Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 14
8^e®^M^^FÖ8m>Í®UR)16/1DESEMBEBrnraa8
s¥
Glæsileg herraföt
Vörumerkiðtryggir
gæði og bestu snið
Macondeverksmiðjurnar eru meðal stærstu
karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í
Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð.
Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,-
Jakkar kr. 4.995,-
Terelynefrakkar kuldafóðraðir kr. 4.760,-
Úlpur kr. 2.240,- og 3.400,-
Terelynebuxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,- 1.795,-
og 1.995,-
Skyrtur nýkomnar, mikið úrval.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
maconde
formen
HAOE IN RpRTUGAL
LYGILEGA
W W K A
Enn ný sending!
Ekta leður frá K o i n o r
Góð greiðslukjör
Opið til kl. 19 á föstudag
Opið kl. 10-22 á laugardag
Tíl framandi landa
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Jóhanna Kristjónsdóttir:
FUadans og framandi fólk.
Vaka-Helgafell.
Reykjavík 1988, 152 bls.
Jóhanna Kristjónsdóttir blaða-
maður er kjarkmikil ferðakona og
fer ógjaman troðnar slóðir. Hún
hefur hvorki komið til Svíþjóðar né
Þýskalands, en aftur á móti er hún
hagvön orðin í fjarlægum furðu-
löndum svo sem ísrael, Oman, Djib-
uti, Burma, Sýrlandi, Kýpur, Tyrk-
landi, Jórdaníu, Sri Lanka, Mar-
okkó, Taiwan, Norður—Jemen og
Bangladesh. Ávallt virðist hún vera
ein Islendinga á ferð. Margt drífur
á daga hennar í þessum ferðum,
sumt ógnvænlegt, annað kímilegt.
Um þessar ferðir hennar til tólf
framangreindra landa (ísrael und-
anskilið) getur að lesa í jafnmörgum
smáköflum þessarar bókar.
Jóhanna er á marga lund
skemmtilegur höfundur ferða-
sagna. Hún ritar hressilega óhátíð-
legan stíl. Henni er lagið að bregða
upp lifandi svipmyndum og hún
hefur glöggt auga fyrir hinu sér-
stæða og spaugilega.
Aftur á móti er sögulegur áhugi
hennar takmarkaður. Henni leiðast
einnig fomminjar. Pólitík skipar
lítið rúm í frásögn hennar, þó að
eftirminnileg innsýn birtist manni
stundum. Landafræði og landlýs-
ingar em og af skornum skammti
— og lesandinn væri raunar illa
staddur ef ekki fylgdu kort bók-
inni. Mannlýsingar em hins vegar
hennar sterka hlið, svo og alls kyns
frásagnir af mannlegu atferli,
neysluvenjum, siðum og þ.h. Þar
kennir margra grasa og fjölbreyti-
legra. Það er vissulega rétt sem
stendur á bókarumslagi að „þetta
em alls ekki venjulegar ferðasögur
heldur hressilegar frásagnir af upp-
lifun Jóhönnu að því er snertir fólk
og framandi staði“. Rétt er vissu-
lega að minna á að bók þessi er
að megin stofni dagbækur ritaðar
á ferðalögum við hinar margvís-
legustu aðstæður. Þykist ég vita
að það gefi bókinni þann sérstæða
svip sem hún hefur og frásagn-
arstíl sem óneitanlega er nokkuð
brotakenndur.
Oft er ekki annað hægt en að
dást að kjarki höfundar og snar-
ræði, þegar við óvenjulegar og oft
hættulegar aðstæður er að etja.
Hún stendur t.a.m. eitt sinn við
hlið manns sem er skotinn til bana.
í annað sinn á hún á hættu að vera
Fjórar
árstíðir
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í Kjarvalssal Kjarvalsstaða sýnir
Hörður Karlsson 36 myndir
gerðar í krít og akryl og stendur
sýningin fram að jólum. Hörður
er fyrst og fremst þekktur fyrir
frímerkjateikningar sínar, en á
því sviði hefur hann hlotið ýmis
verðlaun af hárri gráðu. En mynd-
verk Harðar hafa einnig verið
sýnd víða og hann hefur haldið
tvær sýningar í Reykjavík, þijár
í Bandaríkjunum og eina á Spáni.
Hörður hefur lengi verið búsett-
ur í Bandaríkjunum en þangað
hélt hann tvítugur til listnáms og
stundaði nám við Corcoran-lista-
skólann í Washington DC. Síðan
var hann við listnám um nokkurt
skeið við háskólann í Mexíkóborg.
Þá starfaði hann um árabil sem
forstöðumaður myndsmíðadeildar
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í Was-
hington DC.
- Myndir Harðar eru með öllu
óhlutlægar, þótt hann að sjálf-
sögðu styðjist við ýmis skynhrif
frá náttúrunni. Fýrir honum vakir
að ná sterkri, svipmikilli heild á
myndfletinum og hann er einn af
fáum íslenskum myndlistarmönn-
um sem hafa tekið ástfóstri við
hringformið.
Hér er um mjög Ijóðrænar
abstraksjónir að ræða sem oft
byggjast á litrænu flæði sem ég
þekki vel úr amerískri list undan-
genginna áratuga.
Hörður er ófeiminn við næsta
vafasamar litasamsetningar og
það merkilega er, að honum tekst
vafalítið best upp þegar hann er
þar í hámarki. Einkum er honum
tekst að láta litina flæða hvað
lystilegast yflr hvem annan og
ná fram áhrifamiklum gagnsæj-
um formheildum svo sem í mynd-
um nr. 16, 19, 20, 30 og 31 sem
allar eru unnar í akryltækni.
Sumar þessara mynda geta
þótt nokkuð væmnar í lit en geta
fallið mjög vel að umhverfi sínu
við rétta staðsetningu. Um það
hef ég séð ýmis dæmi í Banda-
ríkjunum.
Styrkur Harðar Karlssonar
felst í hinu hreint litræna eins og
svo margra Islendinga svo sem
þessi sýning er til vitnis um.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI84670 MRABAKKI 3, SÍMI670100
m
m
m
ÞURRKARAR
• Tekur allt að 4.5 kg af þvotti
• Veltir þvottinum i báöar áttir
• Stillir hitann eftir rakastigi þvottarsins
• Veltir þvottinum eftir ai þurrkkerfið er búió
• Lætur vita þegar sla stíflar
• Gefur hljóðmerki við lok hvers þurrkkerfis
• Öryggisrofi áhurð
\ ‘&r "S:
. . ...... jL' . •
ÞVOTTAVÉLAR
• Frá 600-1300 snúninga vinduhraði á mínútu
• Tekur 5 kg af þvotti
• Allt að 16 þvottakerfi
• Hraðþvottakerfi
• Hagkvæmnismöguleika
• Ullarþvottakerti
• Hitastig óháð þvottakerfi