Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988
Borgarskipulag
og þursaháttur
eftir Gunnlaug
Þórðarson
Það var ein af undirstöðum róm-
verskrar menningar hve þeim þótti
sjálfsagt að skipuleggja bæi sína
áður en þeir voru reistir, þar sem
gengið var út frá hefðbundnum
grundvallaratriðum frá upphafi.
Okkur íslendingum hefur famast
á allt annan hátt, enda borgmenn-
ing svo nýtilkomin með þjóðinni.
Segja má að fyrst hafi verið byggt,
síðan skipulagt út frá því sem orðið
var. Þannig hafa t.d skipulagsmál
höfuðborgarinnar stöðugt verið í
deiglunni. Óhjákvæmilegt hefur
reynst að breyta samþykktu skipu-
lagi vegna nýn-a viðhorfa og þróun-
ar mála. Auðvitað hlýtur slíkt skipu-
lag að vera í stöðugri endurskoðun.
Þá er mest um vert að fullt tillit
sé tekið til hagsmuna almennings
og réttur einstaklinga virtur svo
1 sem verða má. Stundum hefur tek-
ist miður í þessum efnum. Þar hef-
ur skammsýni og jafnvel eigin
hagsmunir ráðamanna sett síæman
stimpil á skipulag höfuðborgarinn-
ar. Mætti nefna dæmi þess, en þeir
menn eru látnir og málum verður
trauðlega bjargað úr þessu. Hins
vegar má frekar vænta þess, að
slíkt endurtaki sig ekki vegna þess
að meiri kunnátta er komin til og
nútímalegri viðhorf.
Mér hefur oft verið hugsað til
þess hve Reykvíkingar láta sig litlu
varða skipulag borgarinnar og útlit
hennar. Það er næsta sjaldgæft að
sjá eða heyra yfirveguð og gagnrýn-
in skrif í fjölmiðlum um þessi mál.
Reyndar þá fýrst, þegar einhver
ímjmdar sér að verið sé að ganga
á rétt sinn. Þá er e.t.v. rokið upp
til handa og fóta. Mótast skrifin
þá venjulegast af einskærri tilfinn-
ingasemi en ekki af víðsýni þeirrar
vitundar að búa í borg. Nefna
mætti mörg dæmi þessa. Minnis-
verðast er e.t.v. þegar fólk við eina
götu hér í borg reyndi að stöðva
\nðbótarbyggingu við Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund við Brávalla-
götu af því að efsta hæð byggingar-
innar drægi úr að sólar nyti við um
einhver prósentubrot og byrgði út-
sýni. Reyndar hef ég oft furðað
mig á því hve Elliheimilið Grund
hefur oft orðið fyrir hnútukasti frá
fólki, sem ekkert þekkir til mála
þess og hefur ekki hugmynd um
hve margsinnis það hefur leyst
vandræði fólks.
Fyrir mörgum árum horfði ég á
það í New York, er verið var að
bijóta niður nýlegt 20 hæða há-
hýsi, þvi á lóðinni átti að byggja
45 hæða skýjakijúf. Þar kom engum
þeim sem bjó allt í kring á 21. hæð
og ofar til hugar að ætla sér að
leggjast gegn byggingu skýjakljúfs
á lóðinni, af því að hann myndi
„Þótt undirritaður eigi
engra beinna hags-
muna að gæta í sam-
bandi við þetta bygg-
ingarmál, þá eru hags-
munirnir óbeinir á þann
hátt, að ég hlýt sem
hver annar Reykvíking-
ur að bera hag höfiið-
borgarinnar fyrir
brjósti. Því er mér skylt
að mótmæla þessum
þursahætti og stirfni.“
byrgja fyrir útsýni þeirra. Þar skil-
ur fólk nefnilega hvaða kvaðir því
fylgja að búa í heimsborg. Hætt
er við að hjá okkur hefðu viðbrögð-
in orðið önnur. Hugsum okkur t.d.
ef nauðsyn þætti að reisa hús í ein-
hveiju hverfí borgarinnar, þar sem
öll húsin væru af sömu hæð, en
þessi umrædda bygging þyrfti að
vera einni hæð hærri. Þá er við
búið að fólk í hverfínu myndi hefja
undirskriftasöfnun og heimta að
byggingin yrði stöðvuð af því að
hún spillti útsýni eða drægi úr sólar-
birtu eða af einhverri enn fárán-
legri ástæðu. Jafnvel þótt um hina
þörfustu líknar- eða menningar-
stofnun væri að ræða.
Varhugaverð afstaða til
byggingarmála
Þetta kemur mér sérstaklega í
hug, þegar hugsað er til þess hve
byggingarmálum höfuðborgarinnar
er mikill háski búinn og þróun
þeirra hneppt í fjötra, ef stjómvöld
átta sig ekki á'því hvað það þýðir
að landið eigi sér höfuðborg, sem
lúti sömu lögmálum og aðrar borg-
ir og geti sveigt sig að kröfum
tímans, en ekki dæmast tii þess að
verða undarlega samsett þorp við
sjávarsíðu. Því enda þótt nauðsyn
geti verið á að stöðva augljóslega
vanhugsaðar framkvæmdir, þá er
ófyrirgefanlegt að slíkt sé gert,
þegar byggingarframkvæmdir eru
hafnar og miklum fjármunum hefur
þegar verið til kostað. Þannig virð-
ist mér að stöðvun framkvæmda á
lóðinni Aðalstræti 8 véra mjög vafa-
söm og seint til komin. Sú lóð er
nú eins og hola eftir illa tekna tönn.
Það er óvirðing við elstu götu borg-
arinnar að láta þetta viðgangast
vikum og mánuðum saman í litlum
skilningi á því sem er í húfi fyrir
húsbyggjandann. Og er það tilefni
þessara skrifa.
Einn höfuðvandi í skipulagsmál-
um borga er hvemig losna megi
við bifreiðar úr borgum. Lausnin
er annað 'hvort sú að reyna að koma
bifreiðastæðum fyrir í eða undir
byggingum, ýmist neðanjarðar eða
á hæðum í byggingu eða að byggð-
ar eru sérstakar bflageymslur í
grenndinni. Forsvarsmönnum höf-
uðborgarinnar er sem betur fer
greinilega ljós nauðsyn þess að
byggð verði bílageymsluhús, en
betur má ef duga skal og hefði mér
þótt tilvalið að reisa slíka byggingu
á lóðinni við hliðina á Fiskifélags-
húsinu við Skúlagötu 4 og einnig á
lóðinni þar sem Hafnarbíó stóð áð-
ur. Æskilegt er að losna sem mest
við bílaumferð úr miðborginni.
Síðartaldi staðurinn hentar vel t.d.
til að taka strætisvagn á Hlemmi.
Eins þykir mér sú kvöð sem lögð
er á lóðaeigendur um að leggja til
ákveðinn lágmarksfjölda af bfla-
stæðum við fyrirhugaðar byggingar
í flestum tilvikum of há og getur
orðið veruleg hindrun þess að byggt
verði upp á ióðum í borginni með
eðlilegu móti. Öllum má vera ljós
nauðsyn þess.
Með bréfi til félagsmálaráðuneyt-
isins 25. júní sl. kærðu 9 íbúar í
Grjótaþorpi fyrirhugaða byggingu
við Aðalstræti 8. Greinilegt er af
bréfinu að þetta fólk reyndi að finna
hinni fyrirhuguðu byggingu allt til
foráttu og að það vildi fá að njóta
þeirra forréttinda óskertra að geta
verið þorpsbúar í miðri höfuðborg-
inni án tillits til vaxtarþarfa hennar.
Með dæmalausum orðhengils-
hætti og bókstafsþráhyggju var hin
umrædda bygging stöðvuð með
valdboði til alvarlegs og óbætanlegs
tjóns fyrir alla þá, sem hlut eiga
að máli, svo sem 12 blaðsíðna bréf
félagsmálaráðuneytisins, dags. 5.
september sl. ber með sér.
Með því að neita að taka tillit til
þess að bflageymslur í byggingunni
verða á tveimur hæðum og hengja
sig í úrelt orðalag gamallar bygg-
ingasamþykktar, þar sem talað er
um bflageymslur í byggingum „neð-
anjarðar". Ráðuneytið reynir að
fóðra þá niðurstöðu með því að taka
ekki fullt tillit til þess rýmis, sem
lagt er undir bílastæði í bygging-
unni. Tekst félagsmálaráðuneytinu
þannig að lækka nýtingarhlutfall
byggingarinnar á lóðinni um 16%
samkvæmt útreiningi þess. Væri
ekki verið með þessar hundakúnstir
varðandi útreikning á bílastæðum
f byggingunni, væri um eðlilegan
nýtingarkvóta að ræða á lóðinni og
engin ástæða til þess að stöðva
bygginguna. Skoðun mín er sú, að
umræddur skilningur félagsmála-
ráðuneytisins á hvað skuli teljast
„neðan jarðar", þegar rætt er um
bílageymslur í byggingum, myndi
ekki standast fyrir dómstólum.
Þá er um annan úreltan skilning
að ræða, sem öllu hugsandi fólki
má vera ljós, en það er varðandi
tengibyggingu milli hinna tveggja
hluta hinnar fyrirhuguðu byggingar
við Aðalstræti. Tilgangurinn með
þessari tengibyggingu er að nýta
lyftur fyrir báða hlutana og er mjög
svo eðlileg og hentug lausn og í
fullu samræmi við nútímahugsunar-
hátt í arkitektúr, en hefur því mið-
ur fyrir húsbyggjendur ekki komist
inn í byggingarsamþykkt höfuð-
borgarinnar, enda all nýstárleg
lausn, sem ætti ekki síður að fá
staðist fyrir dómstólum.
Fleiri atriði mætti tína til, sem
eru fráleit, en skal ekki gert að svo
stöddu. Auðvitað er sjálfsagt og
rétt að byggingarsamþykktum sé
framfylgt, en þá mega stjórnvöld
ekk'i grípa til útúrsnúninga eða
hæpinna útskýringa til þess að rétt-
læta augljóslega ranga niðurstöðu,
sem bitnar á þeim er síst skyldi.
Þótt undirritaður eigi engra
beinna hagsmuna að gæta í sam-
bandi við þetta byggingarmál, þá
eru hagsmunimir óbeinir á þann
hátt, að ég hlýt sem hver annar
Reykvíkingur að bera hag höfuð-
borgarinnar fyrir bijósti. Því er mér
skylt að mótmæla þessum þursa-
hætti og stirfni.
Höíundur er hæstaréttarlögmaður.
Hallgrímskirkja:
Enskjóla-
messa
SÁ siður hefur skapast undan-
farna áratugi, að guðsþjónusta
hefiir verið haldin á jólaföstu
fyrir enskumælandi fólk og Qöl-
skyldur þeirra. í ár verður guðs-
þjónustan í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 18. desember kl. 16,
þar sem jólasagan verður rakin
í tali og tónum.
Mótettukór Hallgrímskirkju mun
leiða safnaðarsöng undir stjóm org-
anistans, Harðar Askelssonar, en
farið verður eftir hinu hefðbundna
formi níu lestra og söngva. Bemard
Wilkinson leikur á flautu, en sr.
Ragnar Fjalar Lárusson þjónar.
Þátttakendum er svo boðið að
þiggja léttar véitingar á heimili
breska sendiherrans, Mark Chap-
man, að guðsþjónustu lokinni.
Stoíuskilrúm
Stofuskilrúm frá Árfelli eru löngu landsþekkt fyrir
trausta byggingu og faglegt handbragö. Oll skilrúm, í
Ijósum viðarlit eða dökkum, lítil eða stór, eru
sérhönnuð fyrir þinn smekk.
Möguleikar eru á raflögnum fyrir Ijós i skilrúmunum.
Þú ákveður útlit og efni síðan getum við tölvuteiknað
það upp og gerum verðtilboð sé þess óskað.
Hafðu samband tímanlega — Góðir greiðsluskilmálar.
Hafið samband við söluaðila:
®BÚÐIN ÁRMÚLA 17a
BYGGINGAWÓNCJSTA SÍMAR 84585-84461
ARMENÍUSÖFNUNIN - GÍRÓREIKN. 90000-1
Rauði kross íslands
J