Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 15

Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 15 Lesarar og- stjórnandi með fyrstu eintök hljómsnældanna í höndum. F.v. Pétur Sigurgeirsson biskup, Helga Þ. Stephensen leikkona, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Sigurbjörn Einarsson biskup. Hið íslenska Biblíufélag: Lúkasarguðspjall og Postulasagan á hljómsnældum Markúsargnðspjall væntanlegt HED íslenska biblíufélag hefur gefið út á hljómsnældum upplest- ur á Lúkasarguðspjalli og Post- ulasögunni og væntanlegar eru á næstu dögum hljómsnældur með Markúsarguðspjalli. Þetta er fyrsta hljóðútgáfa á biblfunni hérlendis. Það er Sigurbjörn Ein- arsson, biskup sem les Lúkasar- guðspjall, Helga Þ. Stephensen, leikkona les Postulasöguna og Pétur Sigurgeirsson, biskup Markúsarguðspjall. Guðrún Ás- mundsdóttir, leikkona sfjórnaði flutningnum. Að sögn Ástráðar Sigursteind- órssonar, starfsmanns Hins íslenska Biblíufélag, er ætlunin að framhald verði á þessari útgáfu þar Bóksölu- listi Ey- mundssonar MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfárandi frá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Samkvæmt sölulistum síðustu viku, 11.—16. desember, voru eft- irfarandi bækur söluhæstar í bóka- flóðinu hjá Eymundssyni. Endurminningar og fróðleikur: 1. Ein á forsetavakt, 2. íslands- ævintýri Himmlers, 3. íslenskir nasistar, 4. Úr eldinum til íslands, 5. Sigurbjöm biskup, 6. Býr íslend- ingur hér, 7. Við byggðum nýjan bæ, 8. Bryndís, 9. Á miðjum vegi í mannsaldur, 10. Þjóð í hafti. Bama- og unglingabækur: 1. Fallin spýta, 2. Fimm í Dimmu- dröngum, 3. Fimm — Ráðgátan á Rofabæ, 4. Nonni, 5. Anna í Grænuhlíð, 6. Víst er ég fullorðin, 7. Hesturinn og drengurinn hans, 8. Ég veit hvað ég vil, 9. Alveg milljón, 10. Meiriháttar stefnumót. Fagurbókmenntir: 1. Markaðs- torg guðanna, 2. Leitin að dýra- garðinum, 3. Mín káta angist, 4. Dagur af degi, 5. Káinn, 6. Að lokum, 7. Böm og bænir, 8. Fer- skeytlan, 9. Reimleikar í birtunni, 10. Ljóðaárbók 1988. Aðrar bækur: 1. Öldin okkar, 2. Mamma! Hvað á ég að gera?, 3. Gengið í guðshús, 4. Reylq'avík — Sögustaður við Sund, 5. Kær- leikur, lækningar, kraftaverk, 6. íslensk orðsnilld, 7. Fegurð ís- lands, 8. Tónlistarsaga, 9. Nú er kominn tími til, 10. Víkingslækjar ætt. sem forráðamenn félagsins telja að með henni sé mætt biýnni þörf. Hljómsnældumar eru ekki ein- göngu ætlaðar blindum og sjón- skertum heldur hveijum sem er, sem vill njóta Guðsorðs. Hvert rit er á fjórum snældum, sem seldar eru saman í öskju sem lítur út eins og bók. Þær fást í bókaverslunum en einnig er hægt að kaupa þær beint á skrifstofu Hins íslenska Biblíufélags í Guð- brandsstofu í Hallgrímskirlqu. Hlutverk Hins íslenska Biblíufé- lags er að vinna að útgáfu og dreif- ingu Biblíunnar og skyldra rita. Biskup íslands á hveijum tíma er sjálfkjörinn forseti félagsins en skráðir félagsmenn eru nú um 1.500. Nú er í undirbúningi útgáfa Biblíunnar með stækkuðu letri fyrir sjónskerta og er ætlunin að hún komi út á næsta ári. fí Landsbanki íslands ÉG HEIH TRAUSTI BAUKASTJÓRI Ég er á leið í Landsbankann þinn með nýjan bauk og kort. Ég er baukastjóri og hjálpa þér að spara. Baukurinn er nokkurs konar bankahólf. Þegar það er orðið fullt er hægt að opna það með sérstöku baukakorti sem er merkt þér. Og þá er kominn tími til að fara í Landsbankann og leggja peningana inn á Kjörbók. Ef þú sparar og passar þig vel að eyða ekki of miklu, líður ekki á löngu áður en þú getur eignast eitthvað verulega skemmtilégt. Landsbankinn borgarþérsvo vexti en það eru peningarsem þú færð fyrir að geyma peningana þína í bankanum. Byrjaðu strax að spara með mér, ég kosta aðeins 270 krónur. L Landsbanki íslands Banki aHra landsmanna máthsías |OHAN*.\F.SSEN ; v 3 DAGUR AF DEGI Umsagnir um bækur eftir Matthías Johannessen . . . góðskáld sem andar öðru og meira endurnærandi lofti. Breska skáldið og gagn- rýnandinn, Adam Thorpe, um The Naked Machine í Literary Review, London. . . . þótti mikið til um kvæðin sem vöktu hjá okkur endurminningar um íslands- ferðina 1979. Siegfried Lenz um Ultima Thule. Sól á heimsenda er tiltölulega stutt saga, en eftirminnileg. Ef það sem stendur á milli línanna, og þau hugrenningatengsl sem bókin gefur tilefni til, eru lika reiknuð með, þá er hún sennilega mesta bókin, sem hefur komið núna fyrir jól. Danski sendikennarinn og bókmenntafrœðingurinn Kjeld Gall Jorgensen. eymuni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.