Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 76
TJöfðar til
X Afólks í öllum
starfsgreinum!
Endurskii
í skami
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
VERÐ I LAUSASÓLU 70 KR.
Lögreglufélag Reykjavíkur:
Fíkmefimlögregla
i sjálfboðavinnu
Fíkniefhalögreglan vinnur að hluta til í sjálfboðavinnu og Qar-
skiptakerfi lögreglunnar í Reykjavík er að hruni komið. Þrátt fyrir
að íbúum löggæslusvæðisins hafi flölgað um 8 þúsund á síðasta ári
var lögreglumönnum ekki Qölgað. Umferðarlöggæsla er minni en
áður þrátt fyrir mikla Qölgun ökutækja.
Að sögn Jóns Péturssonar, for-
manns Lögreglufélags Reykjavíkur,
eru þetta nokkrar þeirra niður-
staðna sem komist er að í viðamik-
illi úttekt sem félagið hefur látið
gera á starfi og aðstöðu Reykjavík-
urlögreglunnar.
Á næstunni hyggjast lögreglu-
menn kynna ástand löggæslumála
fyrir ýmsum aðilum, svo sem borg-
aryfírvöldum og hverfasamtökum.
„Við leggjum þessa skýrslu fram
sem umræðugrundvöll fyrir íbúa
svæðisins um starfsemi lögreglunn-
ar. Við viljum fá fram hvort almenn-
ingur sé ánægður með löggæsluna
eins og hún er. Ég sjálfur, sem lög-
reglumaður og borgari, er það
ekki,“ sagði Jón Pétursson.
Sovéskur þorskur
unninn hér á landi
VERIÐ er að gera tilraunir hér
á landi með vinnslu á frystum
þorski og kolmunna, sem fluttur
er hingað til lands fi-á Finn-
landi. Fiskinn fá Finnar frá Sov-
étríkjunum, I skiptum fyrir
kKÍnar vörur, og ætia að auka
verðmæti hans með þvi að láta
fullvinna hann hér.
Verkfræðifyrirtækið Ráðgjöf og
hönnun hefur milligöngu um þessa
tilraun fyrir fínnska fyrirtækið
Rauna Repola. Talsverður hluti
viðskipta fyrirtækisins við Sovét-
menn eru vöruskipti og hafa Sovét-
menn meðal annars boðið físk sem
greiðslu. Þegar hafa verið send
hingað til iands um 200 tonn af
þorski og hann unninn hjá Hval-
eyri í Hafnarfírði. Fiskurinn kemur
frosinn, er þíddur, hausaður og
slægður. Þá hefur talsvert magn
af kolmunna borist hingað, en til-
raunir með vinnslu hans eru
skemmra á veg komnar.
Af hálfu Rauna Repola kemur
hvort tveggja til greina, að íslend-
ingar kaupi fískinn, fullvinni og
sjái sjálfír um að koma honum á
markað, eða annist einungis
vinnsluna hér og fyrirtækið annist
markaðssetninguna sjálft.
Sjá Viðskipti/atvinnulíf, bis. B 1.
„Brunaliðið“
Morgunblaðið/Júlíus
Húsið að Undralandi við Suðurlandsbraut, einni
síðustu bújörðinni í höfuðborginni, varð eldi að
bráð í fyrrinótt. Húsið var látið víkja fyrir skipu-
lagi höfúðborgarinnar. Óvenjuleg aðferð var þó
notuð við niðurrifið; slökkviliðsmenn í Reykjavík
fengu húsið til reykköfúnaræfinga og að þeim
loknum var kveikt í því. Nokkrir slökkviliðs-
mannanna gátu því með góðri samvisku leyft
sér að snúa baki i brennandi hús og brosa fyrir
Ijósmyndarann.
Spá VSÍ um horfur á næsta ári:
Valið er á milli kjaraskerð-
ingar og 5% atvinnuleysis
Obreytt eftiahagsstefiia þýðir atvinnuleysi 6.000 manna
HAGDEILD Vinnuveitendasambands íslands telur að þjóðartekjur
dragist saman um 3,3% á þessu ári og 5% á næsta ári. Þar að auki
sé kaupmáttur of hár nú miðað við þjóðartekjur og veruleg kaup-
máttarskerðing því óhjákvæmileg á næsta ári. Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, segir að hana sé aðeins hægt að fram-
kvæma á tvennan hátt: annars vegar með almennum aðgerðum, svo
sem gengisfellingu, hins vegar með því að halda óbreyttu raungengi
og „óraunhæfúm kaupmætti", sem myndi þá þýða gjaldþrot Qölda
fyrirtækja og atvinnuleysi um 6.000 manna, eða 5% vinnufærra. At-
vinnuleysi nú er 0,7%.
Samkvæmt útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar hefur hlutfall launa
af þjóðartekjum hækkað úr 60%
árið 1984 í nær 74% nú í ár. Þetta
hlutfall er nú hærra en nokkru sinni,
en var hæst áður árið 1982, 69,8%.
„Það er ekki lengur til innistæða
fyrir þessum kaupmætti," sagði Þór-
arinn V. Þórarinsson. Kaupmáttur
mun dragast saman um 3}5% á þessu
ári samkvæmt úttekt VSI, en í þjóð-
hagsáætlun var því spáð að hann
drægist saman um 1%. Þá telur
hagdeild VSÍ að þjóðartekjur dragist
saman um 3,3% á þessu ári í stað 2%.
Þórarinn gagnrýndi hugmyndir
fjármálaráðherra um skattlagningu
á fyrirtæki á sama tíma og upplýs-
ingar væru að berast um stórfellda
rýmun eigin fjár fyrirtækja. Hann
sagði að nú stæði til að tvöfalda
skatt á verslunarhúsnæði, sem versl-
unin ætti í raun ekki lengur vegna
þess að eigið fé hennar væri upp
urið, samkvæmt upplýsingum sem
forsætisráðherra hefði nýlega birt.
„Ráðherrar heyrast enn tala um að
slá á þensluna. Þenslan snöggdó nú
í haust og er nú aðeins í ríkisrekstr-
inum.“ Hann sagði að gengið yrði
líklega ekki fellt fyrir áramót vegna
þess að efnahagsreikningar fyrir-
tækja yrðu þá ekki eins gimilegur
skattstofn.
Þórarinn var spurður um hvort
lækkun flármagnskostnaðar væri
ekki brýnt mál fyrir vinnuveitendur.
Hann sagði að vinnuveitendur teldu
bankakerfíð of dýrt í rekstri og 7%
vaxtamun of mikinn. Ekki mætti þó
ganga of hart fram í lækkun vaxta
svo að peningalegur spamaður
hryndi ekki eins og á 8. áratugnum.
Það væri betra að borga háa vexti
á peninga sem væm til en að hafa
engan spamað í landinu.
Sjá álitsgerð VSÍ á bls. 32.
Sálmar og nótur á
vaxtöflum úr Viðey
VIÐ úrvinnslu og rannsóknir á
munum þeim sem upp komu við
fomleifauppgröftinn í Viðey í
sumar kom í ljós að á vaxtöflun-
um sem fúndust virðast vera
bæði sálmar og nótur. Margrét
Hallgrímsdóttir fomleifafræð-
ingur á Árbæjarsafni sem um-
sjón hefúr með verkinu segir
að textar þessir séu frá því fyr-
ir siðaskiptin eða um aldamótin
1.500.
Uppgreftinum lauk í október sl.
og síðan þá hefur verið unnið að
úrvinnslu gagna. Munir þeir sem
fundist hafa eru úr bæjarrústum
frá síðmiðöldum er enn var klaust-
ur í Viðey. Meðal þeirra þúsunda
hluta sem fundust í sumar má
neftia að í matarbúri voru stór vel
varðveitt sýruker. Segir Margrét
að sýrukerin séu svo til ófúin þann-
ig að hægt er að gera við þau og
hafa til sýnis.
Við uppgröftinn kom í Ijós fjöldi
beinagrinda. Margrét segir að
beinagrindumar sem fundust séu
frá síðmiðöldum og upphafí 18du
aldar. Við rannsóknir á þeim hefur
komið f ljós að meðal sjúkdóma
sem hrjáðu fólk á þessum tíma
vom berklar og sullur.
Morgunblaðið/Guðmundur Ingólfsson
Á þessari vaxtöflu eru nótur efst í hægra horninu.
V estmannaeyjar:
Kæra vegna
vetrarbeitar
á Lambhillu
SAMBAND dýraverndunarfélaga
hefúr sent bæjarfógetanum í Vest-
mannaeyjum kæru vegna þess að
sex gemlingar hafa verið fluttir f
Lambhillu f Stórhöfða til vetrar-
beitar. Telur sambandið að þetta
varði við lög um dýravemd. Bæjar-
fógetinn í Vestmannaeyjum kvaðst
í gær ekki hafa fengið kæmna i
hendur og vildi ekki tjá sig um
rnálið.
í frétt í Sjónvarpinu í fyrri viku
var sýnt er Eyjamenn fluttu fé sitt á
sylluna. LambhiIIa er sögð grasgefín
og gras þar grænt allt árið. Um 100
metra þverhnípi er af Lambhillu í sjó
niður. I kæmnni segir að þessi siður
Eyjamannanna sé arfur þeirra tíma
er „ ... þjóðin hafði varla í sig og á
og brýna nauðsyn bar til að nýta
hverja tuggu". Þá segir að Iög skyldi
þá sem halda dýr til að sjá þeim fyr-
ir nægilegu vatni og fóðri auk rúm-
góðs og skjólgóðs vörslustaðar.