Morgunblaðið - 16.03.1989, Blaðsíða 47
93<2I SflAM c'I HUOAQUTMMJH GIQAJHMUOHOM Öt
MÖRGUNBLAÐIÐ' FIMMTUDA'GUR '1'6'. 'MARZ ' í989 ..................................47
Standardsagna-
kerfiðíbrids
eftirÞórarin
Guðmundson
Nýlega rak óvænt á fjörur mínar
bókina „Standardsagnkerfið í
brids" eftir Guðmund Pál Amarson,
sem Bridsblaðið gaf út í janúar sl.
í samræmi við íslenska hefð var ég
fljótur að reka augun í ýmsa van-
kanta við ytra útlit bókarinnar.
Letrið var mér ekki að skapi og við
nánasarlega leit tókst mér að fínna
nokkrar prentvillur. Ég sá þó fljótt,
að þetta var allt bætt upp með lágu
verði, auk þess sem gormabindingin
og stærð bókarinnar gera það að
verkum, að hún fer vel í hendi.
Þegar ég hóf lestur bókarinnar,
gleymdust fljótt þeir lítilfjörlegu
gallar, sem ég taldi mig finna.
Auðlesinn stíll höfundar sá til þess
að ég gat ekki rifið mig frá bókinni
fyrr en ég hafði lokið verulegum
hluta hennar. Djúpur skilningur
hans á viðfangsefninu skein í gegn
á hverri blaðsíðu og öll framsetning-
in bar vott um þjálfun í að miðla
rejmslu og þekkingu til annarra.
Ég hefi undir höndum nokkrar er-
lendar bækur um hliðstætt efni, og
fínnst mér bók Guðmundur jafnast
á við þær bestu. Liggur það fyrst
og fremst í því hversu vel honum
tekst að skýra í stuttu máli og án
óþarfa málskrúðs tilgang einstakra
sagna.
Meginhluti bókarinnar er helgað-
ur því að byggja upp eðlilegt sagn-
kerfi. Kerfi þetta er yfírleitt nefnt
„Standard" hér á landi, og er það
„Bókin auðveldar spil-
urum mjög að ná góðu
valdi á sögnum, sem
hefur nákvæmnina upp
í æðra veldi. “
án efa mest spilaða sagnkerfið í
heiminum í dag. Gerð er ítarleg
grein fyrir uppbyggingu kerfisins
og tilgangur einstakra sagna skýrð-
ur, eins og áður var minnst á. Enn-
fremur er gerð grein fyrir ýmsum
valkostum. Síðan kemur viðauki,
en í honum er gerð grein fyrir
nokkrum sagnvenjum, sem falla vel
að kerfinu. I lokin er svo stutt yfir-
lit yfír útfærslur kerfisins.
Ég tel að bók þessi eigi erindi
til flestra spilara. Éins tel ég æski-
legt, að sem flestir tileinki sér efni
hennar. Ekki þarf að fjölyrða um
kosti þess, að til sé eitt sagnkerfí,
sem flestir geti spilað. Slíkt kerfí
þarf að vera eðlilegt, eins og
„Standard", og ekki skaðar það
hversu kerfi þetta er útbreitt um
alla heimsbyggðina. Bókin auðveld-
ar spilurum mjög að ná góðu valdi
á sögnum, sem hefur nákvæmnina
upp í æðra veldi. Það er skilyrði
þess að geta haft sömu ánægju af
sögnum og úrspili, sem tvöfaldar
ánægjuna af þessu spili spilanna.
Höfúndur er menntaskólakennari.
' . ‘ :*
JHEPvl REDDING
HÁRSNYRTIVÖRUR
FÁST í '
SNYRTIVÖRUVERSLUNUM
OG APÓTEKUM
"
JHERI REDDING
KRAFTAR
NÁTTÚRUNNAR
AD VERKl
REDDWG KN REDDING'
________ EXTRA .
ATIVE HERASPRITI
Xujf^ EXTRA firm
REDWS' MPOO fiNBHING 5PRAV
H 5.75 '
ATE CLEANSING | IHE OPTIMUM FINISHING
--- RI2ING SHAMPOO JWW WlTH NATURfS OWN
STRUCTOR "ga, FFF™ OOTANICAD
mONEft
BILL FRA HEKLU BORGAR Slt
HEKLAHF ™A
L»ugave9i 170-172 Simi 695500 gg. 884.000.
enn meirí háttar
OSTATILBOÐ
stendur til 21. mars
nú eru það smurostarnir, 3 dósir í pakka
Rækju-, sveppa- eða 3 ostategundir í pakka
Áður kostuðu 3 dósir ca^^ílTkr., nú 290 kr.*
yfir 20% lækkun.
Beikonostur
Áður kostuðu 3 dósir ca. 42<kr., nú 330 kr.*
yfir 20% iækkun. x
—
Rætóu
ostur
—V*
Produce of lceland
BeikonjÖ
ostur^
produce of Iceland
tSveppa
ostur
Produce of Iceland
r—>
Produce
of Iceland