsu í íslensku stjóm-
málalífi. Sem dæmi myndu ráð-
herrar hverrar ríkisstjómar geta
einbeitt sér meira að því að sinna
störfum sínum heldur en að hafa
áhyggjur af því hvenær næstu
kosningar yrðu og þetta gæti jafn-
vel einnig orðið til þess að þeir
væm famir að fá innsýn inn í mál-
efni síns ráðuneytis áður en þeir
hættu. Stjómmálaumræða myndi
einkennast fremur af umræðu um
landsins gagn og nauðsynjar en af
| miður smekklegum athugasemdum
um lesti andstæðinganna og ímynd-
aðra og raunverulegra bakhjarla
þeirra. Kjósendur gætu treyst því
að stjóm hvers tíma myndi setja
út kjörtímabilið sem myndi án efa
skapa stöðugleika í þjóðlífinu til
langs tíma.
Kjósendur vilja tveggja
flokka fyrirkomulag
Það em fleiri sem hafa komist
að þessari niðurstöðu. Nýlega var
það í fréttum að meirihluti lands-
manna vill tveggja flokka kerfi sem
kemur ekki á óvart ef miðað er við
tímasetningu viðkomandi skoðana-
kannana, þegar síðasta ríkisstjóm
var að leggja upp laupana.
Einnig hafa formenn Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks hjalað
um hversu mikil nauðsyn sé á
sterku stjómmálaafli vinstra megin
við miðju og ef litið er til „starfsör-
yggis" stjórnmálamanna er skiljan-
legt hvers vegna þeir telja nauðsyn
til staðar.
Hið frábæra tungumálaspil, Polyglot, er nú loks komið til
íslands. POIYGLOT er andlega þroskandi og menntandi leikur
sem hefur verið hannaður til þess að örva skilning og þekkingu á
erlendum tungumálum.
Hér er valið tækifæri til að efla tökin á ensku, frönsku, íslensku,
ítölsku, spænsku og þýsku.
Happaglot fylgir hverju spili. í vinninga eru: (erð fyrir tvo til Florida meó Flugleióum og
Hexaglot - nýjasfa tungumálatölva í heimi.
Verðkr. 3.390.-
Fæst m.a. í Pennanum og hjá Magna
Póstkröfusími: 32750
■■■■■■
mamm
Guðjón Viðar Valdimarsson
„Til að tryg-gja stöðug--
leika í íslensku stjórn-
málalífí og’ þar með
þjóðlífínu almennt,
verður lágmarksfylgi
að teljast ein besta leið-
in.“
Viðtekin venja um
lágmarksfylgi í
nágrannalöndum
í Danmörku, Svíþjóð og
V-Þýskalandi eru þessar reglur í
hávegum hafðar og vísast myndi
samsvarandi fyrirkomulag hér á
landi hafa sömu áhrif til stöðugleika
eins og þar hefur verið.
I Bretlandi hefur kosningalög-
gjöfín haft þau áhrif að meirihluta-
stjóm er næsta tryggð eftir hveijar
kosningar.
Stjómmálamenn þessara ianda
og fleiri hafa greinilega komist á
þá skoðun að rétta leiðin til að
tryggja einingu og stöðugleika er
að hafa kosningalöggjöfina þannig
úr garði gerða að meirihlutastjórnir
eins flokks verði líklegasta niður-
staða hverra kosninga.
Niðurlag
Stutt grein eins og þessi verður
ekki til að koma nema hluta rök-
semdanna til skila en kjami málsins
er þessi: Til að tryggja stöðugleika
í íslensku stjómmálalífi og þar með
þjóðlífinu almennt, verður lág-
marksfylgi að teljast ein besta leið-
in.
Höfundur er viðskiptaíræðingur.
ASI kynni
frumvarp
til lífeyris-
laga
MÚRARAFÉLAG Reykjavíkur
beinir þeim tilmælum til Al-
þýðusambands íslands að það
beiti sér fyrir hlutlausri og ítar-
Iegri kynningu meðal almenn-
ings á frumvarpsdrögum lífeyr-
issjóðanefndar og frumvarpi til
laga um starfsemi lífeyrissjóða,
dags. 29. maí 1987.
Þetta var samþykkt á félagsfundi
Múrarafélags Reykjavíkur 24. nóv-
ember síðastliðinn. Farið er fram á
að jafnt verði vakin athygli á kost-
um og göllum fmmvarpsins og að
leitað verði eftir viðhorfum stéttar-
félaganna og einstakra félags-
manna. Jafnframt beindi fundurinn
því til fjármálaráðherra að frum-
varpið verði ekki lagt fyrir Alþingi
fyrr en kynningu þess sé lokið og
viðbrögð komin fram.