Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 68
SÍMANÚMER m - 606600 MÁ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Vestmannaeyjar: Ekkí var hægt að —bjarga Háfvarði Afþrýstibúnaður dugði ekki til Vestmannaeyjum EKKI tókst að halda lífinu í kambháfiium Háfvarði í Fiskasafiiinu hér í Eyjum þrátt fyrir margvíslegar aðgerðir til að bjarga honum. Siðast var reynt í gær að bjarga honum með sérstökum afþrýstibún- aði eins og kafarar nota við kafaraveiki. Háfurinn drapst um níu- leytið í gærkvöldi. Kambháfur er djúpsjávarfiskur og virðist sem hann hafi ekki þolað þiýstingsbreytinguna sem hann varð fyrir, þegar Guðbjörg IS fékk hann í trollið á um 100 faðma dýpi. Auk þess telja starfsmenn Fiska- Viðræður flug- félaga hafiiar FORRÁÐAMENN Flugleiða og Arnarflugs hittast á morgun ásamt fulltrúum sljórnvalda á fundi um hugsanlegt samstarf flugfélaganna. Þegar hefur einn fundur verið haldinn. Viðræður þessar eru haldn- ar að frumkvæði Steingríms Sigfús- sonar, samgönguráðherra, í fram- haldi af tillögum um að ríkið að- stoði Amarflug að komast út úr þeim fjárhagsvanda sem félagið á nú í. safnsins að hann hafi orðið fyrir innvortis meiðslum. Starfsmenn safnsins reyndu að ná lofti úr kviðarholi háfsins með því að stinga nál í hann, en án ár- angurs. í gær var brugðið á það ráð að setja hann í sérstakan af- þiýstikút, sem kafarar nota til að laga sig að yfírborðsþiýstingi. Um fimmleytið í gær var Háfvarður settur í kútinn og stillt var á þrýst- ing eins og er á 25 metra dýpi. Smám saman var þiýstingurinn Iéttur þar til yfirborðsþrýstingi var náð um klukkan hálf níu. Þessar aðgerðir dugðu þó ekki til og Háf- varður drapst um níuleytið í gær- kvöldi. Það var Sigurður Óskarsson kaf- ari sem lánaði kútinn og var Kristj- áni Egilssyni forstöðumanni Fiska- safnsins til aðstoðar við björgunar- tilraunimar. Háfvarður verður stoppaður upp og hafður til sýnis í Fiskasafninu. Grímur Laxfoss í höfii í Antwerpen á miðvikudag. Reuter Stærsta skip íslenska flotans A lengd við 2Vs Hallgrí mskirkj uturn NYTT skip Eimskipafélagsins, Laxfoss, er nú lagt af stað í fyrstu ferð sína. Laxfoss er annað tveggja skipa, sem Eimskip festi kaup á í vor. Þau voru afhent í nóvember, en hafa síðan verið í breytingum í Fredrikshavn í Danmörku. ALls greiðir Eimskip um 900 milljónir króna fyrir skipin tvö. Hitt skipið, Brúarfoss, fer í sína fyrstu ferð á mánudag. Bæði skipin verða í meginlandssiglingum. í hvoru skipi eru sex tveggja manna farþegaklefar. Skipin eru stærstu skip íslenska og hálfan turn Hallgrímskirkju flotans, Laxfoss 172 m að lengd þyrfti til ná sömu lengd og annað og Brúarfoss 95 sm lengri. Um skipið. 40 þúsund lítra af málningu þurfti Burðargeta Laxfoss er 10 þús- til að mála skrokk Laxfoss. Tvo und tonn og það lestar 730 gáma- einingar, eða 660 gámaeiningar og 230 bíla. Laxfoss er ekjuskip og djúpristun er 7 metrar. Það er búið tveimur vélum, sem hvor um sig er 5800 hestöfl, auk þriggja hjálparvéla, er með tvær skrúfur og bógskrúfu. Ganghraði er 15'/2 sjómíla. 19 manna áhöfn verður á Lax- fossi, skipstjóri er Bernódus Kristj- ánsson og yfirvélstjóri Hreinn Eyj- ólfsson. Icelandic Freezing Plants í Bretlandi: Iblóma ÞESSI fallega rós stendur enn í blóma í garði í Fossvoginum þótt komið sé fi-am í desember. Hún er af drottningarkyni, kallast Queen Elizabeth, en þær rósir eru að sögn Jóhanns Pálssonar, garðyrkjustjóra, mjög harðgerðar og geta blómgast i skjóli langt firam efitir vetri ef veður Leyfir. Jóhann sagði aðspurður að ekki væri hætta á því að plöntur biðu tjón af hlýindum á þessum tíma árs, þær legðust flestar í dvala á haustin, en þegar kæmi fram á útmánuði væri hættara við því að þær létu blekkjast af hlýindaköflum. SH eykur hlutafé um 250 miUjónir Þáttur í aukinni sókn SH á Evrópumarkað STJÓRN Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna samþykkti á fundi sínum í Grimsby á Eng- landi I gær að auka hlutafé Icelandic Freezing Plants Ltd., dótturfyrirtækis síns í Bret- landi, úr um 560.000 sterlings- pundum i 3,5 milljónir punda. Aukningin nemur því þrem milljónum punda eða 250 millj- ónum íslenskra króna. „Við erum að breyta hluta af 400-500 þúsund seiði drápust hjá Islandslaxi skuldum fyrirtækisins í hlutafé til þess að styrkja eiginfjárstöðu þess,“ sagði Friðrik Pálsson, for- stjóri SH. „Vöxtur fyrirtækisins hefur verið mjög ör og hlutaféð of Iítið miðað við veltu, en rekstur- inn einkum fjármagnaður með lán- um.“ Hann sagði að ekki væri um það að ræða að íslenskir fisk- framleiðendur væru svo stöndugir að þeir gætu lagt fram 250 millj- ónir króna á einu bretti. „Sölumið- stöðin mun að mestum hluta taka lán til þess að greiða þetta hlutafé og það lán verður svo greitt niður á nokkrum árum,“ sagði Friðrik. Friðrik sagði að þessi hlutafjár- aukning væri þáttur i aukinni sókn SH á Evrópumarkað, enda hefði sala frosinna matvæla aukist þar og spár bentu til að svo yrði áfram. „Við höfum mikla trú á því að Evrópumarkaðurinn verði okkur mikilvægur í vaxandi mæli og að við eigum að halda áfram að hasla okkur þar völl eftir því sem við höfum getu til.“ dagar til jóla Tjónið áætlað 40 milljónir króna Margeir 5. af 260 ÍSLANDSLAX hf. við Grindavík hefiir misst 400-500 þúsund seiði á þessu ári vegna ofsetningar í eldiskerum og sníkjudýrs sem heijar á fiskinn. Er tjónið áætlað um 40 milljónir kr., miðað við markaðsverð seiðanna, en Sig- urður Friðriksson framkvæmda- stjóri segir að fiskurinn hafi ver- ið tryggður og fáist tjónið bætt að verulegu leyti. Sigurður segir að vandræðin stafi af því að ekki tókst að flytja út seiði í sumar. Aætlað hafi verið að flytja út 600 þúsund seiði og gott útlit hefði verið fyrir sölu til Irlands en það hefði verið stöðvað ytra á síðustu stundu. Stöðin er með seiði af norskum uppruna og mátti ekki selja seiðin innanlands, nema hvað 80 þúsund seiði hafi farið til Linda- lax, og ekki heldur ala hann í sjó- kvíum. Þetta varð til þess að meira var af seiðum í stöðinni en hún bar en það hefur áhrif á tálknin í seiðunum og varð til þess að um 200 þúsund seiði drápust í júní. Sagði Sigurður að 200-300 þúsund seiði til viðbótar hafi drepist, m.a. vegna áfallsins sem þau urðu fyrir og vegna ágangs sníkjudýrsins kostía. Kostía er al- gengt sníkjudýr í fiskeldisstöðvum en leiðir fiskinn ekki til dauða nema hann hafi fyrst orðið fyrir áföllum eins og hjá íslandslaxi. ÍSLENSKU skákmennirnir á skákmótinu í Belgrad gerðu allir jafiitefli í 5. umferð. Margeir er nú í 5. sæti ásamt 10 skákmönn- um öðrum með fjóra vinninga. Helgi hefur þrjá og hálfan vinn- ing og Jón L. hefiir tvo. Júgóslavneski stórmeistarinn Hulak er efstur á mótinu með firhm vinninga. í öðru til fjórða sæti eru þrír sovéskir stórmeistarar, Psak- his, Pigusov og Bareev. 260 skák- menn taka þátt í mótinu sem er undanrásarmót fyrir heimsbikar- keppnina, þar af um 100 stórmeist- arar, um þriðjungur virkra stór- meistara í heiminum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.