Morgunblaðið - 16.03.1989, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAEZ 1989
Ríkissjónvarpið:
Huga að tilraunaútsend-
ingum á skjáupplýsingum
HJÁ Rikissjónvarpinu er nú verið
að huga að útsendingum á
skjáupplýsingum og sagði Eyjólf-
ur Valdimarsson framkvæmda-
stjóri tæknisviðs sjónvarpsins, að
hugsanlega verði hafnar tilrauna-
útsendingar á næsta ári.
Hér er um að ræða skrifaðar upp-
Stapavík:
100 tonn af
stórþorski
Siglufírði.
TOGARINN Stapavík SI landaði
hér nýlega rúmlega 100 tonnum
af stórþorski sem hann fékk á
Vestfjarðamiðum á einni viku.
Stapavík fékk þennan afla meðal
annars í Víkurál. Hins vegar er al-
veg steindautt hjá netabátum sem
gerðir eru út frá Siglufírði.
— Matthias
lýsingar sem viðkomandi sjónvarp-
seigandi getur kallað fram á skjáinn
sinn. Yfírleitt er um að ræða fréttir,
veður, upplýsingar um íþróttavið-
burði og aðra. Til þess að hægt sé
að gera þetta þarf sjónvarpstækið
að vera með sérstökum búnaði sem
getur breytt útsendingunni. Þannig
kemur fyrét fram á skjáinn valmynd
þar sem gefnir eru kostir á mismun-
andi upplýsingum. Með tækjabúnað-
inum er síðan hægt að fletta upp í
valmyndinni eftir því hvaða upplýs-
ingum er óskað eftir.
Eyjólfur segir að farið sé að selja
sjónvarpstæki með þessum útbúnaði
í nokkrum mæli hérlendis og er hann
yfírleitt til staðar í fjarstýringu þess-
ara tækja. Hann telur að hægt sé
að kaupa þennan búnað sér á ný
sjónvarpstæki en slíkt hafí nokkum
kostnað í fðr með sér.
„Málið hjá okkur er hinsvegar enn
skammt á veg komið og við erum
rétt að byija að huga að þessu. Til-
raunútsendingar munu ekki heíjast
hjá okkur fyrr en í fyrsta lagi á
næsta ári,“ segir Eyjólfur.
Morgunblaðið/Bjarni
Fyrsti fundur um samninga íbönkunum
Farið var yfír kröfúgerð Sambands bankamanna á fyrsta fúndi með viðsemjendum vegna væntan-
legra kjarasamninga i gær. Kröfúgerðin er í 29 töluliðum og er helsta krafan að endurheimta
kaupmátt eins og hann var í kjölfar samninga í júní á síðasta ári. Auk þess má nefíia kröfúr um
kaupmáttatryggingu, hækkun orlofs og yfírvinnugreiðslna, auknar greiðslur í fæðingarorlofi og
fæðingarorlof fyrir feður. Akveðið var að skipta samninganefndum aðila upp í tvær undimefíidir
og gert ráð fyrir að þær geti hittst í næstu viku. Félagsmenn í Sambandi bankamanna eru um 3.800.
Atvinnuleysisbætur voru
um 100 milljónir í februar
AÐEINS hefúr dregið úr at-
vinnuleysi á landinu öllu í febrú-
ar miðað við janúar. Þetta er
VEÐUR
VEÐURHORFUR / DAG, 16. MARS
YFIRUT f GÆR: Milli íslands og Noregs er 978 mb lægð á hreyf-
ingu austur, en hæðarhryggur yfir austanveröu Grænlandi þokast
austur. Nálgt Hvarfi er 998 mb lægð á leið norðaustur. Frost verð-
ur á bilinu 2 til 10 stig.
SPÁ: Hæg austan og suðaustanátt. Él við suðvesturströndina en
annars þurrt. Frost um allt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustanátt um land allt. Shjókoma víða
um sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítið á Norðaustur-
landi. Frost 0 til 5 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Breytileg átt. Él á víð og dreif um mest
allt land. Hití um eða rétt yfir frostmarki við suður- og vesturströnd-
ina, annars frost 0 tíl 4 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
1Q° Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
\J Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[~^ Þrumuveður
%n VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma httl v«éur Akureyrl +4 skýjað Reykjavfk +3 léttskýjað
Bargen 5 rigning
Helainkl 4 skýjað
Kaupmannah. s rignlng
Narssarasuaq +2 snjóél
Nuuk +6 snjókoma
Osló S hilfskýjað
Stokkhólmur 6 iéttskýjað
Þórshöfn 2 snjóél
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 9 skýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Beriín 8 rlgnlng
Chieago +1 alskýjað
Feneyjar 12 skýjað
Frankfurt vantar
Glasgow vantar
Hamborg vantar
Las Palmas 20 léttskýjað
London 11 skýjað
Los Angeles 11 Þokumóða
Lúxamborg 7 súld
Madríd 16 mlstur
Malaga 17 téttskýjað
Mallorca 17 skýjað
Montreel 7 alskýjað
New York 9 þokumóða
Orlando 14 þokumóða
Parfs 12 skýjað
Róm 13 skýjað
Vfn 11 skýjað
Washington 9 þokumóða
Winnipeg +23 skýjað
misjafíit eftir iandshlutum, at-
vinnuleysi eykst í höfúðborg-
inni en minnkar á landsbyggð-
inni. Samt sem áður voru at-
vinnuleysisbætur svipaðar í
febrúar og I janúar eða um 100
milljónir króna. Að sögn Eyjólfe
Jónssonar framkvæmdastjóra
Atvinnuleysistryggingarsjóðs
kemur þetta til vegna þess að
þeir sem fóru á atvinnuleysis-
skrá i lok janúar fóru ekki að
fá bætur fyrr en i byrjun febrú-
ar.
í febrúar voru skráðir 57 þús-
und atvinnuleysisdagar og er það
um 7350 dögum færra en skráðir
voru í janúar. Þessi fjöldi atvinnu-
leysisdaga jafngildir því að um
2600 manns hafí að meðaltali ver-
ið atvinnulausir í mánuðinum eða
2% af áætluðum vinnuafla.
í yfírliti frá Vinnumálastofiiun
félagsmálaráðuneytisins um at-
vinnuástandið segir m.a. að orsak-
ir þess að atvinnuleysi nú er a.m.k.
helmingi meira en eðlilegt er mið-
að við árstíma séu margvíslegar.
Bent er á hið efnahagslega um-
hverfi sem þjóðin býr við, gæftir
hafa verið stirðar og langvarandi
snjóalög hafa dregið úr útivinnu.
Síðan segir: „Það vekur hinsvegar
athygli að þrátt fyrir gæftaleysi
hefur skráðum atvinnuleysisdög-
um fækkað á öllum svæðum nema
höfuðborgarsvæðinu þar sem þeim
fjölgaði um 2200 daga. Þetta
bendir eindregið til þess að áhrif
þeirra uppsagna sem tilkynntar
voru fyrir síðustu áramót séu ekki
að fullu komnar fram.“
Óskar Hallgrímsson forstöðu-
maður Vinnumálastofnunar fé-
lagsmálaráðuneytisins segir að al-
mennt talað sé það athyglivert að
febrúar er fyrsti mánuðurinn um
langt skeið þar sem dregur úr at-
vinnuleysi. Hann er hinsvegar
óhress með að atvinnuleysisdögum
fjölgaði aftur í lok þess mánaðar.
Það er þó ofsnemmt að segja til
um hvort sú uppsveifla verði við-
varandi út þennan mánuð. Hið
ánægjulega við þessar tölur er að
samkvæmt þeim er fískvinnslan
úti á landi að vinna sig upp úr
þeirri lægð sem hún hefur verið í.
Gunnar Helgason forstöðumað-
ur Ráðningarskrifstofu Reykjavík-
ur segir að frá síðustu mánaðar-
mótum hafi heldur dregið úr at-
vinnuleysi í borginni. Þannig voru
790 á skrá 1. mars en voru 751
um miðjan mánuðinn. Hann segir
að atvinnuieysið sé mest hjá verka-
mönnum, verslunarfólki og fólki í
þjónustugreinum.
Hjón í fangelsi fyr-
ir brot gegn bömum
HJÓN um fertugt hafa verið dæmd til fangelsisvistar, maðurinn
í ellefú mánuði og konan í átta mánuði, fyrir brot gegn tveimur
stúlkum. Brotin voru talin varða við lög um vernd barna og ung-
menna og brot á almennum hegningarlögum. Eitt þessara brota
var fí-amið á sumardvalarheimili fyrir börn í Svefíieyjum á Breiða-
fírði, sem hjónin ráku. Þrír mánuðir af fangelsisdómi mannsins
eru óskilorðsbundnir, en tveir af dómi konunnar. Afgangur refe-
ingar er skilorðsbundinn til þriggja ára.
Um var að ræða kynferðisleg stöðumanna eða starfsmanna
brot hjónanna, önnur en samræði,
gegn tveimur stúlkum, fæddum
1978 og 1973. Brotin, alls sex
talsins, voru framin á árunum
1985 til 1987 og flest á heimili
hjónanna í Hafnarfirði. Tvö tilvi-
kanna áttu hjónin sameiginleg, en
að auki var hvort um sig dæmt
fyrir tvö brot.
Hjónin voru fundin sek um brot
gegn 45. grein laga um vemd
bama og ungmenna, sem kveður
á um að ef maður viðhafí í návist
bams eða ungmennis ósiðlegt,
ruddalegt eða ósæmilegt orðbragð
eða athæfi, erti það eða dragi dár
að því eða særi það á ósæmilegan
hátt eða beiti það refsingum, ógn-
unum eða hótunum og slíkt orð-
bragð eða athafnir megi telja því
skaðsamlegar andlega eða líkam-
lega, þá varði það sektum, varð-
haldi eða fangelsi allt að 3 árum.
Þá var einnig sakfellt fyrir brot
gegn 47. grein sömu laga, sem
flallar meðal annars um brot for-
barnaheimilis gegn bömum og
ungmennum undir 18 ára aldri í
þeirra forsjá. Loks taldi dómarinn
brot hjónanna í sumum tilvikum
varða við 209. grein hegningar-
laga, um að hver, sem með lostugu
athæfí særi blygðunarsemi manna
eða sé til opinbers hneykslis, skuli
sæta fangelsi allt að þremur árum,
varðhaldi eða sektum. Þá vom þau
talin brotleg við ákvæði hegning-
arlaga um önnur kynferðismök en
samræði.
Guðmundur L. Jóhannesson,
sakadómari í Hafnarfirði, kvað
upp dóminn. Dómurinn var kveð-
inn upp þann 16. febrúar sl., en
samkvæmt upplýsingum dómar-
ans voru ýmsar ástæður fyrir því
að hann var ekki birtur hinum
dæmdu fyrr en nú. Hjónin hafa
tekið sér 15 daga frest til að
ákveða hvort þau una dóminum.
Ef þau gera það er eftir að sjá
hvort ákæruvaldið gerir slíkt hið
sama eða áfrýjar til Hæstaréttar.