Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
7
mmmmrnmB
100 stærstu fyrir-
tækin á síðasta ári:
Sambandið
stærst en
ÁTVRhagn-
aðist mest
SAMBAND íslenskra samvinnu-
félaga var að venju stærsta fyr-
irtæki landsins á síðasta ári,
samkvæmt lista sem tímaritið
Fijáls verslun hefur tekið sam-
an um 100 stærstu fyrirtækin
hér á landi. í öðru sæti var
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og í þriðja sæti var Lands-
bankinn. I næstu sætum voru
Flugleiðir hf., Sölusamband
islenskra fiskframleiðenda,
ÁTVR, Kaupfélag Eyfirðinga,
Islenska álfélagið, Póstur og
sími og Eimskipafélag íslands
hf. Eina fyrirtækið sem ekki var
á þessum lista árið 1986 er Póst-
ur og sími.
Velta Sambandsins árið 1987
var 17,5 milljarðar, velta SH var
11,5 milljarðar, Landsbankans 8,3
milljarðar, Flugleiða 8,2 milljarðar
og SÍF 8,15 milljarðar. Þessi fimm
fyrirtæki skera sig nokkuð úr. Hjá
þessum fyrirtækjum var mesta
veltuaukning frá fyrra ári hjá
Landsbankanum eða 55% en SIF
kemur næst með 34%. Mesta
veltuaukning fyrirtækja á landinu
var þó hjá Lýsi hf., 315%, en
næst hjá Einari J. Skúlasyni hf.,
164%.
Áfengisversiunin sýndi mestan
hagnað á árinu eða rúma 3,3 millj-
arða. Næstir komu Isienskir aðal-
verktakar með 839 milljónir. Þá
Eimskip með 477 milljónir, þá
Landsbankinn með 374 milljónir
og Hitaveita Reykjavíkur skilaði
357 milljónum í hagnað.
Fyrirtæki í sjávarútvegi greiddu
langhæstu launin á landinu.
Hæstu meðallaun greiddi Hrönn
hf. á ísafirði, eða rúmar 3,8 millj-
ónir að meðaltali á ársverk. Næst
kom Samheiji hf. á Akureyri með
rúmar 3,5 milljónir, síðan Skag-
strendingur hf. með 3,34 milljónir,
Oddeyri hf. á Akureyri með 3,1
milljón og síðan Sigurður hf. í
Stkkishólmi með 2,97 milljónir.
Ólafur
bekkur með
100 króna
meðalverð
TOGARINN Ólafur bekkur ÓF
fékk í gær tæplega 100 króna
meðalverð fyrir afla sinn í
Grimsby. Þorskur í aflanum fór
að meðaltali á 105 krónur, ýsa
á 100 og koli 97. Alls seldi togar-
inn 101 tonn fyrir 10 milljónir
króna.
Tvö önnur skip seldu afla sinn
í Hull í gær, en fengu fjórðungi
lægra verð fyrir hann. Ástæðan
er fyrst og fremst lakari gæði og
smærri fískur en hjá Ólafí bekk.
Gjafar VE seldi 82 tonn fyrir
samtals 5,9 milljónir, meðalverð
72,39. Þorskur í afla Gjafars var
fremur smár. Haukafell SF seldi
43 tonn af netafiski fyrir 3,2 millj-
ónir króna, meðalverð 74,82. Fyrst
stóð til að selja fiskinn í Esbjerg,
en vegna lágs verðs þar, var farið
með hann yfir til Hull.
Gódandaginn!
úEakarnabær
r Laugavegi 66 - Austurstræti 22 - Glæsibæ
5 O 0 A R T
AUSTURSTRÆTI 22, SÍMI 22925
GARBO
AUSTURSTRÆTI22, SiMI 22771.
Umboðsmenn um land allt:
Adom og Eva, Vestmonnoeyjum - Bóron, Grindavík - Búóin, Blönduósi - Diona, Ólofsfirði -
Eplið, isofirði - Fatovol, Keflavik - Garðo.'shólmi, Húsovik - Homobær, Höfn, Homofirði -
ísbjöminn, Borgomesi - Lindin, Selfossi - Nesbær, Neskoupstoð - Nino, Akronesi - Skógar,
Egilsstöðum - Sparto, Souðórkróki - Þórshamor, SfykkishóJmi - Koupf. V-Húnvefningo, Hvomms-
tonga - Kaupf. Longnesinga, Þórshðfn - Koupf. Rangæingo, Hvolsvelli - Amor Akureyri