Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
35
Saga LH í 35 ár:
I morgunljómann
EIN af „bókum hestamannsins" íyrir þessi jól verður væntanlega í
morgunljómann eftir Steinþór Gestsson frá Hæli. í bókinni er rakin
saga Landssambands hestamanna í 36 ár.
Saga LH er rakin fram til 1984
í bókinni. Þar er'sagt frá forsögu
stofnunar sambandsins, upphafí
þess og fyrstu skrefum. Síðan er
rakin saga fjórðungsmóta, ársþinga
og landsmóta, fræðslu- og út-
breiðslustarf sambandsins, fíárreið-
ur og fleira úr starfí þeirra. I bókar-
lok eru ýtarlegar töflur um ársþing,
fjórðungsmót og landsmót, stjóm-
armenn, endurskoðendur og heið-
ursfélaga.
Pétur Behrens listmálari hefur
skreytt bókina hestamyndum, en í
henni er einnig fjöldi ljósmynda.
Bókin er 115 síður, prentuð hjá
Odda.
Annir í innanlandsflugi
MIKLAR annir eru nú í innan-
landsflugi á vegum Flugleiða,
og verður mikið um aukaferðir
á öllum flugleiðum innanlands
siðustu dagana fyrir jól. í gær
var flogið til allra staða sam-
kvæmt áætlun nema hvað seinna
flug til Vestmannaeyja féll nið-
ur. Flogið verður til allra helstu
staða fyrir hádegi á aðfanga-
dag, og fer síðasta vél frá
Reykjavík til Akureyrar klukk-
an 13.
Amarflug flýgur til níu staða
innanlands og em nú famar að
meðaltali sex aukaferðir daglega.
Síðustu ferðir innanlands á vegum
Amarflugs fyrir jól verða á að-
fangadag, en þá verður flogið á
alla áætlunarstaði.
Hjá BSÍ fengust þær upplýsing-
ar að aukning í farþegaflutningum
hefði farið frekar hægt af stað nú
fyrir jólin, en mikið væri um pakka-
flutninga. Bætt hefði verið við all-
mörgum aukaferðum, og væm
daglegar ferðir á flestum langleið-
um, en á styttri leiðum út frá
Reykjavík væm frá einni upp í sjö
ferðir á dag. Reiknað væri með
að síðustu dagana fyrir jól yrðu
um 50 komur og brottfarir frá
Umferðarmiðstöðinni, og á bilinu
2.000 til 3.000 farþegar væm þá
daglega á ferðinni með sérlejrfis-
bifreiðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
vegaeftirlitinu í gær var færð yfír-
leitt mjög góð um allt land, en víða
hálka og snjóföl á vegum.
Athugasemd frá
Ríkisendurskoðun
RÍKISENDURSKOÐUN hefur hátt athugasemd við afgreiðslu
sent Morgunblaðinu eftirfarandi: sjóðsstjómar á láni til Granda hf.“
Rangfærslur Guð-
mundar Magnússonar
eftir ÓlafRagnar
Grímsson
í sérkennilegri athugasemd í
Mbl. í gær fullyrðir Guðmundur
Magnússon að núverandi fjár-
málaráðherra hafí breytt þeim
reglum sem gilda um ferðakostn-
að aðstoðarmanna ráðherra.
Hann talar í þessu sambandi um
að „hin nýja lúxusgreiðsla til að-
stoðarmanna ráðherra sé ekki í
samræmi við málflutning núver-
andi fjármálaráðherra um aðhald
í ríkisrekstrinum."
Núverandi fjármálaráðherra
hefílr engar nýjar reglur sett á
þessu sviði. Sú skipan sem gilt
hefur varðandi greiðslur á ferða-
kostnaði aðstoðarmanna ráðherra
var sett 22. ágúst 1984 og gerði
Bikarmót TR:
það þáverandi fjármálaráðherra,
Albert Guðmundsson. Þær upp-
lýsingar sem Guðmundur Magn-
ússon virðist byggja ályktun sína
á eru því rangar.
Hitt er svo annað mál að það
er bæði rétt og nauðsynlegt að
gera breytingar á bæði útgjöldum
og reglum um ferðakostnað opin-
berra starfsmanna erlendis. Verð-
ur unnið að því verki í samræmi
við þær niðurskurðartillögur sem
núverandi flármálaráðherra lagði
fram í ríkisstjóm og nú hafa ver-
ið samþykktar af fjárveitinga-
nefnd. I þeim tillögum felst að
kostnaður vegna ferðalaga, fund-
arhalda og risnu verður lækkaður
um 260 milljónir á næsta ári.
Höfundur er fjármálaráðherra.
Elvar varð efstur
Bikarmót Taflfélags
Reykjavíkur hófst 15. nóvember
sl. og lauk sunnudaginn 11. des-
ember. Keppendur voru alls 56.
í þeim hópi voru margir mjög
öflugir skákmenn. Eltir jafria
keppni fór svo að Elvar Guð-
mundsson varð í fyrsta sæti.
Röð efstu keppenda varð þessi:
1. Elvar Guðmundsson TR með 25
vinninga, 2. Jóhannes Ágústsson
TR með 23,5 vinninga, 3. Dan
Hansson TR með 19 vinninga, 4.
Lárus Jóhannesson TR með 16
vinninga, 5. Jóhann Ö. Siguijónsson
TR með 14,5 vinninga. s
Árið 1987 sigraði Dan Hansson
í mótinu.
(Fréttatílkynning)
„Vegna frétta í fjölmiðlum um bréf,
sem Ríkisendurskoðun hefur skrifað
Atvinnutryggingarsjóði útfíutnings-
greina, um lánveitingar úr sjóðnum,
er talið rétt að eftirfarandi komi
fram:
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar um
sjóðinn skal Ríkisendurskoðun fylgj-
ast með starfsemi hans og gefa Al-
þingi árlega skýrslu um hana. Auk
þess annast Ríkisendurskoðun end-
urskoðun reikninga sjóðsins.
Til þess að sinna því hlutverki
sínu, að fylgjast með starfsemi sjóðs-
ins, var ákveðið að skoða nokkrar
lánsumsóknir, sem sljóm sjóðsins
hafði afgreitt. — Var þar baeði um
að ræða umsóknir sem samþykktar
höfðu verið og eins hafnað.
í framhaldi af athugun þessari
var áðumefnt bréf skrifað.
Það kemur fram í bréfinu að
Ríkisendurskoðun er eingöngu að
óska eftir frekari uplýsingum um
þær forsendur, sem sjóðsstjómin
byggir á við mat á umsóknum.
Það er rangt sem fram hefur kom-
ið í fjölmiðlum að lagt hafi verið
mat á framlegð eða greiðslugetu
Granda hf. á næstu ámm. Af hálfu
Ríkisendurskoðunar hefur ekki verið
lagt mat á, hvort nefnt fyrirtæki,
né önnur sem athuguð hafa verið,
uppfylli ákvæði laga og reglugerða
til að fá lán úr sjóðnum.
Það ítrekast að margnefnt bréf
var eingöngu skrífað til þess að
Ríkisendurskoðun gæti framkvæmt
verkefni það sem henni var falið
með setningu laga og reglugerðar
um Atvinnutryggingarsjóð útflutn-
ingsgreina. — Bréfið er á engan
Saga og kirkja
komin út
„Saga og kirkja", afmælisrit
Magnúsar Más Lámssonar, fyrrrver-
andi háskólarektors, er komið út.
Áskrifendur geta vitjað þess í Sögu-
félagi í Fischersundi.
(Fréttatilkynning)
Opið til 22
Verslunareigendur við
Laugaveginn hafa ákveðið að
hafa verslanir sínar opnar til
kl. 22 í kvöld, fimmtudag.