Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 57
88er saaiEaaaa .8 huoaoutmmh .aiOAjanuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER-1988
3<si
57
íbúðarblokk 5. hóps hjá Byggung.
Morgunblaðið/Þorkell
hópur sleppur við að borga, þá verð-
ur að setja þetta á hina. Þetta er
byggingarsamvinnufélag í eigu 542
fjolskyldna. Þegar Byggung bsf tap-
ar, þá eru það þessir 542 aðilar sem
bera skaðann. Ef 5. hópur vinnur
málið og þarf ekki að borga, þá
þýðir það að þeir 480 sem eftir eru
þurfa að borga og ég er viss um að
þá fara þeir í mál og segjast ekki
munu borga fyrir þessa 60.“
Jón var spurður hvort þetta mál
sýndi veikleika þessa félagaforms.
Hann sagði að miðað við breyttar
forsendur hjá Húsnæðisstofnun,
síðan framkvæmdalán til bygging-
arsamvinnufélaga voru afnumin, sé
enginn grundvöllur fyrir slík félög
að starfa á. „Þeir eru komnir með
verkamannabústaði, kaupleiguíbúðir
og Búseta. Ef við fengjum sömu
fyrirgreiðslu og Búseti og rækjum
þetta eins og hugmyndin er að reka
það, þá er þetta mjög sniðug hug-
mynd. Við erum með sambærilegt
verð og ekki hærra heldur en verka-
mannabústaðir og Búseti í dag.
„Við höfum óskað eftir aðstoð
húsnæðisstjómar, sem er opinber
eftirlitsaðili með okkur og á að fylgj-
ast með að svona hlutir geti ekki
átt sér stað. Við getum komið 27
fjölskvldum inn fyrir jól, það vantar
aðeins herslumuninn upp á, en vegna
greiðslutregðu 5. hóps verðum við
að fresta því fram í miðjan janúar.
Ég er margbúinn að senda erindi inn
í Húsnæðisstofnun, en hef ekki feng-
ið svar. Við sóttum um fram-
kvæmdalán til að brúa þetta bil
vegna þess að fimmti áfangi frystir
fyrir okkur 40 milljónir." Jón segir
Húsnæðisstofnun hafa sent þeim
bréf um eftirlitshlutverk stofnunar-
innar og skipað sérstakan endur-
skoðanda til þess, en stofnunin hafi
ekki enn sinnt þessu eftirlitshlut-
verki.
Húsnæðisstofiiuii:
Byggung synjað um
framkvæmdalán
HÚSNÆÐISSTOFNUN hafhaði þann 2. desember síðastliðinn um-
sókn Byggung um framkvæmdalán, tif þess að ljúka byggingu 27
íbúða, sem félagið er með í smíðum. Umsókninni var hafiiað á þeirri
forsendu að íbúðirnar væru óseldar og engir kaupendur að þeim
og þar af leiðandi ófjóst hvort kaupendur muni sækja um húsnæðisl-
án eða hvort þeir hefðu rétt á þeim lánum. Morgunblaðið leitaði til
Sigurðar E. Guðmundssonar framkvæmdastjóra Húsnæðisstofiaunar
og spurði hann um málið.
„Fyrir nokkru sendi stjóm Bygg-
ung hingað bréf og fór þess á leit
að Húsnæðismálastjóm veitti félag-
inu framkvæmdalán úr Byggingar-
sjóði ríkisins að ijárhæð 40 milljón-
ir króna sem veðsettar yrðu í óseld-
um íbúðum félagsins, aðallega uppi
í Árbæjarhverfi," segir Sigurður.
„Þar eru um það bil fjórir fímmtu
hlutar þessara íbúða. Þetta fé átti
að nota til þess að ljúka vinnu við
íbúðimar og gera þær auðseljan-
legri á almennum markaði. Hús-
næðismálastjóm sá sér ekki fært
að verða við þessu erindi og þess
vegna var því hafnað."
Sigurður var spurður hvers
vegna.
„Svo að ég úttali mig um það,
þá er skemmst frá því að segja, að
í þessu tilfelli var náttúrulega alls
ekkert um það að ræða að fyrir
lægi hveijir væru væntanlegir eða
hugsanlegir kaupendur þessara
íbúða. Ekki heldur hvort fyrir lægi
að þeir mundu leggja inn umsóknir
um húsnæðislán. Því síður að neitt
lægi fyrir um að þeir yrðu úrskurð-
aðir lánshæfir. Enn fjarlægara var
hvenær þeim yrði veitt lánsloforð
út á þær umsóknir og hvenær þau
lánsloforð gætu síðan komið til
greiðslu. Allt er þetta hulið, af
þeirri einföldu ástæðu að íbúðimar
eru óseldar, þrátt fyrir talsverðar
tilraunir, að manni skilst, af hálfú
Byggung til þess að selja þær. Og
það má nærri geta að 40 milljónir
króna myndu hlaða á sig meira en
litlum kostnaði ef þær ættu að bíða
með veð í þessum íbúðum nú um
nokkurra ára skeið. Fýrir nú utan
það að á þessari stundu er ekkert
vitað um það hver framtíð bíður
Byggung. Þess vegna hefði að mínu
viti verið stefnt í mikla óvissu með
þessar umtöluðu 40 milljónir króna
ef við hefðum farið út í það að
veita félaginu þær að láni," sagði
Sigurður E. Guðmundsson.
Hross valda slysi
Borg^ Miklaholtshreppi.
TVÓ umferðaróhöpp urðu i Kol-
beinsstaðahreppi um helgina. í
öðru tilvikinu var kona á ferð
með átta ára barn í aftursæti
bílsins. Hross voru á veginum og
komið myrkur. Reyndi konan að
forðast árekstur við hrossin.
Bíllinn lenti utan vegar og er
mikið skemmdur. Konan meidd-
ist eitthvað í baki og á háisi, en
barnið slapp án meiðsla.
Lausaganga hrossa er bönnuð í
Kolbeinsstaðahreppi, en einhvem
veginn hafa þessi hross lent á flæk-
ingi. Það er því miður of algengt
að hross séu að flækjast um án
aðhalds á þessum tíma árs.
Hitt óhappið varð hjá Hraun-
tjöm. Þar lenti bíll út af vegi og
valt. Engan sakaði sem í bílnum
var og bíllinn var ökufær þrátt fyr-
ir veltuna.
Vegir hafa verið góðir, en suma
daga dálítið sleipt. Tíðarfar hefur
verið hagstætt miðað við árstíma.
Nokkur úrkoma hefur verið flesta
daga, ýmist rigning, ,slydda eða
snjókoma.
PHILIPS sjónvarpstækin eru sannkallaðir gleðigjafar á heimilinu.
Sjónvarpsdagskráin ræður að von nokkru um gleðina en PHILIPS
tryggir skýrasta mynd og tærastan hljóm þess sem í boði er.
Einstök myndgæði, traust smíði og frábær ending
eru meðmæii eiganda PHILIPS sjónvarpa.
— Viltu slást í hópinn?.
Við vorum að fá til landsins stóra
sendingu af þessu hágæða 20 tommu
sjónvarpstæki frá PHILIPS, árgerð '89,
þar sem mynd og tóngæði eru í sér-
flokki, og getum því boðið þessi
frábæru tæki á einstaklega lágu verði
vegna hagstæðra samninga.
• Þráðlaus fjarstýring með öllum möguleikum
handstýringar.
• Smekklegt, nútímalegt útlit.
• Sjálfleitari.
• Frábær hljómgæði úr hátalara framan á tæki.
• Lágmaiks raftnagnsnotkun.
• 16stöðvaminni.
• Verðiðkemurþéráóvart.
Heimilistæki hf
Sætúni8 • Hafnarstræti 3 • Krmglunm
SÍMi: 69 15 15 SÍML69 15 25 SIML69 15 20
iSOMlittífUM,
Páll