Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988 <23 FUGL í BÚRI Békmenntir Sigurður-Haukur Guðjónsson Höfundur: Kristin Loftsdóttir. Kápumyndir: Bpi Kristjánsson. Prentverk: Prentstofa G. Bene- diktssonar. Útgefandi: Vaka-Helgafell. Þetta er þriðja bókin sem Verð- launasjóður íslenskra bamabóka sendir frá sér. Og hvílík saga! Meist- aratökin á efni eru slík, að ég trúi því vart enn að höfundur sé aðeins 19 ára. Þyl þó hvað eftir annað vísuna gömlu, hans Jónasar Hali- grímssonar, um að ár segi ekki allt um þroska manna. Já, mest kom mér á óvart dýpt hugsunarinnar og skilningurinn sem að baki frásögn- inni liggur. Sá undirtónn er hugljúf- ur og heillandi, engu líkar en hann haldi á setningunum eins og bami í faðmi lífsreyndrar móður, gefur lokkandi fyrirheit um að hér sé stig- inn fram höfundur sem eigi eftír að skipa sér í röð góðskálda, ekki aðeins íslenskra, heldur í heimi bók- mennta almennt. Sagt er frá tveimur bömum, Kittu og Elíasi. Þau em ung, 11 ára. Vinátta þeirra, og hvemig þau vinna úr gleði og sorg daganna er aðalþráður vefsins. Ljós og skuggar vega hér salt og með óvenjulegum stflþrifum tekst höfundi að halda því á róli, þar til lesandinn hefur á tilfinningunni að hann þekki í böm- unum sjálfan sig, sín eigin böm, lífið sjálft. Þau eru jú böm, enn saklaus, laus undan tískugrómi tíðarandans, en takast á við verk- efni sín, eins og fullorðnir speking- ar. Meistaralega gert af ungum höfundi, og mér finnst ég, og við hin, í þakkarskuld við Áma Víking, Kristín Loftsdóttir er hvatti Kristínu til þess að rétta handritið fram. Ég rek ekki þráð sögunnar, vil ekki ræna lesandann þeirri ánægju að kynnast honum sjálfur. Það er þess virði. Sá sem vill rétta ungl- ingi góða bók, snjalla bók, hefír hana hér. Vaka-Helgafell fer ekki alltaf troðnar slóðir, sendir líka frá sér bækur á vorin. Víst er þessi bók vorboði um snjallan höfund. Prent- verk allt til fyrirmyndar, í engu sparað um frágang. Hafi þeir er að unnu þökk fyrir, og Kristín, mættum við fá meira að sjá og heyra. Við hjá Gullsmíðastofu Kjartans Ásmundssonar höfum á boðstólum mikið úrval perluskartgripa, með bæði sjávar og ferskvatnsperlum. Ef þú leitar að fallegri gjöf sem gleður ástvin - þá líttu við hjá okkur. C/kjartan asmundsson gullsmiour Þrautgóðir á raunastund Steinar J. Lúðviksson Björgunar- og sjóslysasaga íslands, 19. bindi Bókin fjallar um árin 1972—1974. Þá gerðust margir stórviðburðir. Togarinn Hamranes sökk út af Jökli 1972. Hörmuleg sjóslys urðu í skaðaveðrum 1973 þegar vélbátarnir María og Sjöstjarnan fórust. Einn- ig segir frá strandi Port Vale við ósa Lagarfljóts. GULLVÆGAR BÆKUR í SAFNIÐ Minningar Huldu Á Steffánsdóttur Skólastarf og offri ár Hulda segir frá Kvennaskólanum á Blönduósi þar sem hún var skólastjóri og Húsmæðraskóla Reykjavíkur sem hún veitti forstöðu. ,,Mér finnst békin meS hinunt bextu, sem ég hef lesið þessarar tegundar" Þór Magnússon, þjóðminja- vörður um fyrstu minningabók Huldu t brófi til bennor 10. jan. 1986. Þjóðhættir og þjóðtrú Skráð aff Þórði saffnstjóra i Skágvm Þessi bók er árangur af samstarfi Þórðar Tómassonar safn- stjóra í Skógum og Sigurðar Þórðarsonar hins fróða af Mýrum í Hornafirði. Hér greinir frá lífi og storfi, þjóð- siðum og þjóðtrú. ÖRLYGUR SÍÐUMÚIA 11, SÍMI 8 48 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.