Morgunblaðið - 09.12.1988, Síða 10
10
MORÖÚNBLAÖro; FÖSTUDAGÍJR 9. DESÉMBÉR 1988
Spennusaga
Bókmenntir
ErlendurJónsson
Illugi Jökulsson, Hrafh Jökulsson
Hrafii Jökulsson — Illugi Jök-
ulsson: ÍSLENSKIR NASISTAR.
412 bls. Tákn. 1988.
Tæki einhver upp á því að lýsa
yfir fylgi sínu við Napóleon væri
sá talinn furðulegur í meira lagi.
Ef hinum sama dytti í hug að flytja
boðskap Hitlers þess í stað yrði
annað uppi á teningnum. Hann
ætti strax á hættu að vera tekinn
alvarlega. Óþarft er að taka fram
að hvorki yrði það honum til álits-
auka né brautargengis. Seint kæm-
ist hann í hóp þeirra sem teljast til
fastagesta í fjölmiðlum svo dæmi
sé tekið. Og valinkunnur yrði hann
fráleitlega kallaður. Að því leyti
hefur í raun ekkert breyst síðan
heimsstyrjöldinni síðari lauk með
ósigri Þjóðvetja fyrir nær hálfri öld
og sakir voru gerðar upp við þá sem
stutt höfðu málstað þeirra, hvar
sem þá var að finna. Því er ekki
að furða þótt höfundar þessarar
bókar hafí þá sögu að segja að
sumir, sem fylgdu nasistum að
málum á fjórða áratugnum þegar
stefnan var ný og enginn gat séð
fyrir hvemig framvindan yrði, vilji
sem minnst á þetta minnast nú.
Samt eru engar líkur á að boðskap-
ur nasismans nái hljómgrunni fram-
ar — nema þau undur gerðust að
nákvæmlega sams konar ástand
kæmi upp í Evrópu, og reyndar í
heiminum öllum. Þótt hryðjuverk
séu einatt framin einhvers staðar í
veröldinni og það á vamarlausu
fólki og almenningsálitið horfi
framhjá ósköpunum ef því hugnast
málstaðurinn hefur forystu þriðja
ríkisins þýska og áhangendum þess
í engu verið fyrirgefíð. Orsökin er
auðvitað sú fyrst og fremst að enn
er tekist á um sömu grundvallar-
sjónarmiðin í heimspólitíkinni — að
því frátöldu að ríki Hitlers er sjálft
út úr myndinni, svo og stefna hans.
Annað er að mestu óbreytt. Sæti
hans verður því látið standa sem
auður reitur þar til endanlega verð-
ur útkljáð hvemig völdum þeim,
sem af honum voru tekin, verður
skipt.
Hrafn og Illugi Jökulssynir em
ungir og hressir blaðamenn og
kunna að velja sér efni. Þar sem
saga nasismans er enn hálfgert
feimnismál fer naumast hjá því að
tekið sé eftir bók þeirra. Nasistam-
ir gömlu em margir á lífi, menn á
efra aldri. Sumir hafa verið áber-
andi í þjóðfélaginu, þingmenn og
embættismenn svo nokkuð sé nefnt.
Kitlar það ekki forvitnina að nú
skuli farið ofan í ávirðingar þessara
virðulegu fyrirmanna, að fortíð
þeirra skuli gerð ber með þessum
hætti? Víst hefur hitt og annað
verið skrifað um hreyfíngu þjóðem-
issinna eins og þeir kölluðu sig hér.
En það hefur verið svo fræðilegt
að almenningur hefur haft á því
takmarkaðan áhuga.
Öðm máli gegnir um þessa bók.
Hún er skrifuð í dæmigerðum
fréttaskýringastíl; höfundar hverfa
aftur í tímann og fylgja eftir rás
viðburða frá degi til dags. Dregin
em fram í dagsljósið mál sem telj-
ast að vísu léttvæg á kvarða þjóðar-
sögunnar en vom stór á sínum tíma,
sannkölluð dægurmál. Kvaddir em
til vitnis jafnólíkir heimildarmenn
og Jónas Jónsson frá Hriflu, sem
þótti af fylgismönnum mestur
»stílisti« sinnar tíðar, og grínarar
þeir sem skrifuðu í Spegilinn »sam-
visku þjóðarínnar«. Bók þessi held-
ur manni því rækilega vakandi þó
langdregin sé. Lítið er verið að
pæla í undirrót þessarar hreyfíng-
ar, hérlendis og erlendis, ekki frem-
ur en fólk var yfirhöfuð að velta
slíku fyrir sér í hita dagsins meðan
þetta allt saman var og hét. Bókin
hefur því takmarkað fræðigildi. Þó
hygg ég að höfundar gefi sér oft
nokkuð haldgóðar forsendur, t.d.
að »nasisminn átti sér mjög þýskar
rætur«. Þór Whitehead hefur bent
á að áróðri nasista utan Þýskalands
hafí einkum verið ætlað að ná til
Þjóðveija búsettra erlendis, miklu
síður til útlendinga. Því var ekki
líklegt að stefna, sem varðaði mest
eitt land, ætti teljandi fylgi að fagna
með öðmm þjóðum, hvorki hér né
annars staðar. Enda varð fylgi
hreyfíngarinnar aldrei vemlegt hér,
og alvöruiylgi í fullkomnu lág-
marki. Því er rétt sem höfundar
benda á að flokkur íslenskra þjóð-
emissina hafi verið strákaflokkur
mest, flokkur unglinga sem hrifust
af skrautsýningum nasista og lang-
aði í hasar. Sá varþví vandi þjóðem-
issinna þegar til kosninga dró að
þeir vom langfæstir komnir á kosn-
ingaaldur. Pólitík sína stunduðu
þeir mest á götum úti. Varla gekk
Békmenntir
Katrín Fjeldsted
Höfundur: Bemie S. Siegel.
Þýðing: Helga Guðmundsdóttir.
Hönnun kápu: AUK hf./Magnús
Jónsson.
Prentsmiðjan Oddi.
Útgáfuforlagið 1988.
Undirtitill bókarinnar er:
„Reynsla skurðlæknis af einstökum
hæfíleika sjúklinga til að læknast
af sjálfsdáðum." Við fyrstu sýn leist
mér ekki á þessa bók — hélt að
verið væri að hagnast á fólki sem á
í erfiðleikum. Við lestur hennar kom
annað f ljós. Efni hennar er forvitni-
Iegt en vekur jafnframt upp ýmsar
tilfínningar. Snertir mann.
Bemie Siegel mun vera banda-
rískur skurðlæknir af gyðingaætt-
um, sem býr í New Haven í Conn-
ectieut-ríki. Hann hefur haft mikið
á öðm en útifundum með tilheyr-
andi áflogum og barsmíðum þegar
liðinu lenti saman við andstæðinga
»og virðist fundagleði hafa verið
með ólíkindum,« eins og höfundar
þessarar bókar komast að orði.
Mest sýnist fylgi stefnunnar hafa
orðið með unglingum í skólum. Einn
vetur náðu nasistar t.d. meirihluta
í Menntaskólanum í Reykjavík, að
upplýst er í þessari bók. Og forkólf-
ar hreyfíngarinnar vom strákar um
tvítugt þótt einn og einn ráðsettur
teldist í fyrstunni fylgja flokknum.
Talið er að margur unglingurinn
hafí gengið í hreyfinguna í þeirri
trú að þetta væri tískustefna. í
skrúðgöngum, þar sem marserað
var undir blaktandi fánum, gat
unglingaliðið fengið útrás fyrir þess
konar tilfinningar sem þeim aldri
fylgja svo gjaman. En frá þess
með krabbameinssjúklinga að gera
gegnum tíðina og hefur mjög
ákveðnar skoðanir á því hvaða hug-
arfari krabbameinssjúklingar þurfi
að vera gæddir til þess að ná tökum
á eigin veikindum í samvinnu við
lækna og hjúkmnarfólk. Bókin náði
þeim tökum á mér að ég er sann-
færð um að Bemie Siegel hefur um
margt rétt fyrir sér.
Fyrir tíu ámm stofnaði hann
meðferðarhóp sem hann kallar
ECaP eða Exceptional Cancer Pat-
ients (sem þýðandi bókarinnar kýs
að kalla einstaka krabbameinssjúkl-
inga, EKS). Hann hafði þá þegar
gert sér grein fyrir því að lítill hóp-
ur krabbameinssjúklinga, svona
15—20%, bregst öðmvísi við veik-
indum sínum en algengast er. Líta
ekki á sig sem fórnarlömb, afla sér
þekkingar á sjúkdómi sínum, spyija
spuminga endalaust — em „erfiðir
sjúklingar". Þeir vilja skilja með-
ferðina sem þeim stendur til boða
og taka þátt í henni. Þeir vilja hafa
óskerta reisn, manngildi og stjóm
á hlutunum, hver sem framvinda
sjúkdómsins verður.
Bemie segir að læknar verði að
átta sig á því að þeir sjúklingar sem
þeim fínnst erfiðir eða ósamvinnu-
þýðir eiga bestar batahorfur. Hann
vitnar í nokkrar rannsóknir máli
sínu til stuðnings, þar á meðal nið-
urstöður frá hópi vísindamanna í
London undir forystu Keith Petting-
ale. Þar kom fram að 75 prósent
krabbameinssjúklinga, sem komust
í baráttuham þegar þeir fengu
sjúkdómsgreininguna lifðu í tíu ár,
en hins vegar 22 prósent þeirra sem
tóku henni með stóískri ró eða fyllt-
ust úrræðaleysi eða vonleysi. í
EKS-hópum sínum styðst Bemie
við samtöl, myndir sem sjúklingar
hans teikna, hugleiðslu, slökun,
góða tónlist og trúmál — hvaðeina
sem kemur sjúklingunúm til að líða
háttar uppákomum greinir einmitt
mjög í bók þessari. Þetta er hasar-
bók, spennusaga. Og ekki neita
höfundamir sér um að beina kast-
ljósinu að hinum kómísku hliðum
málanna. Maður getur hlegið upp
úr lestrinum. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft hafa þeir, sem í Spegilinn
skrifuðu, ef til vill verið framsýnast-
ir allra þegar þeir tóku sér fyrir
hendur að fjalla um menn og mál-
efni á þessum ámm. Þetta var allt
svo óburðugt, háalvarlegt og inni-
haldslaust.
Sjá þykist ég að bók þessi sé
hraðunnin. Nokkuð er um endur-
tekningar. Víða er t.d. að því vikið
að Gísli í Ási hafí verið lágur vexti
og sums staðar með dálítið svona
galsafengnu orðalagi, til að mynda:
»Frímerkjasalinn þótti aldrei sér-
lega hár í loftinu, frekar en helsta
Btlfílítf & Síf?g(*j
vel og skilja sjálfa sig.
Bemie heldur því fram að hægt
sé að draga mjög úr aukaverkunum
meðferðar við krabbameini með já-
kvæðu hugarfari. Hann gengur svo
langt að segja að þrír fjórðu-hlutar
af aukaverkunum við geislameðferð
og meðferð með frumudrepandi
lyfjum stafi af neikvæðum vænting-
um sjúklinganna sem rekja megi
til áhrifa frá lækninum (eins konar
neikvæð dáleiðsla). Flestir læknar
segi nefnilega: „Állt þetta slæma
getur komið fyrir þig og ef þú ert
heppinn getur kannski eitthvað
gott átt sér stað.“ Allt það sem
getur farið úrskeiðis er talið upp
fyrst svo að viðbrögð fólks verða
neikvæð. Þess í stað vill Berhie
leggja áherslu á hið jákvæða eins
og að segja: „Það getur ýmislegt
jákvætt gerst við þessa meðferð.
Það er mögulegt að eftirfarandi
aukaverkanir geti átt sér stað, en
ég tel ekki að svo verði.“
í bókinni eru 9 kaflar auk inn-
gangs og viðbætir. Siegel leitar viða
fanga til að rökstyðja mál sitt.
Hann hefur lært af merku fólki, svo
sem Elizabeth Kiibler Ross, en
margir kannast við bók hennar um
fyrirmynd hans.« Prentvillur eru
afar margar í bókinni, sumar baga-
legar.
Höfundum reikna ég til ungæðis-
háttar þegar þeir vitna í Þór White-
head með þessum fyrirvara: »Ef
marka má hinar ítarlegu rannsókn-
ir doktors Þórs Whiteheads ...«
Mér vitanlega hefur ekkert komið
fram sem bendi til að ströngustu
aðferðum hafí ekki verið beitt við
umræddar rannsóknir — hvað sem
auðvitað líður skrifum Þórs White-
heads og ályktunum þeim sem hann
hefur dregið af rannsóknum sínum,
slíkt getur hver og einn metið fyrir
sig.
Þá segir svo í lokakafla bókarinn-
ar sem ber yfirskriftina Lengi lifir
í gömlum glæðum: »Þeir fáu sem
enn mættu á sellufundi seint á
stríðsárunum höfðu komist að þeirri
niðurstöðu að vænlegasta leiðin til
að koma þjóðemisstefnunni til vegs
og virðingar á íslandi væri að ganga
í Sjálfstæðisflokkinn og reyna að
gera hann nasískan innan frá. Sum-
ir þeirra gengu því í Sjálfstæðis-
flokkinn og sumir komust meira að
segja til metorða innan hans.« Síðan
em nefndir tveir menn sem báðir
urðu þingmenn flokksins.
Að þeir hafi stefnt að því að
gera flokkinn »nasískan innan frá«
þykir mér afar hæpin sagnfræði svo
ekki sé meira sagt. Þá hefðu þeir
verið slíkir einfeldningar að til fá-
dæma mætti telja. Reyndar þarf
hvorki blaðamenn né stjórnmála-
menn til að gera sér ljóst að nasism-
inn er löngu dauð stefna sem aldrei
mun framar vakna til lífsins fremur
en t.d. Karl tólfti sem sænskir óláta-
unglingar telja sig trúa á þessa
stundina.
En höfundar þessarar bókar eru
næmir á forvitni almennings eins
og blaðamenn verða að vera. Og
vafalaust geta þeir sér rétt til að
efni það, sem þeir hafa hér með
kjörið sér, muni enn vekja forvitni
með íslenskum lesendum.
dauðann (On Death and Dying). í
bókarlok er listi yfir bækur um
skyld efni, bæði læknisfræðibækur
og bókmenntir á borð við Krabba-
meinsdeildina (Cancer Ward) eftir
Aleksandr Solzhenitsyn. Þar er
einnig að finna lista yfír hljómbönd
og myndbönd með Bemie Siegel (á
ensku). Nánari upplýsingar um þau
má fá með því að skrifa til:
ECaP (Exceptional Cancer Patients)
2 Church Street South
New Haven, Conneeticut 06510
USA.
Almennt má segja að erfitt sé
svo vel fari að þýða bækur um lækn-
isfræðileg efni yfir á íslensku. Al-
þjóðleg læknisfræðiheiti eiga sér
ógjaman hliðstæður á íslensku sem
fólki er tamt að nota. Orðalag verð-
ur því stirt um of og leiðinlegt af-
lestrar, og orðin gjaman óskiljan-
leg fyrir lesandann.
Mér fínnst þýðanda þessarar
bókar hafa tekist furðu vel að forð-
ast hnökra af þessu tagi og stund-
um var það svo blaðsíðum skipti
að ég hnaut ekki um neitt skringil-
yrðið. Þó eru mörg orð sem ég er
ekki sammála þýðanda um. „Æxla-
fræðingur" er til dæmis orð sem
ég veit ekki til að sé notað en geri
ráð fyrir að átt sé við krabbameins-
lækni (oncolog). „Heildarhyggju-
lækningar" er ef til vill til í orðabók
en það tók mig óratíma að átta
mig á að verið var að þýða „Hol-
istic medicine". Er lesandinn
nokkru nær? Og hvað með herslis-
húð, dreif miðkerfishersli, semju-
kerfí og utansemjukerfi?
Þessir örfáu hnökrar koma alls
ekki að sök og bókin er í heild læsi-
lega og lipurlega þýdd.
Efni hennar á erindi við marga.
Hjúkrunarfólk og læknar hefðu
gagn af að lesa hana. Þeir sem
ganga með krabbamein, hvort sem
það hefur nýlega verið greint eða
er langt gengið, geta sótt til hennar
jákvætt hugarfar og orku, aðstoð
við að virkja þann lækningamátt
sem býr hið innra með hveijum
manni. Viðhorf Bemie Siegel geta
einnig haft áhrif á þá sem heilbrigð-
ir eru og hjálpað þeim til að halda
heilsu.
K TÍSKUVERSLUN DJalUUGAVEGI 8
IVIOD/Vsimi 17312
bn o
Wi fH'et M fr
VIÐ ÚTSKRIFTINA?
DRAGTIR, JAKKAR, BUXUR, PILS OG BLÚSSUR.
HÁGÆÐAVARA í SÉRFLOKKI Á GÓÐU VERÐI.
Kærleikur, lækn-
ingar, kraftaverk