Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
37
Reuter
Sveinki í Beirút
Jólasveinamir koma víða við á yfirreið sinni síðustu dagana fyrir hátíðar. Myndin var tekin af
einum þeirra sem kom við í verzlunarmiðstöð í suðurhverfiun Beirút, hinnar stríðshrjáðu höfiið-
borgar Líbanons, í gær. Börnin kunnu vel að meta gjafir, sem sveinki færði þeim.
Sjö Suður-Ameríkuríki:
Vilja fiind um skuldakreppu
Brasilíu. Reuter.
FORSETAR sjö rikja í Rómönsku Ameríku vilja efiia til fundar með
leiðtogum helstu iðnrikjanna og ræða við þá um skuldaokið og leið-
ir til að létta á því. Skýrðu braziliskir embættismenn frá þessu í gær.
Ríkin sjö, Argentína, Brazilfa,
Kólombá, Mexikó, Perú, Úruguay
og Venezúela, skuida samtals 420
milljarða dollara og vaxta- og af-
borganabyrðin kemur í veg fyrir
eðlilegar framfarir og hagvöxt. Um
þetta vilja leiðtogar ríkjanna ræða
við ráðamenn í Bandaríkjunum,
Kanada, Japan, Bretlandi, Vestur-
Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu.
Talsmaður Alþjóðabankans sagði
sl. sunnudag, að skuldir þriðja-
heimsríkja væru áætlaðar 1,3 billj-
ónir dollara og þótt þær ykjust
líklega aðeins um 3% á þessu ári á
móti 11% í fyrra væri enginn endir
sjáanlegur á skuldakreppunni.
George Bush, væntanlegur
Bandaríkjaforseti, sagði sl. mánu-
dag, að hann ætlaði að endurskoða
alla stefnu Bandaríkjanna í skulda-
málum þriðjaheimsins og hefur
þeirri yfírlýsingu hans verið fagnað
mjög í Suður-Ameríku. Þjóðarleið-
togar þar binda augljóslega miklar
vonir við Bush og Carlos Andres
Perez, sem tekur brátt við forseta-
embætti í Venezúela, sagði i síðustu
viku, að „1989 [myndu þriðja-
heimsríkin] sjá leið út úr skuldafen-
inu“.
ACBOSOHIC
eru fiarstýrdu bílarnir frá Tómstundahúsinu
Hraði og kraftur
einkenna þá. engar
hindranir standast
þá, það springur
ekki á þeim og
flestir bílstjórar frá
3ja ára og uppúr
getastjórnaó
Laugavegi 164, sími 21901
SINGER
SAUMAVÉLAR
SPARA ÞÉR SPORIN
SAMBA EXCLUSIVE
Saumavél með 11 mismunandi
☆ Loksaumur
Einnig hefur vélin sjálfvirkan
hnappagatasaum, frjálsan arm
og þægilega yfirbreiðslu.
kr. 18.915 stgr.
Vélin er með frjálsum armi og
sjálfvirkum hnappagatasaum.
Það er auðvelt að þræða hana og
létt að spóla.
kr. 15.820 stgr.
Við kaup á einni af neðangreindum saumavélum fylgir Maglc
Taylor tölufestingavél eða viðgerðavél í bónus.
SINGER tölvuvél mód. 6268 kr. 54.500 stgr.
SINGER Serenade 30 mód. 6235 kr. 42.720 stgr.
SINGER Serenade 10 mód. 6233 kr. 30.780 stgr.
HOLTAGÖRÐUM, SÍMI685550
ÁRMÚLA 3, SÍMI687910
OG KAUPFÉLÖGIN