Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
FORMÁLAR
ÍSLENSKRA
SAGNARITARA
Á MIÐÖLDUM
Sverrir Tómasson
Doktorsritgerö höfundar
um áhrif mælskulistar og
erlendra mennta á íslensk-
arfornbókmenntir.
MÆLTMÁL
OG FORN FRÆÐI
Bjarni Einarsson
Afmælisrit höfundar þar
sem einkum er fjallað um
sögur fornskáldanna Egils
Skallagrímssonar, Kor-
máks Ögmundssonar,
Hallfreðar vandræða-
skálds og Gunnlaugs orms-
tungu.
FÆREYINGA SAGA
Ólafur Halldórsson
bjó til prentunar
Vísindaleg útgáfa þessar-
ar frægu sögu sem er að
bókmenntagildi í fremstu
röð íslenskra miðaldarita.
STURLUSTEFNA
Bókin geymir níu erindi
sem flutt voru á málstefnu í
tilefni af sjöhundruðustu
ártíð Sturlu Þórðarsonar
sagnaritara, höfundar
islendingasögu Sturlungu
og Hákonarsögu Hákonar-
sonar. STOFNUN
ÁRNA
MAGNÚSSONAR
Bókaútgáfa
/HENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7 • REYKJAVÍK
SlMl 621822
Ný lög um leigubif-
reiðar í undirbúningi
í samgönguráðuneytinu hefiir undanfarið verið unnið að heildar-
endurskoðun á iögum um leigubifreiðar, og að sögn Helga Jóhanns-
sonar lögfræðings í ráðuneytinu er stefiit að því að Ieggja fram
frumvarp að nýjum lögum á Alþingi strax eftir áramót. Hann^ sagði
að þau lög væru mun ítarlegri en þau sem nú eru í gildi. í dómi
Hæstaréttar sem skýrt var frá í Morgunblaðinu s.l. þriðjudag taldi
meirihluti réttarins að brostið hefði heimild í lögum um leigubifreið-
ar til að ákveða með reglugerð að þátttaka í stéttarfélagi skyldi
vera skilyrði atvinnuleyfis.
„í lagafrumvarpinu verður skýrt
kveðið á um þetta sem Hæstiréttur
er að fetta fingur út í um að reglu-
gerðarákvæði nægi ekki, og í þeim
verða tekin af öll tvímæli um þetta.
Miðað við niðurstöðu dómsins segir
sig sjálft að þessi ákvæði verður
að hafa í lögum, err dómurinn virð-
ist ekki gera ráð fyrir því að óheim-
ilt sé að gera aðild að félaginu að
skyldu séu um það ákvæði í lög-
um,“ sagði Helgi Jóhannsson.
Ingólfur Ingólfsson formaður
Bifreiðastjórafélagsins Frama
sagðist aðspurður ekki vilja tjá sig
um dóm Hæstaréttar, en sagði þó
að hann kæmi sér mjög á óvart.
„Bifreiðastjórafélaginu Frama
hefur hingað til verið skylt að halda
uppi settum reglum um akstur
leigubifreiða samkvæmt reglugerð
frá samgönguráðuneytinu, og það
getur orðið erfitt að hafa eftirlit
með því að farið verði eftir þeim
reglum ef mönnum er ekki skylt
að vera í félaginu."
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins sagðist telja niðurstöðu
Hæstaréttar fullkomlega eðlilega
og sérstaklega væri það jákvætt
að rétturinn túlkaði mjög ákveðið
mannréttindaákvæði stjómarskrár-
innar.
„Okkur hefur fundist að á síðustu
árum hafi rétturinn um of skotið
sér hjá því að taka afstöðu til
ákvæðanna um atvinnufrelsi þegar
á það hefur reynt. Þama er sú kenn-
ing lögfræðinnnar formlega fest í
dóm og hefur þar með fengið laga-
gildi í reynd að sérhver ákvæði sem
takmarka mannréttindi þurfí að
hafa afar skýra lagastoð og beri
að túlka þröngt. Á síðustu árum
hefur verið gert allt of mikið af því
í þessu þjóðfélagi að setja hömlur
á atvinnufrelsi manna og takmarka
það þvert á meginboðskap stjómar-
skrárinnar um þetta efni. Hvað
okkar samningssvið varðar þá em
sumsstaðar ákvæði um það í kjara-
samningum að starfsmenn skulu
vera í stéttarfélögum, en eftir þenn-
an dóm er það fullkomlega ljóst að
þó starfsmaður ákveði að ganga
úr stéttarfélagi þá varðar það hann
engum réttindamissi," sagði Þórar-
inn.
Gísli T. Guðmundsson
Skáldsaga
eftir Gísla T.
Guðmundsson
ÚT ER komin bókin Undir stjörnu-
björtum himni eftir Gísla T. Guð-
mundsson póstfúlltrúa.
Bókin íjallar um alþýðufólk í sveit
á fyrstu tugum þessarar aldar. Höf-
undur er fæddur í Reykjavík en ólst
upp í norðlenskri sveit í aldarfjórðung
og tók m.a. virkan þátt í ungmennafé-
lagshreyfingunni.
Bókin er fyrsta skáldsaga höfund-
ar. Hún er 245 blaðsíður að stærð.
Bókaforlagið Letur hf. gefur bókina
út.
ítarleg úttekt á þrjátíu ára sögu
verslunarfjötra á íslandi, 1931-1960.
Sláandi bók sem dregur fram í dags-
Ijósið atburði og staðreyndir sem
margir hefðu kosið að legið hefðu i
þagnargildi áfram.
Hvað var „stofnauki nr. 13“?
Efldist SÍS í skjóii haftanna? Hvað
var „bátagjaldeyrir“? Hverjir voru
hinir „pólitísku milliliðir“? Hverjir
högnuðust á höftunum?
Jakob F. Ásgeirsson skrifar hér
æsilega og stórfróðlega bók um árin
þegar pólitísk spilling, smygl og
svartamarkaður grasseraði og öflug
hagsmunasamtök risu upp í öllum
áttum.
ÞJÓÐ í HAFTI. Er sagan að
pnrlnríoLíi cio?
eymohdssom
ÞJÓÐ í HAFTI
eftir Jakob F. Ásgeirsson
GÓÐ BÓK ER GERSEMI