Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988 61 Elínborg Jónas- dóttir - Minning Fædd 10. maí 1902 Dáin 9. desember 1988 Hún Elínborg tengdamóðir mín lést í Borgarspítalanum þ. 9. des. sl. 86 ára að aldri eftir langvarandi veikindi. Mig langar til þess að minnast hennar með nokkrum línum. Elínborg fæddist þ. 10. maí 1902 að Bjargshóli í Miðfirði, dóttir hjón- anna Önnu Kristófersdóttur og Jón- asar Jónssonar, sem bjuggu lengst af á Syðri-Reykjum í Miðfirði. Systkinin voru sex. Elst var Þuríð- ur, en hún dó barn að aldri, þá Guðrún, Björn, Jón, Gunnar og Elínborg. Gunnar er: einn eftir á lífi og dvelur hann á Elliheimilinu á Hvammstanga. Alltaf var mjög kært á milli Elínborgar og Gunnars. Þann 22. júlí 1932 giftist Elín- borg eftirlifandi manni sínum Stein- bimi Jónssyni, fyrrverandi bónda og söðlasmiði. Eignuðust þau 4 börn. Þau eru: Álfhildur, Samúel, Anna og Sigurður. Einnig ólu þau upp dreng, Pétur, frá 5 ára aldri. Elínborg og Steinbjörn bjuggu að Syðri-Völlum á Vatnsnesi í kringum 30 ár. Þar stjórnaði Elín- borg fjölmennu heimili þar sem mikið var um gestakomur og oft langur vinnudagur. Margir nutu umhyggju hennar, fjölskylda jafnt sem vandalausir. Er aldurinn færð- ist yfir bmgðu þau búi og fluttu til Hveragerðis. Þar bjuggu þau í mörg ár, en fluttu svo til Reykjavíkur árið 1980. Þar sem við Samúel kynntumst og giftumst úti í Stokkhólmi, hafði ég aldrei hitt Elínborgu og Stein- björn, en einmitt þar frétti ég að ég þyrfti engu að kvíða, því að ég gæti varla eignast betri tengdafor- eldra. Og það vom orð að sönnli, því að þegar heim var komið fann ég strax hversu velkomin ég var í fjölskylduna. Þær minnast þess eldri dæturn- ar, Sólveig og Elínborg, þegar þær komu í heimsókn til ömmu og afa í Hveragerði, en það var oft, að þær fóm í kassann hjá ömmu þar sem hún geymdi úrval af vettlingum og sokkum sem hún hafði pijónað. Var þetta ætlað öllu „litla fólkinu“ í ijöl- skyldunni. Minnist ég þess ekki að hafa keypt vettlinga eða sokka fyr: ir bömin fjögur meðan Elínborgar naut við. Ef ég ætti að lýsa Elínborgu, þá var hún mjög heilsteypt kona, björt yfirlitum, frekar hlédræg og ein- staklega ósérhlífin. Hún naut þess í ríkum mæli eins og fyrir norðan að veita vel gestum og gangandi. í Reykjavík byggðu Elínborg og Steinbjörn hús ásamt dóttur sinni og tengdasyni að Lækjarseli 7. Mig langar að það komi fram hér að Anna og Gísli maður hennar hafa sýnt þeim einstaka nærgætni og umhyggjusemi þegar heilsan fór þverrandi. Síðustu tvö árin dvaldi Elínborg í Borgarspítalanum og naut þar góðrar umönnunar starfsfólks og em þeim færðar kærar þakkir fyrir. Ég og fjölskylda mín kveðjum Elínborgu að leiðarlokum og þökk- um henni allt elskulegt. Blessuð sé minning góðrar konu. Tengdadóttir t Móðir mín, FINNEY REGINBALDSDÓTTIR, Knarrarstfg 2, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 17. des- ember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Halldóra S. Jónsdóttir. t Útför sambýlismanns míns, INGIMUNDAR SÆMUNDSSONAR, Dúfnahólum 4, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vildu minn- ast hins látna láti Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík njóta þess. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Kristín Magnúsdóttir. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BENJAMÍNS GUÐMUNDSSONAR, Lindarholti 6, Ólafsvík, sem lést þann 13. þ.m. fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00 Sætaferð verðurfrá BSÍ kl. 8.00 sama dag. Þórdfs Þorgrímsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Minninff: Pétur Stefánsson, Hafharfírði Fæddur 17. október 1920 Dáinn 6. desember 1988 Pétur Stefánsson, tengdafaðir minn, er látinn eftir skamma sjúk- dómslegu. Á þessari stundu finn ég mig knúinn til þess að minnast þessa ágæta drengskaparmanns sem ég hef haft svo náin kynni af, bæði í einkalífi og sem samstarfs- maður. Pétur fæddist að Sæunnarstöð- um í Hallárdal og ólst þar upp í stórum systkinahópi fyrstu ár ævi sinnar uns hann fluttist að Æsu- stöðum í Langadal. Pétur ólst upp við kröpp kjör eins og títt var í þá daga og varð því ekki um langa skólagöngu að ræða. Aðeins 15 ára gamall hóf Pétur sjómennsku og stundaði hann sjóinn allt fram til 1963 er hann stofnaði sælgætis- verksmiðjuna Drift hf. Af árvekni og alúð byggði Pétur upp fyrirtæki sitt og var dugnaður hans og ósér- hlífni aðdáunarverð. Skyldurækni og orðheldni var honum í blóð bor- in og honum var forsjá heimilis og fyrirtækis eftirlæti og metnaður. Pétur var mikill gæfumaður í einkalífi. Árið 1948 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Aðal- heiði Dís Þórðardóttur, og varð þeim tveggja bama auðið. Fyrstu árin bjuggu þau í Reykjavík en fluttust síðan til Hafnarfjarðar eftir að fyrirtækið hóf rekstur þar. Með þessum fáu orðum vil ég þakka Pétri fyrir samfylgdina og kveð góðan félaga með söknuði. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna,. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) E.H. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, RAGNHEIDUR AÐALSTEINSDÓTTIR frá Hlíð, Halakoti, Vatnsleysuströnd, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju laugardaginn 17. desem- ber kl. 13.30. Mundhildur B. Guðmundsd. Grátar B. Ingvarsson, Ingvar K. Grétarsson, Ragnhildur H. Grétarsdóttir, Guðmundur S. Grétarsson, Þuríður K. Grótarsdóttir. t Útför eiginmanns míns, föður, sonar, bróður og tengdasonar, GUÐMUNDAR LÁRUSSONAR, Suðurgötu 71, fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta Krabba- meinsfélagið njóta þess. Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Sonja Andrésdóttir, Lárus Kristjánsson, Kristján Lárusson, Jón Guðbjörnsson, Kristín Kristjánsdóttir. STRAUJARN, STERKASTA VOPNIÐ GEGN KRUMPUM • 1100 wött • Gufuskoti í gegnum allt að 50 göt. Minnkar stórlega hættuna á að efnið brenni við járn ið •Öryggikemuri veg fyrirofhitnun jámsins • Vatnsmælir • Stjórnanlegurvatnsúði • Stjórnanlegur gufugjafi • Snúruhaidari • 12 mánaða ábyrgð • Fáanieg snúruiaus — með hleðslutæki^ HOOVER—hefur betur SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI84670 ÞARABAKKI 3, SÍMI670100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.