Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
6?
hluti af ferðalögum um óbyggðir
íslands, og þótt hann hafi sjálfur
fyrir nokkrum árum hætt að fara
fyrir ferðahópum sínum sökum ald-
urs hefur þessu merki ferðaijörs, í
stíl brautryðjandans, ávallt verið
haldið hátt á lofti í ferðum á hans
vegum.
Með söknuði kveð ég nú kæran
vin, eftir áralöng kynni _og gott
samstarf. Aðstandendum Úlfars og
öllum sem um sárt eiga að binda
bið ég Guðs blessunar.
Ingi Gunnar Jóhannsson
Góður vinur minn hefur kvatt
okkur í lok jólaföstu. Úlfar Jacobsen
lést í Landspítalanum 15. desember
eftir rösklega mánaðarlegu. Úlfar
hafði marga hildi háð á sínum fjöl-
mörgu ferðum um hálendi íslands,
en eflaust hefur hinsta ferðin orðið
honum erfiðust og torsóttust á leið-
arenda. Það var erfitt hlutskipti
fyrir Úlfar, þegar hann fyrst veikt-
ist alvarlega fyrir rúmum þremur
árum, að horfast í augu við þá stað-
reynd að geta ekki lengur verið
heill í sínu starfí. Fyrir jafn eljusam-
an mann sem Úlfar var og ham-
hieypu til allra starfa var ekki sárs-
aukalaust að standa frammi fyrir
orðnum hlut.
Úlfar Jacobsen fæddist í
Reykjavík 29. mars 1919, sonur
hjónanna Soffíu og Egils kaup-
manns Jacobsen. Ulfar hefði því
orðið sjötugur á næsta ári. Þótt
ætla mætti að hugur Úlfars myndi
beinast að kaupmennsku, þar sem
báðir foreldrar hans stóðu um ára-
tuga skeið framarlega í stétt kaup-
manna í Reykjavík, varð raunin
önnur. Að vísu stundaði Úlfar nám
í Verslunarskólanum og dvaldi um
tíma í Kaupmannahöfn til að kynn-
ast verslunarháttum þar í borg, en
áhugi hans virtist þrátt fyrir allt
stefna í aðrar áttir.
Snemma fór að bera á ævintýra-
þrá hjá Úlfari. Hann vildi reyna
ótroðnar slóðir, og var þá ekki kjör-
ið að fara ^ þær í orðsins fyllstu
merkingu. Úlfar fær til liðs við sig
ungt fólk, sem hefur áhuga á ferða-
lögum og þá sérstaklega að kanna
nýjar leiðir inn á hálendi íslands.
Ekið var á sterkbyggðum fjórhjóla-
drifnum bflum, sem hemámsliðið
hafði skilið hér eftir í lok stríðsins.
Má segja að hér hafi orðið þáttaskil
í ferðum um ísland og nýr kapítuli
hafist í ferðamálum. Það var mikill
hugur og bjartsýni ríkjandi hjá ung-
um manni á þessum árum. Úlfar
fékk nú þá hugmynd, hvort ekki
væri reynandi að kanna áhuga er-
lendra ferðamanna fyrir íslands-
ferðum og halda verði í skefjum
með því að bjóða upp á gistingu í
tjöldum og fá mat framreiddan úr
sérbyggðum eldhúsbíl.
Ekki var til setunnar boðið, því
fengi Úlfar einhveija hugmynd, þá
var um að gera að hrinda henni
strax í framkvæmd. Úlfar leggur
nú í víking á vit nýrra ævintýra,
sem urðu upphaf velgengni hans
og umsvifa þegar fram liðu stund-
ir. í Hamborg kemst hann í sam-
band við Waldemar Fast, sem rak
þar ferðaskrifstofu. Ekki reiknaði
herra Fast með miklum viðskiptum,
en þó urðu ‘ ferðamennimir, sem
hann sendi Úlfari fyrsta sumarið,
mun fleiri en bjartsýnustu vonir
leyfðu. Þessi viðskipti Úlfars og
Waldemar Fast urðu upphaf vináttu
og samskipta, sem aldrei bar
skugga á í nærfellt ijóra áratugi.
Waldemar Fast hefur lengi verið
þekktur og virtur maður innan
ferðamála í Þýskalandi og var um
tíma formaður samtaka þýskra
ferðaskrifstofa og alþjóðaforseti
Skál-klúbba, sem er alþjóðlegur
félagsskapur manna er starfa að
ferðamálum. Enda þótt herra Fast
sé nú búinn að draga sig í hlé frá
sínum ferðaskrifstofurekstri sökum
aldurs, þá hafa viðskipti Fast-Reis-
en við Úlfar Jacobsen ekki rofnað
eftir næstum fjöratíu ára samstarf.
Úlfar eignaðist mikinn fjölda vina
víða um lönd, enda jukust viðskipta-
samböndin smám saman og ferða-
langar famir að sækjast í ferðir
hans frá flestum Evrópulöndum og
jafnvel frá jjarlægum heimsálfum.
Vinsældir Úlfars vora það miklar,
að það kom ekki ósjaldan fyrir að
fyrirspumir bárast erlendis frá í
hvaða ferðum hann væri sjálfur
með sem bílstjóri. Var fólk jafnvel
tilbúið til að flýta eða seinka ferð
til þess að geta fengið að vera í
samfylgd Úlfars og njóta reynslu
hans í ferðum um landið.
Ferðir Úlfars í Öræfasveit um
páska urðu fjölmargar og vinsælar,
en lögðust af þegar sandar vora
brúaðir og hringvegur opnaðist
1974. Þetta vora miklar ævintýra-
ferðir í misjöfnu veðri og oft við
erfiðar aðstæður þegar mikið var í
ám og þær vægast sagt torfærar.
Úlfar var aufósugestur hjá mörgum
bændum í Öræfasveit og þá sér-
staklega hjá þeim Hofsbændum,
þar sem oftast var gist um páska.
Minntist Úlfar oft þessara ferða
með söknuði.
Úlfar hafði mikla ánægju af því
að umgangast fólk og tók nokkum
þátt í félagsstörfum. Hann var
meðal stofnenda Flugbjörgunar-
sveitarinnar og vildi veg hennar
sem mestan. Þá sat hann í stjóm
Félags íslenskra ferðaskrifstofa um
hríð og nú seinni árin í stjóm Kynn-
isferða. Það var engin lognmolla í
kringum Úlfar, og hann vildi hag
íslenskra ferðamála sem mestan,
enda þótt hann fengi sínum hugðar-
efnum ekki alttaf framgengt. Hann
var hrókur alls fagnaðar á góðra
vina stund, hafði skemmtilega frá-
sagnargleði og næmt skopskyn.
Árið 1946 urðu mikil þáttaskil í
lífi Úlfars þegar hann kvæntist eft-
irlifandi konu sinni, Bára Júlíus-
dóttur. Eignuðust þau fjögur böm,
sem öll era á lífi. Þau hjónin vora
mjög samhent í því að byggja upp
og efla hag ferðaskrifstofunnar, og
segja má að Bára hafi verið hægri
hönd manns síns í rekstrinum, enda
kunni Úlfar vel að meta ósérhlífni
hennar og dugnað.
Úlfar var mikill trúmaður þótt
hann bæri ekki slíkt á torg. Hann
var sannfærður um framhaldslíf,
og til merkis um það má geta þess
að síðasta bókin, sem hann las áður
en hann var lagður á sjúkrahús,
fjallaði einmitt um það sem tæki
við, þegar skilið er við þennan heim.
Nú þegar vinur minn, Úlfar
Jacobsen, leggur upp í sína hinstu
ferð um nýjar og ókunnar slóðir,
kveð ég með trega stórbrotinn og
ógleymanlegan persónuleika um
leið og ég þakka honum samfylgd
liðinna ára. Megi hann í friði fara.
Skarð er fyrir skildi. Ég votta Bára,
bömum hans og öðram ættingjum
samúð mína.
Njáll Símonarson
Jólabók sjómannsins
Bókin fjallar um sjómenn og sjómennsku og segir líka
frá afreki sjómanna í landi, sem mun eindæma og ekki
þekkjast með sjómannastéttum annarra landa.
„Sjómannadagurinn" hefur byggt yfir 630 gamalmenni
og veitir þeim skjól í ellinni.
Bók þessi er seld til ágóða fyrir „Minnisvarða óþekkta
sjómannsins" og fæst hjá sjómannafélögunum í
Reykjavík og Hafnarfirði og hjá happadrætti DAS.
Úti á landi fæst hún hjá kvennadeildum Slysavarna-
félagsins.
FRÍTT?
ryksuga
VERÐ FRÁ kr
dJFUSTRAUARN
VERÐ KR.
FALKIN N
jí/'
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI84670 ÞARABAKKI 3, SÍMI670100