Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
TIIKYNNING
TIL EIGENDA BMW BIFREIDA
| Sjávarbyggð
undir Jökli
BÍLAUMBOÐiÐ HF. hefur tekið við öllum innflutningi,
ásamt varahluta- og viðgerðaþjónustu á BMW
bifreiðum.
Vegna flutninga verður varahlutaverslunin lokuð til
jóla, en opnað verður aftur að Krókhálsi 1, í
Reykjavík, þriðjudaginn 27. desember nk.
Söludeildin opnar að Krókhálsi 1,
þann 2. janúar 1989.
Þjónustuverkstæðið verður fyrst um sinn áfram að
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1 - Reykjavík
fyrirgóða drykki
Góðum drykk hæfa
glös sem undirstrika
göfgi hans.
Glösin frá Goebel
eru hönnuð með
það að leiðarljósi að
sameina aldagamla
reynslu að nútíma-
þörfum og stíl.
FAXAFEN 5 (SKEIFUNNI)
SÍMI: 68 56 80
_________Bækur________________
Þórarinn Þórarinsson
í hinu mikla flóði ritdóma og
auglýsinga, sem hafa lagt fjölmiðla
að fótum sér undanfamar vikur,
hefur nær algerlega horfíð í skugg-
ann bók sem er ein þeirra bestu sem
út hafa komið á þessu ári. Hér á
ég við Fróðárhreppssögu, sem öðru
nafni mætti kalla Eyrbyggju hina
nýju, þótt hún nái ekki til nema
nokkurs hluta þess sögusviðs, sem
Eyrbyggja segir frá.
Fyrir þúsund árum, eða þar um
bil, settist _ þáverandi mesti sagn-
fræðingur íslendinga að á Fagurey
á Breiðafírði til þess að geta helgað
sig sagnalistinni eftir að hafa skrif-
að a.m.k. sögu tveggja Noregskon-
unga. Á Fagurey varð _ Sturlunga
til og margar snjöllustu íslendinga-
sögur, sem gerst höfðu á undan,
eins og Eyrbyggja, Grettis saga og
sennilega Njála. Sumar vom sög-
umar frumskráðar en aðrar urðu
til með þeim hætti, að sögubrot,
sem aðrir höfðu skráð, vom lag-
færð og færð saman í eina heild,
svo að úr varð mikil saga.
Nokkur hluti EyrByggju nær til
mannlífs á söguöld í víkinni milli
Ólafsvíkurennis og Búlandshöfða á
Snæfellsnesi, en hana kölluðu Dan-
ir Gömluvík, sem síðan um seinustu
aldamót hefur borið nafnið Fróðár-
hreppur. Fróðárhreppur varð til
vegna þess, að kirkjustaðurinn var
fluttur frá Fróðá til Ólafsvíkur, en
því undu Fróðhreppingar ekki, held-
ur stofnuðu nýtt hreppsfélag og
sókn, sem reisti nýja kirkju á Brim-
ilsvöllum.
Eyrbyggja hin eldri greinir frá
mikilli sögu, sem gerðist við
Gömluvík á söguöld. í þeim hluta
hennar er að fínna einhveijar bestu
mannlýsingar, sem til era í íslensk-
um bókmenntum, t.d. af Snorra
goða og Þórami svarta. Þar segir
frá mestu friðarhetju sem íslend-
ingar hafa átt, Auði í Mávahlíð, sem
missti hönd sína er hún var að bera
klæði á vopn í Mávahlíðarbardaga.
Þar er að fínna eina eftirminnileg-
ustu ástarsögu í íslertdingasögum,
söguna um ástir þeirra Þuríðar á
Fróðá og Bjöms Breiðvíkinga-
kappa. Hvergi hefur betur verið
lýst hatri tveggja kvenna, sem
leggja ást á sama manninn, hatri
þeirra Geirríðar og Kötlu, sem lauk
með því að Katla var grýtt í hel.
Þá segir _þar frá dularfyllstu at-
burðum á Islandi, Fróðamndmnum.
Nú virðist skammt undan að sögu
Fróðárhrepps sé að ljúka og að
hann sameinist Ólafsvíkurhreppi
aftur. En Átthagafélag Fróðár-
hrepps vill að saga hans geymist,
eða meira en sá þáttur hennar, sem
varðveittur er í Eyrbyggju. Þess
vegna hefur félagið haft forgöngu
um að þúsund ára saga Fróðár-
hrepps væri skráð og fengið til þess
þijá efnilega sagnfræðinga, sem til
þess hafa unnið verk sitt í sjálf-
boðavinnu eða líkt og Sturla Þórð-
arson þegar hann skráði Eyrbyggju.
Én það sér ekki á verki þeirra frek-
ar en á ritum Sturlu. Fyrra bindi
Fróðárhrepps sögu, sem kom út á
þessu ári, er frábært rit vegna vand-
aðrar sagnfræðilegrar vinnu og al-
þýðlegs og viðfelldins frásagn-
arstfls. Þar er því ekki ofmælt, að
hún lofar meistara sína eins og
Eyrbyggja. Hún sýnir og sannar,
að íslendingar eiga enn góða sagna-
menn.
Saga Fróðárhrepps í þúsund ár
er í raun saga Islandsbyggðar í
þúsund ár. Fyrst kemur saga land-
námsins. Landbúnaðurinn verður
mikilvægasti atvinnuvegurinn, en
fljótlega hefst þó sóknin í hin auð-
ugu fískimið, sem vom skammt
undan landi í Gömluvík. í kjölfar
hennar fer að myndast þéttbýli við
sjávarsíðuna. Fyrstu sjávarbyggð-
imar rísa í Ólafsvík og á Brimils-
völlum. Höfundar rekja þann þátt
sögu sinnar vel, enda hafa þeir
valið honum nafnið: Sjávarbyggð
undir Jökli. Saga Fróðárhrepps.
Höfundar þessa verks em þeir
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð-
ur, Eiríkur Guðmundsson sagn-
fræðingur og konrektor Fjölbrauta-
skóla Vesturlands og Jón Ámi Frið-
riksson sagnfræðingur og kennari
við Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki. Þeir eiga þakkir skilið fyrir
vandað verk sitt, er sómir sér vel
við hlið bestu rita um íslandssögu
í hvaða bókaskápi sem er. Frágang-
ur bókarinnar er vandaður og ber
vott um ræktarsemi þeirra FVóð-
hreppinga, sem hér hafa haft for-
göngu, Ólafs Kristjánssonar, Sig-
urðar Brandssonar og Bjama Ólafs-
sonar. Þeir hafa unnið fæðingar-
sveit sinni og landi gott verk.
Höíiindur er fyrrverandi ritsijóri.
Myndbönd til tón-
listarkennslu bama
GEFIN hafa verið út myndbönd
til tónlistarkennslu eftir Guðmund
Norðdahl tónlistarkennara, og er
þar um að ræða niu kennsluþætti
sem sýndir verða i sjónvarpinu á
næsta ári. Kennsluþættirnir heita
„Flautan og litirnir“ og eru ætlað-
ir yngstu kynslóðinni.
Ætlast er til þess að bömin syngi
og leiki á blokkflautur með mynd-
böndunum og einnig sjónvarpinu
þegar þættimir verða teknir til sýn-
inga eftir áramót. Myndböndunum
fylgir nótnahefti, sem em lita og
föndurbækur, ásamt blokkflautu.
Með aðstoð myndbandanna eiga böm
á aldrinum 6-9 ára að geta lært
bæði sönglög og ýmis undirstöðuat-
riði tónmennta með lítilli hjálp full-
örðinna. Þessi tónmenntafræðsla er
hugsuð sem heimilislærdómur og
skemmtan, en einnig sem innlegg í
tónmenntakennslu skólanna.
Fjöldi þekktra tónlistarmanna
ásamt bömum hafa unnið að gerð
kennsluþáttanna, en þau er hægt að
panta hjá flestum bókabúðum um
Iand allt, en kennslubók sem spannar
efni allra þáttanna fæst hjá Skólavö-
mbúðinni og ístóni.