Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
43
Pálmi Jónsson;
Fjárlög naumast af-
greidd fyrir áramót
Sljórnarflokkarnir ósammála um tekjuöflunarleiðir
Engin sjávarútvegsmál fyrir áramót
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins spurðist fyrir
um það í Sameinuðu þingi i gær, hvað liði hefðbundnum lista ríkis-
stjórnar um forgangsmál, sem afgreiða eigi fyrir áramót. í umræð-
unni kom fram að stjómarflokkamir hafa ekki enn náð saman um
tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs 1989. Pálmi Jónsson, Qárveitinganefhd-
armaður Sjálfstæðisflokksins, sagði líklegt, að ekki tækist að af-
greiða Qárlög komandi árs fyrir áramót.
Hver eru forgangsverkefni
ríkisstjómarinnar?
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins spurði um það
í þingskaparumræðu í Sameinuðu
þingi í gær, hvort bregða ætti út
af þeirri venju, að ríkisstjóm leggi
fyrir þingflokka lista um forgangs-
verkefni, sem hún telur nauðsynlegt
að afgreiða fyrir starfshlé þingsins
yfír jól og áramót, og leiti sam-
komulags um vinnutilhögun.
Þorsteinn spurði og sérstaklega
um tvö atriði. Hið fyrra vóru fmm-
vörp um verðbréfaviðskipti og verð-
bréfasjóði. Frumvörp þessi vóru
unnin í tíð fyrri ríkisstjómar. For-
maður Framsóknarflokksins taldi
þessi mál þá svo biýn að hann innti
eftir því hvort samstaða gæti náðst
um koma þeim fram með bráða-
birgðalögum. Hann hafí hinsvegar
sætzt á að leggja þau fram á fyrstu
dögum haustþings og láta þau hafa
forgangsafgreiðslu. Þetta vóru
fyrstu mál þessa þings. Og formað-
ur Framsóknarflokksins hefur verk-
stjóm á hendi í ríkisstjóminni.
Síðara atriðið sem Þorsteinn spurði
sérstaklega um var, hvort á for-
gangslista ríkisstjómarinnar jrfir
mál sem afgreiðslu eigi að fá fyrir
áramót, verði frumvörp eða mál sem
tengist ráðstöfunum í þágu sjávar-
útvegsins.
Rætt verður við
stjórnarandstöðuna
Guðmundur Bjarnason heil-
Þingmenn Sjálfstæðisflokks:
Framkvæmdasj óð-
ur menningarmála
Þjóðarbókhlaða, Þjóðleikhús, Þjóðminja-
safii, Þjóðskjalasafii og Tónlistarhús
Birgir ísl. Gunnarsson, Ragn-
hildur Helgadóttir, Geir H.
Haarde og Olafur G. Einarsson,
þingmenn Sjálfstæðisflokks,
hafa lagt fram frumvarp til laga
um framkvæmdasjóð á sviði
menningarmála. Framkvæmda-
sjóðurinn fái frá og með gjaldár-
inu 1990 tekjur af sérstökum
eignarskatti sem renni óskiptur
til framvkæmda á sviði menning-
armála. Þjóðarbókldaða hafí for-
gang um fjárveitingar úr sjóðn-
um en hann Qármagni jafnframt
endurbyggingu Þjóðleikhúss,
endurbyggingu Þjóðminjasafíis,
innréttingu Þjóðskjalasafns og
byggingu Tónlistarhúss.
Samkvæmt frumvarpinu verða
tekjustofnar sjóðsins tveir:
1) 0,25% eignaskattur á þann eign-
arskattsstofn manna, sbr. 80.-82.
gr. laga nr. 75/1981, sem er um-
fram kr. 3.505.56.-
2) 0,25 á eignaskattsstofn lögaðila,
sbr. 2. grein laga nr. 75/1981, og
þeirra aðila sem takmarkaða skatt-
skyldu bera, sbr. 3. grein sömu laga,
ákvarðaðan samkvæmt ákvæðum
80.-82. grein greindra laga.
Menntamálaráðherra setji nánari
reglugerð um sjóðinn.
I greinargerð segir að við blasi
stór og fjárfrek verkefni á sviði
menningarmála. Reynslan sýni að
erfitt sé að tryggja fjármagna til
slikra mála eftir hefðbundum fjár-
lagaleiðum.
Tilgreind eru fímm verkefni: 1)
Þjóðarbókhlaða, 2) Þjóðleikhús, 3)
Þjóðminjasafn, 4) Þjóðskjalasafn,
5) Tónlistarhús.
brigðisráðherra varð fyrir svörum.
Hann sagði að gerð lista um for-
gangsverkefni hafí verið á dagskrá
ríkisstjómarfundar þá um morgun-
inn. Listinn sem og vinnulag þings-
ins fríun að starfshléi þess verði
ræddur við stjómarandstöðuflokka
allra næstu daga. Guðmundur sagði
frumvörp um verðbréfasjóði o.fl.
vera þörf mál og brýnt að taka á
þeim og reyndar æskilegt að af-
geiða þau fyrir áramót. „En áherzla
verður að sjálfsögðu fyrst og fremst
lögð á fjárlögin og tekjuöflunarmál
sem fjárlögum tengjast." Varðandi
ráðstafanir í þágu sjávarútvegs
sagði ráðherrann „að auðvitað
tengist þeim málum og stöðu sjáv-
arútvegsins afgreiðsla bráðabirgða-
laga sem nú em til meðferðar í
efri deild".
Engin ríkisstjórnarmál
tengd sjávarútvegi
Þorsteinn Pálsson sagði ljóst,
að þingið myndið starfa í mikilli
tímaþröng fram að jólum. Forseti
þingsins hafí og lýst því yfír að
þingið starfaði ekki milli jóla og
nýárs. Hefðbundinn forgangslisti
ríkisstjómar sé enn óframkominn.
Þorsteinn sagði það valda vonbrigð-
um að af svari ráðherrans megi
ráða að það væri ekki á dagskrá
ríkisstjómarinnar að flytja inn á
Alþingi mál sem lúta að lausn á
vanda sjávarútvegsins á þessu ári.
Þá hafí heldur ekki verið að heyra
á svari ráðherra að frumvörp um
verðbréfaviðskipti hefði sérstakan
forgang hjá ríkisstjóminni.
Tekjufrumvörpin og
Qárlagagerðin
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra þakkaði formanni Sjálf-
stæðisflokksins fyrir sýndan áhuga
á framgangi stjómarmálefna.
Friðrik Sophusson (S/Rvk)
gagnrýndi að ráðherrar svöruðu
ekki fyrirspumum innan timamarka
þingskapa, svo sem verið hefði
lengstum. Hann vakti og athygli á
því að ekki væri hægt að afgreiða
fjárlög fyrr en afstaða þingsins til
þeirra tekjuöflunarleiða, sem frum-
varp til fjárlaga væri byggt á, liggi
ljós fyrir. Óljóst væri, hvort skatta-
hugmjmdir íjármálaráðherra hafí
meirihlutafylgi í þinginu. Þá væri
ljóst að ríkisstjómin hafí ekki enn
komið sér saman um telquöflunar-
leiðir. Alþýðuflokkurinn hafí mót-
Morgunbladið/Þorkell
Ólafúr Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, í ræðustól Sameinaðs
þings.
mælt hugmjmdum um nýtt skatt-
þrep í tekjuskatti. Framsóknar-
flokkurinn hafí mótmælt svonefnd-
um happdrættisskatti.
Ólafíir Ragnar Grimsson fjár-
málaráðherra sagði að staðið jrði
við það að tekjufrumvörp ríkis-
stjómarinnar yrðu frám komin þeg-
ar önnur umræða um frumvarp til
ijárlaga færi fram.
Fjárlög ekki afgreidd
fyrir áramót
Kristín Halldórsdóttir
(Kvl/Rn) tók undir gagnrýni á ráð-
herra fyrir að halda ekki ákvæði
þingskapa um svör við fyrirspum-
um.
Ólafúr Þ. Þórðarson (F/Vf) •
sagði gæta ósamræmis í kröfum
Sjálfstæðisflokksins varðandi
vinnulag við afgreiðslu ijárlaga-
frumvarps.
Pálmi Jónsson (S/Nv) sagði
kröfur Sjálfstæðisflokksins ljósar
og réttmætar. I fyrsta lagi að boðuð
skattafrumvörp ríkisstjómarinnar
sjái dagsins ljós áður en önnur
umræða um fjárlagafrumvarpið fer
fram. í annan stað að Alþingi taki
afstöðu til þessara tekjuöflunar-
frumvarpa áður en þriðja umræða
um fjárlagafrumvarpið fer fram.
Það er ekki hægt, sagði Pálmi, að
taka afstöðu til útgjaldahliðar fjár-
lagafrumvarps fyrr en tekjuhlið
þess liggur fyrir.
Pálmi sagði og að starf íjárveit-
inganefndar, sem jafnan leggi nótt
við dag á þessum árstíma, hafí ver-
ið sáralítið síðustu daga. Ástæðan
væri sú að stjómarflokkamir hafí
enn ekki komið sér saman um tekju-
hlið fjárlagafrumvarpsins. Alþýðu-
flokkurinn hafni hugmyndum fjár-
málaráðherra um nýtt tekjuskatts-
þrep. Framsóknarflokkurinn hug-
mjmdum hans um happdrættis-
skatt. í ljósi þessa ósamkomulags,
sem og fyrirsjáanlegs tímaskorts,
væri næsta víst, að íjárlög fái ekki
afgreiðslu fyrir áramót.
Ólafur Ragnar Grímsson fj'ár-
málaráðherra sagði að ríkisstjómin
hefði skamman tíma og vandinn
væri ærinn. Ríkisstjómin mjmdi
leita samkomulags við stjómarand-
stöðu til að greiða fyrir framgangi
brýnustu mála fyrir áramótin. Hann
auglýsti eftir hugmyndum stjómar-«^~
andstöðuflokka um tekjöflun
og/eða niðurskurð ríkisútgjalda.
Við getum ekki lengur rekið þjóðar-
búið, velferðarríkið, með erlendu
lánsfé, sagði fjármálaráðherra.
■ Margir fleiri þingmenn tóku þátt
í umræðunni sem stóð vel á annan
tíma.
Mistök í læknismeðferð:
Trygg-ing-
arsjóður
sjúklinga?
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra sagði á Alþingi
í gær að hjá ráðuneyti hans væru
til athugunar drög landlæknis
að frumvarpi um tryggingarsjóð
sjúklinga, sem verða fyrir mis-
tökum í læknismeðferð.
Þetta kom fram í svari ráðherra
við fyrirspum frá Karvel Pálmasyni
(A/Vf) og fleiri þingmönnum um
það, hvort á döfinni sé að koma á
fót. tryggingarsjóði „til aðstoðar
þeim sjúklingum sem orðið hafa
fyrir áföllum vegna mistaka við
læknismeðferð".
Ráðherra sagði að þessi drög að
frumvarpi hafí verið send til um-
sagnar þriggja aðila. Þegar þær
umsagnir hafí borizt yrði afstaða
mótuð til málsins.
Ingunn Jensdóttir og Jónína H. Jónsdóttir í nýja gafleríinu.
Gallerí Nínu opnað
Fjölbreytt innihald í nautahakki:
Hökkun við afgreiðslu
er ekki rétta lausnin
- að sögn Hollustuverndar
JÓNINA H. Jónsdóttir opnaði
fyrir skömmu Gallerí Nínu á
Sólvallagötu 9.
Var fyrsta sýningin haldin um
síðustu helgi. Vom sýndar þar
vatnslitamjmdir eftir listakonuna
Ingunni Jensdóttur. Verður sýning-
in einnig opin um næstu helgi frá
kl. 14 til 19.
„AÐ MATI fagmanna og heil-
brigðiseftirlitsins er ekki aðstaða
til hökkunar eða annarrar kjöt-
vinnslu á afgreiðslusvæði versl-
ana,“ sagði Þórhallur Halldórs-
son, forstöðumaður heilbrigðis-
eftirlits Hollustuverndar ríkisins,
er hann var spurður að þvi hvort
hægt væri að tryggja nejrtendum
ósvikið nautahakk með þvi að
hakka kjötið við afgreiðslu eins
og tíðkast viða erlendis.
Þórhallur sagði að rétta lausnin í
þessu máli væri að setja staðla um
kjötvömr og framkvæma gæða-
kannanir af því tagi sem Verðlags-
stofnun gerði nú nýlega í samvinnu
við Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins. Undirbúningsvinna að slíkum
stöðlum væri hafin hjá Hollustu-
vemd og það jrrði forgangsverkefni
eftir áramót að senda heilbrigðis-
ráðunejrtinu tillögur að reglugerð
þar að lútandi.
Eins og fram hefur komið fannst
kinda- og svínaiq'öt í nautahakki hjá
sjö fyrirtækjum í könnun Verðlags-
stofíiunar og einnig virðist vera eitt-
hvað um að soja- og mjólkurdufti
sé blandað i hakkið.
Þórður Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri hjá Miklagarði, sagði að þar
væm menn jákvæðir gagnvart þeirri
hugmynd að kjötvinnsla færi að ein-
hverju lejrti fram við afgreiðslu ef
það mætti verða til þess að auka
traust nejrtenda á vömnni. Heil-
brigðiseftirlitið hefði hins vegar
lagst gegn vinnslu, svo sem áleggs-
skurði, á afgreiðslusvæði vegna þess
hve lq'ötvara væri vandmeðfarin.
Rétt er að taka fram að Mikligarður
er ekki eitt þeirra fyrirtækja þar sem
svína- og kindakjöt fannst í nauta-
hakki.
Sylvie Raganeau
Kynnir yng-
ingarkrem
HÉR á landi er stödd Sylvie Rag-
aneau og mun hún kjmna nýtt jmg-
ingarkrem frá René Guinot í dag,
föstudag 9. desember, kl. 12—19 í
Snjrrtivömversluninni Serínu í
Kringlunni.
Fréttatilkynning.