Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 35 Saga LH í 35 ár: I morgunljómann EIN af „bókum hestamannsins" íyrir þessi jól verður væntanlega í morgunljómann eftir Steinþór Gestsson frá Hæli. í bókinni er rakin saga Landssambands hestamanna í 36 ár. Saga LH er rakin fram til 1984 í bókinni. Þar er'sagt frá forsögu stofnunar sambandsins, upphafí þess og fyrstu skrefum. Síðan er rakin saga fjórðungsmóta, ársþinga og landsmóta, fræðslu- og út- breiðslustarf sambandsins, fíárreið- ur og fleira úr starfí þeirra. I bókar- lok eru ýtarlegar töflur um ársþing, fjórðungsmót og landsmót, stjóm- armenn, endurskoðendur og heið- ursfélaga. Pétur Behrens listmálari hefur skreytt bókina hestamyndum, en í henni er einnig fjöldi ljósmynda. Bókin er 115 síður, prentuð hjá Odda. Annir í innanlandsflugi MIKLAR annir eru nú í innan- landsflugi á vegum Flugleiða, og verður mikið um aukaferðir á öllum flugleiðum innanlands siðustu dagana fyrir jól. í gær var flogið til allra staða sam- kvæmt áætlun nema hvað seinna flug til Vestmannaeyja féll nið- ur. Flogið verður til allra helstu staða fyrir hádegi á aðfanga- dag, og fer síðasta vél frá Reykjavík til Akureyrar klukk- an 13. Amarflug flýgur til níu staða innanlands og em nú famar að meðaltali sex aukaferðir daglega. Síðustu ferðir innanlands á vegum Amarflugs fyrir jól verða á að- fangadag, en þá verður flogið á alla áætlunarstaði. Hjá BSÍ fengust þær upplýsing- ar að aukning í farþegaflutningum hefði farið frekar hægt af stað nú fyrir jólin, en mikið væri um pakka- flutninga. Bætt hefði verið við all- mörgum aukaferðum, og væm daglegar ferðir á flestum langleið- um, en á styttri leiðum út frá Reykjavík væm frá einni upp í sjö ferðir á dag. Reiknað væri með að síðustu dagana fyrir jól yrðu um 50 komur og brottfarir frá Umferðarmiðstöðinni, og á bilinu 2.000 til 3.000 farþegar væm þá daglega á ferðinni með sérlejrfis- bifreiðum. Samkvæmt upplýsingum frá vegaeftirlitinu í gær var færð yfír- leitt mjög góð um allt land, en víða hálka og snjóföl á vegum. Athugasemd frá Ríkisendurskoðun RÍKISENDURSKOÐUN hefur hátt athugasemd við afgreiðslu sent Morgunblaðinu eftirfarandi: sjóðsstjómar á láni til Granda hf.“ Rangfærslur Guð- mundar Magnússonar eftir ÓlafRagnar Grímsson í sérkennilegri athugasemd í Mbl. í gær fullyrðir Guðmundur Magnússon að núverandi fjár- málaráðherra hafí breytt þeim reglum sem gilda um ferðakostn- að aðstoðarmanna ráðherra. Hann talar í þessu sambandi um að „hin nýja lúxusgreiðsla til að- stoðarmanna ráðherra sé ekki í samræmi við málflutning núver- andi fjármálaráðherra um aðhald í ríkisrekstrinum." Núverandi fjármálaráðherra hefílr engar nýjar reglur sett á þessu sviði. Sú skipan sem gilt hefur varðandi greiðslur á ferða- kostnaði aðstoðarmanna ráðherra var sett 22. ágúst 1984 og gerði Bikarmót TR: það þáverandi fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson. Þær upp- lýsingar sem Guðmundur Magn- ússon virðist byggja ályktun sína á eru því rangar. Hitt er svo annað mál að það er bæði rétt og nauðsynlegt að gera breytingar á bæði útgjöldum og reglum um ferðakostnað opin- berra starfsmanna erlendis. Verð- ur unnið að því verki í samræmi við þær niðurskurðartillögur sem núverandi flármálaráðherra lagði fram í ríkisstjóm og nú hafa ver- ið samþykktar af fjárveitinga- nefnd. I þeim tillögum felst að kostnaður vegna ferðalaga, fund- arhalda og risnu verður lækkaður um 260 milljónir á næsta ári. Höfundur er fjármálaráðherra. Elvar varð efstur Bikarmót Taflfélags Reykjavíkur hófst 15. nóvember sl. og lauk sunnudaginn 11. des- ember. Keppendur voru alls 56. í þeim hópi voru margir mjög öflugir skákmenn. Eltir jafria keppni fór svo að Elvar Guð- mundsson varð í fyrsta sæti. Röð efstu keppenda varð þessi: 1. Elvar Guðmundsson TR með 25 vinninga, 2. Jóhannes Ágústsson TR með 23,5 vinninga, 3. Dan Hansson TR með 19 vinninga, 4. Lárus Jóhannesson TR með 16 vinninga, 5. Jóhann Ö. Siguijónsson TR með 14,5 vinninga. s Árið 1987 sigraði Dan Hansson í mótinu. (Fréttatílkynning) „Vegna frétta í fjölmiðlum um bréf, sem Ríkisendurskoðun hefur skrifað Atvinnutryggingarsjóði útfíutnings- greina, um lánveitingar úr sjóðnum, er talið rétt að eftirfarandi komi fram: Samkvæmt 5. gr. reglugerðar um sjóðinn skal Ríkisendurskoðun fylgj- ast með starfsemi hans og gefa Al- þingi árlega skýrslu um hana. Auk þess annast Ríkisendurskoðun end- urskoðun reikninga sjóðsins. Til þess að sinna því hlutverki sínu, að fylgjast með starfsemi sjóðs- ins, var ákveðið að skoða nokkrar lánsumsóknir, sem sljóm sjóðsins hafði afgreitt. — Var þar baeði um að ræða umsóknir sem samþykktar höfðu verið og eins hafnað. í framhaldi af athugun þessari var áðumefnt bréf skrifað. Það kemur fram í bréfinu að Ríkisendurskoðun er eingöngu að óska eftir frekari uplýsingum um þær forsendur, sem sjóðsstjómin byggir á við mat á umsóknum. Það er rangt sem fram hefur kom- ið í fjölmiðlum að lagt hafi verið mat á framlegð eða greiðslugetu Granda hf. á næstu ámm. Af hálfu Ríkisendurskoðunar hefur ekki verið lagt mat á, hvort nefnt fyrirtæki, né önnur sem athuguð hafa verið, uppfylli ákvæði laga og reglugerða til að fá lán úr sjóðnum. Það ítrekast að margnefnt bréf var eingöngu skrífað til þess að Ríkisendurskoðun gæti framkvæmt verkefni það sem henni var falið með setningu laga og reglugerðar um Atvinnutryggingarsjóð útflutn- ingsgreina. — Bréfið er á engan Saga og kirkja komin út „Saga og kirkja", afmælisrit Magnúsar Más Lámssonar, fyrrrver- andi háskólarektors, er komið út. Áskrifendur geta vitjað þess í Sögu- félagi í Fischersundi. (Fréttatilkynning) Opið til 22 Verslunareigendur við Laugaveginn hafa ákveðið að hafa verslanir sínar opnar til kl. 22 í kvöld, fimmtudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.