Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DÉSEMBER 1988
------------------------------------------------nrr ; 'nT .9 ;irjDAGiJT8OT .aiqAJíiwiOflOM
Notaðu eingöngu náttúrulega
prótínbætta vökvann frá MANEX
til að stöðva hárlosið, flösuna eða
kláðann íhársverði.
Þú nærð betri
árangri í
permanenti
með MANEX.
173% mældra
tilvika hefur
fólkfengið
háriðaftur, þar
sem það áður
missti það.
Fæst á allflestum rakara- og hárgreiðslustofum um land allt.
Heildsölubirgðir: Ambrósía hf., sími 91 -680630.
Morgunblaðið/Silli
Frá aðventustund í Húsavíkurkirkju.
Aðventustund í
Húsavíkurkirkiu
Húsavik.
HÚSVÍKINGAR áttu aðventu- organistans Davids Thompsons og
stund í kirkju sinni sunnudaginn einleik Sigríðar Einarsdóttur á
4. nóvember og var hún fjölsótt. fiðlu. Frú Thompson söng einsöng
en þau hjónin eru frá Bandaríkjun-
Hugvekju flutti séra Kristján um. Keith Miles kennari við tónlist-
Valur Ingólfsson, prestur á Gren- arskólann lék með nemendum
jaðarstað, og mikið var sungið og sínum á blásturshljóðfæri.
leikið á hljóðfæri. Kirkjukórinn söng Samverustundinni lauk með því
nú í fyrsta skipti undir stjóm Shar- að allir sungu Heims um ból.
on Thompson með undirleik kirkju- - Fréttaritari
LEITIN AÐ
DÝRAGARÐINUM
eftir Einar Má Guðmundsson.
Sagnasafn eftir Einar Má Guðmunds-
son, einn af bestu höfundum okkar.
Megineinkenni þessa safns er frásagnar-
gleði og frábærar persónulýsingar. Einar
hefur fengið einróma viðurkenningu á
norðurlöndum og í Þýskalandi fyrir
skáldsögur sínar. í þessu safni sýnir
hann enn á sér nýja hlið.
Óskabók sérhvers bókmenntaáhuga-
manns.
IslenskarHI
sháldsödurAB
Fundur um
hrollvekjur
FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir heldur skammdegisfúnd
laugardaginn 10. desember um
hrolivekjur. Fundurinn er hald-
inn í Odda, hugvísindastofu Há-
skóla íslands, stofú 101, og hefst
kl. 14.00.
Hrollvekjur verða skoðaðar og
skilgreindar út frá sjónarhomi bók-
mennta og kvikmynda. Fjórir fyrir-
lesarar munu taka til máls.
Davíð Erlingsson, dósent í
íslenskum bókmenntum við Há-
skóla íslands, flytur erindi sem
hann nefnir „Uggur og öryggi" eða
„Um óttann í þjóðlegum frásögn-
um“. Matthías Viðar Sæmundsson,
lektor í íslenskum bókmenntum við
Háskóla íslands, fjallar um hroll-
vekjur í bókmenntahefðinni. Skáld-
ið Sjón mun segja frá því „Að eiga
bróður í blóðsugunni" og kvik-
myndagerðarmaðurinn Viðar
Víkingsson mun fjalla um hrollvekj-
ur í kvikmyndagerð.
Að lokum Eiríkur Eiríksson,
bókavörður Alþingis, lesa drauga-
sögu fyrir fundargesti áður en þeir
halda út í skammdegisdrungann.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins á
Smmtudag um firystingu síldar
á vertíðinni, sem nú er að ljúka,
var sagt að SH hefði samið um
sölu á 3.000 tonnum af frystri
síld til Japans. Það er ekki rétt,
heldur var samið um sölu á
5.000 tonnum.
Frétt Morgunblaðsins var
byggð á viðtólum í Fréttabréfi
Ríkismats sjávarafurða. Þar var
sagt að samningur SH við jap-
anska kaupendur næmi 3.000
tonnum og jafnframt haft eftir
Helga Þórhalssyni hjá SH að ekki
hefði enn náðst að frysta upp í
þann samning. Morgunblaðið
byggði þvi frásögn sína á röngum
upplýsingum í umræddu frétta-
bréfí. Hið rétta er að samið var
um sölu á 5.000 tonnum og að
búið er að frysta 3.500 tonn upp
í þann samning.