Morgunblaðið - 09.12.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
ENWOOD
Ný og endurbætt
KENWOOD
CHEF
'
Aukabúnaður m.a.:
Grænmetiskvörn — Hakkavél
Grænmetisrifjárn — Ávaxtapressa
Verð kr. 17.680
16.800.- staðgr.
HEKIA HF
Laugavegi 170 -172 Sími 695500
Sveinn Hrólfsson:
Sýrukerið á Fjalli
Þorsteinn Gylfason, heimspek-
ingur og háskólakennari, skrifar
ósvífna grein í Morgvnblaðið, hinn
3. desember 1988, og veitist þar
harkalega að föður mínum, Hrólfi
Sveinssyni, fraéðimanni frá Sauðár-
króki. Eitt af því, sem Þorsteinn
dylgjar um mér og minni ætt til
svívirðingar, er það, að faðir minn
og bamaböm hans skilji ekki hvert
annað. Þessu til sönnunar tilfærir
hann setningu, sem hann leggur í
munn Katli Indriðasyni á Fjalli í
Aðaldal, en þessa setningu hefir
Þorsteinn eftir látnum borgfirzkum
bónda og hagyrðingi, Guðmundi
Böðvarssyni á Kirkjubóli í Hvítár-
síðu. Margt hefir skolazt á skemmri
leið, enda er allt úr lagi fært hjá
Þorsteini. Setningin sjálf er tilbún-
ingur eftir því, sem eg kemst næst,
og sagan á bak við hana öll önnur
en ætla mætti af frásögn Þor-
steins. Svo er að sjá, sem Þorsteinn
hafi ekki hugboð um það, sem um
er að ræða.
Sannleikurinn er sá, að heimild-
armanni Þorsteins, Guðmundi
Böðvarssyni, var fleira til lista lagt
en að setja saman vísur. Hann
bmggaði landa, jafnvel í Hafnar-
firði að sagt er, eftir að hann brá
búi og settist að um skeið á höfuð-
borgarsvæðinu. Eg hefí orð ýmissa
mætra manna — þeirra á meðal
Jóhannesar skálds úr Kötlum —
fyrir því, að landi Guðmundar hafi
verið annars flokks vara út af botn-
falli, sem ekki vildi falla til botns.
Þetta var ástæðan til þess, að
Guðmundur á Kirkjubóli spann upp
langar sögur um görótta drykki á
Norðurlandi. Einkum gerði hann
sér mat úr óhappi, sem varð á
Fjalli í Aðaldal. Svo er mál með
vexti, að þar stóð fyrir karldymm
sýmker mikið, og var hilla fyrir
ofan það. Á þessa hillu var einu
sinni settur sykurpoki, 50 kg sam-
kvæmt gögnum Kaupfélagsins á
Húsavík (aðrir segja á Svalbarðs-
eyri), og kom gat á pokann, senni-
lega eftir mús, því að um þær
mundir vóm engir kettir á bænum.
Draup nú sykur úr pokanum í sýr-
una, og tók hana að gerja.
Ketill Indriðason á Fjalli var
ekki aðeins stakur reglumaður,
heldur ákafur baráttumaður gegn
áfengisbölinu í öllum myndum.
Auðvitað drakk hann sým úr ker-
inu fyrir karldyrum, er hann þyrsti,
og hann var þorstlátur maður. En
það er ekki vitað, að hann hafi
nokkum tímann orðið sér og sinni
ætt, hvað þá mér og minni ætt, til
minnsta vanza af þessum sökum.
Það er Þorsteini Gylfasyni til
minnkunar að hafa gefíð annað í
skyn með söguburði sínum úr
Hafnarfírði og Hvítársíðu.
Ný ljóðabók:
OKKARLJÓÐ
Hallgrímur Th. Björnsson
Nýlega kom út ljóðabókin Okkar
(jóð eftir hjónin Hallgrím Th. Bjöms-
son, fyrrverandi yfirkennara í
Keflavík, og Lóu Þorkelsdóttur.
Þetta er einkar fallega útgefin bók,
svo að það er hreint yndi að fara
höndum um hana. Hún er 141 tölu-
sett síða í tveimur aðalköflum, sem
heita: Staldrað við, en það em ljóð
Hallgríms, og Hver er ég?, sem em
ljóð Lóu. Stærð kaflanna er næstum
alveg sú sama. Séra Bjöm Jónsson
ER ÞIIMIM SIIVII UTI I
. '
'tímmrn
p 't
ír.’L'
wlimingur
IVirslAN PATHFINDER XE
2,- 4. vinnlzigitr
l\JISSAI\l coupé slx
NISSAN SUNNY SLX
20 AVKAVTNTSTJlNGAB.
50.000,00 kr. vöruúttekt
bjá Gunnarí Asgeírssyní h.f.
j—MIÐI NÚMER_^
&
Husqvama
SAWO
Vínníngar eru skattfrjálsír
«--VERÐ KR,-----*
I 450.00 I
Upplýsíngar um yinninga ? ömsvara
91-6S6S90 og á skrifslofu 1éiagsm&
j sírna 91-84999
Dregíð 24. desember 1988
SIMAHAPPDRÆTTI
STYRKTARFCLAG
LAMAÐRAOG FATLAÐRA
Háaleítísbraut 11-13 ReyKjavík
Lóa Þorkelsdóttir
á Akranesi, sem var nákunnugur
þeim hjónum, skrifar prýðilegan
formála.
Allir kunnugir vissu, að raunar
margir aðrir, að Hallgrímur var ágæt-
lega skáldmæltur, því að hann hafði
flutt mörg afbragðs ljóð á manna-
fundum og birt í blöðum. Vinir hans
höfðu vænst þess, að hann gæfi út
úrval ljóða sinna á bók, en því miður
lést hann áður en það komst í verk.
Hann andaðist árið 1979.
Hins vegar vissu fáir, raunar að-
eins nánir ættingjar og vinir, að Lóa
var líka ágætlega skáldmælt. En slíkt
er hógværð hennar, að hún hefur
ekki talið ástæðu til að birta ljóð sín
neitt sem nemur. Það kemur því
mest á óvart við útkomu þessarar
snjöllu og fallegu bókar, hve gott
ljóðskáld Lóa er og gefur bónda
sínum þar raunar ekkert eftir.
Nokkrir nánir vinir og samstarfs-
menn Lóu, sem kunnugir eru ágæt-
um kvæðum hennar, hafa undanfarin
missiri hvatt hana eindregið til að
gefa út úrval ljóða þeirra hjónanna.
Þessi hógværa og gáfaða kona var
lengi treg til þess, en hefur þó loks-
ins fengist til að framkvæma það í
minningu eiginmanns síns, setn hefði
orðið áttræður 16. september sl., ef
hann hefði lifað.
Allir ættingjar, vinir og kunningjar
þessara ágætu hjóna fagna innilega
útgáfu bókarinnar og svo mun einn-
ig um alla þá, sem ljóðum unna.
Dreifíngaraðili bókarinnar er Inn-
kaupasamband bóksala. Hún kostar
kr. 1.950 og fæst í bókabúðum, einn-
ig hjá útgefanda, Einbúa.
Sigurður Gunnarsson, fyrrv.
skólastjóri.